Morgunblaðið - 27.06.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Verð á mann frá 19.800 kr.
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IC
E
21
53
5
0
5.
20
03
ESB ásælist
skrifstofur
EFTA
EVRÓPUSAMBANDIÐ hyggst
taka á leigu húsnæðið Rue de Tréves
74 í Brussel. Þetta hús er nú aðsetur
íslenska sendiráðsins, EFTA skrif-
stofunnar og eftirlitsstofnunar
EFTA, ESA. Að sögn Gunnars
Snorra Gunnarssonar, ráðuneytis-
stjóra utanríkisráðuneytisins, vill
Evrópusambandið komast yfir skrif-
stofuhúsnæðið og hefur boðist til að
leigja það í 27 ár. Segir hann að ís-
lenska sendiráðið, EFTA og ESA
leiti nú að öðru húsnæði í Brussel.
Dró sér 15,8
milljónir á
fimm árum
FIMMTUG kona, fyrrverandi
þjónustufulltrúi og umsjónarmaður
lögfræðiinnheimtu hjá Sjóvá-Al-
mennum, hefur verið dæmd í 15
mánaða fangelsi, þar af 12 mánuði
skilorðsbundna, af Héraðsdómi
Reykjavíkur. Konan dró sér 15,8
milljónir á fimm ára tímabili. Hún
seldi einu fasteign sína til að greiða
upp í kröfu fyrirtækisins.
Konan játaði brot sín og veitti
aðstoð við rannsókn málsins. Í
dómnum kemur fram að hún leyndi
fjárdrættinum með því að færa
samsvarandi fjárhæðir til gjalda á
svonefndum innheimtusafnreikn-
ingi félagsins. Atvikin voru samtals
155 talsins. Á árunum 1997–2000
dró hún sér á bilinu 3,3–3,8 millj-
ónir en 1,3 árið 2001 en 8. október
það ár lauk brotunum. Konan seldi
fasteign sína og greiddi níu millj-
ónir upp í kröfu Sjóvár-Almennra
og gerði félagið ekki bótakröfu í
málinu. Í dómnum er litið til þess
að hún dró sér verulega fjárhæð
með refsiverðum hætti og sýndi af
sér sterkan og einbeittan brota-
vilja. Haldi konan skilorð fellur
refsingin niður að tveimur árum
liðnum.
Arnfríður Einarsdóttir kvað upp
dóminn. Örn Clausen hrl. var skip-
aður verjandi en Guðjón Magnús-
son, fulltrúi ákæruvaldsins, lög-
reglustjórans í Reykjavík.
SÝNINGIN Meistarar formsins: Úr högg-
myndasögu 20. aldar hefst í Listasafninu á Ak-
ureyri á morgun, laugardag. Í gær var unnið
hörðum höndum að því að koma listaverkunum
fyrir, m.a. var 160 kílógramma „ferðataska“ full
af vopnum tekin úr kassa og sett á sinn stað. Hér
er um að ræða verk eftir Þjóðverjann Axel
Lischke, tösku úr glerhörðu plasti sem inniheldur
handsprengjur, dínamít, skotvopn og drápshnífa –
„öll grunnáhöld hryðjuverkamannsins nú á dög-
um“, eins og Hannes Sigurðsson, forstöðumaður
Listasafnsins á Akureyri sagði við Morgunblaðið á
dögunum. Verkið gerði listamaðurinn laust fyrir
hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september
2001 og fyrr en nú hefur það aldrei farið út fyrir
landamæri Þýskalands.
Joris Rademaker og Jón Laxdal, starfsmenn
Listasafnsins á Akureyri, komu vopnatöskunni
svokölluðu fyrir með aðstoð Guðmundar Guð-
mundssonar sem falinn er á bak við töskuna, en
hún er 160 kíló. Þeir sem fylgjast með eru, frá
vinstri, Alma Dís Kristinsdóttir safnfulltrúi, Hann-
es Sigurðsson forstöðumaður safnsins, Hana
Streicher forvörður frá Ríkislistasafninu í Berlín
og Britta Schmitz, yfirsýningarstjóri Hamburger
Bahnhof-safnsins í Berlin, sem heyrir undir Rík-
islistasafnið. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Taskan komin
full af vopnum
ATVINNULEYSI meðal kvenna á höfuðborgar-
svæðinu jókst um 17% í maí síðastliðnum miðað við
aprílmánuð, samkvæmt greiningu fjármálaráðu-
neytisins í vefriti þess á tölum Vinnumálastofnun-
ar. Þar segir að þetta sé frávik frá því sem hafi ver-
ið að gerast að undanförnu, en í maímánuði
minnkaði atvinnuleysi frá fyrra mánuði hjá báðum
kynjum á landsbyggðinni og körlum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Í vefritinu er einnig bent á þá staðreynd að í maí
sl. var atvinnuleysi hlutfallslega mest í hótel- og
veitingahúsarekstri miðað við aðrar atvinnugrein-
ar, eða rúm 6,2%, og skákaði fiskvinnslunni, þeirri
grein þar sem gjarnan hefur verið mest atvinnu-
leysi.
Í lok maí voru 2.034 konur skráðar atvinnulausar
á höfuðborgarsvæðinu, miðað við 1.739 í lok apríl sl.
Frá maílokum hefur atvinnulausum konum á höf-
uðborgarsvæðinu fjölgað um 2%, en þær voru 2.071
samkvæmt skráningu Vinnumiðlunar höfuðborg-
arsvæðisins í gær. Frá því í lok janúar sl. nemur
fjölgun kvenna á atvinnuleysis-
skrá 27% á höfuðborgarsvæð-
inu.
Hugrún Jóhannesdóttir, for-
stöðumaður Vinnumiðlunar
höfuðborgarsvæðisins, segist
vel kannast við þessa aukningu
á atvinnuleysi kvenna. Erfitt
geti verið að skýra hana nám-
kvæmlega en Hugrún telur lík-
legast að framboð hafi aukist að
undanförnu á störfum sem ung-
ir karlar sækist frekar í, t.d. í
byggingaframkvæmdum og vegagerð. Mikil breyt-
ing hafi orðið á atvinnumálum kynjanna þar sem
fleiri karlar en konur hafi verið atvinnulausir síð-
asta vetur.
Einnig nefnir hún að í lok maí hafi skólaliðar í
grunnskólum Reykjavíkurborgar byrjað að skrá
sig atvinnulausa, líkt og þeir þurfi að gera jafnan
yfir sumartímann þar til skólastarf hefjist að nýju
og konur séu langfjölmennast-
ar meðal skólaliða. Hugrún tel-
ur þetta geta að hluta til skýrt
aukið atvinnuleysi kvenna á
höfuðborgarsvæðinu.
„Það hefur einnig haft áhrif
á atvinnuleysistölur síðustu
vikna að margir námsmenn
hafa skráð sig. Sem betur fer
eru þeir að byrja að detta út af
skrá núna. Mér sýnist sem fyr-
irtækin hafi eitthvað vanmetið
þörfina á afleysingastörfum og
séu að ráða til sín skólafólk í meira mæli,“ segir
Hugrún.
Varðandi atvinnuleysi í hótel- og veitingahúsa-
rekstri bendir Hugrún á að maímánuður sé ekki vel
marktækur hvað ferðaþjónustuna varðar þar sem
sumarvertíðin sé ekki hafin fyrir alvöru. Einnig
geti verið mögulegt að hóteleigendur hafi spennt
bogann eilítið of hátt með stórauknu gistirými.
Atvinnuleysi kvenna eykst
á höfuðborgarsvæðinu
SELLAFIELD kjarnorkuvinnslu-
stöðin á Bretlandi mun hætta að
losa geislavirka efnið teknitín 99 í
sjó næstu níu mánuði og erfitt verð-
ur fyrir bresk stjórnvöld að hefja
losun þess á nýjan leik að þeim tíma
liðnum að mati Sivjar Friðleifsdótt-
ur umhverfisráðherra.
Þetta er niðurstaðan af fundi um-
hverfisráðherra aðildarríkja OSP-
AR-samningsins sem lauk í gær.
Tillaga Íslands, Noregs, Svíþjóð-
ar, Danmerkur, Írlands og Hol-
lands, þar sem kemur fram að fjöldi
ríkja telji að losun á geislavirka efn-
inu teknitín 99 í sjóinn frá Sellafield
skuli hætt nú þegar var eina um-
ræðuefni fundarins í gær. Bretar
féllust að lokum á tillöguna, en settu
þann fyrirvara að þeim yrði heimilt
að hefja losun að nýju eftir níu mán-
uði ef tæknilegar lausnir við förgun
á teknitín 99 fyndust ekki á þeim
tíma.
Ekki endanlegur
sigur
Siv segir niðurstöðuna vera góðan
áfangasigur fyrir Íslendinga. „Þetta
er mjög mikill áfangi, en er ekki
endanlegur sigur vegna þess að fyr-
irvarinn er þarna inni. En það verð-
ur að mínu mati erfitt fyrir bresk
stjórnvöld að byrja aftur á losun eft-
ir níu mánuði. Það verður mjög
þungt skref fyrir þá og mjög erfitt
eftir þessar pólitísku yfirlýsingar
þeirra hérna.“
Siv segir árangurinn þó betri en
hún átti von á. „Ég hélt að Bret-
arnir myndu halda sig við það að
nefna hvergi Sellafield og nýta neit-
unarrétt sinn til þess. Þeir sýndu
hér mikinn samstarfsvilja með því
að komast að þessari niðurstöðu
með okkur.“ Það verður erfitt fyrir
bresk stjórnvöld að hefja á ný losun
teknitíns 99 eftir þessa níu mánuði
sem nefndir eru í fyrirvara þeirra
við ályktunina að sögn Sivjar.
Þorskstofninn
til umræðu
Aðrar niðurstöður OSPAR-fund-
arins voru einnig Íslandi í hag. „Það
varð niðurstaðan hér að þorskstofn-
ar við Ísland væru ekki í hættu. Það
er mjög mikilvægt fyrir okkur. Það
kemur fram að þorskstofnar í Norð-
ursjó og á Írlandshafi eru í hættu,
en ástandið er mun betra við Ísland
og Færeyjar,“ segir Siv.
Fundur aðildarríkja OSPAR-samn-
ingsins ályktar um ástand hafsins
Losun geisla-
virkra efna hætt
♦ ♦ ♦
„Frosin“
tölva í frysti-
gámnum
EIMSKIPAFÉLAG Íslands hf. þarf
að greiða Tryggingamiðstöðinni hf.
11,6 milljónir vegna þess að hásetar
á Laxfossi sýndu ekki nægilega ár-
vekni þegar þeir aðgættu frystigám
með 24 tonnum af fiski sem skipið
flutti til Bandaríkjanna, samkvæmt
dómi sem kveðinn var upp í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Eimskip
krafðist sýknu enda var sýnt fram á
að tölva í gámnum „fraus“ þannig að
hitamælir sýndi ávallt -24°C frost en
við það hitastig átti að flytja fiskinn.
Fram kemur í dómnum að eftirlit
hásetanna fólst í því að aðgæta
frystigámana tvisvar á sólarhring,
nema þegar veður hamlaði. Hitastig
í þeim var kannað með því að lesa á
stafrænan skjá á gámunum og ganga
úr skugga um hvort viðvörunarljós
loguðu. Af gögnum málsins mátti
helst ráða að sjaldgæf bilun hefði
valdið því að stýritölva gámsins
„fraus“ og gerði því ekki viðvart þeg-
ar frostið fór af gámnum og því
veittu skipverjarnir biluninni ekki
eftirtekt.
Fyrir dómi bar háseti að það tæki
2–3 sekúndur að aðgæta hvern gám.
Hásetarnir skráðu alltaf sama hita-
stigið en merktu tvisvar sinnum við
að gámurinn væri stilltur á afhrím-
ingu en hitastigið væri þó hið sama.
Sérfróðir meðdómsmenn töldu að
þessi niðurstaða hefði tvímælalaust
átt að vekja grunsemdir hásetanna.