Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 40
ÍÞRÓTTIR
40 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
ENSKIR fjölmiðlar
halda áfram að orða
landsliðsmanninn Ívar
Ingimarsson við önnur
lið. Ívar, sem á eitt ár
eftir af samningi
sínum við Wolves, er
sagður á team talk
vefnum vera á óska-
lista enska 1. deildar
liðsins Reading og á
dögunum var frá því
greint í Express and
Star, staðarblaðinu í
Wolverhampton, að 3.
deildar liðið Nort-
hampton vildi fá Ívar í
sínar raðir.
„Staðan hjá mér er einfaldlega sú
að ég ætla að einbeita
mér að Wolves og
berjast fyrir minni
stöðu. Ég ætla að láta
hlutina þróast næstu
mánuðina en ef ég sé
að ég er ekki inni í
myndinni hjá liðinu
mun ég skoða mínu
stöðu. Það eina sem ég
veit á þessari stundu
er að ég á að mæta á
fyrstu æfingu Wolves
á morgun [í dag],“
sagði Ívar við
Morgunblaðið. Ívar
lék með Brentford
áður en hann gekk í
raðir Wolves.
Ívar Ingimarsson er
orðaður við Reading
Ívar Ingimarsson
Gestunum úr Kópavogi gekk bet-ur að fóta sig til að byrja með
og tókst oft sæmilega að spila bolt-
anum en gekk illa að
komast síðasta spöl-
inn framhjá vörn
Mosfellinga, sem
sjálfir voru snöggir
fram völlinn. Á 40. mínútu geystust
þeir í annað sinn upp hægri kantinn
og Þorvaldur Már Guðmundsson gaf
fyrir en varnarmönnum HK tókst
aðeins að koma boltanum rétt út fyr-
ir teig á Boban Ristic sem þrumaði
honum upp í þaknetið. Mosfellingar
fengu ekki að fagna lengi því mínútu
síðar var Ólafur V. Júlíusson felldur
af Einar Hjörleifssyni markverði
Aftureldingar í vítateig svo dæmd
var vítaspyrna, sem Zoran Panic
skoraði úr. Næstu mínútu fengu
HK-menn þrjú tækifæri inni í mark-
teig til að skora en tókst ekki.
Mosfellingar voru meira með
boltann framan af síðari hálfleik en
færin engu að síður HK-manna.
Þeim gekk hinsvegar illa að koma
boltanum í markið var síðan refsað
harðlega þegar Þorvaldur Már
stökk enn og aftur upp hægri kant-
inn og gaf fyrir, varnarmaður ætlaði
að hreinsa frá en hitti ekki boltann,
sem rann fyrir fætur Hennings sem
lagði hann vandlega fyrir sig og kom
Aftureldingu í 2:1 á 73. mínútu.
Gestirnir tóku sig á þegar leið að
lokum og fengu ágæt færi, þar af
var eitt mark dæmt af en Mosfell-
ingar biðu þolinmóðir og fengu ekki
síðri færi.
Magnús Einarsson fyrirliði og
besti maður Aftureldingar var sátt-
ur við sigurinn. „Hvert stig er mik-
ilvægt því allir geta unnið alla í
deildinni. Við ætluðum að liggja aft-
arlega og sækja með skyndisóknum
því við höfum verið meira með bolt-
ann í síðustu leikjum en það hefur
ekki hentað okkur,“ sagði Magnús
eftir leikinn. Albert Ásvaldsson átti
einnig góðan leik.
„Við erum að skapa okkur fleiri
færi en andstæðingar okkar og það
er barátta í liðinu en á meðan við
nýtum ekki og skorum ekki meira
en andstæðingurinn fáum við ekki
stig,“ sagði Gunnleifur Gunnleifsson
markvörður, sem bar fyrirliðaband-
ið í fjarveru Guðbjartar Haraldsson-
ar, sem er meiddur. Ólafur og Ás-
grímur Albertsson voru góðir hjá
HK.
Maður leiksins: Magnús Einars-
son, Aftureldingu.
Afturelding
nýtti færin
Víkingar byrjuðu betur og strax á 3.mínútu átti Bjarni Hall gott skot
sem fór rétt fram hjá Blikamarkinu.
Tíu mínútum síðar
skoraði Stefán Örn
fyrir Víkinga eins og
áður er getið. Egill
Atlason gaf þá gull-
fallega sendingu fyrir mark Breiða-
bliks á Stefán Örn sem skoraði með
viðstöðulausu skoti. Við markið vökn-
uðu Blikar og það sem eftir lifði fyrri
hálfleiks réðu þeir lögum og lofum á
vellinum. Hörður Bjarnason komst
næst því að jafna fyrir þá í fyrri hálf-
leik er skot hans hafnaði í stöng Vík-
ingsmarksins.
Víkingar hófu síðari hálfleik líkt og
þann fyrri, af krafti. Á 49. mínútu
dansaði Daníel Hjaltason, leikmaður
Víkings, framhjá hverjum varnar-
manni Breiðabliks á fætur öðrum og
lagði boltann á Bjarna Hall en gott
skot hans fór í varnarmann og rétt
framhjá. Einu alvöru tilraun Breiða-
bliks að marki í síðari hálfleik átti Ol-
geir Sigurgeirsson en skot hans
strauk utanverða stöng Víkings-
marksins. Undir lok leiksins voru Vík-
ingar nálægt því að bæta við mörkum
en Páll Gísli Jónsson, markvörður
Breiðabliks, varði meistaralega í tví-
gang frá þeim Stefáni Erni og Agli.
Sigur Víkinga var verðskuldaður og
engin tilviljun að lærisveinar Sigurðar
Jónssonar eru búnir að fá á sig fæst
mörk í 1. deild í ár. Öll varnarlína Vík-
ings lék vel í gær þó sér í lagi miðverð-
irnir, Sölvi Geir Ottesen og Þorri
Ólafsson. Á miðjunni stóðu Haukur
Úlfarsson og Bjarni Hall fyrir sínu og
framherjarnir Stefán Örn og Egill
Atlason voru frískir.
Heimamenn í Breiðabliki voru síst
slakari aðilinn bróðurpart leiksins.
Blikar geta leikið vel á milli sín úti á
vellinum og þar standast fæst lið
deildarinnar þeim snúning. Hins veg-
ar þegar nær dregur marki eru Blikar
afskaplega hugmyndasnauðir og ekki
tilviljun að liðið er búið að gera fæst
mörk í deildinni á leiktíðinni. Hjá
heimamönnum voru þeir Olgeir og
Kristófer Sigurgeirssynir manna
bestir ásamt Páli Gísla, markverði.
Sigurður sigurreifur
Sigurður Jónsson, þjálfari Víkinga,
var stoltur af sínum drengjum í leiks-
lok: „Þetta var gríðarlega mikilvægur
sigur og gott að komast aftur á skrið í
deildinni. Það er engin spurning að
þetta var ígildi sex stiga leiks því
Breiðablik er eitt af þeim liðum sem
getur farið upp í efstu deild. Allt liðið
spilaði mjög vel í vörn og þá sér í lagi
Sölvi Geir Ottesen og ungmenna-
landsliðsþjálfarinn [Ólafur Þórðarson]
hlýtur að fara að skoða hann því eins
og hann leikur Víking þá á hann heima
í því ungmennalandsliðinu. Nú er það
Keflavíkurliðið í næsta leik. Það hefur
sýnt sig í upphafi móts að það eru svo-
lítið sér á báti hvað gæði varðar en það
skal fá að hafa fyrir hlutunum í Vík-
inni því við munum selja okkur dýrt,“
sagði sigurreifur þjálfari Víkinga, Sig-
urður Jónsson, í leikslok.
Maður leiksins: Sölvi Geir Ottesen,
Víking.
Víkingssigur
í Kópavogi
VÍKINGAR sigruðu lið Breiðabliks með einu marki gegn engu í 1.
deild karla á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Stefán Örn Arnarsson skor-
aði sigurmark Víkinga á 14. mínútu leiksins. Víkingar eru nú komnir
með 15 stig í öðru sæti deildarinnar en Blikar eru með tíu stig í
sjötta sæti. Keflavík er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar.
Hjörvar
Hafliðason
skrifar
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
KR-völlur: KR – FH .............................19.15
3. deild karla:
Gróttuvöllur: Grótta – Númi .....................20
Árskógsstrandarv.: Reynir Á. – Hvöt ......20
Dúddavöllur: Snörtur – Vaskur ................20
Fáskrúðsfjarðarv.: Leiknir F. – Einherji 20
1. deild kvenna:
Sandgerðisvöllur: RKV – HSH.................20
Sauðárkróksv.: UMFT – Leiftur/Dalvík..20
Í KVÖLD
KAJAK-RÓÐUR
Lagarfoss-Rodeo
Keppt í Eyvindará:
1. Jón Heiðar Andrésson ........................8,05
2. Aðalsteinn Möller ................................8,07
3.Erlendur Magnússon...........................8,10
Flúðafimi við Lagarfoss:
1. Anup Gurung, Nepal
2. Pies Smith, Bretlandi
3. Kristján Sveinsson, Íslandi
HJÓLREIÐAR
Á sunnudagsmorgun fór fram Íslandsmót í
fjallahjólreiðum á braut í Öskjuhlíð á veg-
um Hjólreiðanefndar ÍSÍ. Mótið var tví-
skipt og hafði Meistaramótið í yngri flokk-
um farið fram nokkrum dögum áður.
Hjólaðir voru mismargir hringir eftir
flokkum en meistaraflokkur fór tólf hringi
á erfiðri braut sem lá vítt og breitt um
skóginn og reyndi mjög á tæknilega kunn-
áttu manna á hjólunum. Steinar Þorbjörns-
son sigraði með yfirburðum. Haukur M.
Sveinsson, sem átti titil að verja, varð að
láta sér lynda annað sætið og Kári Brynj-
ólfsson endaði í því þriðja. Hann skaut þar
með mörgum reyndari hjólreiðamönnum
ref fyrir rass og sigraði einnig í flokkum
unglinga og pilta.
Nokkrum dögum fyrr var meistaramót
Íslands í yngri flokkum haldið á sama stað
en samtals mættu 27 keppendur á ýmsum
aldri til leiks á mótunum. Í elsta flokkinum
á meistaramótinu sigruðu Laufey Helga-
dóttir og Kári Brynjólfsson. Í yngri flokk-
unum voru það Bryndís Þorsteinsdóttir og
Ólöf Brynja Aradóttir í hnátu- og stelpu-
flokkum sem komu fyrstar í mark og hjá
hnokkum og drengjunum voru það Krist-
ján V. Kristinsson og Adam Ingi Bergsson
sem sigruðu. Gísli Ólafsson varð fyrstur
garpanna en í þeim flokki eru þeir hjól-
reiðamenn sem hafa náð 34 ára aldri.
Karlaflokkur 12 hringir:
Steinar Þorbjörnsson.........................1.14,54
Haukur Már Sveinsson......................1.19,37
Kári Brynjólfsson...............................1.21,10
Garpaflokkur 12 hringir:
Gísli Ólafsson ......................................1.27,37
Unglingspiltar 12 hringir:
Kári Brynjólfsson...............................1.21,10
Piltar, 10 hringir:
Kári Brynjólfsson..................................46,33
Stúlkur, 7 hringir:
Laufey Helgadóttir ...............................53,57
Drengir, 5 hringir:
Adam Ingi Bergsson .............................35,07
Stelpur, 5 hringir:
Ólöf Brynja Aradóttir ...........................33,07
Hnokkar, 5 hringir:
Kristján V. Kristinsson.........................31,50
Ingvar Páll Bjarnason ..........................35,09
Elvar A. Guðmundsson.........................55,34
Hnátur, 5 hringir:
Bryndís Þorsteinsdóttir........................32,51
HELDUR rættist úr leik Aftureldingar og HK í Mosfellsbænum í gær-
kvöldi þó leikmenn næðu aldrei að sýna sparihliðarnar á þungum
og blautum vellinum. Mosfellingum tókst þá betur upp með færin
sín, sem komu frá gestunum, og unnu 2:1. Það lyftir þeim um 3 sæti
– upp í fimmta sætið en HK er fer niður í það áttunda.
Stefán
Stefánsson
skrifar
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla,
Landsbankadeild
Grindavík - ÍA ...........................................3:2
Ólafur Örn Bjarnason 9., Ray Anthony
Jónsson 29., Guðmundur Bjarnason 63. -
Stefán Þórðarson 41., Grétar Rafn Steins-
son 69.
Staðan:
Fylkir 8 5 1 2 13:6 16
Þróttur R. 8 5 0 3 15:10 15
Grindavík 8 4 0 4 12:14 12
FH 8 3 2 3 13:13 11
KR 8 3 2 3 8:10 11
ÍA 8 2 4 2 11:9 10
ÍBV 8 3 1 4 12:12 10
Valur 8 3 0 5 11:15 9
KA 7 2 2 3 9:9 8
Fram 7 2 2 3 9:15 8
Markahæstu menn:
Björgólfur Takefusa, Þróttur R................. 8
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ............. 7
Jóhann H. Hreiðarsson, Valur ................... 5
Haukur Ingi Guðnason, Fylkir .................. 4
Jónas Grani Garðarsson, FH ..................... 4
Sinisa Kekic, Grindavík .............................. 4
Sören Hermansen, Þróttur R. ................... 4
Björn Viðar Ásbjörnsson, Fylkir............... 3
Guðjón H. Sveinsson, ÍA............................. 3
Hreinn Hringsson, KA ............................... 3
Sigurbjörn Hreiðarsson, Valur.................. 3
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR .............. 3
Tommy Nielsen, FH ................................... 3
Ágúst Gylfason, Fram................................. 2
Grétar Rafn Steinsson, ÍA.......................... 2
Guðmundur A. Bjarnason, Grindavík ....... 2
Gunnar Þór Pétursson, Fylkir ................... 2
Hjálmar Þórarinsson, Þróttur R. .............. 2
Ingvar Ólason, Fram .................................. 2
Kristján Brooks, Fram ............................... 2
Ólafur Örn Bjarnason, Grindavík .............. 2
Pálmi Rafn Pálmason, KA.......................... 2
Stefán Þór Þórðarson, ÍA........................... 2
Steinar Tenden, KA .................................... 2
Veigar Páll Gunnarsson, KR...................... 2
1. deild karla
Breiðablik - Víkingur...............................0:1
Stefán Örn Arnarson 13.
Afturelding - HK ......................................2:1
Boban Ristic 40., Henning E. Jónasson 73. -
Soran Panic 42.
Staðan:
Keflavík 8 7 0 1 24:9 21
Víkingur R. 8 4 3 1 10:6 15
Þór 8 3 3 2 16:14 12
Haukar 8 3 2 3 13:12 11
Afturelding 8 3 2 3 10:13 11
Breiðablik 8 3 1 4 7:9 10
Njarðvík 8 2 2 4 12:15 8
HK 8 2 2 4 9:12 8
Stjarnan 8 1 4 3 10:13 7
Leiftur/Dalvík 8 2 1 5 8:16 7
3. deild karla, C-riðill:
Neisti H. - Magni.......................................3:6
Staðan:
Vaskur 7 6 0 1 22:8 18
Magni 8 4 2 2 19:11 14
Reynir Á 7 4 2 1 10:7 14
Hvöt 7 2 2 3 16:8 8
Neisti H. 8 1 2 5 14:23 5
Snörtur 7 0 2 5 6:30 2
3. deild karla, D-riðill:
Huginn - Höttur ........................................2:1
Fjarðabyggð - Neisti D. ...........................3:0
Staðan:
Fjarðabyggð 8 6 0 2 21:8 18
Höttur 8 4 1 3 14:9 13
Huginn 8 4 0 4 16:16 12
Neisti D. 7 3 1 3 7:13 10
Einherji 6 2 0 4 7:11 6
Leiknir F. 7 2 0 5 9:17 6
Svíþjóð
Elfsborg - Malmö FF................................1:2
Gautaborg - AIK .......................................0:2
Staðan:
Djurgården 12 8 1 3 29:10 25
Malmö 13 7 3 3 24:13 24
AIK 13 7 3 3 22:13 24
Hammarby 12 6 4 2 17:14 22
Örebro 13 6 3 4 19:18 21
Halmstad 13 6 2 5 22:18 20
Helsingborg 12 5 3 4 14:19 18
Örgryte 12 5 2 5 17:20 17
Gautaborg 13 4 4 5 19:15 16
Elfsborg 13 4 4 5 16:21 16
Landskrona 13 3 5 5 15:19 14
Sundsvall 13 2 5 6 13:19 11
Öster 13 2 3 8 11:24 9
Enköping 13 2 2 9 14:29 8
Opna Norðurlandamótið
17 ára landslið kvenna:
Leikur um 7. sætið:
Ísland - Danmörk......................................2:3
Harpa Þorsteinsdóttir og Margrét Lára
Viðarsdóttir skoruðu mörk Íslands. Svíar
urðu Norðurlandameistarar.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Hraðmót ÍR:
KR – Haukar .........................................84:82
ÍR – Keflavík..........................................88:87
Grindavík – Fjölnir ...............................76:83
Ekkert sjálfgefið
hjá Haukum
ÞAÐ skýrist í næstu viku hvaða mótherja Haukar fá í und-
ankeppni Meistardeildarinnar í handknattleik, en á þriðjudaginn
verður dregið.
Haukar eru í potti ásamt níu öðrum liðum og ljóst að Hafnfirð-
ingar geta verið heppnir og einnig óheppnir og alls ekki víst að
liðið komist áfram. Það er altént ekkert sjálfgefið í þessum efn-
um.
Í pottinum eru meðal annars gríska liðið Filippos Verias, sem
lék til úrslita í fyrra í EHF-keppninni, Granitas Kaunas frá Lith-
áen, Winterthur frá Sviss og Arkatron Minsk frá Hvíta-Rússlandi.
Það eru 158 félagslið sem taka þátt í Evrópukeppni EHF í vet-
ur, það er að segja karlalið og 124 kvennalið.