Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2003 25 LÖNG hefð er fyrir því aðíslenskir læknar sækisér framhaldsmenntuntil útlanda og öðlist þar þjálfun, reynslu og sérhæfingu sem ekki er unnt að bjóða upp á heima. Straumurinn hefur að- allega legið í tvær áttir, annars vegar til Bandaríkjanna, þangað sem um þriðjungur íslenskra læknaárganga hefur að meðaltali sótt sína framhaldsmenntun, og hins vegar til Evrópu, einkum til Norðurlanda og Bretlands en auk þess hefur vaxandi straumur leit- að til Hollands á undanförnum árum. Þetta hefur hins vegar ver- ið að breytast, mjög hefur dregið úr sókn lækna vestur um haf síð- ustu ár en nú í sumar mun aðeins einn ungur læknir hefja fram- haldsnám við bandarískt háskóla- sjúkrahús samkvæmt upplýs- ingum landlæknisembættisins. Sigurður Guðmundsson land- læknir segir hlutfall lækna, sem halda í framhaldsnám til Banda- ríkjanna, ekki hafa verið svo lágt í áratugi og telur það verulegt áhyggjuefni, þar sem íslensk læknavísindi hafi hingað til notið mjög góðs af þeirri þekkingu og þeim tengslum sem læknar færa með sér frá bandarískum há- skólasjúkrahúsum. „Þau áhrif sem læknar færa með sér bæði austan hafs og vestan hafa verið mikill styrkur fyrir fagið á Ís- landi, sem getur fylgst með mis- munandi sjónarmiðum eða „skól- um“ í læknisfræðinni. Það er áhyggjuefni fyrir Ísland sem samfélag ef við glötum þeim tengslum við bandaríska lækn- isfræðisamfélagið sem byggst hafa upp undanfarna áratugi.“ Sigurður segir skýringar á þessari þróun ekki vera á reiðum höndum og margir þættir ráði því hvert fólk ákveður að sækja sitt framhaldsnám. Þó megi ætla að læknar veigri sér við að fara til Bandaríkjanna vegna þess mikla vinnuálags sem fylgi nám- inu, en þar er vinnutíminn að jafnaði lengri en í framhaldsnámi t.d. í Skandinavíu. „Það orð fer af náminu í Bandaríkjunum að það sé erfitt, sem það og er. Vinnu- tíminn er langur og launin frem- ur lág, sérstaklega fyrstu þrjú árin áður en svokölluð sérfræði- próf eru tekin. En það fylgir auð- vitað að þjálfunin sem fólk hlýtur er mjög góð og vel er fylgst með framgangi hvers og eins nem- anda,“ segir Sigurður. „Það má einnig vera að umsóknarferlið í framhaldsnám í læknisfræði vaxi fólki í augum en það hefur orðið óaðgengilegra á síðustu árum, e.t.v. að hluta til vegna breytinga í utanríkisstefnu bandarískra stjórnvalda. Umsækjendur þurfa nú að taka fleiri inntökupróf en áður, kostnaður við þau hefur aukist þar sem ekki er lengur hægt að taka þau á Íslandi, auk þess sem ákveðinn kostnaður fylgir því að fara utan í viðtöl. Þetta virðist fæla fólk frá.“ Oddur Steinarsson, formaður Félags ungra lækna, segir að ef litið sé á þróunina undanfarið megi ætla að um 10% íslenskra lækna haldi núorðið vestur um haf til framhaldsnáms. Hann tek- ur undir þær ástæður sem land- læknir nefnir. „Til þess að kom- ast í framhaldsnám í læknisfræði í Bandaríkjunum þarf að taka próf í þremur skrefum sem spanna margra ára námsefni og kosta töluvert. Þessi próf er ekki lengur hægt að taka hér á landi eins og áður tíðkaðist með fyrstu tvö prófin. Eins og staðan er í dag er auðvelt að komast í fram- haldsnám í Skandinavíu þangað sem flestir fara. Af- koman er lakari í Bandaríkjunum og minni sumar- og vaktafrí,“ segir Odd- ur Steinarsson. Áralöng hefð Landlæknir segir að með fækkun framhaldsnema í læknisfræði í Banda- ríkjunum sé hætta á að ákveðin hefð rofni. „Á und- anförnum áratugum hefur íslenska læknasamfélagið myndað mjög mikilvæg tengsl við þá öflugu bandarísku háskóla sem íslenskir læknar hafa numið við. Það er staðreynd að mjög gott orð fer af frammistöðu ís- lenskra lækna í þessum háskól- um, og greiðir sá orðstír sem og þau tengsl, sem starfandi sér- fræðingar hafa náð að mynda, tvímælalaust leið þeirra ungu lækna sem eru að sækja um framhaldsnám vestan hafs. En ef stöðug sókn íslenskra lækna til Bandaríkjanna leggst af er hætt við að þessi áralanga hefð rofni og að mikilvæg tengsl fari for- görðum.“ Sjálfur sótti Sigurður sína framhaldsmenntun til Bandaríkj- anna, nánar tiltekið Wisconsin- háskóla í Madison, en þar hafa fjölmargir íslenskir læknar numið á undanförnum áratugum. „Framhaldsnám í læknisfræði í Bandaríkjunum hefur marga kosti. Þar er veitt mjög góð menntun, og er framhaldsnámið þar tvímælalítið fjölbreyttara og víðtækara en hliðstætt fram- haldsnám í öðrum löndum sem ég þekki til. Kröfur eru einnig mikl- ar og kallar það auðvitað á að fólk leggi sig fram. En álagið er ekkert óyfirstíganlegt, og hjálpar það mjög hversu skipulagt námið er. Þar er nemandinn markvisst leiddur í gegnum ferli sem miðar að því að hann kynnist öllu fag- inu áður en nánari sérhæfing hefst. Rannsóknarþátturinn er mjög öflugur í náminu og boðið upp á ómæld tækifæri fyrir þá sem sem hafa áhuga á að einbeita sér að því sviði. Þau nánu tengsl við sjúklinginn, sem námið bygg- ist mjög á, eru síðan ómetanlegur þáttur. Þar læra læknar að bera virðingu fyrir faginu og sýna því auðmýkt. Því viðhorfi er haldið mjög á lofti að góður læknir þurfi ekki síður að kunna að eiga góð samskipti við sjúklinginn en að kunna skil á læknisfræðinni. Þó svo að þessi viðhorf séu vissulega í heiðri höfð annars staðar, eiga þau sér styrka stoð í bandaríska menntakerfinu,“ segir Sigurður. Leitast við að efla tengslin Til að bregðast við þessari þró- un hefur læknadeild Háskóla Ís- lands í samvinnu við landlækni og fleiri aðila unnið að því að koma á samstarfi sem myndi greiða leið íslenskra læknanema að bandarískum háskól- um. Auk forsvars- manna kennslumála í læknadeild og við Landspítalann, þeirra Kristjáns Er- lendssonar og Gísla Einarssonar, hefur Jón Atli Árnason unnið málinu braut- argengi, en hann er nýfluttur til Íslands eftir að hafa numið og starfað í Wiscons- in. „Ég held að það væri slæmt fyrir ís- lenskt samfélag ef læknar hættu að mennta sig í Bandaríkjunum. Við höfum því litið til nokkurra þátta sem hægt er að grípa til í viðleitni við að efla tengslin þar á milli og örva áhuga lækna á að halda til Bandaríkjanna,“ segir Sigurður. „Annars vegar vonumst við til að geta gert læknanemum kleift að nýta betur þá þjálfun sem þeir hljóta áður en haldið er utan, og hins vegar vinnum við að frágangi nemendaskipta milli læknadeildar HÍ og eins þeirra háskóla sem hefð er fyrir að ís- lenskir læknar sæki, þ.e. Wisc- onsin-háskóla í Madison.“ Að fyrrnefnda markmiðinu hef- ur verið unnið um nokkurra ára skeið að sögn Sigurðar, en þar er vonast til að hægt verði að meta þá þjálfun sem læknar hljóta að loknu kandidatsprófi á Íslandi, svo þeir geti farið beint inn á annað ár í almennum hluta fram- haldsnámsins í bandarískum há- skóla. „Þrjú ár tekur að ljúka framhaldsnámi í almennum greinum á borð við lyflækningar eða barnalækningar í Bandaríkj- unum, en þá hefur læknirinn áunnið sér rétt til að taka sér- fræðipróf eða svokölluð Board- próf, og hefja síðan frekara sér- nám. Um þessar mundir erum við að reyna að ná samningum við prófastofnunina sem sér um sér- fræðiprófin sem gerðu íslenskum læknum kleift að taka þessi próf að loknum tveimur árum í al- menna hlutanum í stað þriggja. Þetta teljum við mögulegt vegna þess hversu þjálfunin, sem unnt er að veita læknum að loknu kandidatsprófi á Íslandi, hefur farið batnandi undanfarin 15 ár. Læknadeild Háskóla Íslands hef- ur orðið burði til þess að sjá um fyrsta árið eða árin af framhalds- námi í stærstu almennu fögunum, eins og lyf-, skurð-, barna-, geð- og heimilislækningum. Kennslu- stjórar þeirra bandarísku há- skóla, sem við höfum rætt við, hafa tekið þessari hugmynd vel, og er þar aftur fyrir að þakka góðri frammistöðu íslenskra lækna í þessum skólum í gegnum tíðina. Þannig hafa tveir háskól- ar, þ.e. Wisconsin-háskóli í Madison og Iowa-háskóli í Iowa City, gefið grænt ljós á þetta fyr- irkomulag, svo framarlega sem samningar nást við prófa- og kennslumatsstofnanir sem hafa yfirumsjón með þessum málum.“ Landlæknir segir samninga við prófastofnanirnar vera erfiðasta áfangann í þessu ferli en nú virð- ist skriður kominn á málið, ekki síst vegna hinna jákvæðu við- bragða frá háskólunum sjálfum. Nemendaskipti geti hafist næsta vetur Landlæknir sótti ráðstefnu við Wisconsin-háskóla í maímánuði og ræddi þar m.a. nemenda- skiptaáætlun við forráðamenn læknadeildar skólans, sem líklegt er að geti hafist næsta vetur. „Við Jón Atli Árnason læknir höfum unnið að því um nokkurt skeið að koma á formlegum nem- endaskiptasamningi milli HÍ og Wisconsin-háskóla, en eftir eru nokkur tæknileg atriði varðandi útfærslu samningsins. Hug- myndin með nemendaskiptunum er sú að efla tengslin milli lækna- deilda þessara skóla, og gefa ís- lenskum læknanemum tækifæri til að kynnast starfsemi öflugs bandarísks háskólasjúkrahúss. Það gæti komið þeim mjög að gagni er kemur að því að ákveða hvert skal haldið í framhaldsnám. Þannig mun íslenskum fjórða og fimmta árs læknanemum gefast kostur á að starfa á deildum á háskólasjúkrahúsinu við Wiscons- in-háskóla og fá þá reynslu metna í sínu námi við HÍ. Við stefnum á að þetta geti orðið fjórir til fimm nemar á ári.“ Á hinn bóginn mun nemendum í heilbrigðisgreinum við Wiscons- in-háskóla gefast færi á að vinna á rannsóknarstofum á Íslandi og fá þá vinnu metna sem hluta af sínu námi. „Við leggjum meg- ináherslu á rannsóknarþáttinn í þessu, þar sem okkar styrkur liggur tvímælalaust þar. Það hef- ur vakið mikla athygli erlendis hversu öflugt rannsóknarstarf er unnið í læknavísindum á Íslandi, og er þar um að ræða afrakstur uppbyggingar sem hefur átt sér stað síðustu 20 árin. Nokkur reynsla er komin á heimsóknir af þessu tagi, en fyrir þremur árum kom hingað hópur læknanema frá háskólanum í Wisconsin til að kynnast íslenska heilbrigðiskerf- inu og rannsóknarstarfinu sem þar fer fram. Við vonumst til að fyrstu íslensku læknanemarnir geti farið út strax næsta vetur og að einn hópur bandarískra nem- enda geti komið til Íslands.“ Sigurður bendir á að nem- endaskipti læknadeildanna séu fyrsta skrefið í formlegum vilja- samningi um aukna samvinnu milli HÍ og Wisconsin-háskóla í Madison, sem undirritaður var síðastliðið haust við heimsókn Páls Skúlasonar háskólarektors og Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, fyrrverandi borgarstjóra, til Madison. Þá voru jafnframt rædd áform um systraborg- arsamning milli Reykjavíkur og háskólaborgarinnar Madison sem Sigurður segist vona að geti orð- ið að veruleika. „En fyrst og fremst vonum við, sem unnið höfum að því að efla tengslin milli læknadeildanna heima og í Bandaríkjunum, að skref í þessa átt geti styrkt og viðhaldið þeirri hefð að ákveðið hlutfall íslenskra lækna sæki sína framhaldsmenntun til Bandaríkj- anna og færi með sér þekkingu og áhrif þaðan sem blandist þeim áhrifum sem aðrir læknar færa með sér frá Evrópu.“ segir Sig- urður Guðmundsson að lokum. Áhyggjuefni hversu fáir læknar sækja framhaldsnám til Bandaríkjanna Mismunandi sjónarmið styrkja fagið á Íslandi Undanfarin ár hefur hlutfall íslenskra lækna, sem halda í framhaldsnám til Bandaríkjanna, minnkað verulega og ekki verið lægra í áratugi. Sigurður Guðmundsson landlæknir segir þetta áhyggjuefni, þar sem íslensk læknavísindi hafi hingað til notið góðs af því að vera í tengslum við læknasamfélagið bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Heiða Jóhannsdóttir ræddi við Sigurð um þessa þróun og leiðir til að snúa henni við. Sigurður Guðmundsson heida@mbl.is nda, sem i fyrir um þá einnig í æðistofur. tel sýndu hagkvæm- ð en síðar væðari og rtækjanna govens við æði langt slegið á ðlabanka- ensku ál- þessum hafa góða Bechtel á i ekki ver- kkt, öflugt yrirtæki á um árum ið álfyrir- sameinað- kki komið alið Bech- ður komið slandi séu fyrst nú því. Altech og fleiri fyrirtæki vonast eftir viðskiptum Þá hefur málmdeild Bechtel átt viðskipti við Altech, fyrirtæki Jóns Hjaltalín Magnússonar verkfræð- ings, vegna álvers Alcan í Kanada, móðurfyrirtækis álversins í Straumsvík. Jón segist ekkert hafa nema gott um Bechtel að segja, enda fyrirtækið eitt hið virtasta á sínu sviði. Fagmannlega sé staðið að öllum málum. Bindur hann vonir við að Altech fái tækifæri til að bjóða í þá verkþætti álversins í Reyðarfirði sem snúa að skautsmiðjunni. Einnig sjái Bechtel um stækkun álvers Alba í Bahrein og líkur séu á ein- hverjum viðskiptum fyrir Altech þar. „Við áttum fund með fulltrúum Bechtel síðastliðið haust þegar fyr- irtækið var að aðstoða Alcoa við for- athugun á Reyðarálsverkefninu,“ segir Jón Hjaltalín og telur að fyr- irtæki sitt eigi góða möguleika á frekari viðskiptum við Bechtel. Al- tech sé í raun eina fyrirtækið sem hafi komið fram með einhverjar nýj- ungar í skautsmiðju álvera síðustu misserin. Þetta sé aðeins spurning um hvort Bechtel og Alcoa standi fyrir alútboði meðal nokkurra fyr- irtækja eða skipti verkinu upp í nokkrar vélasamstæður. Eftir á að koma í ljós hve margir verkþættir við byggingu álversins munu falla í skaut íslenskra fyrir- tækja. Ekki aðeins Altech er von- gott heldur einnig verktakafyrir- tæki eins og Ístak og Íslenskir aðalverktakar og ýmis fleiri fyrir- tæki, ekki síst á Austurlandi. Fram- undan er formleg samningagerð milli Alcoa og Bechtel, sem hefur sér til samstarfs íslenska verkfræði- samsteypu, HRV, sem eru fyrir- tækin Hönnun, Rafhönnun og Verk- fræðistofa Sigurðar Thoroddsen. Ekki er reiknað með að sjálfar byggingarframkvæmdir hefjist fyrr en haustið 2005 en ári áður er stefnt að því að hefja jarðvegsfram- kvæmdir. Verða þær umfangsmikl- ar þar sem sprengja þarf tölvuvert innan álverslóðarinnar og jafna út stór landsvæði. Rannsóknir í haust Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins verður næsta skref að forhanna álverið, í samráði við fyr- irtækið K-Home Engineering, og hefja rannsóknir á svæðinu, sem bú- ist er við að hefjist strax í haust. Frekari viðræður við íslenska verk- taka eru sömuleiðis framundan og fulltrúar málmdeildar Bechtel eru væntanlegir til landsins í því skyni. Fulltrúar HRV-verkfræðisam- steypunnar hafa einnig átt fundi með Alcoa og Bechtel í Kanada. Vonast bandarísku fyrirtækin eftir góðu samstarfi við Íslendinga næstu árin og leggja mikið upp úr því að sem flest verk falli í þeirra hendur. virkið sem Bechtel hefur komið nálægt. yrirtækið gningu um. ger talað msvísu bjb@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.