Morgunblaðið - 31.07.2003, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 11
Nú kemur þú
golfinu á kortið
Golfkort Búnaðarbankans – góður félagi innan vallar sem utan.
• 20% afsláttur af vallargjöldum á völlum GSÍ.
• 5–15% afsláttur í völdum golfverslunum.
• Ferðatryggingar og neyðarþjónusta á ferðalögum erlendis.
• SMS skilaboð með upplýsingum um stöðu og notkun kortsins.
• MasterCard ferðaávísun fylgir Gull Golfkorti.
• Ekkert stofngjald og frítt árgjald fyrsta árið.
Búnaðarbankinn er aðal styrktaraðili GSÍ
Gull Golfkort – víðtækar ferðatryggingar,
MasterCard ferðaávísun og golftengd fríðindi.
Almennt Golfkort – ferðatryggingar og
golftengd fríðindi.
Almennt Golfkort Plús – fyrirframgreitt
greiðslukort. Ferðatryggingar og golftengd
fríðindi. Viðskiptavinir geta fengið Golfkort
Plús frá 12 ára aldri.
Golfkortið er einungis fyrir félaga í Golfsambandi Íslands
Hægt er að velja um þrjár tegundir korta
Þú getur sótt um Golfkort á www.bi.is, í síma 525 6000,
eða í næsta útibúi Búnaðarbankans
Golfkort Búnaðarbankans – nýtt fullgilt
kreditkort hlaðið golftengdum fríðindum
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
7
4
6
7
www.bi.is
FRAMKVÆMDASTJÓRN Neyt-
endasamtakanna hefur samþykkt
eftirfarandi ályktun um meint verð-
samráð olíufélaganna:
„Staðfest er í fyrri hluta skýrslu
Samkeppnisstofnunar að olíufélögin
hafa haft víðtækt samráð um verð-
lagningu á vörum í því skyni að halda
uppi verði á olíu og tengdum vörum.
Með lögbrotum hafa olíufélögin haft
gríðarlega fjármuni af neytendum.
Enn eru ekki komnar fram upplýs-
ingar frá samkeppnisyfirvöldum um
hvernig verðsamráðið bitnar með
beinum hætti á neytendum. Neyt-
endasamtökin fordæma þetta verð-
samráð sem er bein aðför að hags-
munum neytenda og atlaga að
frjálsri samkeppni hér á landi.
Neytendasamtökin skora á olíufé-
lögin að leggja nú þegar spilin á
borðið gagnvart almenningi. Neyt-
endasamtökin krefjast þess einnig
að olíufélögin upplýsi hvernig þau
hyggist bæta neytendum það tjón
sem þau hafa valdið. Ólögmætt verð-
samráð sem hækkar vöruverð hefur
alvarlegri afleiðingar á Íslandi en
víða annars staðar þar sem verð-
hækkanir leiða til hækkunar á skuld-
um heimilanna vegna vísitölubind-
ingar lána. Verðsamráð gagnvart
stærri viðskiptavinum leiðir til
kostnaðarauka hjá fyrirtækjum og
stofnunum og bitnar á hinum al-
menna neytanda þegar hækkunum
er velt út í verðlagið.
Neytendasamtökin áskilja sér all-
an rétt til að grípa til enn frekari að-
gerða þegar endanleg skýrsla Sam-
keppnisstofnunar liggur fyrir vegna
þess skaða sem hið ólögmæta sam-
ráð hefur valdið neytendum.
Þetta mál allt sýnir mikilvægi þess
að hér á landi eru starfandi virk sam-
keppnisyfirvöld. Neytendasamtökin
telja mjög mikilvægt að rannsóknum
vegna brota á samkeppnislögum sé
lokið á sem skemmstum tíma. Sam-
tökin ítreka því þá skoðun sína að
efla Samkeppnisstofnun til að
tryggja skjótari meðferð mála.“
Ályktun Neytendasamtakanna
um meint samráð olíufélaganna
Upplýsi hvernig
tjónið verði bætt
VEIÐI hefur glæðst nokkuð í lax-
veiðiám á Norðurlandi síðustu
daga. Vatn hefur aukist til muna í
ánum og straumur var stærstur í
gær. Smálax er að reytast upp í
árnar, en hins vegar ekki í því
magni sem menn hafa vænst og enn
er stór hluti aflans stór fiskur sem
hefur dvalið tvö ár í sjó.
Góðar tölur síðustu daga
Pétur Pétursson leigutaki Vatns-
dalsár nefndi sem dæmi um batn-
andi gang mála að 16 laxar hefðu
veiðst í ánni í fyrradag og í gær-
morgun, er rætt var við hann,
veiddust einnig nokkrir fiskar. Lax
hefur dreift sér vel fyrir ofan Flóð,
en að sögn Péturs hefur Flóðið
lengst af verið ólaxgengt vegna
vatnsleysis og hita og sjálfur
Hnausastrengur, hinn magnaði hyl-
ur neðan Flóðsins, illveiðandi af
sömu sökum, en með hitunum fyllt-
ist allt af gróðri. „Svo er Hnausa-
strengurinn óveiðandi núna vegna
of mikils vatns! Það er annaðhvort í
ökkla eða eyra,“ bætti Pétur við.
Um 180 laxar eru komnir á land úr
ánni sem er mun lakara en í fyrra,
en Pétur sagði menn þó yfirleitt
fara sátta heim því þó þeir veiddu
færri laxa þá væri meðalvigtin
gríðarlega góð og mikið af stórlaxi.
Fimm laxar í sumar voru um og yfir
20 pund og flestir yfir 12 pundum.
Af 16 í fyrradag voru aðeins fimm
smálaxar og sagði Pétur það endur-
spegla stöðuna.
Lítum aðeins á Víðidalsá og Mið-
fjarðará. Miðfjarðará var að dofna
eftir nokkra bærilega daga
snemma í síðustu viku, en á mið-
vikudaginn veiddust tíu stykki í
Vesturá einni. Hún er áa best í Mið-
fjarðarárkerfinu í sumar, minna af
laxi er í Austurá og Núpsá er rétt
nýkomin inn með boðlegt vatns-
magn. Það eru regluleg skot í Mið-
fjarðará. Um 200 laxar eru komnir
á land, mun lakara en í fyrra, en
meðalvigtin mjög góð.
Dæmi um bata í Víðidalsá er að á
þriðjudag veiddust þar 19 laxar, 10
á mánudag og 19 á sunnudag. Það
er sama sagan þar, smálax seytlar
inn, en þorri aflans er þó enn stærri
fiskur. Og svipað má segja um
Hrútafjarðará, en um helgina
veiddust þar 15 laxar, sem er besta
hollið til þessa, nokkrir nýir smá-
laxar, en mest boltafiskar, allt að 19
pundum. Milli 50 og 60 laxar eru
komnir þar á land.
Hítará skilar vel
Veiði hefur verið vel boðleg í Hít-
ará að undanförnu, þrátt fyrir að
mjög lítið vatn hafi verið í ánni.
Hún hefur fengið slurk og slurk af
vætunni að undanförnu, en Mýr-
arnar og Snæfellsnesið hafa ekki
fengið sömu demburnar og t.d.
Borgarfjarðar- og húnvetnsku árn-
ar. Hollið sem lauk veiðum á hádegi
í dag var með 17 laxa þegar einni
vakt var ólokið og tvö síðustu hollin
á undan voru með 19 stykki hvort
auk nokkurra stórra sjóbleikja.
Það er enn mok í Rangárþingi og
dæmi um að á bestu svæðunum geri
veiðimenn fátt annað en að þreyta
og landa löxum vaktirnar á enda.
Eystri áin gaf t.d. 59 laxa í fyrradag
og stefndi í svipað í gær. Ytri áin
hefur verið með heldur hóflegri
meðaldagveiði að undanförnu, en
vísbendingar um að hún sé að bæta
við sig greinilegar að mati veiði-
manna á staðnum sem hafa orðið
varir við sterkar göngur.
Rofar
aðeins til
nyrðra
Morgunblaðið/Golli
Veiðimenn bera saman bækur sínar í kvöldkyrðinni við Lund, gamla veiði-
hús Jóhannesar á Borg við Hítará. Fremst má þekkja, Brynju Gunnars-
dóttur, Þorstein Ólafs og Ólaf Vigfússon.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
FRAMTELJENDUR gátu í fyrsta
skipti í gær skoðað framtöl sín á
Netinu en að sögn Braga Leifs
Haukssonar, deildarstjóra hugbún-
aðarsviðs Ríkisskattstjóra, var fólk
fljótt að taka við sér. „Þetta fór rosa-
lega bratt af stað. Fyrsta korterið
sem við höfðum opið voru 2.500
manns sem náðu í seðlana sína.“
Vegna álags lagðist kerfið niður um
tíma en því var kippt fljótt í lag og
straumurinn var stöðugur. „Um kl.
20 í kvöld [gærkvöldi] voru 8–9.000
manns búin að nýta sér þjónustuna,“
segir Birgir en um 80% af þeim sem
telja fram gera það í gegnum Netið.
Margir skoðuðu framtalið