Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 42
!" #
$
#
!"
!"
!" #
#
!" #
!" $
#
!" #
#
!" $
%
#
&
&
&
&
'
(
'
'
'
&
'
'
(
&
'
&
'
&
'
&
!
"#
$%
&&'
( (
!)
*'
góma í hlutverk illmennisins Bills
Cuttings áður en Scorsese tókst á
endanum að telja Daniel Day-Lewis á
að snúa sér að leiklistinni að nýju.
Þótt Robert De Niro, einn nánasti
samstarfsmaður Scorsese í gegnum
tíðina, hafi ekki komið nálægt endan-
legu útgáfunni hafði staðið til allt frá
1978 að hann yrði með en þá átti hann
að fara með hlutverkið sem Leonardo
DiCaprio lék á endanum.
Gengi New York-borgar kemur út
á myndbandi og mynddiski í dag.
Himnaríki heitir mynd sem kemur
út á myndbandi á morgun. Athyglis-
verðust er hún fyrir þær sakir að
handritið var skrifað af Krysztof
Kieslowski heitnum og átti að vera
það fyrsta í nýjum þríleik sem hann
var með í undirbúningi er hann féll frá
1996. Í stað hans tók Þjóðverjinn ungi
Tom Twyker að sér leikstjórnina en
hann er kunnastur fyrir að gera
Hlauptu Lola hlauptu. Með helstu
hlutverk fara Cate Blanchett og Giov-
anni Ribisi en myndin olli töluverðum
deilum eftir að hún var frumsýnd á
Berlínarhátíðinni í fyrra vegna þess
að einhverjum þótti samúðin í garð
hryðjuverkamanna helst til of mikil.
ÞEGAR New York var í mótun var
ekki auðlifað í henni. Það hafði verið
draumur eins virtasta sonar borgar-
innar Martins Scorsese að fjalla um
þessi myrku mótunarár borgarinnar,
tímabilið 1846–1863, þegar geisuðu
blóðug átök borgara á milli, þeirra
sem búnir voru að koma sér fyrir í
borginni og hinna sem töldust til inn-
flytjenda.
Hugmynd Scorsese um að fjalla um
þennan tíma kviknaði fyrst á 8. ára-
tugnum en svo umfangsmikið verk-
efni féll vægast sagt í grýttan jarðveg
hjá fjárfestum í Hollywood eftir
Heaven’s Gate-skellinn hans Mich-
aels Ciminos. Scorsese lét þó ekki
deigan síga og var með myndina í
maganum í heila tvo áratugi áður en
hann lét endanlega til skara skríða.
Það var á endanum hinn hugaði Har-
vey Weinstein, höfuðpaur Miramax-
samsteypunnar, sem beit á agnið, tók
verkefnið undir verndarvæng sinn og
aflaði því nægjanlegs fjármagns.
Gerð myndarinnar tók á fjórða ár og á
þeim tíma komu upp æði mörg nöfn
sem fara áttu með stærstu hlutverkin.
Þannig höfðu nöfn þeirra Roberts De
Niros og Williams Dafoes borið á
Þrjár ólíkar og kærkomnar barna-
myndir koma út í vikunni; Brúðubíll-
inn 2 sem inniheldur tvær sýningar,
Beðið eftir mömmu og Brúður, tröll
og trúða, ný teiknimyndasyrpa með
Tomma og Jenna og Græjulöggan 2
(Inspector Gadget) önnur myndin um
lögguna skrítnu sem er eins og sviss-
neskur hnífur, með alls kyns tæki og
tól í líkamanum, sem nýtist honum vel
í baráttunni við lögbrjótana.
Aðrar myndir sem koma út í vik-
unni eru svo spennumyndin Hálf-
dauður (Half Past Dead) með Ja Rule
og Steven Segal og gamanmyndin
Kvennabósinn (Girl Fever).
Eins og við var að búast rauk
Gríptu mig ef þú getur beint á topp-
inn og verður því spennandi að sjá
hvort DiCaprio nái að slá sjálfum sér
við í næstu viku.
DiCaprio í Gengjum New York.
Himnaríki og
New York
42 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6.
Ef þú hélst að
þú værir
heimskur,
þá hefurðu ekki
hitt Harry og Lloyd.
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 8, og 10.
YFIR 10.000 GESTIR
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 3.40. Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14
Ef þú hélst að þú værir
heimskur,
þá hefurðu ekki hitt
Harry og Lloyd.
X-IÐ 97.7
SV MBL
ÓHT RÁS 2
HK DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20.
kl. 3.40, 6, 8.30 og 10.50.
Englarnir eru mættir aftur!
Geggjaðar gellur í gæjalegustu
mynd sumarsins!
YFIR 10.000 GESTIR
7. SÝNING FIMMTUDAG 10/7 - KL. 20 UPPSELT
8. SÝNING FÖSTUDAG 11/7 - KL. 20 UPPSELT
9. SÝNING LAUGARDAG 12/7 - KL. 15 UPPSELT
10. SÝNING LAUGARDAG 12/7 - KL. 20 UPPSELT
11. SÝNING MIÐVIKUDAG 16/7 - KL. 20 AUKASÝNING ÖRFÁ LAUS SÆTI
12. SÝNING FIMMTUDAG 17/7 - KL. 20 UPPSELT
13. SÝNING FÖSTUDAG 18/7 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
14. SÝNING LAUGARDAG 19/7 - KL. 18 ÖRFÁ SÆTI LAUS
15. SÝNING MIÐVIKUDAG 23/7 - KL. 20 LAUS SÆTI
ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA !
Stolist inn í Harvard
(Stealing Harvard)
Gamanmynd
Bandaríkin 2002. Skífan VHS/DVD. Öll-
um leyfð. (90 mín.) Leikstjórn Bruce
McCulloch. Aðalhlutverk Tom Green,
Jason Lee.
ÉG á mér draum. Ég á mér
draum um Green-lausan heim. Það
þarf ekki mikið til að láta hann ræt-
ast, bara að virða
hann að vettugi.
Hvernig fer
hann að þessu?
Hvernig tekst Tom
Green að fá öll
þessi hlutverk?
Hver borgar fyrir
mynd sem hefur
eitthvað að gera
með Tom Green? Lífið er uppfullt af
leyndardómum og velgengni Toms
Greens er sannarlega einn þeirra.
Þetta er ekki sagt af einhverri
íhaldssemi eða vegna einhverra for-
dóma í garð heimskulegs húmors.
Þvert á móti finnst mér fátt fyndn-
ara en hömlulaus hálfvitaháttur,
sbr. Monty Python-gengið, ZAZ-
tríóið, Saturday Night Live-klíkan
og Farelly-bræður – en Green-laust
væri lífið miklu betra – og fyndnara.
Freddy Got Fingered sýndi það
og Stealing Harvard sannar það.
Maðurinn er vita hæfileikalaus,
bara asni. Og að hinn annars þol-
anlegi Jason Lee (og allt hitt fólkið)
skuli hafa látið narra sig út í að
vinna með honum er ofar mínum
skilningi. Sama hversu mikið er
rembst, sama hversu mikil della er í
gangi, aldrei tekst að kreista fram
hjá manni bros, bara mæðustunur
og blótsyrði.
Eina sem maður getur huggað
sig við er að myndin fékk litlu betri
viðtökur en Freddy Got Fingered
og þar með styttist í að misvitrir
markaðssérfræðingar snúi við hon-
um bakinu og mun þá rætast
draumurinn um Green-lausan
heim.½
Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Draumur um Green-
lausan heimGríptu mig ef þú getur
(Catch Me If You Can)
Þeir eru allir í toppformi; Di Caprio
sem barnungur svikahrappur; Hanks
sem FBI-maðurinn á hælum hans og
Walken sem lánleysinginn faðir pilts.
Frábær endursköpun sjöunda ára-
tugarins og myndin sú fyndnasta frá
Spielberg. (S.V.)
Hvergi í Afríku (Nowhere in Africa)
Vel leikin, vel gerð mynd með fal-
legum boðskap, þótt framvinda reyn-
ist heldur ótrúverðug á stundum.
(S.V.)
Blood Work (Blóðrannsókn)
Leikstjórinn Eastwood gerir þokka-
lega hluti en leikarinn Eastwood er
ósannfærandi sem harðsvíraður lög-
reglumaður og kvennagull í eltinga-
leik við raðmorðingja. (S.V.)
Einkaritarinn (The Secretary)
Einkar fumlaus og virðingarverð
stúdía á sadó/masókisma, framsett á
skemmtilega skrítinn máta sem þó er
aldrei á kostnað þessara forboðnu
kennda. (S.G.)
The Banger Sisters (Grúppíurnar)
Tvær frábærar leikkonur Susan Sar-
andon og Goldie Hawn halda lífinu í
gamanmynd um miðaldra konur sem
eyddu bestu árunum sem hjásvæfur
poppara. 20 árum síðar hefur margt
breyst. (S.V.)
May
Athyglisverð B-mynd sem svipar um
margt til Carrie Kings og DePalma.
Leggið nafn leikstjórans Lucky
McKee á minnið. (S.V.)
Bara koss (Just a Kiss)
Þessi rómantíska gamanmynd er
blessunarlega ekki eins og þær flest-
ar. Hún er fyrir það fyrsta frumlegri.
Hún er klikkaðri og þar af leiðandi
langsóttari. (S.G.)
Villtar vegalöggur
(Super Troopers)
Ótrúlega heimskuleg mynd en gletti-
lega fyndin. En það er búið að vara
ykkur við, hún er heimskuleg!(S.G.)
GÓÐ MYNDBÖND
Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn
Guðmundsson/Sæbjörn Valdimarsson
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn