Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 37
listarlífið í landinu og upprennandi
kynslóðir menntafólks eiga eftir að
njóta góðs af.
Mín fyrstu kynni af Halldóri
tengdust rannsóknum mínum á tón-
list Jóns Leifs. Sem unglingur kom
Halldór á ferðum sínum til Vínar-
borgar á heimili Jóns og Anníar í
Þýskalandi. Hann þekkti þau bæði
hjónin af því einstaka innsæi sem
eingöngu næmum unglingi er gefið.
Sérstaklega heillaðist Halldór af
Annie og var hann henni og Snót
dóttur hennar mikil hjálparhella eft-
ir að þær mæðgur fluttust síðar til
Íslands. Frásagnir Halldórs, hvort
sem var af íslensku tónlistarfólki í
útlöndum eða af stórstjörnum leik-
húsanna í Evrópu og vestanhafs,
leiftruðu af kímni og gleði og lýstu
skarpleika hans á það smágerða í
fasi manna og öllum tilburðum. Með
þessu sagði hann oft stærri sögu en
ef hann hefði aðeins haldið sig við
stærstu drætti. Fyrst og fremst
andaði þó Halldór í frásagnir sínar
einhverri þeirri góðvild sem fékk
mann burtséð frá efninu til að sjá
þetta fólk og allar kringumstæður í
nýju ljósi.
Síðar kynntumst við Halldór nán-
ar þegar Árni Tómas leiddi okkur
saman til að ræða hugmyndir um
hvernig ætti að koma fyrir hinu
stórkostlega plötusafni Halldórs eft-
ir hans dag. Hann sagði mér þá frá
æskuárum sínum og uppvexti, fóstru
sinni sem hann unni umfram alla
aðra, ýmsu samferðarfólki, sýning-
um og hljómleikum og stórbrotnu
listafólki. Umfram allt talaði hann
þó um tónlistina: hvað hún er, hvað
hún skapar, og hvað hún gefur. Tón-
listin opnar dularheima hins innri
manns og í henni fær hann útrás fyr-
ir þær margbreytilegu kenndir sem
í honum búa. Hver sá sem hlustaði á
Halldór tala um tónlistina fór með
hlýju í brjósti af þeim fundi. Kæri
Halldór. Ég þakka þér þá vináttu
sem þú hefur sýnt mér og fyrir hönd
Listaháskólans þakka ég þér það
traust sem þú sýnir skólanum og
æsku landsins med þinni höfðing-
legu gjöf. Blessuð veri þín góða
minning.
Hjálmar H. Ragnarsson.
Halli frændi er allur og eflaust
hvíldinni feginn. Margs er að minn-
ast. Ungum pilti fannst Laufásvegur
24 afar spennandi og alltaf var mikið
tilhlökkunarefni að heimsækja Halla
frænda. Þar voru ýmis skringileg tól
og tæki, sum hver augljóslega ætluð
til lækninga en önnur voru mér al-
gjörlega framandi. Þar var aldrað
pálmatré í potti og postulínsköttur í
hillu. Þar voru einnig staflar af plöt-
um og rykfallnar bækur í röðum.
Bækur þessar voru þegar enginn sá
til teknar fram og í þeim blaðað.
Flestar voru þéttskrifaðar á fram-
andi tungumálum sem vart staut-
færum snáðanum var ómögulegt að
lesa. Inni á milli voru þó myndir, af
kaunum slegnum sjúklingum og hin-
um ýmsu líffærum. Það var sannar-
lega enginn staður í veröldinni
meira heillandi en Laufásvegurinn
og þolinmæði Halla gagnvart pott-
orminum var algerlega óþrjótandi.
Síðan liðu mörg ár og ekki sá ég
hann Halla að neinu ráði.
Að loknu stúdentsprófi þegar tími
var kominn til að hleypa heimdrag-
anum fékk ég inni í norðurenda óð-
alsins á Laufásveginum um nokkurt
skeið. Eftir að inn var flutt leið þar
mánuður og annar en engir bárust
mér reikningarnir nema fyrir síman-
um. Knúði ég loks dyra hjá Halla og
spurði hvort ekki væru þar ógreidd-
ir reikningar mér ætlaðir. Svarið var
skýrt. „Þetta er stórt hús sem hvort
eð er þarf að kynda og lýsa upp.
Borga þú bara símreikninginn þinn
og ég sé um hitt.“ Afar dæmigert
fyrir Halla. Svo leið tíminn og ég
flutti burt. Þegar komið var að loka-
prófum í háskólanum fékk ég á ný
inni hjá Halla en nú til próflestrar.
Hvað varðar lestrarafköst þá var
þetta sennilega miður góð ákvörðun
þegar litið er til baka. Í stað þess að
sitja yfir bókunum stakk ég mér til
sunds í þeim hafsjó geisladiska sem
þar var að finna. Langar samræður
átti ég einnig við frænda um allt
milli himins og jarðar, minnst þó um
læknisfræði. Yfir kaffi í eldhúsinu á
Laufásveginum flugu klukkustund-
irnar hjá. Einhvern veginn blessað-
ist þetta allt saman og náði ég próf-
um, margfróðari og að ég held betri
maður. Fleiri ár liðu og smám sam-
an dró af Halla frænda. Ekki dró þó
úr frásagnargleðinni eða hárbeittum
húmornum. Merkilegast þótti mér
að allan þann tíma sem við spjöll-
uðum um heima og geima skyldi
hann aldrei hallmæla einum né nein-
um. Mættu aðrir taka sér það til
fyrirmyndar.
Síðustu þrjú árin sá ég hann ekki
nema þá sjaldan að ég var í fríi
heima á Íslandi og andlátsfregnin
barst mér svo til Bandaríkjanna um
daginn. Ekki á ég þess kost að fylgja
honum síðustu skrefin heldur læt ég
mér nægja að setjast niður, setja
plötu á fóninn og láta hugann reika
um síðastliðin þrjátíu ár. Væri ég
hér í þessum sporum hefði Halla
frænda ekki notið við?
Þorvarður Ragnar
Hálfdanarson.
Þegar vinir kveðja hinsta sinni
staldrar maður við og lítur yfir far-
inn veg. Leiðir okkar Halldórs lágu
á stundum saman á þessum vegi.
Mín fyrsta bernskuminning um
Halldór er þegar hann bjargaði lífi
mínu, en ég var hætt komin og mátti
ekki tæpara standa.
Halldór fann meinið og með hans
hjálp og almættisins gekk ég áfram
þennan veg og naut samfylgdar og
kynna af honum.
Hann var af þeirri kynslóð sem ég
óneitanlega leit upp til og virti, vinur
foreldra minna og venslaður inn í
fjölskyldu okkar.
Í hann var auðvelt að sækja
mannauð og visku. Hann var djúpt
hugsandi maður með gullið hjarta-
lag, rólegur í fasi og yfirvegaður.
Viðmótið var hlýtt.
Tónlistin skipaði stóran sess í lífi
hans. Hann kom oft á æskuheimili
mitt, leit til með okkur systkinunum
eða til að njóta tónlistarinnar, en
hann eins og foreldrar mínir átti
mikið og merkilegt hljómplötusafn.
Þá var rætt um alla þætti tónlistar-
innar. Við andlát föður míns, Gunn-
ars H. Blöndal, kom Halldór til að
samhryggjast móður minni, Ingunni
Guðmundsdóttur, og hafði meðferðis
geisladisk sem hann færði henni í
stað blóma. Tónlistina hafði hann
valið sérstaklega með tónlistar-
smekk föður míns í huga. Móður
minni þótti sérstaklega vænt um
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Við þökkum sýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför föður okkar, tengdaföður, afa, lang-
afa, bróður og mágs,
HARÐAR ÓLAFSSONAR,
Kveldúlfsgötu 6,
Borgarnesi.
Einnig þökkum við starfsfólki A-deildar Sjúkra-
húss Akraness og Heilsugæslunnar í Borgar-
nesi fyrir umönnun hans.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún María Harðardóttir, Sigmundur Halldórsson,
Hilmar Harðarson, Kristín Pétursdóttir,
afabörn og langafabörn,
Helgi Jónas Ólafsson, Eyrún Kristjánsdóttir.
Hjartans þakkir til hinna fjölmörgu, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug og heiðruðu
minningu ástkærrar móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
KARLOTTU EINARSDÓTTUR,
Hrafnistu,
áður Lækjargötu 10,
Hafnarfirði.
Guð veri með ykkur öllum.
Guðbjörg Guðjónsdóttir,
Helga Guðjónsdóttir, Birgir Jónsson,
Halldór Guðjónsson, Sigríður G. Baldursdóttir,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
GUNNAR HELGI BENÓNÝSSON,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi þriðju-
daginn 29. júlí.
Bergljót Óskarsdóttir
og börn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
KRISTJÁN PÉTUR INGIMUNDARSON
blikksmíðameistari,
Suðurtúni 29,
Bessastaðahreppi,
sem lést laugardaginn 26. júlí síðastliðinn,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju mið-
vikudaginn 6. ágúst kl. 13.30.
Jóhanna Margrét Axelsdóttir,
Sævar Kristjánsson, Sigurbjörg Vilmundardóttir,
Jónína Kristjánsdóttir, Úlfar Albertsson,
Pétur Kristjánsson, Inga Rós Skúladóttir,
Guðmunda Kristjánsdóttir, Sigurður Már Andrésson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐLAUG STEFÁNSDÓTTIR
frá Siglufirði,
verður jarðsungin frá Útskálakirkju, Garði,
föstudaginn 1. ágúst kl. 14.00.
Jón Kr. Jónsson, Herdís Ellertsdóttir,
Sigurlaug Guðmundsdóttir, Guðmundur Frímannsson,
Hjalti Guðmundsson, Erla María Andrésdóttir,
Kolbrún Guðmundsdóttir, Gunnar Hersir,
Kristín Erla Guðmundsdóttir, Sigurður Ingvarsson,
Svandís Guðmundsdóttir, Helgi Gamalíelsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Móðir mín,
RAGNA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Gilsstöðum,
Mýrarbraut 23,
Blönduósi,
verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 2. ágúst kl. 14.00.
Hjörleifur Júlíusson.
Konan mín og móðir,
GUÐRÚN ERLENDSDÓTTIR,
Borgarhrauni 4,
Grindavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnuda-
ginn 27. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hjalti Jónsson
og Kristín Hjaltadóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
GEIRS JÓELSSONAR
kaupmanns,
Fjarðargötu 19,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu Hafnarfirði fyrir hlýju og góða
umönnun.
Lóa Bjarnadóttir,
Margrét Geirsdóttir, Sigurður Bjarnason,
Bjarni Geirsson, Guðrún Sverrisdóttir,
Ingvar Geirsson, Gyða Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Okkar ástkæra,
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Huldubraut 23,
Kópavogi,
lést þriðjudaginn 29. júlí.
Verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðju-
daginn 5. ágúst kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð (s. 560 4100).
Snorri Karlsson,
Agla Snorradóttir, Friðrik Sigurjónsson,
Sigrún Snorradóttir, Gunnar Ásgeirsson,
Snorri Freyr Ásgeirsson,
Freydís Halla Friðriksdóttir,
Freyja Hrönn Friðriksdóttir.