Morgunblaðið - 24.06.2003, Page 4

Morgunblaðið - 24.06.2003, Page 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Verð á mann frá 19.800 kr. ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IC E 21 53 5 0 5. 20 03 FRAMKVÆMDIR við Hamraborg í Kópavogi standa nú yfir og yfir- byggingin sem á að rísa yfir Hafn- arfjarðarveginn er smám saman að taka á sig mynd. Byggingunni er ætlað að tengja eldri hluta Hamra- borgarinnar við nýja tónlistar- og náttúrugripasafnið í Kópavogi og fyrirhugað er að í henni verði ýms- ar verslanir auk heilsugæslustöðv- arinnar í Kópavogi, apóteks og banka. Sigurfinnur Sigurjónsson, bygg- ingarstjóri hjá Risi ehf., sem sér um verkið sagði að allt gengi vel og að segja mætti að þeir væru núna komnir á beinu brautina. Uppsetn- ingu síðustu holplatnanna lýkur um mánaðamótin en þær fara ofan á stálbitana sem lagðir voru yfir veg- inn seinnipartinn í maí. Ósáttir ökumenn Byggingin er sú fyrsta sinnar tegundar á landinu og ýmis vanda- mál hafa litið dagsins ljós, sum byggingarfræðilegs eðlis en önnur öllu mannlegri, þar sem nokkuð hefur borið á pirringi hjá ökumönn- um sem sætta sig ekki við að þurfa að hægja á sér vegna fram- kvæmdanna. Sigurfinnur sagði að jafnvel hafi komið til þess að ósáttir bílstjórar hafi haft í hótunum við starfsmenn vegna framkvæmd- anna. Hann tók þó fram að allt væri gert til að koma til móts við öku- menn og valda þeim sem minnstum óþægindum. Af öryggisástæðum er aldrei híft yfir umferð og hefur Hafnarfjarðarveginum því verið lokað nokkrar nætur vegna fram- kvæmda. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Bílaumferð við Hamraborg þarf að hægja á sér þegar ekið er undir bygginguna. Framkvæmdir í Hamra- borg í fullum gangi FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, átti í gær fund með for- seta Írlands, Mary McAleese, og ræddu forsetarnir m.a. um samband landanna fyrr og nú og verkefni Ír- lands þegar það tekur innan tíðar við forsæti í Evrópusambandinu. Ólafur Ragnar er staddur á Írlandi í tilefni af Alþjóðaleikum þroska- heftra og seinfærra en hann er sér- stakur stuðningsaðili leikanna. Írar orðnir áhrifamiklir innan ESB „Söguleg tengsl landanna eiga sér bæði rætur í landnáminu og fornum sögum eins og við þekkjum og líka í því að báðar þjóðirnar háðu sjálf- stæðisbaráttu um svipað leyti,“ sagði Ólafur Ragnar eftir fundinn með Írlandsforseta í gær. „Við fór- um yfir nauðsyn þess að styrkja þessi tengsl enn meira á næstu ár- um því að þótt við eigum margt sameiginlegt og séum nágrannar hefur nokkuð skort á það á síðari áratugum.“ Ólafur Ragnar segist telja það sérstaklega mikilvægt fyr- ir Íslendinga vegna þess að Írar séu orðin áhrifarík þjóð í ESB. „Við höf- um oftast leitað til Norðurlandanna þegar við höfum þurft að fá banda- menn í samskiptum okkar við Evr- ópusambandið en það er greinilegt að Írar eru að öðlast mjög sterka stöðu og munu innan tíðar taka við forsætinu.“ Forsetarnir ræddu um þau verk- efni sem blasa við Írum er þeir taka við forsæti ESB og hvernig þeir hyggjast nýta þá stöðu til þess að efla samband Bandaríkjanna og Evrópu á næstu árum. „Írar eru í betri stöðu en aðrar þjóðir í Evrópu- sambandinu til þess að vinna slík verk því þeir eiga mikil og öflug tengsl við Bandaríkin vegna þess mikla fólksfjölda af írskum uppruna sem býr í Bandaríkjunum.“ Tækifæri smárra ríkja mikil Þá ræddu forsetarnir um að tæki- færi smárra ríkja hefðu aldrei verið jafnmikil og nú og mikilvægt væri að þau væru nýtt rétt til að styrkja efnahagslíf og menningu landanna. Ólafur Ragnar sagði mjög fróðlegt að heyra skýringu írska forsetans á því hvernig Írum hefði tekist á síð- ari áratugum að halda í sterkar írsk- ar rætur en líka að verða mun al- þjóðlegri í hugsunarhætti, viðskiptum við aðra og í efnahags- málum. Ólafur Ragnar sagðist hafa látið í ljós við írska forsetann aðdáun sína á skipulagningu Alþjóðaleika þroskaheftra og seinfærra. Benti hann á að rúmlega 30 þúsund Írar hefðu starfað sem sjálfboðaliðar á leikunum sem eru stærsti íþrótta- viðburður í heiminum í ár. „Þannig hefur mikill fjöldi Íra verið tengdur leikunum á óvenjulegan hátt,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson. Fundur forseta Íslands og Írlands fór fram í gær Írar öflugir banda- menn innan ESB Ljósmynd/ Maxwells, Dublin Íslensku forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, stilla sér upp ásamt forseta Írlands, Mary McAleese. FULLTRÚAR frá stjórn Barnageðlæknafélags Íslands (BGFÍ) funduðu með Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráð- herra í gær þar sem farið var yfir efni yfirlýsingar stjórnar BGFÍ frá því í síðustu viku þar sem lýst var yfir áhyggjum af þróun mála á sviði geðheil- brigðisþjónustu fyrir börn og unglinga.Tæplega 30 börn, 12 ára og yngri, biðu eftir innlögn á barnageðdeild og væri sú staða algjörlega óviðunandi. Að sögn Gísla Baldurssonar, for- manns BGFÍ, var fundurinn í gær mjög jákvæður og ákveðið var að skipa nefnd í samstarfi við BGFÍ um lausn á vandan- um. Barna- geðlækn- ar bjart- sýnir Björn Bjarnason kirkjumálaráðherra við upphaf prestastefnu Kirkjan þjóð- inni mikilvæg BJÖRN Bjarnason flutti sitt fyrsta ávarp sem kirkjumálaráðherra við upphaf prestastefnu á Sauðárkróki í gær. Björn lagði í máli sínu áherslu á mikilvægi Þjóðkirkjunnar fyrir íslenskt samfélag í for- tíð, nútíð og framtíð. Björn vitnaði í Jón Sigurðsson þar sem hann sagði að við fall Jóns Arasonar og sona hans hefði saga Íslands og trú á einstæðan hátt. „Þarna var lagður grunnur að því sambandi ríkis og kirkju, sem við þekkjum nú og er staðfest í stjórnarskrá lýðveldisins. Þjóðkirkj- an er meðal helstu kennileita ís- lensks samfélags og hlutur kristni og kirkju í sögu, menntun og menn- ingu þjóðarinnar verður aldrei met- inn til fulls,“ sagði Björn í ræðu sinni. Björn gerði stöðu kirkjunnar á breiðum grunni að umtalsefni sínu og ræddi m.a. um stöðu kristinnar kirkju í Evrópu og annars staðar í heiminum. Um verkefni kirkjunnar sagði hann: „Hvarvetna takast menn á við þá spurningu, hvernig laga eigi meira en tveggja árþús- unda gamlan boðskap Krists að kröfum þjóðfélaga, þar sem afsiðun setur æ meiri svip á daglegt líf. Í því efni mega tískustraumar ekki gára meira en yfirborðið.“ Leggur áherslu á samninga ríkis og kirkju Björn sagðist í ræðu sinni leggja áherslu á að samningar milli ríkis og kirkjunnar um prestssetur og uppgjör þeirra næðust og nefndi málefni Þingvalla- kirkju sérstaklega. „Far- sæl lausn Þingvallamálsins er mér sérstaklega skyld og hef ég í öllum umræðum um ráðstöfun Þingvalla- bæjar haldið því til haga, að ekki skuli á óréttmætan hátt gengið á hlut kirkj- unnar, þótt ríkisstjórnin nýti bæjarhúsið til frambúðar.“ Til heiðurs staðfestunni Erindi Björns bar yfirskriftina „Til heiðurs staðfestunni,“ og ræddi ráðherrann um stefnumótunarvinnu Þjóðkirkjunnar og sagði: „Herra Karl Sigurbjörnsson biskup komst þannig að orði í gærkvöldi að til- gangur umræðna ykkar hér væri sá að hervæðast í þágu kristni á Ís- landi. Óska ég ykkur góðs árangurs og heiti liðsinni mínu, ef það má að einhverju gagni verða. Verkefnið er brýnt og mikilvægt.“ Ráðherrann gerði einnig að um- talsefni sínu umræðu um lokun verslana á hvítasunnudag. Taldi hann að vegið hefði verið að kirkj- unni í fjölmiðlum í þeirri umræðu. Björn sagði: „Ber að líta á umræður hér á landi á dögunum um verslun og viðskipti á hvítasunnudag sem ógn við kirkjuna? Ef enginn stendur vörð um helgi þessa dags eða heldur málstað hans fram frá trúarlegum sjónarhóli af ótta við að vera gam- aldags eða ekki í takt við tíðarand- ann, hættir hvítasunnudagur auðvit- að að vera stofndagur kirkjunnar í huga alls þorra fólks.“ Björn Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.