Morgunblaðið - 13.07.2003, Blaðsíða 38
MINNINGAR
38 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þegar ég var lítill þá
fór ég á hverju sumri
til fyrirheitna landsins.
Ég fór á Flögu. Það
var miklu meira æv-
intýri en að fara til Kína í dag.
Fjarlægðin var bara 250 kílómetrar,
en ferðalagið tók álíka langan tíma
og að fara til fjarlægra landa eða
um sex klukkutíma. Á leiðinni voru
engar flugfreyjur, en amma bauð
upp á flatkökur með hangikjöti og
kóngabrjóstsykur. Þegar komið var
niður Hrífunesheiði þá blasti Flaga
við. Hvílíkur fögnuður. Ferðalagið
hafði margborgað sig. Og það var
tekið vel á móti okkur. Allir kysst-
ust og föðmuðust og það var boðið í
mat eða kaffi. Hundarnir föðmuðu
okkur líka og í hænunum heyrðist
fagnaðargagg. En ég fór strax og
SVEINN PÁLL
GUNNARSSON
✝ Sveinn PállGunnarsson
fæddist í Hallgeirs-
eyjarhjáleigu í Land-
eyjum 14. mars 1929.
Hann lést á hjarta-
deild Landspítalans
við Hringbraut 7. júlí
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Grafarkirkju 12. júlí.
tækifæri gafst út í fjós.
Ólýsanlegt.
Þetta er sveitin mín
og þar bjuggu í efri
bænum Sveinn Páll
Gunnarsson frændi
minn og Sigrún Gísla-
dóttir kona hans,
ásamt sonum sínum.
Fyrstu árin var ég að-
eins nokkra daga í
einu í sveitinni, en var
svo heppinn að fá að
vera þrjú heil sumur
þegar ég var tíu til tólf
ára. Þá voru Sveinn og
Sigrún mér eins og
bestu foreldrar og fyrir það vil ég
þakka. Í minningunni eru þetta ein-
hverjir bestu dagar sem ég man eft-
ir.
Sveinn gat verið ákveðinn, en að
eðlisfari var hann ljúfur og glað-
lyndur en ekki margmáll. Hann
treysti okkur strákunum vel til
verka og það var ekki lítils virði.
Við vorum kannski ekkert mjög
spenntir fyrir að raka dreif, en hins
vegar fannst okkur við menn með
mönnum þegar við fengum að moka
heyi í heyblásarann og ég tala nú
ekki um að keyra traktorinn. Að-
eins tíu til tólf ára guttar og við
fengum að snúa heyinu og gátum
orðið bakkað með heyvagninn í
rétta átt. Sennilega var þetta nú
mesta upplifunin fyrir mig borgar-
barnið, en hefur líklega ekki þótt
tiltökumál í sveitinni.
Á þessum árum átti Sveinn ekki
bíl og traktorinn því notaður til að
komast á milli staða. Það var ótrú-
lega góð tilfinning að standa í trakt-
orskerrunni á fljúgandi ferð að því
er manni fannst, hvort sem farið
var upp í heiði, á kappreiðar út í
Meðalland eða í sparifötum á leið út
í Hrífunes á 17. júní.
Á Flögu hefur alltaf verið ein-
staklega heimilislegt og gott að
koma. Gestrisni mikil og andrúms-
loft allt notalegt og afslappað. Ekki
vandamál að búa um rúm fyrir
nokkra gesti eða bæta fleirum í
mat. Ég minnist þess þó ekki að
Sveinn hafi verið mikið fyrir elda-
mennsku, held að Sigrún hafi að
mestu séð um þá hlið. Hin seinni ár
átti Sveinn það þó til, að hætti okk-
ar karlmanna, að grilla á útigrillinu
þegar gott var veður. Það fór hon-
um bara vel.
Nú er Sveinn farinn til fyrir-
heitna landsins. Hvort það er jafn
mikið ævintýri og fyrir lítinn strák
að fara á Flögu veit ég ekki ennþá.
Ég vil hins vegar með þessum fá-
tæklegu orðum þakka Sveini og
hans fjölskyldu fyrir mig og bið Guð
að blessa hann og Sigrúnu, strák-
ana þeirra og fjölskyldu alla.
Runólfur Birgir Leifsson.
Elsku amma mín,
nú ertu horfin héðan á
aðra braut. Það eru
margir sem hafa
örugglega tekið þér
opnum örmum í nýj-
um heimkynnum og þar hefur afi
minn verið fremstur í flokki af öll-
um þeim ástvinum sem þar bíða
þín. Það eru svo margar minningar
sem hrannast upp í huganum á
kveðjustund og munu ylja mér um
ókomin ár. Engin orð fá því lýst
hvað þú varst stórkostleg amma og
ég sakna þín mikið.
Ég man eftir öllum ferðunum er
ANNA
ÓLAFSDÓTTIR
✝ Anna Ólafsdóttirfæddist á Siglu-
firði 25. október
1912. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Hlíð á Akureyri 21.
júní síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Glerár-
kirkju 3. júlí.
þú komst til okkar í
Þverholtið, en þar bjó
fjölskyldan öll
bernskuárin mín. Þig
munaði ekkert um að
labba ofan úr Löngu-
mýri og út eftir til
okkar, kannski
skrappst þú á Eyrina
á eftir eða í bæinn. Þú
varst dugleg að ganga
og hitta fólkið þitt og
vinina.
Öllum vildir þú
rétta hjálparhönd og
þín ljúfa og fórnfúsa
lund laðaði að sér
menn og dýr. Gott var líka að
koma til ykkar afa, og alltaf nóg af
góðu heimabökuðu brauði. Þú varst
dugmikil og myndarleg húsmóðir
og heimili þitt bar vott um það. Ég
minnist þess þegar farið var í
ferðalög og þið afi voruð með, það
var svo gaman að hlusta á afa
segja frá þeim stöðum sem farið
var um, hann var svo fróður um
sögu og staði landsins. Og þá var
nú auðvitað sungið af hjartans lyst
undir þinni stjórn. Eitt sinn fórst
þú til Vopnafjarðar með foreldrum
mínum að heimsækja Önnu systur
sem þar bjó. Var ég þá hjá henni
að passa. Við Anna systir, mamma
og þú, amma mín, fengum okkur
gönguferð um þorpið. Auðvitað var
eftir okkur tekið, eins og öðrum
nýjum andlitum. Anna var svo
spurð að því hvort þetta væri syst-
ir hennar og mamma sem með
henni voru. Ekki fannst mér þetta
neitt sniðugt, en þið mamma hlóg-
uð mikið að þessu. Þú, amma mín,
hélst þér alltaf svo vel og varst svo
glæsileg kona að eftir þér var tekið
hvar sem þú fórst. Þú varst dugleg
að hjálpa mér að læra ljóð og sung-
um við þau saman. Einu sinni tók-
uð þið mamma, dóttir mín og þú
ykkur til og í staðinn fyrir að tala
saman sunguð þið allt sem þið
þurftuð að segja. Syngjandi amma
varstu oft kölluð af okkur syst-
kinunum. Þið afi sunguð með kór
Glerárkirkju og höfðuð mikla
ánægju af, enda söngelsk bæði.
Eftir að ég flutti suður komst þú í
heimsóknir meðan heilsa leyfði og
svo hittumst við í síðasta sinn í maí
síðast liðnum þegar ég kom norð-
ur. Þá varst þú orðin mjög veik,
amma mín. Guði séu þakkir fyrir
allar okkar samverustundir og fyr-
ir að gefa mér svo góða og skiln-
ingsríka ömmu. Takk fyrir allt,
elsku amma mín. Mömmu minni,
bræðrum hennar og fjölskyldum
þeirra votta ég dýpstu samúð mína.
Guð geymi þig, elsku amma.
Hrönn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
fráfalls móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
RÓSU EINARSDÓTTUR,
Litlu-Hlíð,
Höfðagrund 19,
Akranesi.
Björg Thomassen, Reynir Ásgeirsson,
Marínó Tryggvason, Margrét Magnúsdóttir,
Guðni Tryggvason, Hlín Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN DAGBJÖRT
SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
Hrafnistu, Reykjavík,
áður Fálkagötu 9,
verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðarins
mánudaginn 14. júlí kl. 15.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem
vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Heilaverndar.
Guðlaug Rakel Pétursdóttir, Guðjón Agnar Egilsson,
Guðbjörn Pétursson, Þórunn Pétursdóttir,
Hafdís Rut Pétursdóttir, Grétar Einarsson,
Sigurborg Pétursdóttir, Jón Holbergsson,
Elsa Svandís Pétursdóttir, Skúli Hauksson,
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
PÁLL ÓLAFSSON
bifreiðastjóri,
Melgerði 14,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 14. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem
vilja minnast hans, er bent á Parkinson-félagið.
María Guðmundsdóttir,
Hilmar Guðmundsson, Sigríður Kristjánsdóttir,
Hrönn Pálsdóttir,
Sigrún Pálsdóttir,
Ellen Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR KRISTJÁN BALDVINSSON
símritari
frá Hjalteyri,
Núpalind 2,
Kópavogi,
sem lést mánudaginn 7. júlí sl., verður
jarðsunginn frá Digraneskirkju miðvikudaginn 16. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hans er bent á félag aðstandenda Alzheimerssjúklinga eða heima-
hlynningu krabbameinsfélagsins.
Magðalena Stefánsdóttir,
Esther Sigurðardóttir, Helgi Sigurðsson,
Stefán Baldvin Sigurðsson, Anna S. Jóhannesdóttir,
Sigurbjörg Sigurðardóttir Rollini,
Sigrún Jensey Sigurðardóttir, Kristján Bjarndal Jónsson,
Sigurður Sigurðarson, Hildur Sandholt,
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegr-
ar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og systur,
HELGU HULDU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Snorrabraut 56,
Reykjavík.
Gísli Magnússon,
Ásdís Gísladóttir, Finnbogi Steinarsson,
Magnús Gíslason,
barnabörn og systkini.
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Bræðrabörn,
HELGU EYJÓLFSDÓTTUR,
Lindargötu 61,
Reykjavík,
þakka fyrir sýndan hlýhug við andlát og útför
hennar.
Innilegar þakkir og kveðjur til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
hjartkærs frænda okkar,
DANÍELS DANÍELSSONAR
fyrrv. bónda á Hlíðarfæti,
Hvalfjarðarstrandarhreppi,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Höfða, Akranesi.
Fyrir hönd ættingja,
Kristín Halldóra Gunnarsdóttir.