Morgunblaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ GuðmundurKristjánsson fæddist á Minna-Núpi í Vestmannaeyjum 11. maí 1914. Hann lést á Landspítalan- um í Fossvogi 5. júní síðastliðinn. Guð- mundur var elsta barn hjónanna Krist- jáns Jónssonar skó- smiðs frá Dölum í Vestmannaeyjum, f. 17.4. 1888, d. í mars 1922, og Guðnýjar Guðmundsdóttur frá Skálakoti undir Eyja- fjöllum, f. 29.3. 1890, d 25.12. 1985. Guðmundur átti fjórar systur og er ein þeirra á lífi, Guðlaug Alda. Árið 1941 kvæntist Guðmundur Rósu Ágústsdóttur frá Reykjavík, f. 25. júní 1915, d. 3. maí 1964, dótt- ur Ágústs Fr. Guðmundssonar skó- smiðs og Maiendinu G. Kristjáns- dóttur. Guðmundi og Rósu varð þriggja barna auðið. Þau eru: l) Ragnar Kristján, f. 1942, býr í Hafnarfirði, kvæntur Báru Sigurð- ardóttur, þau eiga þrjú börn; 2) Kolbrún, f. 1944, býr í Mosfellsbæ, gift Gunnlaugi K. Hreiðarssyni, þau eiga þrjú börn; 3) Guðný Helga, f. 1953, býr í Reykjavík, mað- ur hennar er Finnur P. Fróðason. Guðný Helga var gift Gunn- ari Jóhannessyni og eiga þau tvær dætur. Guðmundur og Rósa slitu samvistum. Árið 1976 kvæntist Guð- mundur Hansínu Mettu Kristleifsdótt- ur frá Efri-Hrísum í Fróðárhreppi, f. 25. maí 1918, d. l. maí 1997. Hansína átti sjö börn með fyrri manni sínum, Guð- birni Halldórssyni, sem lést árið 1960. Guðmundur ólst upp í Vest- mannaeyjum og á sínum yngri ár- um stundaði hann þar ýmis störf, bæði til sjós og lands. Um tvítugt fluttist hann til Reykjavíkur og vann sem bílstjóri við Mjólkursam- söluna í Reykjavík til margra ára. Einnig vann hann sem vélamaður á millilandaskipum. Útför Guðmundar fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Standið ekki við gröf mína og fellið tár. Ég er þar ekki. Ég sef ekki. Ég er vindurinn sem blæs. Ég er demanturinn sem glitrar á fönn. Ég er sólskin á frjósaman akur. Ég er hin milda vorrigning. Þegar þú vaknar í morgunkyrrð er ég væringjaþytur fuglanna. Ég er stjarnan sem lýsir á nóttu. Standið ekki við gröf mína og fellið tár. Ég er þar ekki, ég lifi. Elsku pabbi, er við fórum þriðju- daginn 3. júní sl. í kaffisamsæti í Mjólkursamsölunni, þar sem eldra starfsfólki sem hætt er að vinna vegna aldurs er boðið á ári hverju, hvað þú varst ánægður og sæll að fara. Þar tók forstjóri Mjólkursam- sölunnar á móti okkur og bauð okkur velkomna. Þarna hittir þú gamla starfsfélaga sem enn eru að vinna. Þeir sögðu þér allar breytingar sem gerðar hafa verið síðan þú varst að vinna þar. Þú varst ánægður og glað- ur er þú fórst þaðan í síðasta sinn. Forstjóri og starfsfólk, hafið þökk fyrir. Ekki datt mér þá í hug að þetta væri síðasta samverustund okkar feðga hér á jörð. Daginn eftir fórstu svo í annað ferðalag og þá með Þorra- seli, þar sem þú varst þrisvar í viku og kallaðir alltaf vinnuna þína. Þar varst þú alltaf eitthvað að gera, mála á svuntur, kodda, herðatré, búa til mottur, sem þú hafðir svo gaman af að gefa svo okkur börnum þínum, tengdabörnum, afabörnum og lang- afabörnum. Þá fórst þú í annað kaffi- samsæti með vinum þínum og starfs- fólki í Þorraseli en nú til Þingvalla. Þú vildir sko ekki missa af því þótt fæt- urnir væru farnir að gefa sig og ég veit að sú ferð hefur verið þér ánægjuleg og dýrmæt, með vinum þínum og starfsfólki í Þorraseli, sem þér þótti svo vænt um. Viljum við systkinin þakka starfsfólki Þorrasels fyrir frábært samstarf og góða umönnun við föður okkar á undan- förnum árum. Er Guðný systir kom til þín um kvöldið varst þú orðinn veikur, farið var með þig á Borgar- spítala og daginn eftir, hinn 5. júní, sofnar þú og ferð í þína þriðju og síð- ustu ferð á þessari jörð. Mér datt í hug máltækið „allt er þegar þrennt er“, því þínar þrjár síðustu ferðir voru þér ánægjulegar. Pabbi minn, nú veit ég að þér líður vel og það hefur verið tekið vel á móti þér. Þú varst ekki hár í loftinu, það fór ekki mikið fyrir þér, en þú varst hraustur og sterkur. Þegar Kolla og Guðný fóru með þig í læknisskoðun og læknir spurði hvaða meðal eða pill- ur þú notaðir varstu fljótur að svara: „Svoleiðis drasl nota ég ekki, fæ mér frekar í annan fótinn og læt mér líða vel.“ Enda áttir þú yndislega dóttur, sem á seinni árum sá dásamlega vel um þig, sama hvað var. Hún mætti til þín á morgnana áður en þú fórst í þína vinnu, var alltaf með opna arma sína fyrir þig. Elsku Guðný mín, án þín hefði pabbi okkar ekki getað látið sér líða svona vel síðustu árin. Hafðu ástarþakkir frá mér og Kollu systur fyrir allt sem þú gafst pabba. Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, sál mín lyftist upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífíð gefur, Og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar, yfir lífinu. (Ók. höf.) Elsku pabbi, takk fyrir allt. Þinn sonur, Ragnar. GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON ✝ Kristín Svafars-dóttir fæddist í Sandgerði á Akra- nesi 21. júní 1924. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 11. júní síð- astliðinn. Foreldrar Kristínar voru Svaf- ar Þjóðbjörnsson, f. í Deildartungu í Reyk- holtsdal 14. nóvem- ber 1888, en alinn upp í foreldrahúsum á Neðra-Skarði í Leirársveit í Borgar- firði, d. 1. maí 1958, og Guðrún Finnsdótt- ir, f. á Sýruparti á Akranesi 30. júlí 1885, en alin upp á Geldingará í Leirársveit í Borgarfirði, d. 25. apr- íl 1942. Þau bjuggu allan sinn bú- skap í Sandgerði á Akranesi. Syst- ur Kristínar eru: Guðríður, f. 19. september 1915, Guðfinna, f. 3. apr- íl 1918, d. 6. september 1999, Stein- unn, f. 27. apríl 1920, d. 3. júlí 1957, Sesselja, f. 31. ágúst 1922, d. 4. jan- úar 2000, Lilja, f. 30. júní 1926, og Sigríður, f. 22. desember 1927, d. í maí 1928. er látin. Kristín fæddist í foreldra- húsum í Sandgerði á Akranesi og ólst upp í stórum systrahópi, ein sex systra sem komust til fullorðinsára, allt þar til hún giftist. Hún naut ekki mikillar menntunar, sökum sjúkleika í æsku, en lauk venju- bundinni skólagöngu til fermingar og unglingaprófs, en fór síðan að vinna ýmiskonar þjónustustörf þar til hún gerðist húsmóðir á heimili sínu á Vitateig 5 og síðast á Skarðs- braut 9 á Akranesi. Þegar börnin fimm fóru að stálpast fór hún að vinna ýmis störf. Hún vann í fiski af og til, síðar við afgreiðslu í versl- unum og síðustu 27 starfsárin vann hún á Sjúkrahúsi Akraness, fyrst við ræstingar og í um tuttugu ár við umönnun á E-deildinni, sem er umönnunar- og hjúkrunardeild sjúkrahússins. Kristín starfaði mik- ið að félagsmálum í heimabyggð sinni. Hún var einn af stofnendum Skíðafélags Akraness ásamt manni sínum og starfaði fyrir það þau ár sem það var og hét. Hún var um nokkurra ára bil í samninganefnd um launamál í Verkalýðsfélagi Akraness. Einnig starfaði hún í mörg ár í Kvenfélagi Akraness og Slysavarnafélagi Akraness og að öðrum velferðarmálum á Akranesi. Útför Kristínar verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Kristín giftist, 8. júní 1946, Jóhanni Ólafi Péturssyni húsa- smíðameistara, f. á Eyjólfsstöðum í Vatns- dal í Austur-Húna- vatnsýslu 29. desem- ber 1920, d. 20. ágúst 1994. Börn Kristínar og Jóhanns eru: Guð- rún, f. 16. júlí 1944, gift Guðmundi Sigurði Samúelssyni, þau eiga þrjá syni og fjögur barnabörn; Þuríður, f. 26. febrúar 1946, gift Símoni Páli Aðal- steinssyni og eiga þau fjögur börn og tíu barnabörn; Finnur, f. 20. október 1947, kona hans er Ragn- heiður Sigurðardóttir, hann var áð- ur kvæntur Hrefnu Ingólfsdóttur, d. 29. júlí 1988, hann á þrjá syni og þrjú barnabörn; Svafar, f. 1. júní 1952, áður kvæntur Kristínu Snæ- björnsdóttur, þau skildu, þau eiga þrjú börn og þrjú barnabörn; Pét- ur, f. 28. febrúar 1954, kvæntur Sigurveigu Kristjánsdóttur og áttu þau þrjú börn en eldri dóttir þeirra Kæra tengdamamma. Þar sem leiðir okkar skiljast nú um stundarsakir langar mig til að rifja upp minningar frá okkar fyrstu kynnum þegar ég fór að venja kom- ur mínar á heimili þitt og njóta vel- vilja og umhyggju þinnar í minn garð. Það var nokkrum mánuðum eftir að við Guðrún trúlofuðum okkur að hún fór til Reykjavíkur í Hús- mæðraskólann og þú bauðst mér að koma og búa á heimili þínu á meðan. Ég varð þess fljótt áskynja að ég hafði eignast aðra mömmu, og það með stórum staf. Ég varð oft undr- andi yfir þolinmæði þinni og fjöl- skyldunnar með þessum gaur, sem lét fara mikið fyrir sér með sífelld- um æfingum á klarínett á kvöldin og um helgar, og að ég tali nú ekki um alla þjónustuna við mig, sem vann á vélaverkstæði Sementverksmiðj- unnar, alltaf skítugur upp fyrir haus. Þar sem ég var búinn að missa föður minn, og móðir mín bjó á Ísa- firði, var það mjög notalegt að hreiðra um sig á heimili þínu og njóta umhyggju þinnar. Eftir að við Guðrún fórum að búa var afar auðvelt að leita til þín, þeg- ar við þurftum á að halda, hvort sem var að passa fyrir okkur drengina eða eitthvað annað. Ekki var það nú þannig að þjónustulund þín væri þinn eini kostur, því þá hafðir þú í ríkum mæli. Ég hafði mjög gaman af því að fylgjast með þér, þegar eitthvert gamanmál bar á góma, þá geislaðirðu og húmorinn sauð í brjósti þér, alltaf tilbúin að glettast. Afburðadugleg varstu og sam- viskusöm við allt sem þú tókst þér fyrir hendur, hvort sem var á heim- ilinu eða í félagsstörfum. Þessu er líklega best lýst með orðum sem Guðrún sagði mér að hún hefði oft hugsað, þegar hún var lítil: „Mikið vildi ég að hún mamma væri ein- hvern tímann löt.“ Frændrækni þín var mjög mikil, og þú stóðst ávallt í fararbroddi þeg- ar ástæða var til að kalla saman frændfólk þitt, var þá alltaf glatt á hjalla. Sérstaka aðdáun hafði ég á þeim hæfileika þínum að muna eftir afmælisdögum í þinni stóru ætt og sinna þeim. Það var erfitt að horfa upp á það hvernig sjúkdómur sá, er nú hefur tekið þig frá okkur aðstandendum þínum, smám saman náði yfirhönd- inni, og geta enga rönd við reist. Að sjá öryggisleysi þitt og minnisleysi sífellt aukast, þar til sambandsleysið varð algjört. Vonandi gefur Guð það, að læknavísindin nái tökum á þess- um illvíga sjúkdómi. Ég vil mæla fyrir hönd allrar fjöl- skyldunnar, er ég lofa og þakka þá frábæru umönnun sem þú naust á E-deild Sjúkrahúss Akraness, þín- um gamla vinnustað, þar bar aldrei skugga á. Hjartans þakkir til allra er önnuðust þig. Ég vil svo að lokum þakka þér alla umhyggjuna og velgjörninginn í minn garð og fjölskyldu minnar. Ég óska þér góðrar ferðar á æðra tilverustig. Vonandi hittumst við þar þegar minn tími kemur. Guð geymi þig. Þinn tengdasonur, Guðmundur Sigurður Samúelsson. KRISTÍN SVAFARSDÓTTIR ✝ Guðríður SigrúnAnna Benedikts- dóttir fæddist á Drangsnesi í Kaldr- ananeshreppi 22. júlí 1937. Hún lést á heimili sínu á Ísa- firði mánudaginn 9. júní síðastliðinn. Hún var elsta barn foreldra sinna, Benedikts Sigurðs- sonar, f. 1. október 1899 á Bakka í Kaldrananeshreppi, d. 8. október 1965, og Hjálmfríðar Lilju Jóhannsdóttur, f. 22. nóvember 1913 á Gjögri í Árneshreppi í Strandasýslu, d. 29. júlí 2000, er var seinni kona Benedikts. Alls voru systkini og hálfsystkini Guð- ríðar 21. Eftirlifandi eru 16. Guðríði varð átta barna auðið. Þau eru: 1) Benedikt Birgir Sverr- isson, f. 25. júní 1958, faðir Hreinn hanns Andréssonar, f. 18. ágúst 1905 á Neðri-Brunná, Saurbæjar- hreppi í Dalasýslu, d. 8. janúar 1973, og Guðmundu Kristveigar Guðjónsdóttur, f. 26. maí 1907 í Litlu-Ávík í Árneshreppi í Strandasýslu, d. 5. mars 1988. Börn Guðríðar og Andrésar eru: 3) Vilborg, f. 21. ágúst 1964, fv. eiginmaður Sigurður H. Karlsson og eiga þau tvær dætur og eitt barnabarn, gift Kristni Þórði Elí- assyni og eiga þau einn son. 4) Jó- hanna Berglind, f. 12. september 1965, gift Óla Þór Jónssyni og eiga þau tvö börn. 5) Örn Óli, f. 27. ágúst 1967, sambýliskona Dagný Sigurlaug Ragnarsdóttir og eiga þau tvö börn. 6) Jórunn Lilja, f. 22. október 1969. 7) Jóhann Sólmund- ur, f. 6. febrúar 1972, barnsmóðir Rakel Óladóttir og eiga þau eina dóttur. Sambýliskona hans er Sæ- unn Kolbrún Guðmundsdóttir og eiga þau eina dóttur ásamt fóst- urdóttur Jóhanns, dóttur Sæunn- ar. 8) Fríða Birna, f. 17. mars 1974, gift Guðmundi Jóni Mark- ússyni og eiga þau tvö börn. Guðríður verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Sverrir Lárusson, f. 16. september 1937 í Strandasýslu, d. 12. september 1998. Fyrr- verandi eiginkona Benedikts er Jóhanna Kristín Arnþórsdóttir og eiga þau fjögur börn og tvö barna- börn. 2) Sigmundur Viðar Garðarsson, f. 12. apríl 1962, faðir Garðar Sigmundsson, f. 13. júlí 1927 á Vögl- um í Þelamörk í Eyja- fjarðarsýslu, d. 21. ágúst 1992. Barns- móðir Sigmundar er Hansína Jensdóttir og eiga þau eina dóttur. Hinn 9. apríl 1965 giftist Guð- ríður eftirlifandi eiginmanni sín- um, Andrési Júlíusi Jóhannssyni, f. 17. febrúar 1944 á Gíslabala í Árneshreppi í Strandasýslu, nú verkstæðis- og tækjamaður á Ísa- firði. Hann er sonur hjónanna Jó- Mamma, þú kvaddir okkur snöggt eins og hendi væri veifað, hér sit ég dofin og horfi á æskuheimili mitt svo tómt, engin mamma eða amma að snúast í kringum barnabörnin sín eða stóru andarungana eins og þér var svo tamt að tala um. Við erum að safnast saman eitt af öðru, stóri hóp- urinn þinn sem þú stjórnaðir af full- um krafti alla tíð í uppvextinum. Á svona stundu flýgur margt í gegnum huga minn í smáum brotum. Þú hafðir skoðanir á öllum hlutum, last mikið og fylgdist mikið með fréttum, fjölskyldan átti hug þinn allan og fylgdist þú vel með okkur öllum sem erum búsett á víð og dreif um landið, hvort sem það voru stóru börnin eða langömmubörnin, og taldir þú það ekki eftir þér að tala við hvert og eitt í klukkustund í senn. Ef veikindi voru í fjölskyldunni varst þú alltaf með hugann hjá okkur. Þú minntir okkur á það með stolti hvað það væri gott að vera Stranda- maður og fórum við systkinin á hverju sumri í sumarfrí með ykkur pabba og voru þá Strandirnar fremstar í flokki en þar voru æsku- slóðir ykkar pabba. Þú varst býsna lagin í höndunum, hvort sem það var að sauma eða prjóna, enda nutum við systkinin þess að ganga í heimasaumuðum föt- um og fallega útprjónuðum peysum langt fram eftir aldri. Ég man svo vel eftir þegar ég eignaðist fyrstu búð- arbuxurnar mínar, þá var ég átta ára gömul. Þegar ég horfi til baka þá sér maður hörkukonu, fáir komast með tærnar þar sem þú hafðir hælana, þú varst mjög gestrisin og veittir vel enda var alltaf nóg til af öllu. Við systkinin erum enn að borða jóla- kökurnar og kleinurnar eftir þig sem voru í frysti enda eru þær með ein- dæmum góðar og fást ekki betri. Elsku mamma, takk fyrir sam- fylgdina gegnum lífið, ég veit þú fylgist með okkur áfram en á annan hátt en áður. Nú er það mitt að varð- veita minningu þína og deila með börnum mínum, þeim Grétu og Vikt- ori, um ókomna tíð. Einnig munum við styðja við bakið á pabba eins vel og hægt er á þessari erfiðu stundu. Mamma, ég man hlýja hönd, er hlúðir þú að mér. Það er svo margt og mikilsvert, er móðuraugað sér. Þú veittir skjól og vafðir mig með vonarblómum hljótt. Því signi ég gröf og segi nú: Ó, sofðu vært og rótt. (Kristín Jóh. frá Syðra-Hvarfi.) Þín dóttir, Jóhanna. GUÐRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Guðmund Kristjánsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.  Fleiri minningargreinar um Guðríði Benediktsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.  Fleiri minningargreinar um Kristínu Svafarsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.