Morgunblaðið - 10.07.2003, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG HEF oft velt því fyrir mér hversu
mikla fórn Íslendingar færa með
neyslu áfengis og tóbaks. Hvað gæti
þjóðin afrekað og framkvæmt fyrir
þá peninga sem með þessu fara út í
bláinn? Hversu margir glata ham-
ingju sinni og heilsu á altari þessara
eiturefna? Áfengisneysla er án und-
antekninga undanfari þess að hópur
af ungu fólki snertir á og síðar ánetj-
ast eiturlyfjum. Ófögnuðurinn er
skýr og afleiðingarnar skelfilegar en
fáir þora að grípa í taumana.
Besta forvörnin er að snerta aldrei
á þessum eiturnautnum hvorki áfengi
né tóbaki. „Hættu áður en þú byrjar“
er sett fram á einfaldan og skýran
hátt í „Maríta-fræðslu“ Samhjálpar
og lögreglunnar þegar fulltrúar þess-
ara aðila fræða nemendur 9. bekkjar
um myrkur og vítiskvalir þær sem
fíkniefnaneytendur ganga í gegn um
og fáir sleppa frá óskaddaðir.
Á sama tíma fjölgar þeim röddum
sem krefjast rýmkunar á reglum
þeim og höftum sem taka til áfengis-
auglýsinga og sölu á áfengi. Mark-
miðið virðist að koma áfenginu í
hverja matvöruverslun. Aðrar þjóðir
sem hafa gengið á undan með þessu
fordæmi skynja allsherjar vanda og
vilja snúa til baka og koma á reglum
um meðferð og neyslu áfengis og tób-
aks.
Ég man svo vel mín æskuár austur
á landi. Þeir sem misnotuðu áfengið
og neyttu í óhófi voru taldir aumingj-
ar. Aldrei var rætt um af hverju þessi
aumingjaskapur stafaði. Ég fékk sem
ungur maður skömm á þessum lifnaði
og hét því að koma aldrei nálægt
þessum ófögnuði og hefi staðið við
það síðan.
Á sínum tíma var talað um að
bannlögin væru brotin og því voru
þau aflögð. En hvaða áfengislög eru
ekki brotin þráfaldlega með skelfileg-
um afleiðingum? Engum dettur í hug
að afnema núverandi lög þótt brotin
séu. Hver tilraunin er gerð á Alþingi
til að rýmka reglur og höft á sölu
eiturnautna. Skynseminni förlast og
minnisleysi er borið við þegar sví-
virðilegustu glæpir réttarkerfisins
eru framdir í vímu áfengis og eitur-
lyfja.
Það er kominn tími til að þjóðin átti
sig á hvar hún er stödd í þessum efn-
um og taki við sér, losi um fátækt og
skelfileg afbrot sem rakin eru beint
til þessara efna.
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
Hvað kostar þetta allt?
Frá Árna Helgasyni:
NÚ ER Ingibjörg Sólrún gengin til
liðs við Samfylkinguna en var áður í
Kvennalistanum áður en hún tók að
sér að vera í forsvari Reykjavíkur-
listans. Þetta eitt útaf fyrir sig eru
stórkostlegar breytingar á pólitísku
landslagi á landsvísu og er ekki nema
von að það komi á skjálfta í öllum
hinum flokkunum.
Hún tók að sér baráttusætið á R-
listanum og það hafðist hjá henni,
hún sýndi þar pólitískt þor og kjark.
Hún sýnir enn þennan kjark að
ganga til liðs við Samfylkinguna og
taka þar enn á ný að sér baráttusæti
á landsvísu sem er örugglega ekki
léttara en að leiða R-listann. Er
nema von að það sé titringur og
vangaveltur í pólitíkinni.
Hún lætur að sér kveða svo eftir er
tekið og þótt menn láti sem hún sé
léttvæg þá er hún með sínum kjarki
og þori að breyta öllu pólitísku lands-
lagi á landsvísu. Hún er ung og á nóg
eftir og menn í pólitíkinni þekkja
ekki þessa stærð.
Það var náttúrlega eðlilegt að láta
hana í það að vera forsætisráð-
herraefni Samfylkingarinnar þegar
hún tók af skarið og gekk til liðs við
Samfylkinguna og ætti það að sýna
að þar fór engin meðalmanneskja inn
í landsmálin. Hún átti glæsilegan
feril sem borgarstjóri. Formaður eða
ekki þá mun hún setja sterkan lit á
pólitíkina á næstu árum.
Hún á eftir að koma jafnréttismál-
um og launamálum á skrið á lands-
vísu og hún hefur tekið af skarið af
því að ræða við Evrópubandalagið og
mun það verða uppi á borðinu meira
en áður. Hún mun einfalda valda-
kerfið og gera það skilvirkara og
valdhafar munu bera ábyrgð á verk-
um sínum og orðum.
Með sínum kjarki og þor mun hún
koma á viðræðum við Evrópubanda-
lagið, og af fullri alvöru og víðsýni
mun hún semja við það um aðild að
því ég tel, því hún hefur sagt það að
Evrópubandalagið sé annað og
meira en sjóræningar.
Nei, það munu gerast margir og
miklir atburðir á næstunni á hinu
pólitíska landslagi og fyrir hennar
tilstilli munu hinir flokkarnir fylgjast
grannt með því sem hún mun taka
sér fyrir hendur svo hún mun ekki
verða alveg valdalaus í öðrum flokk-
um, svo segir mér hugur. Það mun
verða fylgst með því sem hún gerir í
mótun á framtíðarsýn Samfylkingar-
innar, sem er náttúrlega eitt af því
sem sýnir hve mikilli ábyrgð henni er
trúað fyrir af flokknum.
Það verður tekið eftir hennar
framtíðarsýn og mun þar ábyggilega
koma við sögu inngangan að Evrópu-
bandalaginu, fiskveiðistefna verður
tekin af festu og rökréttri lendingu
náð, tel ég alveg víst. Þetta er flokk-
ur með yfir rúmlega 31% fylgi sem er
ekki hægt að útskýra nema með
hennar mikla persónufylgi og góðu
fólki, þetta er mikið fylgi á landsvísu
og eftir þeirra framtíðarsýn verður
tekið.
Samfylkingin hefur komið inn sem
hægrisinnaður jafnaðarflokkur með
jafnréttismálin sem sterka stefnu.
Nú eru hinir flokkarnir, sem eru
steinrunnir finnst mér, að skoða inn-
viði sína og athuga hvað þurfi að laga
til að tapa þó ekki meira en þessu í
næstu kosningum. Það er ábyggilega
mikil ólga í gömlu flokkunum og ekk-
ert hægt að vita upp á hverju þeir
taka nú eftir kosningar.
BJARNI ÞÓR ÞORVALDSSON,
listamaðurinn B.Thor og öryrki,
Asparfelli 12, Reykjavík.
Ingibjörg Sólrún og
pólitíska landslagið
Frá Bjarna Þór Þorvaldssyni: