Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ E FTIR að undirrituð skrifaði pistil í þetta pláss undir fyrir- sögninni „Sýnileg en slarkfær“ fyrir rúmum tveimur vikum síðan varð vart við viðbrögð frá femínistum. Viðbrögðin komu í sjálfu sér ekki á óvart en það gerðu svörin hins vegar. Þau voru engin. Við- brögðin voru flest á þessa leið: „hún er greinilega eitthvað að misskilja þetta“. Það er einmitt málið. Ég skil hvorki upp né niður í málflutningi Femínistafélagsins og efast um að það geri margir. Svo margt er at- hugavert við málflutninginn að það er erfiitt að ákveða hvað á að nefna fyrst. Baráttan fyrir jöfnum rétti kynjanna er á villigöt- um, í það minnsta sá angi hennar sem er í höndum Femínistafélagsins. Til að hengja ekki bakara fyrir smið er rétt að árétta að femínistar finnast víðar en í hinu tiltölulega nýstofnaða Femínistafélagi. Það sem helst er athugavert er hversu mikil áhersla er lögð á að fordæma kvenfyrirlitningu sem sögð er undirliggjandi í samfélaginu. Þetta sést ágætlega á því hvernig félagið talar um launamál. Það eru engin áhöld um að launamunur kynjanna er því mið- ur enn þá til staðar. En þegar Gunnar Smári Egilsson varpaði því fram í pistli í Fréttablaðinu á dögunum að ef til vill þyrftu kon- ur í mörgum tilfellum að taka sér tak og bera sjálfar ábyrgð, þá voru femínistar ósáttir. Á póst- lista Femínistafélagsins (sem ekki verður vitnað í hér) voru skrifuð mótmælabréf við þessum pistli og Gunnar Smári talinn boð- beri hefðbundinna viðhorfa og leiðindaáróðurs gegn femínistum. Það má nefnilega ekki segja að konur þurfi að gera þetta og gera hitt. Það má ekki segja að konur eigi að krefjast hærri launa, hafa trú á sjálfum sér og sækjast eftir stjórnunarstöðum. Samkvæmt Femínistafélaginu virðist eiga að gera þetta með tilskipunum og helst lögregluvaldi. Í hringborðs- umræðum sem birtar voru í Morgunblaðinu 28. mars sl., stuttu eftir að félagið var stofnað, koma þessi viðhorf glögglega í ljós. „Kvenstjórnandi þarf að vera betri en karlstjórnandi til að vera álitin jafngóð.“ … „Okkur hefur nú verið bent á að þetta sé okkur sjálfum að kenna. Var ekki boð- skapurinn að spyrja hver væri mesta hindrunin, líta síðan í speg- il; þú sjálf.“ ... „Ég púa á þetta. Ég er svo sannfærð um að ég sé að gera vel og er bara enga minni- máttarkennd með. Það er algjört rugl að við séum sjálfar hindrun- in.“ Hér er vitnað í tvo femínista, þær Gerði og Ragnhildi, sem rætt var við í Morgunblaðinu. Það er alltaf þægilegt að skella skuldinni á einhvern annan, kenna til dæmis samfélaginu um ófarirnar. Samfélagið er líka svo óljóst fyrirbæri að það er engin leið að komast að því hvað er átt við þegar rætt er um undirliggj- andi kvenfyrirlitningu innan þess. Það er einmitt þetta með fyrirlitn- inguna sem helst veldur þessum „misskilningi“ mínum. Í mínum huga er sannleikurinn sá að kon- ur, eins og allir, hafa val. Við höf- um val um að líta á okkur sem fórnarlömb eða sem fullgilda þátt- takendur í samfélaginu. Ég vel síðari kostinn því mig langar ekki til að vera fórnarlamb. Ég ætla ekki að láta eitthvert félag sem varð til af því að nokkrar konur voru orðnar rangeygar af ofnotk- un hinna alræmdu kynjagler- augna segja mér að ég sé fyrir- litin og eigi ekki jöfn tækifæri og karlmenn. Ég er ekki frá því að þessi málflutningur sé beinlínis hættulegur. Femínistafélagið sér vandamál víða, en býður því mið- ur fram fáar lausnir. Konur mega ekki horfa í spegilinn og hugsa með sér að kannski sé nú eitthvað sem þær geti gert sjálfar. Þær eiga að bíða eftir að löggjafinn grípi í taumana eða að einhver jafnréttisfulltrúinn segi þeim fyr- ir verkum. Það getur ekki verið góður málstaður að berjast fyrir. Femínistafélagið virðist telja fjölmiðla bera töluverða ábyrgð á hinu óæskilega viðhorfi til kvenna og kvenfyrirlitningu. Fjölmiðlar eru frekar sýnilegur hluti sam- félagsins og henta því vel sem blóraböggull. Ellefu femínistar ákváðu að rita Morgunblaðinu bréf hinn 15. maí síðastliðinn. Þar kölluðu fulltrúar Femínistafélags- ins þá staðreynd að hafa ekki fengið birta mynd af bleik- klæddum göngukonum (og körl- um) á 1. maí „þöggun“. Með því að taka ekki sérstaklega eftir bleik- um lit bolanna væru fjölmiðlar landsins að þagga niður í konum/ femínistum og ýta undir fyrirlitn- inguna sem virðist eitt helsta meinið í þessu þjóðfélagi, að mati félagsins. Þetta er svo fráleitt sem hugs- ast getur. Ef sérstök mynd hefði verið birt af liðsmönnum Fem- ínistafélagsins í 1. maí-göngunni hefði mun frekar mátt flokka það undir virðingarleysi fjölmiðla við verkalýðsfélög. Menntakonur marsera niður Laugaveginn hefði verið prýðileg fyrirsögn undir myndina af bleikbolungum Fem- ínistafélagsins. Hópur sem á ekk- ert skylt við verkalýðsfélag (en eins og flestir vita er 1. maí dagur verkalýðsins) á ekkert erindi í umfjöllun um 1. maí. Femínista- félagið á rætur sínar að rekja til kynjafræðiskorar við Háskóla Ís- lands. Ég veit ekki til þess að fé- lagið hafi gerst sérstakur tals- maður hinna vinnandi kvenna, hvað þá karla, og get ekki séð að akademískur bakgrunnurinn hefði átt að fleyta þeim á forsíður blaðanna eftir dag verkalýðsins. Í raun er þetta kennslubókar- dæmi í því hvernig ekki á að haga baráttuaðferðum. Að vaða fyrst uppi með látum á þeim forsendum að vera fórnarlömb, kvarta svo yf- ir því að enginn taki eftir látunum og að lokum túlka allt á versta veg, sem fyrirlitningu og þöggun. Ég vona sannarlega að þetta sé allt saman hreinn og klár mis- skilningur. Menntakon- ur marsera í bleiku Baráttan fyrir jafnrétti kynjanna er á villigötum og aðferðir Femínistafélags- ins til að berjast gegn launamismun kynjanna eru út í hött. VIÐHORF Eftir Eyrúnu Magnúsdóttur eyrun@mbl.is ✝ GuðmundurSveins Kristjáns- son múrari fæddist á Ísafirði 14. apríl 1925. Hann andaðist á Garðvangi í Garði 24. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ingibjörg Sveinsdótt- ir frá Gillastöðum í Reykhólasveit, f. 16.12. 1896, d. 15.2. 1973, og Kristján Pálsson, múrara- meistari frá Akur- eyri, f. 31.7. 1899, d. 21.5. 1978. Börn þeirra eru: Páll, f. 1922, lést á barnsaldri, Salvar, f. 7.12. 1923, d. 27.9. 2001, kvæntur Aðalheiði Kristinsdóttur sem lifir mann sinn, þau eiga þrjú börn, níu barnabörn, eitt barnabarnabarn og eitt ófætt, Guðmundur sem hér er minnst, Páll, f. 1927, lést þriggja ára, Sveinsína Valgerður, þeirra er Kristrún, f. í Reykjavík 1.3. 1947, búsett í Njarðvík, gift Jóni Rúnari Bjarnasyni rafvirkja, f. 11.1. 1947, börn þeirra eru: a) Erla, f. 20.11. 1970, í sambúð með Valtý Gylfasyni, f. 1.4. 1970, synir þeirra eru Elvar Örn, f. 24.6. 1998, og Unnar Ernir, f. 24.8. 2000; og b) Guðmundur Rúnar, f. 6.1. 1975, í sambúð með Sæunni Guðrúnu Guðjónsdóttur, f. 15.3. 1976. Guðmundur var áður trúlofað- ur Huldu M. Jónasdóttur, f. í Hnífsdal 19.8. 1927, d. 13.6. 1996. Þeirra sonur er Magnús Bjarni, f. 29.11. 1944. Magnús er þríkvænt- ur og á tíu börn, tvö fósturbörn og 35 barnabörn. Magnús býr með þriðju eiginkonu sinni, Mar- gréti Þorsteinsdóttur, í Höfnum í Reykjanesbæ. Guðmundur lærði múrverk og var Kristján faðir hans annar meistari hans. Guðmundur vann við múrverkið alla tíð, m.a. hjá Aðalverktökum á Keflavíkurflug- velli, þar til hann lét af störfum 67 ára að aldri. Hann var félagi í Múrarafélagi Suðurnesja frá stofnun þess og jafnframt fyrsti formaður félagsins. Útför Guðmundar fer fram frá Njarðvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. f. 28.5. 1928, fráskil- in, hún á þrjú börn, fimm barnabörn og eitt barnabarnabarn, og Zóphonías, f. 27.7. 1931, fráskilinn, hann á fjögur börn, eitt látið, sjö barna- börn og barnabarna- barn. Foreldrar Guð- mundar fluttu frá Ísafirði árið 1946 til Reykjavíkur. Guðmundur kvæntist 19. október 1946 Gíslínu Erlu Ei- ríksdóttur, f. í Ytri-Njarðvík 12.10. 1928, d. í Keflavík 25.9. 1990. Foreldrar hennar voru Ei- ríkur Þorsteinsson, vélstjóri í Njarðvík, f. í Kirkjuvogi í Höfnum 23.11. 1898, d. í Keflavík 7.12. 1896, og Árný Ólafsdóttir, f. í Stapakoti í Njarðvík 14.8. 1900, d. í Reykjavík 3.11. 1984. Dóttir Elsku afi Mundi. Nú ert þú farinn frá okkur og minningarnar hrannast upp. Ég held að það sé ekki til mynd af mér einni frá því innan við fjögurra ára. Alltaf ert þú eða amma Erla með á mynd þó að það sé ekki nema bara höndin eða fóturinn á ykkur sem gægist inn á. Veiðiferðirnar voru margar og eftirminnilegust er veiðiferðin þar sem ég þvoði orm- ana svo þeir yrðu girnilegri fyrir fiskana, ömmu fannst það ekki gott enda veiðimaður góður. Þar söng ég fyrir fuglana og pabbi veiddi öndina á veiðistöngina. Ekki má gleyma hjólhýsa- og sumarbústaðaferðun- um þar sem ömmu og þér leið vel. Þú varst alltaf mjög stríðinn. Þegar vinir okkar systkina komu í heim- sókn faldir þú skóna þeirra og þeir trúðu þessu aldrei upp á þig. Ein eftirminnilegasta ferð okkar tveggja var haustið 1995 þegar við fórum í berjaferð vestur í Bjarkar- lund. Einnig heimsóttum við Óla heitinn og Lilju í Reykhólasveit. Ég sá dúkkur sem konurnar í sveitinni höfðu saumað en sölubásinn var lokaður. En þú hringdir í Lilju og hún sendi þér eina sem þú gafst mér í jólagjöf það árið. Hún fékk auðvitað nafnið Ólafía Lilja í höf- uðið á þeim sómahjónum. Þegar við Valli hófum búskap komst þú reglu- lega í kaffi til okkar og þú varst allt- af að fylgjast með þegar við vorum að byggja í Vatnsholtinu. Og þegar Elvar Örn fæddist varst þú enn duglegri að koma í heimsókn. Þegar Unnar Ernir fæddist komst þú einn á meðan heilsan leyfði og svo með mömmu. Strákarnir okkar eiga eft- ir að sakna þín, Valli og ég líka. Elsku afi, nú ertu kominn til ömmu sem þú hefur saknað svo mikið. Loksins eruð þið sameinuð eftir langan aðskilnað. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðarströnd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Þín afastelpa, Erla. Elsku afi Mundi. Hann gekk hér um að góðra drengja sið, gladdi mædda, veitti þreyttum lið. Þeir fundu best sem voru á vegi hans vinarþel hins drenglundaða manns. Þó ævikjörin yrðu máski tvenn, hann átti sættir jafnt við Guð og menn. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Við munum sakna þín. Þínur langafastrákar, Elvar Örn og Unnar Ernir. GUÐMUNDUR SVEINS KRISTJÁNSSON ✝ Sigrún EddaGestsdóttir fædd- ist í Reykjavík 15. desember 1947. Hún lést á heimili sínu 24. júlí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Líney Bents- dóttir húsfreyja, f. á Bíldudal 5. desember 1909, og Gestur Gíslason, trésmiður og leikari hjá LR, f. í Syðri-Nýjabæ, Rang. 26. júlí 1906, d. 4. ágúst 1994. Albróðir Sigrúnar er Gísli, ljósmyndari og framkvæmdastjóri í Reykjavík, f. 1941. Hálfsystkin, samfeðra, eru Guðni Óskar, f. 1929, og Sólrún, f. 1930. Sigrún Edda giftist 16. október f. 26. ágúst 1972, sambýliskona Sif Ásthildur Guðbjartsdóttir. Börn þeirra eru Andreas Máni Helgason, f. 1997, og Anna Marín Bentsdóttir, f. 2003. Sigrún Edda bjó fyrstu ár sín ásamt foreldrum sínum í Miðstræti 12 í Reykjavík og síðan á Digranes- vegi í Kópavogi. Þar hófu Sigrún og Marinó búskap sinn í sambýli við foreldra Sigrúnar og þar fæddust börn þeirra. Sigrún Edda og Mar- inó áttu síðan heimili sitt lengst af á Grenigrund í Kópavogi og þar lést Marinó 1996 eftir erfið veikindi. Sigrún Edda lærði hárgreiðsluiðn og starfaði framan af við hana ásamt húsmóðurstarfinu á heimili sínu og síðan einnig hjá Ríkis- sjónvarpinu. Seinna fékkst hún við ýmis störf. Fyrir tveimur árum fluttist Sigrún að Furugrund og bjó sér þar fallegt heimili. Þar áttu barnabörn hennar sér athvarf og voru ljós hennar og yndi. Útför Sigrúnar verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. 1965 Marinó Ólafssyni, rafeindavirkja og hljóðmeistara hjá Rík- issjónvarpinu og Stöð 2, f. í Reykjavík 15. maí 1945, d. 17. febrúar 1996. Hann er sonur hjónanna Guðjónu F. Eyjólfsdóttur hús- freyju, f. í Hafnarfirði 21. maí 1914, d. 12. júlí 2003, og Ólafs Þórðar- sonar húsgagnabólstr- ara, f. í Reykjavík 3. janúar 1913. Börn Sigrúnar Eddu og Marinós eru: 1) Lín- ey Ólafía ferðamálafræðingur, f. 28. des. 1965, sambýlismaður Karl Magnússon. Börn þeirra eru Andri Marinó, f. 1996, og Sigrún Ósk, f. 2002. 2) Bent garðyrkjufræðingur, Elsku mamma mín. Ég sit hér alveg dofin og trúi ekki að þú sért farin frá okkur svona snögglega. Enginn var hjá þér og við náðum ekki að kveðja þig eins og var þegar pabbi lést fyrir rúmum sex ár- um. Hver hefði trúað því, þegar við sátum saman fyrir nokkrum dögum og hjálpuðumst að með minningar- grein um ömmu Guggu, að næst myndi ég skrifa minningargrein um þig? Við vorum svo ótrúlega sam- rýndar mæðgur og heyrðumst oft á dag í síma ef við vorum ekki nálægt hvor annarri. Ég er mjög þakklát fyrir þá stund er við áttum saman rétt eftir að amma Gugga lést en þá töluðum við saman um dauðann. Þá fékk ég tækifæri til að segja þér að ég gæti aldrei fyllilega þakkað þér eða borgað til baka allt það sem þú gerðir fyrir mig, Kalla og þinn elsku- lega Andra Marinó og Sigrúnu Ósk, nöfnu þína. Þú varst ekki bara besta mamma í öllum heiminum heldur varstu líka minn besti vinur. Þú vissir allt um mig og ég gat alltaf leitað til þín með allt. Það verður erfitt að geta ekki hringt í þig og spurt þig ráða, fengið hjá þér mömmunudd, beðið þig að lita augnhárin á okkur stelp- unum, nú eða beðið þig að kíkja eftir krökkunum meðan ég skrepp eitt- hvað út. Þú eldaðir besta mat sem hægt var að fá en ekki náðist að læra þessar stórkostlegu uppskriftir því nægur átti tíminn að vera. Elsku mamma, það verður svo erf- itt fyrir okkur Bent og fjölskyldur okkar að takast á við þennan mikla missi. En lífið heldur áfram og von- andi lærum við að lifa með sorginni. Við eigum bæði góða vini og ættingja sem hjálpa okkur að takast á við þetta erfiða verkefni og litlu ljós- geislarnir, börnin okkar, veita okkur mikinn styrk. Ég veit að þú hefur fengið góðar og höfðinglegar mót- tökur frá pabba, afa Gesti og Ömmu Guggu sem er nýlátin. Ég er svo þakklát þeim tíma sem við áttum saman síðastliðin ár. Margar ferðirn- ar fórum við saman og stendur upp úr New York ferðin þegar þú varðst 50 ára. Henni gleymi ég aldrei. Við fórum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í fyrra og nú síðast til Edinborgar SIGRÚN EDDA GESTSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.