Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FARÞEGUM Icelandair, dóttur-
félags Flugleiða, fækkaði um 14,3% í
maí frá sama mánuði í fyrra. Fækk-
unin er, líkt og á fyrri mánuðum árs-
ins, fyrst og fremst á Norður-Atl-
antshafsmarkaðnum en þar fækkaði
farþegum í maímánuði um 27,4%.
Á fyrstu fimm mánuðum ársins
hefur farþegum Icelandair fækkað
um 11,3% miðað við sama tímabil í
fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá
Flugleiðum má rekja þá fækkun ein-
vörðungu til 29,1% fækkunar Norð-
ur-Atlantshafsfarþega. Farþegum
til og frá Íslandi fjölgaði um 1,9%
fyrstu fimm mánuði ársins en fækk-
aði um 4% í maí miðað við sama tíma-
bil í fyrra.
Sætaframboð félagsins í maí var
8,9% minna en í sama mánuði árið
2002 og sætanýting versnaði því um
6,1% milli tímabila. Sætanýting
fyrstu fimm mánuði ársins versnaði
um 6%.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Icelandair, er
fækkunin á fyrstu fimm mánuðum
ársins í samræmi við það sem er hjá
öðrum flugfélögum sem fljúga yfir
Norður-Atlantshafið, meðal annars
út af Íraksstríðinu og ótta vegna
bráðalungnabólgunnar. Hann segir
að hjá Icelandair bætist við að félag-
ið er með minna sætaframboð fyrir
þennan markað nú en áður. Eitt af
markmiðum Icelandair er að auka
það hlutfall farþega sem ferðast með
félaginu á leiðum til og frá Íslandi.
Fyrstu fimm mánuði ársins var þetta
hlutfall 66% en var um 57% á sama
tímabili árið 2002.
Guðjón segir að Icelandair merki
breytingar til hins betra á Norður-
Atlantshafsmarkaðnum og eins sé
staðan góð í farþegaflugi til og frá Ís-
landi.
Fjölgun í innanlandsflugi
en minni frakt
Farþegum Flugfélags Íslands
fjölgaði um 2,9% í maí og hefur fjölg-
að um tæp 6% það sem af er ári.
Sætanýting félagsins hefur sömu-
leiðis batnað. Farþegar Flugfélags
Íslands voru tæplega 106 þúsund
talsins fyrstu fimm mánuði ársins en
voru um 100 þúsund á sama tímabili í
fyrra.
Í maí fluttu Flugleiðir Frakt 2.524
tonn sem er 4,9% minna en í maí í
fyrra og á fyrstu fimm mánuðum
ársins hafa flutningar félagsins
dregist saman um 4,5% frá sama
tíma í fyrra.
Vísbending um
verri afkomu
Greiningardeild Kaupþings Bún-
aðarbanka áætlar að velta þessara
þriggja dótturfélaga Flugleiða sé yf-
ir 2⁄3 af veltu samstæðu Flugleiða og
því séu þessar tölur um framleiðslu
og sætanýtingu þeirra góð vísbend-
ing um rekstur samstæðunnar.
„Ljóst er að mikil fækkun farþega
sem og verri sætanýting er nokkuð
undir væntingum greiningardeildar
fyrir rekstur félagsins á fyrri helm-
ingi ársins. Greiningardeild gerir
ráð fyrir um 100 m.kr. tapi á rekstri
samstæðunnar á fyrri helmingi árs-
ins en fækkun farþega til og frá land-
inu í maímánuði er nokkuð undir
væntingum og gefur vísbendingar
um að afkoma félagsins geti orðið
verri á fyrri helmingi ársins en af-
komuspá greiningadeildar gerði ráð
fyrir,“ að því er segir í hálf fimm
fréttum Kaupþings Búnaðarbanka í
gær.
Lokaverð Flugleiða var 4,55 í
Kauphöll Íslands í gær og voru sára-
lítil viðskipti með félagið.
Farþegum
fækkar
um 11,3%
Farþegum Flugleiða á Norður-Atl-
antshafsmarkaði fækkar um tæp 30%
KANADÍSKA álfyrirtækið Alcan,
annað stærsta álfyrirtæki í heimi,
hefur gert yfirtökutilboð í franska
álfyrirtækið Pechiney, sem er hið
fjórða stærsta í heimi, alls að upp-
hæð 3,4 milljarðar evra, tæplega
300 milljarðar króna. Með kaup-
unum yrði Alcan stærsta álfyrir-
tæki í heimi mælt í veltu. Banda-
ríska fyrirtækið Alcoa kæmi næst,
en það yrði með fleiri starfsmenn
og hærra markaðsvirði. Alcan er
móðurfyrirtæki Alcan á Íslandi og
Alcoa hefur undirritað samninga
um að reisa álver á Reyðarfirði.
Tilboðið er metið á 41 evru á
hlut og miðast að hluta til við að
greitt verði með bréfum í Alcan.
Þetta er 20,5% yfir lokaverði á
bréfum Pechiney á markaði sl.
föstudag.
Tilboðið er óvinveitt þar sem það
er ekki gert með samþykki stjórn-
enda Pechiney. Í tilkynningu frá
fyrirtækinu segir að það telji til-
boðið ekki í samræmi við raun-
verulegt verðmæti Pechiney, það
sé slæmt fyrir fyrirtækið, starfs-
menn þess og hluthafa.
Samlegðaráhrif
Alcan telur að búið verði að
ganga frá kaupunum innan fárra
mánaða. Samruninn myndi hafa í
för með sér mikil samlegðaráhrif,
m.a. 250 milljóna dala árlegan
sparnað fyrir fyrirtækið, að því er
fram kemur í frétt Reuters.
Alcan segir að tilboðið muni
styrkja stöðu fyrirtækisins sem
leiðandi álframleiðanda og yrði
báðum fyrirtækjum til hagsbóta.
Alcan og Pechiney ásamt sviss-
neska álfyrirtækinu Alusuisse
höfðu þriggja fyrirtækja samruna
á prjónunum fyrir þremur árum en
yfirvöld samkeppnismála í Evrópu-
sambandinu hindruðu hann.
Alcan vill verða
stærst í heimi
GREININGARDEILDIR Kaup-
þings Búnaðarbanka og Íslands-
banka mæla báðar með sölu á bréfum
Eimskipafélagsins. Greiningardeild
Kaupþings Búnaðarbanka gaf út
verðmatsskýrslu um Eimskipafélagið
í gær, þar sem reiknað gengi hluta-
bréfa Eimskipafélagsins var 4,70, en
lokagengi bréfanna í gær var 6,35. Í
skýrslu greiningardeildar Íslands-
banka sem kom út í síðustu viku
hljóðaði verðmatið upp á 5,0. Loka-
gengi Eimskipafélagsins í Kauphöll
Íslands í gær var því 27%–35% hærra
en það gengi sem greiningardeildirn-
ar telja að ætti að vera á bréfunum.
Miðað við verðmat greiningar-
deildanna tveggja liggur verðmæti
Eimskipafélagsins á bilinu 24–26
milljarðar króna, en markaðsverð
bréfanna miðað við lokagengi gær-
dagsins er tæpir 33 milljarðar króna.
Greiningardeild Kaupþings Bún-
aðarbanka telur að hátt gengi Eim-
skipafélagsins endurspegli fyrst og
fremst aukna samþjöppun eignarað-
ildar í félaginu, en afkoma og horfur
hafi ekki gefið sérstakt tilefni til
þeirra gengishækkana sem orðið hafi
að undanförnu.
Brim er dótturfélag Eimskipa-
félagsins og varð til við sameiningu
Haraldar Böðvarssonar, Útgerðar-
félags Akureyringa og Skagstrend-
ings. Brim er stærsta sjávarútvegs-
fyrirtæki landsins, en í skýrslu
Kaupþings Búnaðarbanka segir að
fyrirtækinu hafi ekki enn tekist að ná
fram viðunandi framlegð. Greining-
ardeildin gerir ráð fyrir að framlegð-
in muni aukast á næstu árum með
meiri sérhæfingu vinnsluhúsa, sam-
nýtingu aflaheimilda og bættri nýt-
ingu afkastagetu.
Kaupþing Búnaðarbanki segir að
rekstrarafkoma flutningastarfsemi
Eimskipafélagsins ráðist mjög af
efnahagsástandinu á hverjum tíma.
Þrátt fyrir að flutningar með flugi
hafi aukist á kostnað sjóflutninga og
samkeppni á flutningamarkaði hafi
farið vaxandi, megi gera ráð fyrir að
Eimskipafélagið njóti góðs af þeim
umfangsmiklu framkvæmdum sem
nú séu hafnar með byggingu virkjana
og álvers, en óvissa sé vegna áhrifa af
minnkun umsvifa varnarliðsins. Af-
koma flutningastarfseminnar hafi
verið óviðunandi um langt skeið og
fjármunamyndun hafi ekki verið
nægjanleg í rekstrinum. Þá hafi
styrking krónunnar komið sér illa
fyrir reksturinn á fyrsta ársfjórð-
ungi. Búast megi við að framlegðin
batni nokkuð í kjölfar aukinna um-
svifa í efnahagslífinu á næstu miss-
erum, þrátt fyrir spá um sterka
krónu.
Hlutabréf Eim-
skips talin of dýr