Morgunblaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2003 39
Opið
mán.–fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17
Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir.
Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl.
www.fjarfest.is - fax 562 4249
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ehf.
Sími 562 4250, Borgartúni 31
Suðurhvammur - bílskúr Kom-
in er í sölu stórglæsileg 6 herb. íbúð á
tveimur hæðum ásamt 36 fm bílskúr.
Glæsilegt útsýni. Íbúðin er mjög vönduð í
alla staði. Verð 19,9 millj. Póstnr. 220
Kleppsvegur - við Sæviðar-
sund Björt 4ra herb. íbúð í mjög góðu
ástandi á 1. hæð í góðu fjölbýli. Suðv.
svalir og sérlega stór og góð baklóð. Verð
13,4 millj. Póstnr. 104
2ja-3ja herbergja
Bergstaðastræti - NÝTT Til
sölu 3ja herb. íbúð á besta stað í miðbæ
Reykjavíkur. Íbúðin er afhent fullbúin með
vönduðum innréttingum og flísum á baði,
en án gólfefna að öðru leyti. Lyftuhús.
Húsið er álklætt að utan að hluta og sam-
eign er frágengin. Möguleiki á að fá lán frá
byggingaraðila á eftir húsbréfum. Póstnr.
101
Tjarnargata - miðbær Mjög
skemmtileg og vel skipulögð 3ja herbergja
íbúð á þessum vinsæla stað í miðbæ
Reykjavíkur. Verð 11,9 millj. Póstnr. 101
Njálsgata - einstaklingsíbúð
Vel skipulögð einstaklingsíbúð á þessum
góða stað. Eldhúskrókur og baðherbergi.
Verð 4,5 millj. Póstnr. 101
Skeljagrandi - 2ja herb. Góð
2ja herbergja íbúð ásamt stæði í bíla-
geymslu. Verð 9,9 millj. Póstnr. 107
Asparfell - bílskúr Góð 3ja herb.
íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi ásamt bílskúr.
Mjög mikið og gott útsýni. Suðvestur sval-
ir. Verð 11,7 millj. Póstnr. 111
Sólheimar - sérinngangur Vor-
um að fá í sölu á þessum vinsæla stað 3ja
herb. íbúð á jarðhæð. Gott sameiginlegt
þvottahús. Suðursólverönd og fallegur
garður. Verð 11,2 millj. Póstnr. 104
Einb., parhús og raðhús
Ásgarður - bílskúr Komið er á
sölu rúmgott ca 138 fm raðhús á tveimur
hæðum, tvennar svalir. Búið er að taka allt
húsið í gegn að utan. Stutt í alla þjónustu
og skóla. Verð 16,9 millj. Póstnr.108
Logafold - einbýli Komið er í sölu
ca 237 fm einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt tvöföldum bílskúr. 5 herb. Parket á
allri íbúðinni. Stór hellulögð verönd með
heitum potti. Stutt í alla þjónustu og skóla.
Verð 25,9 millj. Póstnr. 112
Seljabraut Vorum að fá í sölu raðhús
ásamt bílageymslu. Hægt er að hafa sér-
íbúð í kjallara. Steniklætt hús. Gott hús.
Hagstæð kaup. Verð 17,3 millj. Póstnr.
109
Selásbraut - bílskúr Komin er í
sölu 2ja hæða stórglæsilegt endaraðhús,
212,5 fm, sem er með ítölsku yfirbragði.
Þessi eign er fyrir fagurkera. Allar innrétt-
ingar eru sérpantaðar. Góður garðskáli.
Láttu þessa eign ekki frá þér fara. Póstnr.
110
Starengi - bílskúr Vorum að fá í
sölu fallegt raðhús með fallegum grónum
suðurgarði. Húsið er á einni hæð með inn-
byggðum bílskúr og stóru geymslurisi.
Stutt í alla þjónustu. Verð 19,4 millj.
Póstnr. 109
Miklabraut Komin er í sölu skemmti-
leg sérhæð í þríbýlishúsi ásamt aukaher-
bergi í kjallara. Allar endurbætur innan-
dyra hafa verið gerðar á sl. 2 árum. Húsið
að utan og þak í góðu standi. Póstnr. 105
4ra-6 herbergja íbúðir
Hvassaleiti - 3ja-4ra herb. Vel
staðsett og rúmgóð íbúð í fjölbýlishúsi
ásamt bílskúr. Verð 12,5 millj. Póstnr.
103
Ljósheimar - 4ra herb. Rúmgóð
og skemmtileg 4ra herb. íbúð í álklæddu
fjölbýlishúsi með lyftu. Verð 13,3 millj.
Póstnr. 104
Naustabryggja Komin er í sölu
„penthouse“-íbúð, ca 191 fm, 6 herbergja
á tveimur hæðum. Tvennar svalir. Stæði í
bílageymslu. Hnotuparket á allri íbúðinni.
Póstnr. 110
Arahólar - lyfta Komin er í sölu 4ra
herb. íbúð á fyrstu hæð með miklu útsýni.
Húsið og sameign í góðu ástandi. Verð
13,2 millj. Póstnr. 111
Kristnibraut - nýtt - lyftuhús
Ný 4ra herb. íbúð á þessum frábæra stað.
Verður afhent í júní 2003. Möguleiki á bíl-
skúr. Póstnr. 113
Naustabryggja 12-18-20-22 - nýtt
Nýjar og glæsilegar 3ja til 6 herbergja íbúðir, frá 95 fm upp í 218 fm „penthouse“-
íbúðir á tveimur hæðum. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á bað-
herbergi og í þvottahúsi, þar verða flísar. Íbúðirnar eru með vönduðum innrétting-
um. „Penthouse“-íbúðir verða afhentar tilbúnar til innréttinga. Allar íbúðirnar verða
með sérþvottahúsi. Bílageymslur fylgja öllum íbúðum. Að utan verða húsin álklædd.
Afhending Naustabryggju 12-18 í júlí 2003 og Naustabryggju 20-22 í mars 2003.
Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari uppl. hjá
sölumönnum Fjárfestingar. Póstnr. 110.
Nýkomið er á sölu stórglæsilegar íbúðir 3ja-4ra herb. 96,1 fm til 119,2 fm. Íbúðirnar
verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi þar verða
flísar. Í öllum íbúðum verður sérþvottahús og síma- og tölvutengi í öllu herbergjum.
Íbúðirnar eru með vönduðum innréttingum frá Brúnási. Hægt er að kaupa bílskúr.
Sérinngangur verður í hverja íbúð. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunn-
ars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Fyrstu íbúð-
irnar til afhendingar í júní 2003. Póstnr. 113
Kristnibraut 77-79 og 81-83
NÝTT - Lyftuhús - Grafarholti
Höfum hafið sölu á vönduðum og rúm-
góðum 3ja og 4ra herb. íbúðum í 15
hæða álklæddu lyftuhúsi. Mjög fallegt
útsýni. Góð staðsetning og stutt í alla
verslun og þjónustu.
Byggingaraðili er
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars.
Teikningar og nánari upplýsingar
hjá sölumönnum Fjárfestingar.
Póstnr. 201
Rjúpnasalir 14 – glæsilegt álklætt lyftuhús
Vantar eignir fyrir kaupendur. Mikil sala. Seljendur hafi samband við sölumenn okkar
WWW.FJARFEST.IS
FAX 562 4249
Iðandi dagar á Flúðum Ferðaþjón-
ustuaðilar í Hrunamannahreppi og
sveitarstjórn Hrunamannahrepps
standa að afþreyingardagskrá í
sumar er nefnist Iðandi dagar og
verður haldin dagana 19.–22. júní.
Dagskráin er á þessa leið: Á morg-
un, föstudaginn 20. júní, verður
kvikmyndasýning fyrir alla fjöl-
skylduna í Félagsheimili Hruna-
mannahrepps. Jónsmessugangan
verður kl. 23 og verður gengið á
Miðfell. Laugardaginn 21. júní verð-
ur börnum boðið í sund fyrir hádegi
og eftir hádegi verða hestar á staðn-
um og spákona mun spá fyrir fólki.
Traktorstorfæran verður um kl. 14
og einnig verður þá opnað sölutorg.
Um kvöldið verður varðeldur þar
sem tónlistarmaður mun stjórna
fjöldasöng. Á eftir verður slegið upp
balli á Útlaganum með Ingvari
,,papa“. Sunnudaginn 22. júní verður
börnum boðið í sund fyrir hádegi og
einnig verður boðið upp á gönguferð
um Flúðir. Jafnframt verður opið
fjós í Bryðjuholti frá kl. 10–13.
Fyrsta umferð um Uppsveitavíking-
inn hefst á Flúðum kl. 14. Garð-
yrkjustöðin Melar býður gestum og
gangangi að líta inn kl. 16–17.30.
Auk alls þessa verða í gangi ýmis til-
boð þjónustuaðila staðarins alla
helgina.
Öllum er velkomið að setja upp sölu-
bása eða vera með hvers konar
uppákomur án kostnaðar, segir í
fréttatilkynningu.
Landsmót fornbílamanna á Sel-
fossi verður sett föstudaginn 20.
júní kl. 20 á Kambabrún (gömlu) af
Geir Haarde fjármálaráðherra. Fé-
lagar úr Karlakór Selfoss taka lagið.
Að aflokinni setningu verður við-
stöddum boðið í göngu niður gömlu
kambana undir leiðsögn sagna-
mannsins Þórs Vigfússonar. Þetta
er létt ganga niður í móti, um 1,5
km, boðið verður upp á akstur til
baka að göngu lokinni. Allir vel-
komnir.
Landsmótið verður síðan á Selfossi
laugardaginn 21. júní. Dagskrá er á
www.betra.net/antik.
Á MORGUN
Bjartar nætur á Vatnsnesi Hið ár-
lega fjöruhlaðborð verður í Ham-
arsbúð í Húnaþingi vestra laug-
ardaginn 21. júní og hefst kl. 19:00.
Þar munu húsfreyjur á Vatnsnesi
reiða fram margvíslega rétti, flesta
tengda sjávarfangi. Hljómsveitin
SMS sér um tónlistarflutning í stór-
tjaldinu, kvæðamenn af Vatnsnesi
kveða stemmur, almennur söngur og
bögglauppboð. Gengið verður með
leiðsögn frá Illugastöðum, fram
Brandafell og niður í Hamarsbúð.
Gönguleiðin er um 13 km og verður
lagt af stað kl. 12. Hátíðin í Ham-
arsbúð við Hamarsrétt hefur öðlast
sess innan Bjartra nátta í Húnaþingi
vestra.
Á NÆSTUNNI
Þjóðargrafreitur og Þingvallalýs-
ingar Fimmtudagsgangan á Þing-
völlum í dag hefst við útsýnisskíf-
una við Hakið kl. 20 og lýkur við
þjóðargrafreitinn. Leiðsögumaður
verður Jón Karl Helgason bók-
menntafræðingur. Hann mun ræða
um sögulegt gildi Þingvalla í huga
Íslendinga og erlendra ferðamanna
á 19. öld, samband Jónasar Hall-
grímssonar og Einars Bendikts-
sonar við þennan sögufræga stað
og tildrög þess að ákveðið var að
grafa skáldin tvö í þjóðargrafreitn-
um á árunum 1940–1946.
Sumarganga skógræktarfélag-
anna verður í dag, fimmtudaginn
19. júní, kl. 20 og er mæting við
vesturenda Hvaleyrarvatns við hús
bæjarins (grænt). Farið verður, í
fylgd fararstjóra, um land-
græðsluskógasvæði Skógrækt-
arfélags Hafnarfjarðar í Seldal og
nágrenni. Áætlað er að gangan taki
um tvo tíma. Boðið verður upp á
hressingu í lok göngunnar. Gangan
er á vegum Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar. Skógargöngurn-
arnar eru léttar göngur, við allra
hæfi, ókeypis og öllum opnar. Nán-
ari upplýsingar á heimasíðu Skóg-
ræktarfélags Íslands, www.skog.is.
Gengið um bakka Norðurár UM-
SB stendur fyrir göngu í samstarfi
við Veiðimálastofnun vesturlands-
deild í dag, fimmtudaginn 19. júní.
Gengið verður um bakka Norðurár
og skoðaðar náttúruperlur sem þar
finnast. Gangan hefst við fossinn
Glanna en þangað er um 20 mín-
útna akstur frá Borgarnesi. Beygt
er út af þjóðvegi 1 til hægri stuttu
áður en komið er að Bifröst. Ekið
er niður afleggjara merktan foss-
inum Glanna og verður gengið frá
bílastæðinu fyrir ofan Glanna.
Leiðsögumaður í ferðinni er Sig-
urjón Valdimarsson, formaður
Veiðifélags Norðurár.
Í DAG
LEIÐRÉTT
Leikstjóri
Regínu
Í dagskrárkynningu sl. þriðjudag
var rangt farið með nafn Maríu Sig-
urðardóttur, leikstjóra kvikmyndar-
innar Regínu, þar sem millinafninu
Sólrún var bætt við. Er María beðin
afsökunar á þessari rangfærslu.
Rangt
heimilisfang
Vegna mistaka í vinnslu blaðsins
birtist rangt heimilisfang undir bréfi
til blaðsins sem birtist laugardaginn
14. júní síðastliðinn. Heimilisfang
bréfritara var sagt vera Skeiðarvog-
ur 13 en rétt heimilisfang hans er
Skeiðarvogur 135. Eru hlutaðeig-
endur beðnir afsökunar á þessum
mistökum.
Ljósmyndir
Katrínar Elvarsdóttur
Seinni hluti ljósmyndasýningar
Katrínar Elvarsdóttur, Lífsandi,
stendur yfir á Mokka. Fyrri hlutinn
var á sýningunni Ljós-hraði í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur í febrúar.
Misskilnings gætti í frétt í blaðinu á
laugardag. Beðist er velvirðingar á
því.
Nám við
Snyrtiskólann
Sagt var ranglega í frétt blaðsins
sl. föstudag af undirritun samnings
milli Snyrtiskólans í Kópavogi og
menntamálaráðuneytisins, að nám í
eina önn við skólann kostaði 625 þús-
und en rétt er að námið kostar 500
þúsund. Leiðréttist þetta hér með.
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLINN á
Hvanneyri hefur gert samning við
tvo fjölbrautaskóla um skilgreinda
námsleið fyrir nemendur með bú-
fræðipróf til stúdentsprófs. Þannig
á búfræðiprófið nú að nýtast full-
komlega sem hluti af stúdentsprófi,
skv. upplýsingum skólans, og hægt
er að taka stúdentspróf og búfræði-
próf á níu önnum samtals.
Samningarnir sem gerðir hafa
verið eru við Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi og Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi og fyr-
irhugað er að gera samninga við
fleiri skóla.
Inntökuskilyrði fyrir nemendur í
búnaðarnám á Hvanneyri eru auk
18 ára aldurs 36 eininga grunnnám
í framhaldsskóla. Búfræðinámið og
viðbótarnámið eru samtals 155 ein-
ingar og er búfræðiprófið þar af 79
einingar. Umsóknarfrestur um
búnaðarnám við skólann rennur út
30. júní.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri.
Stúdentspróf
með búfræði-
áherslu