Morgunblaðið - 27.06.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2003 45
Golfklúbburinn
Leynir, Akranesi
SLÁÐU Í GEGN Á SKAGA
Opna Þ&E mótið 29. júní
Flokkar:
Karlar 55-69 ára
Karlar 70 ára og eldri
Konur 50 ára og eldri
Flokkur kvenna og karla 70+
eru viðmiðunarmót LEK.
Ræst út frá kl. 8
Keppnisgjald kr. 2.500
Skráning
í síma 431 2711
og á golf.is
Golfklúbburinn
Leynir, Akranesi
SLÁÐU Í GEGN Á SKAGA
Tilboð á vallargjaldi
dagana 28. og 29. júní
kr. 1.500 á mann, 18 holur.
Verið velkomin á Skagann
og kynnist einum besta
golfvelli landsins, Garðavelli.
Rástímapantanir
í síma 431 2711.
MARC-Vivien Foe, leikmaður kam-
erúnska landsliðsins og Manchest-
er City, lést síðdegis í gær á
sjúkrahúsi eftir að hafa misst með-
vitund í undanúrslitaviðureign Ka-
merúna og Kólumbíumanna í Álfu-
keppninni í knattspyrnu. Læknar
vita ekki hvað olli dauða Foe en í
fyrstu töldu þeir að hann hefði
gleypt tungu sína. Við frekari
rannsóknir virðist sem sú hafi ekki
verið raunin. Reynt var að lífga
Foe við í 45 mínútur eftir að hann
missti meðvitund í leiknum en án
árangurs.
Marc-Vivien Foe var 28 ára gam-
all og lék 62 leiki fyrir þjóð sína en
hann var á meðal bestu leikmanna
sem komið hafa frá Afríku und-
anfarin misseri.
Marc-Vivien
Foe látinn
Leikurinn byrjaði mjög rólega ogfyrsta alvörufæri leiksins kom
ekki fyrr en á 19. mínútu þegar
Valdimar Krist-
ófersson, einn af
þjálfurum Stjörn-
unnar, skoraði með
skalla eftir horn-
spyrnu Vilhjálms Vilhjálmssonar.
Það tók gestina aðeins fjórar mín-
útur að skora aftur og var það ótrú-
legt mark. Vilhjálmur Vilhjálmsson
spyrnti boltanum beint úr auka-
spyrnu af 40 metra færi efst vinstra
megin í markhornið, óverjandi fyrir
Ögmund Rúnarsson, markvörð Vík-
inga.
Aðeins tveimur mínútum síðar
gerðu Stjörnumenn nánast út um
leikinn. Valdimar skoraði aftur með
skalla eftir sendingu frá Vilhjálmi
Vilhjálmssyni. Besti leikmaður
heimamanna, Stefán Örn Arnarson,
skoraði eina mark Víkinga á 31. mín-
útu eftir varnarmistök Stjörnunnar.
Bæði lið fengu tækifæri til að
skora fleiri mörk en þegar um 25
mínútur voru til leiksloka róaðist
leikurinn og fátt markvert gerðist
það sem eftir lifði leiks.
Stjörnumenn spiluð sinn besta
leik í sumar. Þeir sköpuðu sér góð
marktækifæri og í síðari hálfleik
léku þeir skynsamlega og vörðust vel
þegar þeir þurftu. Víkingar voru
heillum horfnir og vilja sjálfsagt
gleyma þessum leik sem fyrst.
Valdimar Kristófersson var
ánægður í leikslok. „Við höfum beðið
lengi eftir fyrsta sigrinum. Leik-
mennirnir gáfu sig allan í leikinn. Við
spiluðum mjög skynsamlega og lék-
um agaðan bolta og það skilaði okkur
þessum sigri,“ sagði Valdimar.
Maður leiksins: Valdimar Krist-
ófersson, Stjörnunni.
Fjörugt en aðeins eitt mark
Njarðvíkingar tóku á móti Breiða-bliki í gærkvöldi. Segja má að
hvort liðið hafi átt sinn hálfleikinn.
Blikarnir voru mun
sterkari í fyrri hálf-
leik, en Njarðvíking-
ar áttu þann síðari.
Aðeins eitt mark var
skorað og það gerðu gestirnir úr
Kópavogi.
Leikurinn í gærkvöldi var fjörug-
ur og bráðskemmtilegur á að horfa.
Fyrri hálfleikur var eign gestanna
frá upphafi til enda. Á 8. mínútu opn-
aðist leikurinn þegar Hörður S.
Bjarnason skoraði framhjá Sigurði
Sigurðssyni, markverði Njarðvík-
inga. Blikarnir áttu hins vegar mjög
hættulegar skyndisóknir í seinni
hálfleik. Besta færi þeirra var þegar
Hreiðar var búinn að leika á mark-
vörð Njarðvíkinga en var of lengi að
átta sig og Sigurður markvörður
náði að krafsa í boltann. Umdeilt at-
vik átti sér stað um miðjan síðari
hálfleik þegar Njarðvíkingar skor-
uðu mark sem dæmt var af.
Maður leiksins: Hörður Sigurjón
Bjarnason, Breiðabliki.
Stjarnan
braut ísinn
STJARNAN sigraði Víking verðskuldað, 3:1, á Víkingsvelli í 1.deild
karla en þetta var fyrsti sigur Stjörnumanna í deildinni í sumar. Öll
mörkin komu á tólf mínúta kafla í fyrri hálfleik og sáu gestirnir um
þrjú fyrstu. Víkingar náðu að minnka muninn en lengra komst liðið
ekki gegn ákveðnum Stjörnumönnum.
Atli
Sævarsson
skrifar
Atli
Þorsteinsson
skrifar
Morgunblaðið/Jim Smart
Vanda sig nú! gæti Halldór Hilmisson verið að hugsa er hann
stakk tungunni út í glímunni við Hjalta Jónsson úr liði ÍBV.
ÞRÓTTUR lék í bláum keppn-
istreyjum gegn ÍBV í gær á Laug-
ardalsvelli en gestirnir úr Vest-
mannaeyjum léku í rauðum treyjum.
Það var því erfitt fyrir þá sem lítið
þekktu til liðanna að átta sig á um
hvaða lið var að ræða.
ANDRI H. Kristinsson skylminga-
maður hafnaði í þriðja sæti á alþjóð-
legu stigamóti í skylmingum með
höggsverði í Newcastle í Englandi
um síðustu helgi. Andri vann gull-
verðlaun í liðakeppni mótsins þar
sem hann var í sveit með Englend-
ingum. Með þessum árangri hækk-
aði Andri um fjörutíu og fjögur sæti
á heimslista Alþjóðaskylmingasam-
bandsins og er nú í 155. sæti.
LEEDS United hefur samþykkt
tilboð frá Aston Villa í Paul Robin-
son, markvörð Leeds. Tilboðið er
upp á 350 milljónir íslenskra króna.
Robinson er aðeins 23 ára gamall og
er einn besti markvörður Englend-
inga. Arsenal og Manchester United
hafa sýnt Robinson áhuga en nú
virðist líklegast að hann leiki með
Aston Villa á næstu leiktíð.
IAN Taylor gekk í gær til liðs við
enska 1. deildarliðið Derby. Taylor,
sem er 35 ára gamall, hefur verið í
herbúðum Aston Villa undanfarin
átta ár en fékk ekki endurnýjaðan
samning við félagið eftir tímabilið.
WILLIAM Gallas, varnarmaður
Chelsea, mun að öllum líkindum
skrifa undir nýjan samning við liðið á
næstu dögum. Nýi samningurinn
mun gilda til ársins 2007 og mun
Gallas fá töluvert hærri laun.
FÓLK
ÞÓREY Edda Elísdóttir, stangarstökkvari úr
FH, hefur ákveðið að flytja til Leverkusen í
Þýskalandi í haust og vera þar við æfingar
fram yfir Ólympíuleikana í Aþenu sem haldnir
verða eftir rúmt ár. Þórey hefur að und-
anförnu skoðað ýmsa kosti í Þýskalandi en
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hún
hefði komist að þeirri niðurstöðu að Leverkus-
en væri besti kosturinn.
„Fyrst og fremst er það vegna þess að að-
staðan þar er fyrsta flokks, þá fæ ég notið leið-
sagnar frábærs þjálfara auk þess sem margir
af fremstu stangarstökkvurum Þýskaland eru
með bækistöðvar í Leverkusen,“ segir Þórey
sem hefur gefist upp á aðstöðu- og þjálf-
araleysi á Íslandi. „Aðstaðan er ekki góð auk
þess eru engir þjálfara hér heima í fullu starfi.
Ég hef verið ein á báti í tvö ár og hef fengið
nóg, vil vera þar sem ég get notið leiðsagnar
fyrsta flokks þjálfara við fyrsta flokks að-
stæður til þess að taka meiri framförum,“ segir
Þórey sem býst við að halda út í byrjun október
og einbeita sér að æfingum og keppni í stang-
arstökki fram yfir Ólympíuleikana í Aþenu. Á
meðan reiknar hún með að verkfræðinámið við
Háskóla Íslands, sem hún hefur lagt stund á
síðustu þrjú ár, sitji á hakanum.
Þórey hefur áður flutt sig út fyrir landstein-
ana vegna æfinga. Fyrir Ólympíuleikana í
Sydney árið 2000 var hún í Gautaborg við æf-
ingar síðasta árið fyrir þá og á eftir leikana
var hún um nærri hálfs árs skeið í Athens í
Georgíuríki í Bandaríkjunum, einnig við æfing-
ar samhliða háskólanámi. Á þeim tíma setti
hún m.a. Norðurlandamet sitt innanhúss, 4,51
metra.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þórey Edda Elísdóttir
Þórey Edda Elísdóttir
flytur til Leverkusen
PYUNIK Yerevan, mótherjar KR-
inga í forkeppni Meistaradeildar
Evrópu í næsta mánuði, eru komn-
ir á toppinn í armensku deilda-
keppninni. Pyunik sigraði skæð-
ustu keppinauta sína, Shirak, 1:0, í
toppslag á dögunum og er með 17
stig eftir 7 leiki og markatöluna
20:2. Shirak og Banants eru næst á
eftir með 16 stig en hafa bæði leik-
ið einum leik meira en Pyunik, sem
hefur unnið deildina tvö undanfar-
in ár.
Átta lið leika í úrvalsdeildinni í
Armeníu en leikin er fjórföld um-
ferð, byrjað í lok maí og endað upp
úr miðjum nóvember, en gert er
sex vikna hlé frá ágústbyrjun fram
í miðjan september.
KR og Pyunik leika í Yerevan
hinn 16. júlí og á Laugardalsvell-
inum 23. júlí. Sigurliðið mætir
CSKA Sofia frá Búlgaríu 30. júlí og
6. ágúst.
Pyunik á toppinn