Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Á ÁRBÆJARSAFNI má sjá ýmislegt forvitnilegt úr sögu Íslands og þar er tilvalið að fara með fjölskylduna til að kynnast sögu og menningu þjóðar og borgar. Einnig eru þar gjarnan spennandi uppákomur. Þótt þessir ungu samreiðarmenn séu fullnútímalegir til að vera sýningargripir, bera þeir með sér einbeittan fóstbræðrasvip beint aftur úr fornsögunum, þar sem þeir sitja vagnhestinn. Ungir riddarar á Árbæjarsafni Morgunblaðið/Jim Smart Reykjavík Í KJÖLFAR athugana Orkuveitu Reykjavíkur og Borgarbyggðar á uppbyggingu á nýrri vatnsveitu í Borgarbyggð og hagkvæmni slíkrar framkvæmdar, sérstaklega í ljósi mikillar uppbyggingar á svæðinu frá Bifröst til Borgarness, hafa aðilar komist að samkomulagi um að Orku- veita Reykjavíkur muni framvegis eiga og reka vatnsveitu Borgar- byggðar. Með þessu verður tryggð full- nægjandi vatnsöflun fyrir Borgar- nes og nærsveitir auk þess sem gæða- og öryggismál vatnsveitunnar munu verða færð til sama horfs og hjá Orkuveitu Reykjavíkur á næstu tveimur til þremur árum. Orkuveita Reykjavíkur mun byggja upp vatns- veitu frá Grábrókarhrauni og leggja aðveituæð til Borgarness en Borg- arbyggð mun leggja til vatnsveitu Borgarness sem framlag sitt til þess- arar uppbyggingar. Vatnsveita Borgarbyggðar verður frá og með 1. janúar 2004 eign Orku- veitu Reykjavíkur og mun starfsemi vatnsveitu Borgarness verða hluti af starfsemi Orkuveitunnar. Heildarverðmæti samningsins er um 200 milljónir króna. Jafnframt hafa aðilar undirritað viljayfirlýsingu um að kannað verði hvort Orkuveita Reykjavíkur geti einnig komið að rekstri rafveitna í sveitarfélaginu. Orkuveita Reykja- víkur kaupir vatns- veitu Borgarness Reykjavík HAFNARFJARÐARBÆR hefur lokað gæsluvellinum við Grænukinn vegna geitungaplágu. Geitungar yfir- tóku aðstöðuskúrinn á gæsluvellinum og var gæsluvöllurinn undirlagður af geitungum. Þeir bjuggu um sig og komu upp búi undir þaki aðstöðu- skúrsins og ekki var hægt að komast að þeim þar. Þurfa nú starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar að taka þakið af skúrnum til þess að nálgast búið. Til stóð að loka vellinum í haust í kjölfar endurskoðunar á skipulagi á málefnum gæsluvalla í Hafnarfirði, en geitungaplágan olli því að honum var lokað fyrr en ella. Litlar líkur eru því á því að völl- urinn verði starfræktur áfram sem gæsluvöllur. Þó verður hann áfram aðgengilegur sem leiksvæði, enda er hann vinsæll sem slíkur. Börnum sem heimsóttu Grænu- kinn er nú beint yfir á Gæsluvelli í Setbergi og á Háholti. Gæsluvelli lokað vegna geitungaplágu Hafnarfjörður UNDANFARNA daga hafa Hafn- firðingar orðið varir við óvenju ljós- ríkar götur, enda lýsa allir ljósa- staurar jafnt dag sem nótt. Þessa undarlegu lýsingu má rekja til þess að verið er að færa háspennulínu við Hamranes frá íbúðarsvæðinu á Völl- um. Að sögn Steinunnar Þorsteins- dóttur, upplýsingafulltrúa Hafnar- fjarðar, þurfti þess vegna að taka úr sambandi línu og á meðan er keyrt á varasambandi. „Á varasambandinu er ekki hægt að stýra álaginu svo við verðum að velja hvort við höfum kveikt eða slökkt á öllu kerfinu. Vegna þess að nú er farið að rökkva tókum við þá ákvörðun að láta loga á öllum ljósastaurum í bænum fram undir 8. til 10. ágúst.“ Steinunn segir ljósadýrðina koma á skemmtilegum tíma þar sem Björt- um dögum er nýlokið. Logandi ljós í Hafnarfirði Hafnarfjörður HAFNARFJARÐARBÆR er nú í viðræðum við Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) um að SÍM taki yfir rekstur lista- og menningar- miðstöðvarinnar í Straumi. Í Straumi hefur undanfarin ár verið rekin lista- og menningarmiðstöð, þar eru fjórar vinnustofur fyrir listamenn, sýning- arsalur og gistiaðstaða með eldhúsi og stofum. Undanfarið hefur verið ötullega unnið að endurbætum á húsakosti og innviðum Straums og er húsið í afar góðu ástandi. Listamenn hafa hingað til haft að- gang að Straumi í gegn um menning- armálanefnd Hafnarfjarðar, en gangi viðræðurnar í gegn, mun SÍM sjá um úthlutun aðstöðu og allan rekstur Straums. Að sögn Lúðvíks Geirssonar, bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar, eru allar leiðir opnar, en engar áætl- anir séu uppi um að breyta sjálfri starfsemi Straums, heldur sé ein- göngu verið að skoða hvernig haldi verði utan um rekstrarþáttinn. „Það hefur verið rekin mjög blómleg og góð aðstaða í Straumi, bæði fyrir inn- lenda og erlenda listamenn og við viljum halda því góða starfi áfram. Við erum búin að vera að skoða ýms- ar leiðir í þessum hlutum og við úti- lokum enga möguleika. Bærinn þarf ekki endilega að sjá um þetta alfarið sjálfur. SÍM hafa verið í samstarfi við Reykjavíkurborg um reksturinn uppi á Korpúlfsstöðum og hafa sýnt áhuga á því að koma í samstarf við okkur um starfsemina í Straumi. Ég á von á því að það komi niðurstaða í þetta mál í haust þegar nefndir og starfsmenn koma úr sumarfríum. Það er þó ekki búið að ákveða neitt í þessu máli og það er enn á umræðu- stigi.“ Ljósmynd/Gísli Sigurðsson Húsið í Straumi hýsir Lista- og menningarmiðstöð Hafnarfjarðar. Viðræður við SÍM um að taka við rekstri Straums Hafnarfjörður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.