Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 36
DAGBÓK
36 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag eru væntanleg
Arnarfell og Goðafoss.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag fer út Florinda frá
Suðurbakka.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg
5. Lokað vegna sum-
arleyfa frá 1. júlí til 12.
ágúst..
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað, vinnustofa, kl. 11
dans, kl. 13 vinnustofa.
Bankaþjónusta Bún-
aðarbankans verður í
dag kl. 10.15.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað. Handavinnustofan
lokuð vegna sumarfría.
Kl. 9.30 dans, kl. 10.30
leikfimi, Kl. 13.30 létt
ganga. Púttvöllur op-
inn mánudaga til föstu-
daga kl. 9–16.30. Grill-
veisla föstudaginn 11.
júlí í hádeginu.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofafn opin,
kl. 10 samverustund.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–16 vefnaður, kl. 10–
13 opin verslunin, kl.
13.30 myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16 op-
in vinnustofa, kl. 10–11
leikfimi, kl. 12.40 versl-
unarferð í Bónus, kl.
13.15–13.45 bókabíll-
inn, kl. 12 hárgreiðsla.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag er
brids kl. 13, billjard og
frjáls handavinna kl.
13.30 og púttæfing á
Hrafnistuvelli kl. 14–
16. Orlofsferð 10.–15.
ágúst. Kynning-
arfundur fimmtudag-
inn 10. júlí kl. 10 f.h.
um ferðaáætlun í or-
lofsferðina til Vest-
fjarða með gistingu á
Reykjanesi og Ísafirði.
Þátttakendur fjöl-
mennið.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði. S.
588 2111. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
ganga frá Glæsibæ kl.
10.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Lokað vegna
sumarleyfa til 12.
ágúst. Sund og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug á mánudög-
um, miðvikudögum og
föstudögum kl. 9.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–12, kl.
14 ganga.
Gullsmári, Gullsmára
13. Lokað verður í
þjónustumiðstöðinni
vegna sumarleyfa frá
7. júlí til 5. ágúst. Hár-
greiðslustofan og fóta-
aðgerðarstofan verða
opnar.
Hraunbær 105. Kl. 9
kaffi, spjall, dagblöð-
in,kl. 10 boccia, kl.
12.15 verslunarferð, kl.
13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 boccia, Fótaaðgerðir,
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofa og tréskurður
lokað frá 3. júlí til 5.
ágúst. Kl. 10–11 boccia,
kl. 9–17 hárgreiðsla.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 13–16
frjáls spil.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð, kl. 14 félagsvist.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn, verður í
dag, þriðjudaginn 8.
júlí, kl. 14 við Hamra-
vík. Á morgun, mið-
vikudaginn 9. júlí, kl.
10 við Kjalarnes og kl.
14. við Skerjafjörð v/
Reykjavíkurveg.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrif-
stofutíma. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Minningarkort MS fé-
lags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl. 10–15.
Sími 568-8620. Bréfs.
568-8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimersjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd alla daga í
s. 533-1088 eða í bréfs.
533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eft-
irtöldum stöðum: í
síma 588- 9220 (gíró)
Holtsapóteki, Vest-
urbæjarapóteki, Hafn-
arfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elías-
dóttur, Ísafirði.
Í dag er þriðjudagur 8. júlí, 189.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Jesús sagði við hann: Far þú, trú
þín hefur bjargað þér. Jafnskjótt
fékk hann sjónina og fylgdi
honum á ferðinni.
(Mark. 10,52.)
Eiríkur Jónsson skrifarpistil á Sellan.is um
kynferðisafbrot gegn
börnum og „kynferðis-
væðingu“ barna.
„Kynferðisbrot gegn
börnum eru í raun og
veru að miklu leyti sam-
félagslegt vandamál,“
skrifar Eiríkur „Tilhneig-
ing þeirra sem samfélagið
byggja er hins vegar að
horfa fram hjá því. Það er
þægilegra að einblína á
sjúkleika einstaklingsins
sem fundinn er sekur, í
stað þess að leggjast í
sársaukafulla skoðun á
eigin samfélagsgerð.
Þessi einstaklingsbundna
áhersla byggir á þeirri
forsendu að í þjóðfélaginu
sé til staðar algilt viðmið
sem felur í sér skilyrð-
islausa höfnun á hvers
kyns kynferðislegu sam-
neyti við börn. Horfum nú
í kringum okkur. Hvort
sem okkur líkar betur eða
verr er slíkt algilt viðmið
ekki til staðar! Við hlið
hins opinbera viðmiðs eru
því miður önnur sem leyfa
slíka hegðun og hvetja
jafnvel til hennar. Þessu
verðum við að gera okkur
grein fyrir og vinna
gegn.“
Eiríkur heldur áfram: „„Kynferðisvæð-
ing“ barna á auglýsinga-
og tískumarkaðnum er
því miður staðreynd og
virðist einungis fara vax-
andi. Dæmin eru ótelj-
andi. Litlar stúlkur eru
oft færðar í búning lokk-
andi kvenna eða fullveðja
konur sýndar með barns-
leg einkenni. Um allan
heim þrífst umfangsmikil
framleiðsla „löglegs
kláms“ sem vísar í barna-
klám, hið svonefnda „lol-
itu-klám“. Undirfatnaður
sem seldur er á börn í
stórmörkuðum gerir að
miklu leyti út á kynþokka,
samanber nýlega frétt um
stelpunærbuxur með
áletruninni „lick me“. Og
þessi tilvísun í barnakyn-
líf selur því miður. Gott
dæmi um það er hinn
geysivinsæli Tatu-dúett –
tvær unglingsstelpur sem
fram koma á skólabún-
ingum, klæmast og kyss-
ast á sviðinu og virðast
því miður byggja vinsæld-
ir sínar að miklu leyti á
því. Sagan hermir einmitt
að rússneskur sálfræð-
ingur hafi fengið hug-
myndina að Tatu-
dúettnum, eftir að hafa
horft á vænan skammt af
lesbísku barnaklámi.
Manni ofbýður algjörlega.
Í umræðunni um kyn-ferðisglæpi er holur
hljómur. Við getum ekki
endalaust setið aðgerða-
laus og horft á miskunn-
arlausa kynferðisvæðingu
barna í fjölmiðlum, en
hlaupið síðan til og skil-
greint brotamanninn sem
stórkostlegt frávik frá öll-
um þeim viðmiðum sem
viðurkennd eru í þjóð-
félaginu. Með því horfum
við fram hjá því að mis-
notkunin verður einmitt
að miklu leyti möguleg
með hjálp óopinberra við-
miða sem fá að mestu að
þrífast óáreitt í hinum
fjölmörgu miðlum nú-
tímans.“
STAKSTEINAR
Kynferðisglæpir
og „kynferðis-
væðing“ barna
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI varð svo frægur á dög-unum að lyfta enska bikarnum,
sigurlaununum í elstu knatt-
spyrnukeppni í heimi. Viðburðurinn
átti sér stað á Highbury í Lundúnum,
þeim sögufræga leikvangi Arsenal.
Þetta hljómar vel – en er í raun engin
afrekssaga. Víkverji hefur ekkert til
þess unnið, fremur en aðrir Íslend-
ingar, að hampa þessum merka grip,
nema þá helst að vera dyggur stuðn-
ingsmaður Arsenal. Þannig lá einmitt
í því. Arsenal, handhafi bikarsins, gaf
þennan dag fylgjendum sínum færi á
að sitja fyrir á mynd með djásninu.
Víkverji hafði að vísu ekki hugmynd
um að þetta stæði til, var bara að
spóka sig í Islington-hverfinu og datt
þarna inn úr dyrunum. Hafði hann
engar vöflur á og skellti sér í röðina
ásamt eiginkonu sinni. Hófu þau svo
bikarinn sigurglöð á loft og fengu
myndina.
x x x
ÞEGAR Víkverji er í Lundúnumleggur hann leið sína stundum
upp á spjallhorn, Speakers’ Corner, í
Hyde Park, þar sem menn af marg-
víslegu tagi standa uppi á kössum á
sunnudögum og flytja innblásnar
ræður fyrir gesti og gangandi. Oft er
þetta hin besta skemmtun. Þegar
Víkverja bar að garði að þessu sinni
stóðu þrír menn í eldlínunni. Einn var
bersýnilega stuðningsmaður Ísr-
aelsríkis, hampaði fána og lofsöng
Ísrael og gyðinga sem mest hann
mátti. Ung kona gerði athugasemd
við málflutning hans og fékk það
óþvegið til baka. „Hvar varst þú með-
an á helförinni stóð?“ gelti ræðumað-
ur ásakandi. Fátt varð um svör enda
konan varla eldri en tvítug.
Á næsta kassa stóð fulltrúi sam-
kynhneigðra og rifjaði meðal annars
upp söguna af því þegar breski land-
könnuðurinn Sir Richard Burton
rakst á tvo menn í faðmlögum í Afr-
íku um miðja 19. öld. Vakti þetta hátt-
erni undrun Sir Richards sem dró þá
ályktun að loftslaginu væri um að
kenna, hitinn hefði ruglað þá í ríminu.
Óhugsandi væri að svona lagað gæti
átt sér stað í kaldara loftslagi, til
dæmis í Evrópu.
Nokkur hópur var utan um þessa
tvo menn en senuþjófurinn var maður
sem flutti tilfinningaríka ræðu um
ágæti ólífuolíu. Sagði hana allra
meina bót. Um hann safnaðist múgur
og margmenni. Bandaríkjamaður
maldaði í móinn en var færður um-
svifalaust á kaf. „Þið Bandaríkja-
menn eruð allir eins, alltaf að finna
upp ný lyf við öllu. Tökum viagra sem
dæmi. Við þurfum ekki viagra hér,
fáum okkur bara ólífuolíu,“ þrumaði
hann og hóf flösku af olíunni góðu á
loft. Við dynjandi lófatak og hlátur.
x x x
BRETAR eru miklir áhugamennum söngleiki. Þeir ganga árum
og jafnvel áratugum saman fyrir full-
um húsum í Lundúnum. Nýlegur
söngleikur um feril poppgoðsins
Cliffs Richards náði þó aldrei flugi.
Einn gagnrýnandi var ekkert að
skafa af því: „Það eina sem gæti gert
þessa sýningu verri væri að hafa Cliff
sjálfan í henni!“
„Við þurfum ekki Viagra hér, fáum
okkur bara ólífuolíu!“
Hvar eru þingmenn
Reykjavíkur?
MÚLAGÖNG til Ólafs-
fjarðar og Strákagöng til
Siglufjarðar eru elstu
jarðgöng á Íslandi. Fyrir
kosningar lofaði ríkis-
stjórnin þriðju jarðgöng-
unum á Tröllaskaga norð-
anverðum. Þau jarðgöng
hafa nú verið slegin af um
sinn og potararnir komnir
í sínar venjulegu starthol-
ur. Á sama tíma vantar fé-
lagsþjónustuna í Reykja-
vík þúsund íbúðir til að
fullnægja eftirspurn. Ekki
heyrist bofs frá þing-
mönnum Reykjavíkur eða
borgarstjórn vegna þessa.
Nema borgarstjóri taldi
að þrengja ætti möguleika
fólks til að sækja um fé-
lagslegar íbúðir. Hann
sagði reglurnar of rúmar.
Hvar á fólkið þá að fá
húsnæði ef það má ekki
sækja um félagslegar
íbúðir? Kaupa þær á
markaði hvað sem það
kostar? Samkvæmt opin-
berum upplýsingum hefur
húsnæði hækkað um 70%
síðan 1998 í öllum stöðug-
leikanum. Húsnæði er
frumþörf sem verður að
uppfylla áður en ráðist er
í dekurverkefni eins og
þriðju jarðgöngin á
Tröllaskaga. Hér með
skora ég á þingmenn og
aðra ráðamenn Reykjavík-
ur að sinna störfum sínum
í þágu reykvískrar alþýðu.
Jón frá Pálmholti.
Tapað/fundið
Myndavél tapaðist
MYNDAVÉL tapaðist við
hestaréttina í Árnesi í
Gnúpverjahreppi hinn 19.
júní sl. Filmunnar sem er
í vélinni er sérstaklega
sárt saknað. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband í
síma 822 0201.
Íslenskur heiðarleiki
HÁLSMEN tapaðist í
Bónusi á Smáratorgi
föstudaginn 4. júlí sl. milli
kl. 13.30 og 14. Menið er
frekar stórt, aflangt, eig-
inlega sporöskjulagað, ut-
an um það er nokkurs
konar víravirkiskrans sem
gerir það einstakt og er
mjög óvanalegt. Innan við
víravirkiskransinn er
plata með egypsku letri
sem er nafnið mitt, 5
merki. Neðan við plötuna
var einhvers konar stifti
sem er nokkuð vanalegt á
þessum egypsku hálsmen-
um. Menið hefur tilfinn-
ingalegt gildi fyrir mig en
er auk þess verðmætt þar
sem það er gullmen. Ég
skora á þann sem fann
það og tók það til varð-
veislu að hafa samband í
síma 565 2632 eða
861 3081 og ég mun greiða
honum rífleg fundarlaun
fyrir það. Ég trúi enn á ís-
lenskan heiðarleika og
vona að ég verði ekki fyrir
vonbrigðum með landa
mína. Með einlægri
kveðju,
Ester Sigurðardóttir.
Lyklakippa tapaðist
LYKLAKIPPA með bíl-
lykli og þremur öðrum
lyklum, tapaðist síðdegis
laugardaginn 28. júní sl.,
e.t.v. á bílastæði við sýn-
ingarsal B&L við Suður-
landsbraut. Finnandi
hringi í síma 899 2208.
Úr með ól tapaðist
HINN 4. júlí sl. var ég á
leið úr Kópavogi. Ég gekk
Listabraut að Miklubraut.
Úrið mitt hefur tapast
einhvers staðar á leiðinni.
Skilvís finnandi hringi í
síma 551 6285.
Lyklakippa týndist
HINN 21. maí sl. tapaðist
lyklakippa á Miklubraut.
Skilvís finnandi hringi í
síma 892 1597.
Dýrahald
Læða fannst, fress-
köttur týndist
SVÖRT lítil læða fannst
við Framnesveg. Á sama
stað tapaðist fyrir viku
grábröndóttur 6 mánaða
gamall fressköttur. Upp-
lýsingar í síma 865 5310.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þetta unga fólk fylgdist með leik Fylkis og KA í
efstu deild úr tré bakvið annað markið á Fylkis-
vellinum. Leiknum lauk með sigri Fylkis 1-0.
LÁRÉTT
1 leynd, 4 hefja, 7 málm-
pinninn, 8 kannað, 9 væn,
11 lund, 13 nokkur, 14
gróði, 15 hrumur maður,
17 raddar, 20 óhreinka,
22 skóflur, 23 ganga, 24
drita, 25 afkomandi.
LÓÐRÉTT
1 skinnpoka, 2 fang, 3
skökk, 4 húsgagn, 5 ull, 6
að baki, 10 óglatt, 12
krot, 13 málmur, 15 há-
karlshúð, 16 bætt við, 18
döpur, 19 meiði, 20
öskra, 21 fædd.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 guðdómleg, 8 úrgur, 9 lemur, 10 ill, 11 afmáð,
13 akrar, 15 stóll, 18 stelk, 21 elt, 22 sting, 23 öngul, 24
gallagrip.
Lóðrétt: 2 ungum, 3 dýrið, 4 mylla, 5 eimur, 6 púma, 7
frár, 12 áll, 14 kát, 15 sósa, 16 ólina, 17 legil, 18 stöng, 19
engli, 20 kúla.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16