Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 43 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Þú átt auðvelt með að koma auga á smáatriði og ert heimspekilega þenkjandi. Þú hefur mikla þörf til þess að tjá þig og hefur yndi af lærdómi. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Óvæntar uppákomur á vinnu- stað koma þér úr jafnvægi. Sýndu þolinmæði og ekki ör- vænta þó að þetta raski fyr- irætlunum þínum í dag. Naut (20. apríl - 20. maí)  Óvænt daður kemur þér skemmtilega á óvart í dag. Þér finnst þú vera yngri fyrir vikið! Það er sem loftið í kringum þig sé hlaðið orku í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú skalt forðast það eftir fremsta megni að sýna for- eldrum þínum eða yfirmönn- um hortugheit. Í dag mun slíkt athæfi auðveldlega fara úr böndunum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Erfið verkefni, sem krefjast nákvæmni, verða að bíða betri tíma. Þú átt í vandræð- um með að einbeita þér í dag sökum sífelldra truflana. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Farðu varlega með peninga í dag. Ekki kaupa neitt án þess að hugsa þig tvisvar um. Þú veist sem er, að þú átt það til að eyða um efni fram. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú gætir auðveldlega hneykslað fólk í dag. Forð- astu það eftir fremsta megni. Einhver gæti þó, öllum að óvörum, hneykslað þig! Vog (23. sept. - 22. okt.)  Reyndu að nálgast verkefni þín í vinnunni með skipulögð- um hætti. Varastu villur því það er mjög líklegt að þær eigi sér stað í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Óvenjulegar persónur gætu komið róti á hug þinn í dag og vinir þínir munu sýna á sér nýja hlið. Ekki láta þetta koma þér á óvart. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú átt erfitt með að einbeita þér í dag. Þú verður að taka þér eitthvað fyrir hendur sem þú átt auðvelt með að hafa stjórn á. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér býðst óvænt tækifæri til þess að ferðast eða öðlast æðri menntun í dag. Það væri hyggilegast að hugsa sig vel um áður en ákvörðun er tekin. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Fylgstu vel með eigum þín- um í dag. Það er mjög líklegt að þú gleymir einhverju á glámbekk. Vertu á verði. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Sýndu nánum vinum þínum mikla tillitssemi í dag. Það eru allir viðkvæmir. Þú líka. Mundu samt að þú átt auð- velt með að sýna umhyggju. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Vorsól Svanir fljúga hratt til heiða, huga minn til fjalla seiða. Vill mér nokkur götu greiða? – Glóir sól um höf og lönd. Viltu ekki, löngun, leiða litla barnið þér við hönd? - - - Nú finn ég vorsins heiði í hjarta. Horfin, dáin nóttin svarta. Ótal drauma blíða, bjarta barstu, vorsól, inn til mín. Það er engin þörf að kvarta, þegar blessuð sólin skín. Í vetur gat ég sagt með sanni: Svart er yfir þessu ranni. Sérhvert gleðibros í banni, blasir næturauðnin við. – Drottinn, þá er döprum manni dýrsta gjöfin sólskinið. - - - Stefán Sigurðsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Akureyrarkirkju 12. júní sl., af sr. Svavari Jónssyni, María Sigurð- ardóttir og Kristján Valur Gunnarsson. Heimili þeirra er á Akureyri. Í SPINGOLD-keppn- inni í fyrra varð Banda- ríkjamaðurinn Alan Grav- es sagnhafi í afleitri grandslemmu í suður: Norður ♠ Á10532 ♥ ÁKD109 ♦ Á ♣85 Vestur Austur ♠ K4 ♠ G976 ♥ G52 ♥ 763 ♦ D10432 ♦ K9 ♣732 ♣G1064 Suður ♠ D8 ♥ 84 ♦ G8765 ♣ÁKD9 Um sagnir er það eitt að segja að þær fóru úr böndunum. Norður ham- aðist á hálitnum þar sem Graves átti engan stuðn- ing og hann ákvað að þagga niður í makker með stökki í sex grönd. Í and- stöðunni voru Ítalirnir Lorenzo Lauria og Alfr- edo Versace, og Lauria hitti á hvasst útspil, eða lítinn tígul. Hvernig líst lesandanum á horfur sagnhafa eftir þá byrjun? Graves var ekki bjart- sýnn, en spilaði upp á einu leguna. Í öðrum slag spilaði hann laufi og djúp- svínaði níunni! Þegar sá áfangi var í höfn var næst að prófa hjartað. Gosinn kom þriðji, svo nú átti Graves ellefu slagi og möguleika á þeim tólfta í spaða. Hann tók öll hjört- un og svo þrjá efstu í laufi. Norður ♠ Á1053 ♥ – ♦ – ♣– Vestur Austur ♠ K4 ♠ G97 ♥ – ♥ – ♦ D10 ♦ K ♣– ♣– Suður ♠ D8 ♥ – ♦ G ♣D Vörnin á ekkert svar við laufdrottningunni í þessari stöðu. Í reynd henti Lauria tíguldrottn- ingu og Versace spaðaníu. Það dugði ekki til að blekkja Graves. Hann spilaði tígli og hitti svo í spaðann. Sem var sjálf- gert, því AV gátu stýrt því hvor fengi tígulslag- inn. Spaðinn varð einfald- lega að vera „læstur“, það er að segja, kóngurinn í vestur og gosinn í austur. Eftir á að hyggja var Lauria óheppinn með út- spilið. Með hlutlausu hjartaútspili er best fyrir sagnhafa að spila upp á spaðann, fyrstu litlu á drottninguna og svína svo tíunni. Þá hefði slemman farið beint niður. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Oddakirkju á Rangárvöllum þann 21.júní 2003 Sólrún Rúnarsdóttir og Daníel Reynisson. Prest- ur var sr. Sigurður Jónsson. Heimili þeirra er að Háa- gerði 43, Reykjavík. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0–0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 0–0 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. Rbd2 Bf8 12. a4 h6 13. Bc2 exd4 14. cxd4 Rb4 15. Bb1 c5 16. d5 Rd7 17. Ha3 f5 18. exf5 Bxd5 19. Re4 Rf6 20. Rxf6+ Dxf6 21. axb5 axb5 22. Hxe8 Hxe8 23. g4 Be4 24. He3 Bc6 25. Hxe8 Bxe8 26. h4 Bc6 27. g5 Df7 28. Rd2 De8 29. gxh6 De5 Staðan kom upp í A-flokki skákhátíð- arinnar í Pardubice í Tékklandi. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Jan Sprenger (2.492) hafði hvítt gegn Leszek Ostrowski (2.334). 30. Dh5! De1+ 31. Rf1 Dxc1 32. h7+ Kh8 33. Df7 Kxh7 34. f6+ og svartur gafst upp enda verður hann mát eftir 34. ...Dxb1 35. Dh5+ Kg8 36. f7#. vinnupallar Sala - leiga Sími 577 2050 · Fax 577 2055 · GSM 824 2050 · www.formaco.is ÞESSAR stúlkur héldu flóamarkað og söfnuðu 12.554 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Melkorka, Sólrún, Stella Karen, Eva Katrín og Jórunn Margrét. Morgunblaðið/Ragnhildur HLUTAVELTA Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghópur undir stjórn Kára Þormar organista. Kaffi og með því eftir sönginn. Allir velkomnir. Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12. Eyþór Ingi Jónsson leikur á orgel. Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20. Landspítali – háskólasjúkrahús: Arnar- holt: Guðsþjónusta kl. 15. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í kirkjunni kl. 22. Sr. Bára Friðriks. tekur við fyrirbænaefnum í síma 891-9628. Gott er að ljúka deginum og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og bera þar fram áhyggjur sínar og gleði. Bænarefni eru skráð í bænabók kirkjunnar af prestum og djákna. Boðið er upp á molasopa og djús að lokinni stundinni í kirkjunni. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel- komnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrir- bænastund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu verði í safnaðarheimili eftir stund- ina. Safnaðarstarf KIRKJUSTARF Stefáns Sigurjónssonar. Prestur er sr. Þorvaldur Víðisson. Megi Þjóðhátíðin fara vel fram og ánægj- an skína úr hverju andliti. Prestur Landakirkju. GUÐSÞJÓNUSTA verður haldin við setningu Þjóðhátíðar við klett- inn í Herjólfsdal. Félagar úr Lúðra- sveit Vestmannaeyja spila og Kór Landakirkju syngur undir stjórn Ljósmynd/Gísli Sigurðsson Landakirkja í Vestmannaeyjum. Guðsþjónusta við setningu Þjóðhátíðar        
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.