Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 15
AP RIESLING-vínberin, sem vaxa á ökrunum nálægt Heppenheim í Suðvestur-Þýskalandi, hafa dafnað vel í sumar. Þrátt fyrir að flestir bændur í Evrópu hafi kvartað undan óvenjumiklum hitum og þráð rigningu segja vínræktendur víða um álfuna að útlit sé fyrir að 2003-árgangurinn verði afburða góður. Góður árgangur ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 15 FRANSKA lögreglan handtók í gær þrítugan karlmann grunaðan um að hafa átt þátt í að valda skóg- areldunum sem nú loga í suðurhluta Frakklands. Að því er BBC greindi frá er maðurinn talinn hafa kveikt fimm elda í grennd við bæinn Callas en að sögn lögreglu hefur hinn grunaði þegar viðurkennt að hafa kveikt elda í Var-héraði fyrir tveimur vik- um. Maðurinn, sem sagður er óánægður með að hafa ekki fengið inngöngu í slökkvilið svæðisins, sást í nágrenni eldanna þá. Fjórir hafa látist í skógareldunum í Frakklandi auk þess sem þúsundir sumarleyfis- gesta hafa verið fluttir á brott frá svæðinu. Skógareldar loga einnig í Portú- gal og lést einn maður í eldinum í gær. Eldarnir hafa logað í þrjá daga á fjallasvæði nálægt Silvares og berjast fleiri en 500 slökkviliðsmenn og 300 hermenn við eldana. Aðstæð- ur til slökkvistarfa eru þó erfiðar enda er talsvert hvasst og hefur hit- inn jafnframt farið í um 40 stig. Meintur brennu- vargur handtekinn ÍRANSK-kanadíska blaðakonan Zahra Kazemi var myrt þeg- ar hún dó í gæslu- varðhaldi írönsku lög- reglunnar, að sögn Mohammad Ali Abt- ahi, varaforseta Ír- ans, í gær. Skýrt var frá því að fimm starfsmenn leyniþjón- ustunnar, sem voru viðstaddir þegar Kaz- emi var yfirheyrð, hefðu verið handtekn- ir vegna málsins. Í fyrri yfirlýsing- um, m.a. frá nefnd sem forseti landsins skipaði til að rannsaka málið, var viðurkennt, að hún hefði líklega dáið vegna höfuð- höggs en gefið í skyn að það hefði getað verið vegna slyss. Fyrstu viðbrögð stjórnvalda voru hins vegar að segja að hún hefði fengið heilablóð- fall en margir töldu að þar væru harðlínu- menn að firra sig og leyniþjónustmenn sína ábyrgð á verknaðin- um. Forseti landsins, Mohammad Khatami, skipaði þá fljótlega nefnd til að rannsaka atburðinn og krafðist yfirheyrslna vegna málsins. Kazemi sem var 54 ára gömul hafði verið handtekin fyrir að taka myndir þremur vikum fyrir dauða sinn 10. júlí. Eftir að hafa verið yfirheyrð í samtals 77 klukkustundir var hún flutt í flýti á spítala þar sem hún lést 14 dögum síðar. Afdrif blaðakonu í Íran Kazemi var myrt Zahra Kazemi Teheran. AP, AFP. ÞRJÁTÍU og einn Íraki féll fyrir byssukúlum sem skotið var upp í loftið í Bagdad þegar fagnað var falli sona Saddams Husseins, Qusays og Udays, að því er dagblað í borginni greindi frá um síðustu helgi. Sjötíu og sex aðrir slösuðust, þar af 40 alvarlega, sagði enn- fremur í frétt blaðsins, er höfð var eftir heimildarmönnum á sjúkrahúsum borgarinnar. Meðal þeirra sem létust voru tvö börn. Bandaríkjamenn greindu frá því á þriðjudaginn að Uday og Qusay hefðu verið vegnir í miklum skotbardaga í borginni Mosul í norðurhluta Íraks. Féllu í fagnaðar- látum Bagdad. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.