Morgunblaðið - 23.07.2003, Side 42
ÍÞRÓTTIR
42 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TRÚLEGA þekkir Júlíus Hall-
grímsson, sem varð annar á Ís-
landsmótinu í höggleik í fyrra,
völlinn í Eyjum manna best, altént
af þeim sem hugsanlega munu
blanda sér í baráttuna um sigur.
Hann segir völlinn aldrei hafa
verið betri og um leið hafi hann
aldrei verið eins erfiður.
Völlurinn er stuttur og því lá
beinast við að spyrja hvort þeir
högglengstu tækju ekki bara
dræver og fleygjárn með sér.
„Nei, það dugar alls ekki núna.
Það er raunar alltaf æskilegt að
slá langt – ef það er beint líka. En
völlurinn er þannig núna að ég
held að menn verði að hugsa að-
eins og staðsetja sig vel í stað þess
að flengja boltanum bara eins
langt og hægt er. Ég held því að
menn muni taka allt settið með
sér út á völl. Röffið er orðið svo
þykkt og þungt að það liggur við
að séu menn ekki á braut þýði það
glatað högg,“ sagði Júlíus.
Völlurinn í Eyjum er þannig að
lokaholurnar gefa mikla mögu-
leika á að taka áhættu sem skilar
sér heppnist allt, en refsingin er
mikil misheppnist höggið.
„Það má segja að þetta byrji
allt á þrettándu holu. Hún getur
gefið vel en refsað mönnum séu
þeir ekki nægilega nákvæmir.
Fimmtánda holan er einnig til-
valin til að taka áhættu en hún
Menn
verða að
staðsetja
sig vel
JUAN Roman Riquelme, knatt-
spyrnumaður frá Argentínu, er á
förum frá spænska stórveldinu
Barcelona í kjölfar komu Ronald-
inhos til félagsins. Ronaldinho var í
gær gefin treyja Riquelmes, treyja
númer tíu. Búist er við því að
Barcelona láni Riquelme og njóti
síðan starfskrafta hans síðar.
JENS Lehmann, hinn litríki
markvörður Dortmund, sem hefur
fimm sinnum verið rekinn af leik-
velli, var orðaður við Arsenal í
enskum fjölmiðlum í gær. Arsenal
er að leita sér að markverði en Leh-
mann er 33 ára gamall og hefur
leikið 16 landsleiki fyrir Þýskaland.
Hann á aðeins eitt ár eftir af samn-
ingi sínum við Dortmund og er talið
að Arsenal þurfi að greiða um eina
millj. punda fyrir hann.
LEHMANN hefur einu sinni áður
leikið fyrir utan Þýskaland – þá
sem leikmaður AC Milan. Hann hef-
ur undanfarin ár barist um lands-
liðssæti í þýska landsliðinu við Oliv-
er Kahn, fyrirliða landsliðsins.
ÞESS má geta til gamans að um
20 markverðir hafa verið orðaðir við
Arsenal síðan David Seaman, 39
ára, gekk til liðs við Manchester
City á frjálsri stöðu fyrir mánuði.
Eins og stendur er hinn 22 ára
Stuart Taylor markvörður Arsenal
númer eitt. Hann á tvö ár eftir af
samningi sínum við Lundúnaliðið.
BRASILÍSKI leikmaðurinn
Emerson, fyrrverandi leikmaður
Leverkusen, sagði að hann hefði
ekki áhuga að fara til Chelsea, þeg-
ar hann var spurður er leikmenn
Roma á Ítalíu komu saman til æf-
inga á mánudaginn. „Ég verð hér
áfram,“ sagði Emerson.
ÍTALSKI landsliðsmaðurinn
Francesco Totti sýndi gott fordæmi
á mánudaginn, þegar hann tilkynnti
að hann myndi gera nýjan samning
við Roma – og samþykkti að lækka
laun sín til að aðstoða Rómarliðið í
fjárhagserfiðleikum. Aðrir leikmenn
liðsins hafa einnig samþykkt að
laun þeirra verði lækkuð. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem Totti sam-
þykkir launalækkun. Það gerði
hann einnig sumarið 2001, þegar
hann skrifaði undir nýjan samning.
„Ég er tilbúinn að taka þátt að
vinna á fjárhagserfiðleikum liðsins,“
sagði Totti, sem er samningsbund-
inn Roma til 2005.
GERARD Houllier, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, er ánægður með
leikmannahóp sinn, sem kemur til
með að keppa við Manchester Unit-
ed, Arsenal, Newcastle og Chelsea,
eins og sl. keppnistímabil. Hann er
ánægður með stóran hóp ungra
leikmanna, sem hann hefur úr að
tefla. „Þegar við lékum við Chesea
var meðalaldur leikmanna okkar
24–25 ár, en hjá Chelsea var hann
29 ár.“
FÓLK
spurning um hvernig röffið verður, ef
það verður þétt og þykkt þannig að
menn tapa hreinlega höggi á að fara
þar út í þá gætu menn sett aukið vægi
á að staðsetja sig frekar en slá langt.
Samt efast ég um að menn breyti
kylfubalinu mikið. Völlurinn, eða
ákveðnar brautir, henta vel þeim sem
slá langt.
Ef það verður ekki mikill vindur á
meðan mótið fer fram þá gæti ég trú-
að að sigurvegarinn myndi leika á sjö
til tíu höggum undir pari vallarins.“
Sama hjá stelpunum
„Ætli þetta verði ekki svipað hjá
stelpunum og venjulega, nema hvað
Herborg verður ekki með. Ólöf María
og Ragnhildur Sigurðardóttir eru lík-
legastar til að berjast um sigurinn.
Anna Lísa Jóhannsdóttir úr GR
hefur bætt sig í sumar og á góðum
degi getur hún komist í síðasta rás-
hóp á sunnudeginum.
Þórdís Geirsdóttir hefur trúlega
verið hvað stöðugust af stúlkunum í
sumar og hún ætlar örugglega að
standa sig á þessu móti þar sem
landsliðsþjálfarinn fylgist með. Svo
er spurning hvað stelpunar úr Mos-
fellsbænum gera, þær geta komist
þarna upp á milli,“ sagði Hörður.
Núverandi Íslandsmeistarar eruSigurpáll Geir Sveinsson úr
Golfklúbbi Akureyrar og Ólöf María
Jónsdóttir úr Keili.
Þau ætla sér að sjálf-
sögðu stóra hluti í
Eyjum og láta titilinn
ekki frá sér án bar-
áttu. Meistaramót klúbbanna voru
haldin í síðustu viku og ættu þau að
gefa einhverja mynd af því sem
vænta má í Eyjum. Óneitanlega vek-
ur frábær spilamennska Birgis Leifs
Hafþórssonar mesta athygli en hann
gerði sér lítið fyrir og lék hringina
fjóra á 22 höggum undir pari og er
það besti árangur sem Íslendingur
hefur náð í golfi. Birgir Leifur verður
með í Eyjum og verður að teljast sig-
urstranglegur.
„Birgir Leifur er ansi hreint líkleg-
ur sigurvegari eftir þetta frábæra
golf sem hann lék í meistaramótinu.
Hann hefur líka kunnað vel við sig á
vellinum í Eyjum,“ sagði Hörður
Arnarson, golfkennari hjá Keili, þeg-
ar hann var inntur eftir hvaða kylf-
inga hann teldi líklegasta til að standa
sig best.
„Það eru nokkuð margir sem gætu
verið ofarlega en hins vegar held ég
að þetta verði jöfn og spennandi
keppni – þeir einu sem gætu hugs-
anlega stungið af eru atvinnumenn-
irnir okkar.
Björgvin Sigurbergsson og Ólafur
Már Sigurðsson gera báðir tilkall til
sigurs og ekki má gleyma heima-
manninum Júlíusi Hallgrímssyni. Ef
hann er í stuði, er hann rosalega góð-
ur kylfingur og fer því í hóp þeirra
sem líklegastir eru til að ná langt.
Það er spurning hvernig Íslands-
meistarinn verður stemmdur. Sigur-
páll er þannig að ef hann er vel
stemmdur gengur honum allt í hag-
inn og hitti hann á slíka daga þá getur
hann alveg orðið í síðasta ráshóp á
sunnudaginn. Einnig er rétt að nefna
Harald Heimisson úr GR og Heiðar
Davíð Bragason úr GKj, þeir geta vel
blandað sér í baráttuna á toppnum.
Ég held að það séu ekki fleiri sem
verða um baráttuna um efsta sætið,“
sagði Hörður en síðan rifjuðust upp
nokkur nöfn fyrir honum. „Örn Ævar
Hjartarson úr GS hefur getuna til
þess að sigra, en hann hefur ekki ver-
ið mjög sannfærandi í sumar en það
er aldrei að vita hvað hann gerir. Úlf-
ar Jónsson hefur víst verið að leika
vel og hann hefur allt sem til þarf.
Hann gat reyndar ekki verið með í
meistaramótinu, en það hefði verið
góður undirbúningur fyrir hann. Ég
held að þrátt fyrir kunnáttuna hjá
honum, og raunar fleiri kylfingum,
séu okkar bestu kylfingar orðnir það
góðir að menn verði að vera í keppn-
isæfingu til að ná langt.“
Spurður um völlinn í Eyjum, hvort
hann hentaði frekar þeim sem eru
högglangir, sagði Hörður: „Mér
finnst líklegt að menn verði dálítið
með dræverana á lofti. Það er þó
Morgunblaðið/Friðþjófur
Keilismennirnir Úlfar Jónsson og Björgvin Sigurbergsson.
Hörður Arnarson golfkennari spáir í
spilin fyrir landsmótið í golfi í Eyjum
Birgir Leifur
er líklegur
til afreka
ÍSLANDSMÓTIÐ í höggleik hefst í Vestmannaeyjum á morgun. Þar
munu 150 bestu kylfingar landsins reyna með sér og kljást við golf-
völl Eyjamanna. Flestir sem taka þátt ætla sér stóra hluti, en á
sunnudaginn verður aðeins einn sigurvegari í hvorum flokki.
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson
FYRRVERANDI leikmaður Bolton, Michael Johansen,
er mættur til æfinga hjá Stoke City. Liðið er í æf-
ingaferð í Hollandi og Johansen, sem er danskur lands-
liðsmaður, verður í viku við æfingar hjá félaginu og
eftir það munu forráðamenn Stoke taka ákvörðun um
hvort honum verði boðinn samningur.
Johansen er 31 árs gamall miðjumaður en hann lék
140 leiki með Bolton frá 1996–2000 og skoraði í þeim
21 mark. Johansen var mjög vinsæll hjá stuðnings-
mönnum Bolton en hann hefur verið samningsbundinn
AB í Kaupmannahöfn síðan hann fór frá Bolton.
Johansen hefur átti í töluverðum meiðslum síðustu
tvö tímabil en talið er að hann vilji fara aftur til Eng-
lands til að leika knattspyrnu.
Þrír leikmenn hafa gengið til liðs við Stoke á síðustu
dögum. Miðjumaðurinn John Eustace, Coventry, Clint
Hill, varnarmaður frá Oldham og sóknarleikmaðurinn
Gifton Noel-Williams, sem kom frá Watford.
Michael Johansen
æfir með Stoke
BRYNJAR Björn Gunnarsson, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, sem hefur leikið með Stoke City síðustu fjögur
tímabil er byrjaður að æfa aftur með félaginu. Brynjar
Björn er samningslaus en forráðamenn Stoke ákváðu í
síðustu viku að hætta samningsviðræðum við Brynjar.
Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að það hefði ekkert
breyst í sambandi við samningsmál Brynjars. „Brynjar
Björn býr í Stoke og hann spurði hvort hann mætti æfa
með liðinu til að halda sér í formi. Okkur fannst ekkert
að því en Brynjar æfir aðeins með unglingaliðinu þar
sem aðalliðið er í æfingaferð í Hollandi,“ sagði Gunnar
Þór.
Brynjar Björn fór til Portúgals eftir sl. keppnis-
tímabil og æfði þar um tíma með 1. deildarliðinu
Braga. Þá hélt hann til Barnsley á dögunum og æfði
þar undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar, sem er nýráðinn
knattspyrnustjóri liðsins.
Brynjar Björn æfir
hjá Stoke City
EYJAMENN ætla að hafa golf-
völl sinn í eins góðu standi og
kostur er á Íslandsmótinu. Að-
alsteinn Ingvarsson vallarstjóri
sagði í gær að mikill þurrkur
hefði verið síðustu viku og síðan
hefði suddað aðeins þannig að
það hefði blotnað vel í. „Ég væri
samt alveg til í að skrúfa fyrir
núna. Það er svo erfitt að slá í
bleytunni,“ sagði Aðalsteinn í
gær.
Hann sagði að búið væri að
þrengja brautir nokkuð mikið á
vissum stöðum. „Við þrengdum
brautir á þeim stöðum þar sem
þeir allra högglengstu gætu lent
og viljum með því reyna að fá
menn til að hugsa aðeins og
reyna að spila á brautum. Röffið
verður loðið og þungt þannig að
það borgar sig að vera á braut-
unum. Völlurinn er stuttur og því
gerum við þetta svona til að gera
hann erfiðari,“ sagði vallarstjór-
inn sem sagði erfitt að segja um
hversu hraðar flatirnar yrðu, en
stefnan væri að hafa þær hraðar.
Brautir þrengdar