Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 47
VEÐUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2003 47
'(
)*'+,-.+
-, )/0)
1230, )/0)
4,561.720)
!" #$ %&'
% ()
$ 89
*
+
:
* *
*
*
*
*
* :
*
*
*
*
: ;;
:9<
=
9
*
* *
* *
*
*
*
* *
*
*
*
*
* *
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
,%% %!--.%
! $%)%/!"% !0
/1*(1
!--.%
! $%)+
.%$%
! "
; #9
! " #$% &' (
)
) *%+, )
#9
> 9 23%%--.%
! , $!()*
?@ . ?@ . ?@ .
) A9
BC
A9
-
*
+ D> ,E F
F H: <
(
B
I +;<
%%
. . . 0)
!. 1. 1. 0)/**
. . . C<:
4D 2
CJ
3CC
6 9
- (
DC
B 9
.9
-
A
1. . . !. . . . . E
36 B C
EC
):
K ;
EC FJ'C
@<
C
7 C
1. 1. 1. . 1. !. . .
/!
) 4 %%$%+
.$%5
,6
!"
$%7,6)* %*
8
%%+.$%
)/
)+
1 *
%*
E A
8
%%+" 96
)! )%*6
' /)%$%! %+) % $ $%53 --*
%+.$ *
+--.
+-+.
+-/0 +-/#
+-/,
11,
+--2
+-+-
+--1
Sandey
Sundaborg 9, 104 Reykjavík,
sími 533 3931, fax 588 9833
sandey@simnet.is
MAXIM
SVITASTOPPARI
*NÝTT Á SKRÁ*Vorum að fá
bjarta 59 fm íbúð á 2. hæð
ásamt geymslu í 3ja hæða
fjölbýli ásamt stæði í bíla-
geymslu. Rúmgóð og björt
stofa, eldhús með litlum borð-
krók, stórt svefnherbergi með
góðum fataskáp og baðherbergi
með baðkari. Sameiginlegt
þvottahús og sérgeymsla er á sömu hæð. Auk þess fylgir stæði í
upphitaðri bílageymslu. Verð kr. 9,2 m. Áhv. 5,5 m.
Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
VINDÁS - 2ja herb. + bílskýli
SJÓNVARPSGLÁP er víst eitthvað
sem maður á að skammast sín fyrir.
Allavega vill enginn viðurkenna að
hann horfi mikið á sjónvarp, segist
horfa á það af og til og fullyrðir að
hann geti vel lifað af án þess. Þetta
er náttúrlega þvæla. Þeir eru örfáir
sem geta heilshugar án imbans verið
núorðið og er nú reyndar ekki lengur
að marka það því margir þeirra
sækja sína myndrænu nægju í tölv-
una í staðinn og geta hæglega horft á
sjónvarpið þar, fréttir, framhalds-
þætti og kvikmyndir af Netinu eða
mynddiskum.
En hvers vegna í ósköpunum þyk-
ir svona ófínt að horfa á sjónvarp?
Er það vegna þess hve aðgengi-
legur miðillinn er, hversu auðvelt er
að meðtaka þær upplýsingar sem
þaðan berast, sem hefur í för með
sér að allir geta nýtt sér þær, mennt-
aðir sem ómenntaðir, ríkir og fátæk-
ir, hátt settir og lágt settir? Hefur
örugglega eitthvað að segja.
Hitt er svo gjarnan nefnt þegar
tínd eru til rök gegn sjónvarpinu að
sjónvarpsáhorfandinn sé mataður af
upplýsingum. Sjónvarpið saman-
standi af fyrirframákveðinni dag-
skrá sem við gleypum við hrárri.
Sem hafi í för með sér að við horf-
um á allt þetta „ómerkilega“ efni
sem sýnt er í sjónvarpi, afþreying-
arefni sem skorti alla hugsun og til-
gang annan en að stytta stundirnar
veita stundargaman, þegar best læt-
ur.
En er þetta svona? Eru þetta allt
gild rök fyrir því að maður á ekki að
ílengjast yfir imbanum, hvað þá við-
urkenna að maður geri það?
Ekki lengur. Fyrir það fyrsta þá
er það gott – ef einhver áttaði sig
ekki á því – að upplýsingar séu að-
gengilegar, og það jafnaðgengilegar
fyrir alla þjóðfélagshópa. Það hefur
hinn helsti upplýsingamiðill okkar í
gegnum aldirnar, bókin, nefnilega
aldrei verið af ýmsum orsökum.
Tvær eru að læsi hefur aldrei verið
algilt og svo er bókin alltaf einstak-
lingsupplifun, sem takmarkar strax
útbreiðslu upplýsinganna sem hún
hefur fram að færa.
Vissulega er heilmikið af því efni
sem boðið er upp á í sjónvarpið
„ómerkilegt“ og „tilgangslaust“ en
nú á tímum er sjónvarpsáhorfandinn
hreint ekkert mataður lengur. Hann
hefur valið, getur sneitt framhjá öllu
þessu „ómerkilega“ og valið í staðinn
efni uppfullt af fræðslugildi og öðr-
um andlega nærandi meiningum –
eða ekki.
Svo er það hitt að þetta „ómerki-
lega“ afþreyingarefni þarf ekkert
endilega að vera svo ómerkilegt. Það
getur vel haft upplýsingagildi, verið
gagnlegt, á annan máta. Þá þarf
heldur ekki allt að vera gagnlegt.
Það er nauðsynlegt að hvíla lúin bein
og heilann stundum og er þá fátt bet-
ur til þess fallið en ákveðin tegund af
sjónvarpsefni, því myndlestur þarfn-
ast alltaf minni fyrirhafnar en texta-
lestur.
Það má heldur ekki gleyma því að
bókin þarf ekki alltaf að búa yfir
miklu upplýsingagildi, hún getur
innihaldið álíka heiladeyðandi efni
og „ómerkilegi“ sjónvarpsþátturinn.
En samt þykir það einhverra hluta
vegna alltaf miklu merkilegra að
verja kvöldinu í lestur „góðrar“ bók-
ar, og spyr þá enginn hvort viðkom-
andi hafi verið að lesa Jane Austin
eða rauðu ástarsögurnar. En hafi
maður eytt kvöldinu í sjónvarpsgláp
eru góðar líkur á að spurt sé hvort
maður hafi ekki haft neitt „þarfara“
að gera, og skiptir þá engu hvort
maður hafi verið að horfa á 70 eða 60
mínútur – með fullri virðingu fyrir
báðum þáttum.
LJÓSVAKINN
Ekkert þarfara
að gera?
Er eitthvað þarfara að gera en að
horfa á 45 mínútur af 60 mínútum?
Skarphéðinn Guðmundsson
ÚTVARP/SJÓNVARP
ÞAÐ eru víst vampýrur á hverju
strái sem óska sér einskis frekar
en að umvefja mannkyn illsku og
kvöl. Blessunarlega höfum við þó
vampýrubanana sem hafa krafta í
kögglum og hæfileika aðra ofur-
mannlega sem hjálpa þeim að
halda óhræsunum í skefjum og
bjarga mannkyninu ítrekað.
Vampýrubanarnir þurfa einnig
að kljást við allskyns önnur
skrímsl og vættir og endast sjald-
an lífdagar fram yfir tvítugt.
Blessunarlega höfum við þó hana
Buffy sem er allra vampýrubana
best en hún býr í bænum Sunny-
dale í Kaliforníu sem einmitt var
byggður þar sem fyrir var ógn-
vænlegt og ónáttúrulegt vídd-
arhlið sem vísar beint í aðra vídd
þar sem hírast allskyns óféti.
Stríður straumur er af skálkum í
Sunnydale og vilja þeir allir ólmir
opna þetta hlið svo að skrímslin
megi leika laus.
Samhliða því að verja heiminn
gegn öllu illu þarf Buffy síðan að
fást við það erfiða líf sem á annað
borð fylgir því að vera mennta-
skólanemi og táningur. Það er
ekki heiglum hent að stunda til-
hugalíf af ráði ef bak við hvert
horn þarf að berjast við púka upp
á líf og dauða.
Það er Sarah Michelle Gellar
sem leikur vampýrubanann vaska
en hún hefur með túlkun sinni afl-
að þáttunum vinsælda sem minna
hér um bil á trúarsöfnuð. Gellar
þekkja margir úr unglingahryll-
ingsmyndum á borð við „I Know
What You Did Last Summer“ og
„Scream 2“ svo hún er hryll-
ingnum ekki ókunnug. Einnig er
hún minnisstæð á móti hjartaknús-
aranum Ryan Phillipe í „Cruel Int-
entions“ sem hún hlaut kvik-
myndaverðlaun MTV fyrir.
Sarah Michelle Gellar leikur vampýrubanann frækna
Buffy
bjargar
Nú mega vampýrurnar fara að
vara sig: Sarah Michelle Gellar
leikur Buffy.
Buffý vampýrubani er á dagskrá
PoppTívís kl. 21 á þriðjudags-
kvöldum. Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll