Morgunblaðið - 24.06.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 168. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Ógnin
og ástin
mörgu
j
essum e
inföldu l
jóðlínu
íðasta ljó
ðsins:
daglega fal
la
turnar úti í
heimi
í fáeinum rj
óðrum
er allt krök
kt af ást
annars fátt
nýtt
Ógnin og
ástin (o
g ótal af
b
) u óu
md
Túlípanafallhlífar Sigurbjargar
Þrastardóttur | Listir 22
Eivör
hitar upp
Færeyska söngkonan vinnur að
nýrri plötu Fólk 42
INNFLUTNINGUR á lifandi eldisfiski, seiðum
og frjóvguðum hrognum frá Íslandi til Bretlands
hefur verið bannaður. Bannið er tilkomið vegna
þess að íslenzk stjórnvöld hafa ekki leitt í lög til-
skipun um fiskeldi frá Evrópusambandinu. Málið
stöðvaðist í landbúnaðarnefnd Alþingis á síðasta
þingi. Því getur komið til þess að innflutningur til
allra landa innan ESB verði bannaður. Málið mun
nú þegar vera komið inn á borð forsætisráðherra
og utanríkisráðherra.
Vigfús Jóhannsson, framkvæmdastjóri Stofn-
fisks, segir þetta mjög alvarlegt mál, sem geti,
verði ekki brugðizt strax við, haft alvarleg áhrif
fyrir þróun fiskeldis í landinu og rústað afkomu
Stofnfisks og Fiskeldis Eyjafjarðar, sem flytji út
mikið af laxahrognum og lúðuseiðum.
Tilskipunin sem um er að ræða er lagarammi
um inn- og útflutning á lifandi eldisfiski, hrognum
og seiðum. Í gildandi lögum er ákvæði sem bann-
ar allan innflutning á lifandi eldisfiski. Samkvæmt
tilskipuninni verður innflutningur hins vegar
heimill en með það ströngum skilyrðum, að sögn
Gísla Jónssonar fisksjúkdómafræðings, að þau
gilda nánast sem bann. Ekki verði leyfilegt að
flytja inn lifandi fisk eða hrogn frá löndum eða
svæðum sem búi við fleiri fisksjúkdóma en hér
eru. Staðan hér á landi sé með því bezta í heim-
inum. Því sé alls ekki verið að opna fyrir innflutn-
ing eins og margir virðist telja.
Hættan ljós í nokkur ár
„Þetta hefur legið fyrir lengi og hættan verið
ljós í nokkur ár. Það er því með ólíkindum að ekk-
ert skuli hafa verið gert í tíma. Frestur okkar til
að löggilda tilskipunina er runninn út,“ segir Gísli
Jónsson.
Vigfús Jóhannsson segir þetta grafalvarlegt
mál og það þurfi að kippa þessu þegar í liðinn. Það
sé með ólíkindum að landbúnaðarnefnd Alþingis
hafi ekki afgreitt málið frá sér fyrir þinglok, því
nefndarmönnum hafi verið fyllilega kunnugt um
afleiðingar þess að binda tilskipunina ekki í lög.
„Þetta er mjög alvarlegt fyrir okkur í Stofn-
fiski, sem seljum töluvert af hrognum til landa
innan Evrópusambandsins. Þetta er einnig mjög
alvarlegt mál fyrir Fiskeldi Eyjafjarðar sem er að
hefja sölu á lúðuseiðum til Skotlands. Þetta sinnu-
leysi stjórnvalda getur orðið okkur óskaplega
dýrkeypt,“ segir Vigfús Jóhannsson.
Kannað hvað hægt sé að gera
Guðmundur Helgason, ráðuneytisstjóri í land-
búnaðarráðuneytinu, segir að breyta þurfi lögum
til að tilskipunin geti tekið gildi. Það verði ekki
mögulegt fyrr en þing komi saman í haust. Þar til
verði kannað hvaða aðilar hafi tekið ákvörðun um
bannið í Bretlandi og hvers vegna. Þá verði skoð-
að hvað sé hægt að gera til að það verði afnumið
eða gildistöku frestað þar til Alþingi hafi sam-
þykkt nauðsynlegar lagabreytingar.
Bannað að flytja lifandi
eldisfisk til Bretlands
Getur orðið okkur mjög dýrkeypt, segir framkvæmdastjóri Stofnfisks
Berjast
gegn frið-
helgi fyrir
Berlusconi
Róm. AFP.
ÍTALSKIR
stjórnarand-
stöðuþingmenn
hófu í gær her-
ferð sem miðar
að því að hindra
að umdeild lög-
gjöf um frið-
helgi ráða-
manna við
saksókn komist
til framkvæmda þannig að Silvio
Berlusconi forsætisráðherra geti
setið óáreittur á valdastóli.
Þingmenn úr röðum kommún-
ista og græningja og fulltrúar
borgararéttindasamtaka hafa
hrint af stað undirskriftasöfnun
til að freista þess að knýja fram
þjóðaratkvæðagreiðslu um lögin
umdeildu, en þau hafa nú þegar
orðið til þess að frysta í raun rétt-
arhöld í spillingarmáli þar sem
Berlusconi er meðal sakborninga.
„Við verðum að berjast til að
tryggja að allir séu jafnir fyrir
lögunum,“ sagði Marco Rizzo,
flokksleiðtogi ítalskra kommún-
ista.
Hið umdeilda frumvarp var
samþykkt í efri deild ítalska
þingsins sl. miðvikudag en Ítalir
taka um næstu mánaðamót við
formennskuhlutverkinu í Evrópu-
sambandinu.
Tveir af hverjum þremur Ítöl-
um eru mótfallnir friðhelgilögun-
um skv. niðurstöðum skoðana-
kannana. Tveir fyrrverandi
forsetar Ítalíu og ýmsir lögfræð-
ingar hafa dregið í efa að hin nýja
friðhelgilöggjöf samræmist
stjórnarskrá ítalska lýðveldisins.
Berlusconi
Uppruninn
aðeins í Afríku
Steingerðar 16 þúsund ára höf-
uðkúpur rannsakaðar Erlent 15
ÞÚSUNDIR manna komu saman fyrir framan ráð-
húsið í bænum Ciutadella á spænsku eynni Menorca í
gær, þar sem haldin var hátíð heilags Jóhanns, en
hún hefur verið haldin reglulega síðan á fjórtándu
öld. Meðal atriða í hátíðahöldunum er hópreið knapa
sem eru táknrænir fulltrúar hefðbundinna stétta í
Ciutadella fyrr á öldum, aðalsmanna, presta, hand-
verksmanna og bænda.
Reuters
Hátíð í Ciutadella
ÓVÆNT úrslit urðu í 1. umferð á
Wimbledon-mótinu í tennis sem hófst í
Lundúnum í gær þegar meistari síðasta
árs, Ástralinn Lleyton Hewitt, beið lægri
hlut fyrir Króatanum Ivo Karlovic. Hewitt
vann fyrstu lotuna, 6:1, en Króatinn næstu
þrjár, 7:6, 6:3 og 6:4. Á myndinni takast
tenniskapparnir í hendur eftir leikinn og
eins og sjá má er stærðarmunurinn tölu-
verður enda Karlovic engin smásmíði, 2,08
metrar á hæð.
AP
Meistarinn
úr leik
Hewitt úr leik/39
♦ ♦ ♦
BANDARÍSKIR hermenn í Írak lentu í
átökum við sýrlenska landamæraverði í síð-
ustu viku og særðu fimm þeirra, þegar gerð
var árás úr lofti og á landi á bílalest sem tal-
ið var að í væru háttsettir íraskir embætt-
ismenn. Bandaríska varnarmálaráðuneytið
greindi frá þessu í gær.
Ekki var í gær vitað hversu margir féllu í
árásinni á bílalestina, er gerð var á fimmtu-
dagsmorgun, en bandarískir embættis-
menn sögðu ekkert benda til að meðal
þeirra sem féllu hefðu verið háttsettir Írak-
ar.
Átök við sýr-
lenska landa-
mæraverði
Washington. AFP.
Ráðist á bílalest/14
Karlmenn
verða eldri
en konur
ÞESS er ekki langt að bíða að karlmenn lifi
að meðaltali lengur en konur, að því er
breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir þar-
lendum sérfræðingum í gær. Fram að
þessu hefur meðalævi kvenna verið lengri
en karla.
Telja þeir, að miklar reykingar kvenna,
drykkja og streita muni smám saman
verða til þess að stytta meðalævi þeirra.
Haldi fram sem horfir muni karlmenn, sem
fæddir eru á þessari öld, verða að með-
altali eldri en konur.
Samkvæmt niðurstöðum sérfræðing-
anna hefur ævi karlmanna lengst að með-
altali á undanförnum árum og þótt með-
alævi kvenna hafi líka lengst hefur ævi
karlanna lengst meira. Haldi þessi þróun
áfram muni karlarnir innan skamms lifa
lengur en konur að meðaltali.