Morgunblaðið - 24.06.2003, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 24.06.2003, Qupperneq 30
MINNINGAR 30 ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ GuðmundurÞórðarson fædd- ist í Kílhrauni á Skeiðum 1. október 1939. Hann lést 10. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Þórður Guð- mundsson, bóndi í Kílhrauni, f. 3. des- ember 1905, d. 6. maí 1971, og Guðfríður Guðbrandsdóttir frá Skálmholti í Villinga- holtshreppi, f. 26. október 1909, d. 20. ágúst 1996. Systir Guðmundar er Arnbjörg, f. 22. mars 1938, búsett á Selfossi. Guðmundur kvæntist eftirlif- andi eiginkonu sinni, Kristjönu Kjartansdóttur, árið 1977. Sonur þeirra er Þórður Jóhann, f. 17. janúar 1978. Börn Kristjönu af fyrra hjónabandi eru: Val- garður, f. 23. júní 1956, Fanney, f. 19. september 1957, Kjartan, f. 6. sept- ember 1962, Dröfn, f. 9. júlí 1965 og Kol- brún, f. 16. septem- ber 1970, Sigurðar- börn. Guðmundur ólst upp í Kílhrauni og var bóndi þar frá árinu 1971 þegar hann tók við búi að föður sínum látnum, þar til hann fluttist að Blásölum 24 í Kópavogi í aprílmánuði síðastliðnum. Guðmundur verður jarðsung- inn frá Selfosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku vinur. Mig langar að minnast allra ynd- islegu áranna sem við áttum saman. Það er ómetanlegt að hafa fengið tækifæri til að deila lífinu með jafn traustum og hlýjum manni og þú varst. Ég er fullviss um að það voru mín mestu gæfuspor þegar ég tók þá ákvörðun að vera áfram í Kílhrauni. Það verður heldur aldrei þakkað sem vert er allt sem þú varst mér, börn- unum mínum og barnabörnunum sem öll litu á þig sem afa sinn. Þig mátu þau öll meira en aðra menn og sakna þín sárt, þótt þau yngstu geri sér ekki enn þá grein fyrir því að þú ert horfinn þeim að eilífu. Vertu sæll, elsku vinur minn. Þín Kristjana. Nú þegar Guðmundur frændi minn og uppeldisbróðir er fallinn frá hrannast upp minningar frá æskuár- um okkar bæði í leik og starfi. Þegar ég kom að Kílhrauni, fósturbarn, á heimili föðursystur minnar, móður Gumma, vorið 1948, þá á ellefta árinu, var Gummi á því níunda og Adda systir hans nýlega orðin 10 ára. Á þessum tíma var tvíbýli í Kíl- hrauni. Við áttum heima í vesturbæn- um en Valdimar, bróðir Þórðar, og Ólafía, kona hans, ásamt þrem sonum í austurbænum, Þorsteini, sem er lát- inn, Árna, sem er árinu eldri en ég og svo var Erlendur á fyrsta ári. Það vorum við, þrjú í vesturbæn- um og Árni, sem lékum okkur alla daga saman þegar færi gafst. Eins og títt var um börn í sveit í þá daga átt- um við okkar eigin bú og var okkur úthlutað svæði í útjaðri austurbæjar- túnsins, sem var kallað Tíkartóft. Þar byggðum við bæi, héldum bústofn og rákum þetta samfélag að sjálfsögðu að hefðbundnum sveitasið. Sama vorið og ég kom að Kílhrauni bættist einn félagi í hópinn þegar Lóa og Valdi í austurbænum réðu til sín telpu úr Reykjavík, jafnöldru mína, til að líta eftir Edda, litla barninu, um sláttinn. Þessi telpa var Kristjana, eða Kiddý eins og hún er ávallt köll- uð, en hún varð síðar eiginkona Gumma. Kiddý féll samstundis inn í vinahópinn og var úthlutað landi í Tíkartóft fyrir eigið bú. Ekki var mik- ið um hjálpartæki fyrir þá sem þá gættu barna í sveitinni og mátti Kiddý oft rogast með Edda á háhesti til að fylgja okkur hinum á hlaupum um tún og engi. Seinna voru útreiðar- túrarnir á sunnudögum mesta til- hlökkunarefnið og þá var hleypt á sprett og metist um hver sat á besta hestinum. Ekki má heldur gleyma íþróttaæfingunum, sem Steini í aust- urbænum stjórnaði meðan hann var heima. Þá var keppt í hástökki, lang- stökki og öðrum frjálsum íþrótta- greinum. Gummi var frá fyrstu tíð afar hæg- látur og rólegur. Hann var barnið sem alltaf hélt sig til hlés og var aldrei með kröfur til annarra. Þegar ég horfi til baka finnst mér að hann hafi lifað dálítið í skugga okkar hinna sem meira fór fyrir. Sem barn var Gummi mjög hænd- ur að föður sínum og var mjög ungur þegar hann fór að fylgja honum til allra starfa, drakk í sig frá honum allt sem góður bóndi þurfti að kunna skil á bæði í verkum og hugsun. Gummi var líka fjárglöggur með afbrigðum, einn af þeim mönnum sem þekktu hverja kind eins og kunningja sína. Um sauðburðinn gekk hann um hag- ana að gæta lambánna, fyrst með föð- ur sínum en fljótlega einsamall. Þeg- ar heim kom átti hann að gera grein fyrir því hvaða ær voru bornar og hvernig ástandið var í haganum. Það vafðist ekki fyrir þeim feðgum að skilja hvor annan eftir lýsingum hans, hvort það var sú kollótta eða vanin- hyrnda með þessi eða hin einkennin sem var borin. Enda voru þeir Kíl- hraunsfeðgar þekktir fyrir að eiga gott fé. Fyrstu afgerandi breytingarnar í búskaparferli Gumma urðu þegar faðir hans féll frá árið 1971. Þá tók hann við búsforráðum í Kílhrauni og bjó þar áfram, fyrst með móður sinni en síðan með Kristjönu konu sinni, sem kom til hans ásamt þrem yngstu börnum sínum árið 1974. Gummi reyndist börnum Kiddýjar sem besti faðir og var mjög eftirlátur bæði þeim og barnabörnum hennar sem höfðu mikið dálæti á afa sínum. Árið 1978 fæddist Þórður Jóhann, einkabarn Gumma, stolt hans og gleði. Þórður litli fór ungur, á sama hátt og faðir hans, að fylgja föður sín- um í störfum hans og tengdust þeir feðgar sterkum böndum. Þórður var góður fjármaður eins og faðir hans og afi og hafði yndi af smalamennsku og fjallferðum. Þórður er kjötiðnaðar- maður og hefur starfað við iðn sína og fylgst með nýjungum á þeim vett- vangi bæði hér heima og erlendis. Í búskapartíð Gumma urðu miklar breytingar, bændur urðu að aðlaga sig nýjum kröfum markaðarins. Kýrnar hurfu úr fjósinu og svínin komu í staðinn. Að lokum hurfu kind- urnar að mestu en hestamennskan tók við og tamning og ræktun hesta tók hug hans allan. Gummi hafði frá barnæsku haft gott lag á hestum og fór ungur að temja með föður sínum, sem alltaf átti góða reiðhesta, enda nauðsynlegt vegna smalamennsku, einkum á haustin þegar sækja þurfti fé inn á af- rétt. Hæfileiki Gumma við meðferð á hestum þroskaðist með árunum og varð hann þekktur á þeim vettvangi bæði innanlands og utan og voru hestar frá honum eftirsóttir. Ég vona að einhver sem þekkir betur en ég þennan þátt í lífi hans minnist hesta- mannsins Gumma í Kílhrauni. Þótt oft væri fámennt á vetrum hér áður í Kílhrauni og dagarnir langir og dimmir var ævinlega fjölmenni á sumrin. Vinir og kunningjar komu til lengri eða skemmri dvalar og voru aufúsugestir. Ekki varð nein breyting á gestrisni og öllu viðmóti í búskap- artíð Gumma og Kiddýjar því Gummi var vinmargur og vinfesti Kílhrauns- fólksins var viðbrugðið. Hinir fjöl- mörgu sem ráðnir voru til sumar- starfa um sláttinn og þeir sem voru í tengslum vegna hestamennskunnar urðu margir hverjir meðal bestu og tryggustu vina þeirra hjóna. Gummi var kjölfestan á heimilinu og ýmsir áttu þar öruggt skjól og aldrei virtist ofsetinn bekkurinn þótt marga bæri að garði. Í apríl sl. varð mikil breyting í lífi Gumma þegar þau hjón tóku sig upp og fluttu „suður“, keyptu sér íbúð í nýju fjölbýlishúsi í Kópavogi. Til þess tíma hafði Gummi aldrei átt heima annars staðar en í Kílhrauni. Þótt hann væri fyrst og fremst bóndi var hann orðinn þreyttur og virtist ham- ingjusamur að vera laus undan oki búskaparins, byggði sér nýtt hesthús til að geta eingöngu sinnt hestum sín- um. Í þessum orðum er fátt sagt en margt ósagt um lífshlaup þessa góða drengs. Þórður minn, Kiddý og börnin þín öll, við Jón og fjölskyldurnar okkar vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar. Hólmfríður Tómasdóttir. Elsku Gummi fóstri, sem varst mér svo kær. Lífið verður skrítið án þín, sem alltaf varst til staðar fyrir mig. Ég var fjögurra ára gömul þegar ég kom til þín í Kílhraun og þú hugs- aðir um mig sem ég væri þitt eigið barn frá fyrsta degi, þú áttir svo mik- ið til af hlýju. Ég er svo lánsöm að hafa kynnst svo stórkostlega góðum manni sem þú varst, þvílík gæði, en það vita allir sem þig þekktu að það eru orð að sönnu. Það var dæmigert að þegar ég var yngri og þurfti að fá einhverju framgengt sagði ég stund- um þegar mér var neitað um eitthvað, allt í lagi, ég spyr þá bara Gumma, hann segir alltaf já. Hann var þannig maður sem neitaði aldrei neinum um neitt. Ég minnist þess aldrei að hann hafi nokkurn tíma skammað mig, ekki einu sinni byrst sig við mig, enda hef ég ekki kynnst skapbetri manni. Sem betur fer á ég svo margar fal- legar minningar um þig sem enginn getur tekið frá mér, þú kenndir mér svo margt. Mér er minnisstætt fyrir stuttu þegar þú komst til okkar Jóns Þórs, þú labbaðir inn í herbergi til afastrákanna þinna, þegar þeir voru sofnaðir eins og þú gerðir svo oft. Þegar þú komst svo fram aftur sagðirðu við mig: „Er hún ekki orðin helst til of lítil þessi sæng fyrir hann Hilmi?“ Þetta lýsir þér svo vel, alltaf barstu umhyggju fyrir öllum. Sein- asta skiptið sem þú varst hér hjá okk- ur stoppaðirðu við hurðina á herberg- inu hjá Hrannari og virtir hann fyrir þér áður en þú fórst. Hann Hrannar bar mikla virðingu fyrir afa sínum, enda spurði hann: „Verður afi ekki í gullkistu?“ Þá hugsaði ég að ef ein- hver ætti að vera í gullkistu þá hefðir það svo sannarlega átt að vera þú. Þú varst strákunum mínum ein- stakur afi, ég er svo glöð að þeir skyldu hafa fengið tækifæri til að kynnast þér, fyrir það verð ég æv- inlega þakklát. Elsku Gummi minn, ég á eftir að sakna þín svo sárt, það er mér þung- bært að þurfa að kveðja þig svo snögglega en ég veit að þér líður bet- ur núna, það er það sem skiptir öllu að þér líði vel, elsku Gummi. Ég hugsa vel um mömmu og Þórð, missir þeirra er mikill, í sameiningu tekst okkur að halda áfram lífinu, því við eigum allar fallegu minningarnar um þig, það hjálpar okkur öllum og gefur okkur styrk á erfiðum tímum. Mig langar að kveðja þig með bæn sem Valdi afi kenndi mér. Takk fyrir allt, elsku fóstri, þú verður alltaf í huga mér. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Kolbrún. GUÐMUNDUR ÞÓRÐARSON Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta Elskuleg vinkona okkar, SIGURBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR, til heimilis í Skálatúni, Mosfellsbæ, sem lést fimmtudaginn 12. júní síðastliðinn, verður jarðsungin frá Lágafellskirkju miðviku- daginn 25. júní kl. 13.30. Starfsmenn og heimilisfólk í Skálatúni. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÁSA HAFDÍS ÞÓRARINSDÓTTIR, Borgarholtsbraut 41, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítala, Landakoti, þriðjudaginn 10. júní. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir veitta aðstoð í veikindum hennar til Heimahlynn- ingarinnar í Reykjavík og líknardeildar Landspítala, Landakoti. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Óli Geir Þorgeirsson, Theodóra Óladóttir, S. Ingibjörg Óladóttir, Birgir Ólason, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGÓLFUR JÓNSSON frá Suðureyri við Súgandafjörð, til heimilis á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést miðvikudaginn 18. júní sl. Jarðsett verður frá Akraneskirkju fimmtudag- inn 26. júní kl. 14.00. Jónína Ingólfsdóttir, Ásmundur Ólafsson, Magnús Ingólfsson, Margrét Guðjónsdóttir, Arnfríður Ingólfsdóttir, Pálmi Adólfsson, Hafsteinn Ingólfsson, Kristjana Kristjánsdóttir, barnabörn og langafabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, VILBORGAR EIRÍKSDÓTTUR, Hringbraut 70, Keflavík. Ágústa Erlendsdóttir, Birgir Scheving, Þóra Erlendsdóttir, Hreiðar Jósteinsson, Einar Erlendsson, Nansý Erlendsson, Eiríkur Erlendsson, Sigurður Erlendsson, Ólöf Ólsen og ömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ELÍNBORG JÓNA JÓHANNSDÓTTIR, Hjallabraut 6, Hafnafirði, sem lést á heimili sínu mánudaginn 16. júní, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju miðviku- daginn 25. júní kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag Íslands og Gigtarfélag Íslands. Magnús Þór Þórisson, Berglind Ólafsdóttir, Helgi Þór Guðbjartsson, Jóhann Sigurður Ólafsson, Erlendur Jón Ólafsson, María Steindórsdóttir, Matthías Már Magnússon, Þórunn Edwald, Rakel, María Dís, Agnes Ýr og Þórdís.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.