Morgunblaðið - 23.07.2003, Page 1
G!Festivalið í Færeyjum
um liðna helgi Fólk 46
STOFNAÐ 1913 197. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Þórður fisksali mættur
í kvartmíluna Bílar 11
Spáð í spilin
í Eyjum
Íslandsmótið í höggleik hefst
á morgun Íþróttir 42
Aflmesti bíll
Íslandssögunnar
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð-
herra, og dr. Condoleezza Rice,
þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkja-
forseta, ræddu stöðu varnarsam-
starfs Íslands og Bandaríkjanna
símleiðis síðastliðinn laugardag.
„Það hafa átt sér stað þreifingar
og viðræður og auðvitað hafa menn
verið að þreifa á ýmsu. Ég hef átt
símtöl við ýmsa, m.a. Robertson
lávarð, framkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins, og einnig samtal
við dr. Rice sem hringdi á laug-
ardag. Við áttum ítarlegt og ágætt
samtal.
Þetta er vísbending um að þótt
ekki séu formlegar viðræður í
gangi eiga sér stað þreifingar og
athuganir á málinu bæði hjá okkur
og í Bandaríkjunum,“ sagði Davíð
Oddsson.
Að sögn forsætisráðherra hefur
ekkert verið ákveðið enn um næstu
skref í málinu en hann sagðist eiga
von á að Condoleezza Rice muni
hafa samband aftur innan skamms.
„Menn eru að tala saman og þau
samtöl eru á grundvelli góðs og
farsæls samstarfs ríkjanna,“ sagði
forsætisráðherra.
Bandaríska dagblaðið The
Washington Post skýrði frá því í
fyrradag að helstu ráðgjafar
Bandaríkjaforseta í þjóðaröryggis-
málum hafi rætt stöðu varnarsam-
starfsins við Íslendinga á fundi í
síðustu viku. Þar hafi verið lögð
áhersla á að leggja aukna áherslu
á viðræður við íslensk stjórnvöld.
Dr. Condoleezza Rice tók við
starfi þjóðaröryggisráðgjafa
Bandaríkjaforseta í janúar 2001 og
er nánasti ráðgjafi forsetans á
sviði utanríkis- og öryggismála
ásamt þeim Colin Powell, utanrík-
isráðherra, og Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra.
Hún starfaði í þjóðaröryggis-
ráðinu á árunum 1989-1991 í for-
setatíð George Bush eldri, föður
núverandi forseta. Þetta var á
þeim árum er Sovétríkin voru að
leysast upp og Þýskaland að sam-
einast og veitti Rice þeirri deild
ráðsins forstöðu er sá um málefni
Austur-Evrópu.
Rice kenndi stjórnmálafræði
með áherslu á öryggismál við
Stanford-háskóla frá árinu 1991.
Hún var jafnframt aðstoðarrektor
Stanford-háskóla á árunum 1993–
1999.
Rice hefur ritað fjölmargar
greinar og bækur, ekki síst um
Rússland, Þýskaland og málefni
Austur-Evrópu.
Condoleezza Rice Davíð Oddsson
Condoleezza Rice hringdi í forsætisráðherra sl. laugardag
„Áttum ítarlegt
og ágætt samtal“
TÓLF manns særðust í tveimur
sprengingum á hótelum í Beni-
dorm og Alicante á Spáni en talið
er að aðskilnaðarsamtök Baska
hafi staðið að þeim.
Ætla má að 500 til 1.000 Ís-
lendingar hafi verið í sumarleyf-
isbæjunum tveimur og sumir
þeirra mjög nálægt hótelunum
sem voru sprengd en engan
þeirra sakaði. Einvarður Jó-
hannsson, fararstjóri hjá Sum-
arferðum, ók framhjá öðru hót-
elinu sem varð fyrir árásinni
aðeins um tveimur mínútum áður
en sprengingin varð.
Guðrún Ellertsdóttir, sautján
ára nemandi í Alicante, slapp
einnig mjög naumlega en snyrt-
ing, sem hún hafði verið á tíu
mínútum fyrr, sprakk í loft upp.
„Það sprungu tvær skólastofur
þar sem nemendur voru og einn
þeirra höfuðkúpubrotnaði,“ segir
Guðrún.
„Það eru sex stofur í skólanum
og annar helmingur skólabygg-
ingarinnar hrundi. Ég var í þeim
hluta sem slapp. Ég var á snyrt-
ingunni 10 mínútum áður en
sprengjan sprakk og hefði getað
dáið þar.“
Hótel
sprengd í
Benidorm
og Alicante
Reuters Óttast/26
SYNIR Saddams Husseins fyrrver-
andi Íraksforseta, Uday og Qusay,
voru felldir í sex klukkustunda
löngum skotbardaga í gær, er banda-
rískir sérsveitarhermenn umkringdu
og réðust síðan til inngöngu í stórt og
íburðarmikið íbúðarhús í borginni
Mosul í Norður-Írak, að því er hers-
höfðingi í Bandaríkjaher greindi frá.
„Við erum vissir um að Uday og
Qusay voru drepnir í dag,“ sagði hers-
höfðinginn, Ricardo Sanchez, á blaða-
mannafundi í Bagdad í gærkvöld.
Þeir hafi dáið í miklum skotbardaga,
ásamt tveimur öðrum mönnum sem
vörðust með þeim.
Sanchez sagði að bandarísku her-
mennirnir, sem tilheyrðu 101. fall-
hlífaherdeildinni, hefðu ráðizt til at-
lögu eftir að ábending barst frá íbúa í
Mosul kvöldið áður um að bræðurnir
væru í húsinu, sem er í al-Falah-
hverfinu í norðurhluta borgarinnar.
Sanchez sagði að bræðurnir hefðu
búið sér vígi í húsinu og veitt harða
mótspyrnu. Vitni greindi frá því að
flugskeytum hefði þá verið skotið að
húsinu úr bandarískri herþyrlu.
„Líkin voru þannig að unnt var að
bera kennsl á þau,“ tjáði hershöfðing-
inn blaðamönnum. Ekki hefði verið
staðfest hverjir hinir tveir mennirnir
væru sem féllu með Saddams-
sonunum tveimur. Hét Sanchez því að
í dag yrðu veittar nánari upplýsingar
um aðgerðir gærdagsins. Áður hafði
frétzt að erfðaefnissýni úr líkunum
hefðu verið send til Washington þar
sem þau yrðu borin saman við önnur
sýni sem kváðu geta tekið af allan
vafa um að líkin væru í raun af þeim.
Fjórir bandarískir hermenn særð-
ust í skotbardaganum en enginn féll.
Fagnaðarskothríð í Bagdad
Skothríð heyrðist í Bagdad um kl.
22 að staðartíma í gærkvöld. Getum
var leitt að því að þar hefðu verið á
ferðinni fagnaðarlæti borgarbúa er
þeim barst fréttin af falli Sadd-
amssona. Spurður um þetta sagði
Sanchez á blaðamannafundinum að
skothríðin hafi líklegast verið fagnað-
arlæti, en svo kynni líka að vera að
þar hefðu vopnaðir fylgismenn Sadd-
ams verið að gera skotárás á banda-
ríska hermenn. „Það væri mjög við
hæfi að þeir (Írakar) fögnuðu núna,“
sagði hershöfðinginn.
Í Washington sagðist L. Paul
Bremer, sem hefur yfirumsjón með
uppbyggingarstarfinu í Írak fyrir
hönd Bandaríkjastjórnar, ekki vilja
tjá sig um það hvaða áhrif dauði sona
Saddams Husseins kynnu að hafa á
ástand öryggismála í Írak. En hann
sagði: „Þetta er sannarlega góð frétt
fyrir írösku þjóðina.“
Dauði sona Saddams kann að hafa
mikil áhrif á þá vopnuðu mótspyrnu
sem menn hollir einræðisherranum
fyrrverandi hafa veitt hernámsliði
bandamanna að undanförnu. Þeir
sem staðið hafa fyrir árásum síðustu
vikna á bandaríska hermenn eru tald-
ir hafa verið foringjar í her og örygg-
islögregluliði Saddams, en synir hans
gegndu lykilforystuhlutverki í því liði.
Bandaríkjastjórn hafði sett 15 millj-
ónir dollara til höfuðs hvorum þeirra.
Synir
Saddams
felldir
Langur skotbardagi háður þar
sem bræðurnir bjuggu sér vígi
Bagdad. AP, AFP.
Synir Saddams/27
AP
Forvitnir borgarbúar í Mosul sjást á þessari mynd úr sjónvarpsupptöku
þyrpast að húsinu þar sem bandarískir hermenn felldu syni Saddams Huss-
eins í gær. Sumir lýstu ánægju sinni, aðrir bölvuðu Bandaríkjamönnum.
Fjör í fjörunni
í Götu