Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2003 9 Bankastræti 14, sími 552 1555 Útsala Gerið góð kaup Kanaríeyjaflakkarar 10 ára Sumargleði 2003 í Árnesi, Gnúpverjahreppi 11.—13. júlí. Svæðið opnað kl. 16 föstudag. „Óvissuferð“ laugardag kl. 12.00 á draugaslóðir. Ath! Draugafræðingur með í för. Dregið í happdrætti kl. 17.00 (lukkumiðar). Glæsilegir vinningar. Hátíðarhlaðborð kl. 19.00. Verð kr. 1.500. Góð tjaldstæði - grillaðstaða, sundlaug. Nemendur úr Dansskóla Sigvalda sýna línudans kl. 21.30 og ýmsar óvæntar uppákomur! Frábær músík föstud.- og laugardagsk. Ingvar Hólmgeirsson, Þorvaldi Skaptason (gítar), Arngrímur, Ingibjörg o.fl. sjá um fjörið fram á nótt. Mætum öll í Kanarístuði og tökum með okkur gesti. Stjórnin. Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–16.00. Stuttir og síðir frakkar á útsölu Engjateigi 5, sími 581 2141. Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 Opið laugard. frá kl. 10-14 Útsala 20-70% afsláttur Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347 Útsalan enn í fullu fjöri Margt fallegt og bitastætt Fataprýði Verið velkomnar Þri. 8/7: Grænmetisgratin m. fersku salati, hrísgrjónum og meðlæti. Mið. 9/7: Moussaka og fetasalat m. fersku salati, hrís- grjónum og meðlæti. Fim. 10/7:Ofnbakaðar fylltar kartöflur m. fersku salati, hrísgrjón- um og meðlæti. Fös. 11/7 Brokkolíbakstur og fleira gott m. fersku salati, hrís- grjónum og meðlæti. Helgin 12/7 & 13/7: Chili og fylltar pönnukökur m. fersku salati, hrísgrjónum og meðlæti. Mán. 14/7: Grænmetissnúðar m. pestó, fersku salati, hrís- grjónum og meðlæti. Matseðill www.graennkostur.is Stuttbuxur á 1.000 kr. Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—15 Laugavegi 4, sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Póstsendum Stórútsalan er byrjuð í kjallara 50 -75% afsláttur Opið til kl.17 á Löngum laugardagi Fix universal Umhverfisvænn hreinsimassi frá Þýskalandi HREINT ÓTRÚLEGT EFNI VIÐ ERFIÐ ÞRIF Hreinsar, pólerar og verndar samtímis. Messing • kopar • stáli • gulli • silfri lökkuðum flötum • plasti • gleri keramikhellum • emaleruðum flötum o.fl. Ómissandi á heimilið, í bílinn, bátinn, fellihýsið o.fl. Smiðjuvegur 11, gul gata, sími 568 2770 PILTURINN sem slasaðist í skemmtigarðinum við Smáralind á sunnudaginn er á batavegi. Að sögn aðstandanda er líðan hans góð og engar alvarlegar blæðingar á höfði hafa komið í ljós. Hann sé því úr hættu þó höggið hafi verið alvarlegt. Búið er að færa hann af gjörgæsludeild á barnadeild Land- spítalans – háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Ástand hans er kannað reglulega með myndatökum. Lögreglan í Kópavogi tók frum- skýrslu af piltinum í gærmorgun. Hann man þó ekkert eftir högginu eða deginum sem slysið varð. Lög- reglan segir það ekki óeðlilegt fyrst eftir þungt höfuðhögg. Misvísandi upplýsingar Steinar Harðarson, umdæmis- stjóri Vinnueftirlitsins í Reykjavík, segir upplýsingar um tildrög slyss- ins misvísandi. Hann hefur óskað eftir því, að gefnu tilefni, að rann- sóknarlögreglan í Kópavogi yfir- heyri vitni og þá sem geti gefið betri upplýsingar af hverju pilt- urinn var inni á öryggissvæði á meðan tækið var í gangi. Hann segir ljóst að reglur um gæslu- menn vélknúinna leiktækja hafi verið brotnar. Pilturinn, sem er nýorðinn 16 ára, var við vinnu sína í skemmti- garðinu Fun-Land við Smáralind klukkan þrjú á sunnudaginn þegar slysið varð. Helgi Hauksson, sem var vitni að slysinu, segir að pilt- urinn hafi verið að taka segl af há- talara, sem var fyrir innan örygg- isgirðingu leiktækisins, þegar hann hlaut höfuðhöggið. Líklega hafi hann gleymt sér eitt augna- blik við vinnu sína með þeim af- leiðingum að tækið skall á honum. Ekki var hægt að huga að honum þar sem hann lá meðvitundarlaus á meðan tækið var stöðvað. Myndir staðfesta atburðarás Helgi segir myndir sem hann tók sýna þessa atburðarás. Hann hafði fengið leyfi til að standa á stigapalli, þar sem farþegar fara út að lokinni ferð, til að taka myndir. Á þeim sést hvar pilturinn stendur fyrir innan öryggisgirð- ingu og bendir í átt að hátalara hinum megin. Við hlið hans er eldri starfsmaður sem er að huga að segli yfir hátalara þeim megin. Hann fer svo út fyrir öryggisgirð- inguna, labbar hringinn og inn fyr- ir aftur þeim megin sem Helgi stendur. Þegar hann er að eiga við seglið verður slysið. Helgi segir því rangt haft eftir umsjónarmönnum skemmtigarðs- ins að pilturinn hafi verið að ná í húfu sem einn farþeginn hafi misst. Húfan flaug af örfáum sek- úndum áður en slysið varð og lenti langt fyrir utan öryggisgirðinguna. Því hafi hann ekki átt neitt annað erindi en að laga hátalarann eins og umsjónarmaður leiktækisins hafði gert hinum megin skömmu áður. Leiktækinu ekki lokað Eiríkur Tómasson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn í Kópavogi, segir að rannsókn á slysinu haldi áfram. Beðið sé eftir skýrslu frá Vinnu- eftirlitinu. Vitni hafa verið yfir- heyrð og í gærmorgun tók lög- reglan frumskýrslu af piltinum. Eftir athugun Vinnueftirlitsins var ekki talin þörf á að loka tækinu. Eva Willatzen, talsmaður Fun- Land, sem rekur skemmtigarðinn við Smáralind, segist ekki geta tjáð sig um hvort pilturinn hafi verið að beygja sig eftir húfu, sem einn farþeginn missti, eða taka segl af hátalara. Fyrst og fremst sé þetta slys harmað og nú sé ítrekað fyrir öllum gestum að taka ekkert lauslegt með sér í tækið. Hún segir ekki hægt að ásaka neinn enda gera slysin ekki boð á undan sér. Steinar Harðarson hjá Vinnueft- irlitinu fór ásamt Birni Pálssyni á vettvang slyssins í gær til að afla frekari upplýsinga. Í framhaldinu mun eftirlitið gefa út slysaumsögn eftir að búið er að kanna hvort ákvæði vinnuverndarlaganna hafa verið brotin eða aðstæður hafa ekki verið eins og lög og reglur mæla fyrir um. Aldursmörk ekki virt Í reglum um vélknúin leiktæki í skemmtigörðum segir að gæslu- menn skulu vera orðnir fullra 17 ára til að annast rekstur slíkra tækja. Samkvæmt vinnuverndar- lögum er óheimilt að ráða ung- menni yngri en 18 ára til vinnu þar sem fyrir hendi er slysahætta, sem unglingar geti átt í erfiðleikum með að átta sig á eða forðast vegna andvaraleysis eða skorts á reynslu eða þjálfun. Aðspurður hvort þessar reglur hafi verið brotnar segir Steinar ljóst að eingöngu þeir sem eru orðnir 17 ára mega starfa við svona leiktæki. Að því leytinu til var ekki farið eftir þessum reglum. Álitamál sé hvort krefjast eigi af þeim, sem reka svona leiktæki, að starfsfólk sé orðið 18 ára í sam- ræmi við vinnuverndarlögin. Pilturinn sem slasaðist við Smáralind er á batavegi Reglur um gæslumenn leiktækja brotnar Misvísandi upp- lýsingar um tildrög slyssins Morgunblaðið/Júlíus Pilturinn, sem er nýorðinn 16 ára, var við vinnu sína í skemmtigarðinum Fun-Land við Smáralind á sunnudaginn þegar slysið varð. Magnús Vestfjarða- víkingur HREYSTIMENNIÐ Magnús Ver Magnússon sigraði í keppninni um titilinn Vestfjarðavíkingurinn 2003 sem lauk á Patreksfirði um helgina. Fjöldi fólks fylgdist með Magn- úsi og öðrum kraftajötnum etja kappi við fjölbreyttar aflraunir en í lokakeppninni á Patreksfirði fengu keppendur að kljást við nærri 400 kílóa dekk, eða nálægt hálfu tonni enda voru átökin gríð- arleg. Magnús Ver var víkinga sterk- astur og er þetta í sjöunda sinn sem hann vinnur keppnina. Kol- brún Pálsdóttir, formaður bæj- arráðs Vesturbyggðar, krýndi vík- inginn í lok keppninnar. Magnús Ver Magnússon er Vest- fjarðavíkingurinn 2003.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.