Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 41
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 41 FRÉTTIR EIN stærsta gleðistund í lífi hvers foreldris er fæðing barns. Á því augnabliki virðist okkur oft sem við eigum fyrir höndum langan tíma og óteljandi tækifæri til að sýna barninu okkar ómælda umhyggju, veita því handleiðslu og miðla þeim gildum sem við viljum leggja áherslu á í upp- eldinu. Því miður vöknum við stundum upp við að tíminn hefur hlaupið frá okkur í iðu hversdagsleikans. Í nú- tímaþjóðfélagi með tilheyrandi hraða, breytingum, möguleikum og ómældu áreiti er hætta á að við miss- um sjónar á því hvað er mikilvægt og hvað ekki. Óteljandi aðilar keppast við að segja okkur hvað okkur á að finnast, hvernig við eigum að líta út, hvað við eigum að gera, hvernig við eigum að lifa. SAMAN-hópurinn er samstarfs- hópur um forvarnir sem stuðla að velferð barna. Í hópnum er fólk sem vinnur með og fyrir börn og ung- linga, jafnt frjáls félagasamtök sem og opinberir aðilar. Tengist sú vinna einkum forvörnum, uppeldi, mennt- un og meðferðar- og ráðgjafarúrræð- um. Meginmarkmiðið með starfi hópsins er að vinna saman að því að styðja og styrkja foreldra í uppeldis- hlutverkinu. Í sumar hefur hópurinn lagt áherslu á gildi samverustunda fjölskyldunnar. Rannsóknir hafa sýnt að samvera barna og foreldra dregur verulega úr líkum á því að börn leiðist út í neyslu vímuefna. Þetta er staðreynd sem við foreldrar ættum að hafa í huga þegar við tök- um ákvarðanir um hvernig við verj- um tíma okkar. Sumarið er vissulega tími tækifær- anna. Tækifæri til að njóta íslenskrar náttúru og menningar og alls þess sem hún hefur upp á að bjóða. Tæki- færi til að fara gönguferð í fjörunni, með nestiskörfu á Þingvöll, tína ber í Heiðmörk, fara í fjallgöngu, búa til mat saman. Tækifæri til að verja dýrmætum tíma með þeim sem eru okkur dýrmætust af öllu, börnunum okkar. Við berum ábyrgð á börnunum okkar í a.m.k. 18 ár. Það er sá tími sem við höfum til þess að undirbúa þau til að axla ábyrgð á eigin lífi, hamingju og velferð. Tími okkar er takmörkuð auðlind, verum okkur meðvitandi um hvernig við nýtum hann. BERGÞÓRA VALSDÓTTIR, framkvæmdastjóri SAMFOK og meðlimur SAMAN-hópsins, GUÐRÚN ARNA GYLFADÓTTIR, verkefnastjóri ÍTR og meðlimur SAMAN-hópsins. Börnin, tíminn og tækifærin Frá Bergþóru Valsdóttur og Guðrúnu Örnu Gylfadóttur: Morgunblaðið/Jim Smart SAMAN-hópurinn telur að þeim tíma, sem foreldrar eyða með börnum sínum, sé vel varið. LENGI hefur verið lenska að hafa horn í síðu Flugleiða og vissulega má gagnrýna félagið fyrir eitt og annað gegnum tíðina. Einnig hafa allir þörf fyrir aðhald en hófs þarf þó að gæta í hverjum leik. Raunar er það ótrúlegt ævintýri hvernig tekist hefur að halda uppi flugi héðan vítt um veröld í meira en hálfa öld. Slíkt er ekki sjálfgefið hjá örfámennri þjóð. Nú mun flogið reglulega til 15 borga vestanhafs og austan frá Keflavíkurflugvelli að sumarlagi, en til 12 borga að vetrar- lagi. Þegar héðan eru fimm flugferð- ir til Ameríku daglega er aðeins ein flugferð vestur frá Osló, Stokkhólmi og Helsinki eða þrjár samtals. Einn- ig munu mörg þéttbýl héruð og jafn- vel milljónaborgir í Evrópu og Am- eríku vera án beinna flugsamgangna yfir hafið. Flug er viðkvæm og sveiflukennd atvinnugrein og íslensk þjóð, langt frá öðrum löndum, væri í miklum vanda án Flugleiða. Þeir sem aðeins hugsa sér að fleyta rjómann ofan af ferðamennskunni gætu aldrei fyllt þeirra skarð. Með þessu er ekki ver- ið að spá að illa hljóti að fara, en allt getur þó gerst úr því að t.d. Pan American, Trans World Airlines og Swiss Air gáfust upp. Einnig hefur verið erfitt að spara til mögru áranna þar sem flugliðar af báðum kynjum hafa gætt þess vand- lega að hagnaður fyrirtækisins færi ekki úr böndunum þegar vel hefur árað. Hvernig sem á málið er litið er nauðsynlegt að hafa í huga hugsan- legar afleiðingar harðvítugs verð- stríðs. Þeir sem hafa atvinnu af þjóð- höfðingjaheimsóknum innan lands og utan eða þeir sem telja sig þurfa að auglýsa lítillæti sitt ættu að fara varlega í að gera eitthvað sem veikti stöðu Flugleiða. Þeirra yrði missir- inn mestur. VALDIMAR KRISTINSSON, Kirkjusandi 1, Reykjavík. Að Flugleiðum gengnum Frá Valdimar Kristinssyni: UNGUR maður mætti í fylgd móður sinnar með bleiku, sérmerktu tapp- ana sína, fjörutíu að tölu, í húsakynni Ölgerðarinnar Egils Skallagrímsson- ar ehf. að morgni 29. júlí og vænti þess að fá bolta að launum í skiptum fyrir tappana í samræmi við tilboð fyrirtækisins frá því í vor. Þótt sitt sýndist hverjum um málið höfðu afi og ömmur lagst á eitt við að hjálpa unga manninum við söfnunina og með samstilltu átaki urðu tapparnir að lokum fjörutíu. Eftirvæntingin var því töluverð þegar stóra stundin rann upp. En þá kom babb í bátinn. Litlu skiptir þótt fólkið væri sent í annað hús vegna málsins. Það sem mestu máli skiptir er að boltarnir voru búnir og þeir ekki væntanlegir aftur fyrr en eftir tvo mánuði. Um þetta er Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni ehf. fullkunnugt. Það leiddi símtal við markaðsstjóra henn- ar í ljós. Skylt er þó að taka fram að hann bauð m.a. ropvatn í sárabætur. Lítil börn eru hrekklaus og auð- ginnt. Það veit þetta fyrirtæki af fyrri reynslu. Enda eru bleiku tapparnir enn (síðdegis 29. júlí) til sölu og þá eins loforðin sem þeim fylgja. MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Hjarðarhaga 48, 107 Reykjavík. Happatappar og pepsíplat Frá Margréti Jónsdóttur: UM verslunarmannahelgina held- ur Flugmálafélag Íslands, hina ár- legu flughátíð að Múlakoti í Fljóts- hlíð. Þetta er 21. árið í röð sem Múlakostflughátíðin er haldin og hafa vinsældir hennar farið jafnt og þétt vaxandi, ekki síst á undan- förnum árum með aukinni sam- heldni þeirra sem hafa flugið að áhugamáli og atvinnu, segir í fréttatilkynningu. „Þetta er útihátíð grasrótarinn- ar í flugmálum Íslands og fram- kvæmd hennar er að öllu leyti unnin af sjálfboðaliðum frá aðild- arfélögum Flugmálafélagsins. Hún er opin öllu áhugafólki um flug enda leikur flugið aðalhlutverkið en sérstök áhersla er lögð á góðan félagsanda og fjölskyldubönd flug- áhugamanna. Í Múlakoti er afar góð aðstaða fyrir viðburð af þessu tagi, góð tjald- og tjaldvagnasvæði, fallegt umhverfi með miklu og fögru út- sýni. Auk þess er tilvalið að nota Múlakot sem bækistöð fyrir stutt- ar skemmti- skoðunarferðir um sögustaði og nátturuperlur á Suð- urlandsundirlendinu. Flughátíðin stendur yfir frá 1. ágúst - 4. ágúst, eða frá föstudags- eftirmiðdegi til mánudags, og verður boðið upp á flug og skemmtiatriði alla fjóra dagana. M.a. verður haldin síðari hluti Ís- landsmótsins í listflugi og almenn lendingakeppni. Sýnt verður fall- hlífastökk, flugdrekaflug og flug á fjarstýrðum módelum. Meðal heimatilbúinna skemmtiatriða verða lendingakeppni, kvöldvaka, grillveisla og varðeldur auk þess sem leikjadagskrá og hoppukastali verður í boði fyrir yngstu kynslóð- ina,“ segir í fréttatilkynningunni. Múlakot er í Fljótshlíð í Rang- árvallasýslu og þangað er er ekið veg nr. 261 frá Hvolsvelli. Fjölskylduhátíð Flugmála- félagsins í Múlakoti Ganga á skáldaslóðir Öll fimmtu- dagskvöld í júlímánuði hefur verið gengið um skáldaslóðir í Mosfellsdal undir leiðsögn Bjarka Bjarnasonar. Gangan hefur notiðmikilla vinsælda en hér er um að ræða þriggja klukkustunda létta göngu um slóðir Egils Skallagrímssonar og Halldórs Laxness í dalnum. Næstkomandi fimmtudagskvöld, 31. ágúst, verður síðasta gangan á þessu sumri. Safn- ast verður saman við Gljúfrastein kl.19.30, þátttökugjald er 500 krónur en frítt fyrir börn. Ýsubeinaútskurður Í dag verður sýndur listútskurður úr ýsubeinum á Minjasafni Austurlands, Egils- stöðum, milli kl. 13.00-17.00. Gestir geta reynt sig við útskurðinn, þátt- tökugjald 500 kr., efni innifalið. Fimmtudagskvöldganga á Þing- völlum Í kvöld verður síðasta fimmtudagskvöldganga þjóðgarðs- ins á Þingvöllum í sumar. Róbert H. Haraldsson dósent í heimspeki mun fjalla um tengsl gönguferða og heim- speki. Mörgum reynist erfitt að koma auga á þau tengsl, en í göngu- ferðinni mun Róbert huga að lýsingu áhugasamra göngugarpa á göngu- ferðum og athuga hvort þær komi að einhverju leyti heim og saman við lýsingar heimspekinga á iðkun heimspeki. Í öðrum hluta fyrirlestr- arins verður skoðað hvað nokkrir merkir heimspekingar sögunnar hafa að segja um mikilvægi göngu- ferða. Í þriðja hluta verður síðan gerð tilraun til að lýsa nánum tengslum heimspeki og gönguferða. Í þeim hluta verður einkum sótt í smiðju til Henrys David Thoreau og Friedrichs Nietzsche. Gönguferðin hefst við Flosagjá klukkan 20.00 og verður gengið í Skógarkot. Í DAG Ganga um Þrastarskóg Laugar- daginn 2. ágúst kl. 14-16 efnir Alviða fræðslusetur Landverndar, til göngu um Þrastaskóg sem nú skart- ar sínu fegursta. Dagbjört Óskars- dóttir leiðsögumaður mun leiða gönguna. Lagt verður upp frá hliðinu fyrir of- an veitingaskálann Þrastalund. Þrastaskógur er talinn til fegurstu skóga landsins og býr yfir mikilli fjölbreytni í gróðurfari og fuglalífi. Gangan er létt og á flestra færi. Boð- ið verður upp á kakó og kleinur í göngunni. Þátttökugjald er kr. 800 fyrir full- orðna, ókeypis fyir börn yngri en 12 ára, veitingar innifaldar. Allir vel- komnir. Skáknámskeið Hróksins Skák- námskeið Hróksins í Húsdýragarð- inum er á laugardögum kl: 14:00 og stendur yfir til 15:30 - Kennsla, mót, skákþrautir og fjöltefli. Allir þátt- takendur fá 5 miða í leiktækin. Í lok dagsins er dregið úr réttum þraut- um og þau heppnu verðlaunuð. Á NÆSTUNNI GRÍMSEYINGAR gerðu sér glaðan dag síðasta sunnudag, þegar nýr vegvísir var afhjúpaður á heim- skautsbaugnum í Grímsey. Það var Flugfélag Íslands sem stóð fyrir endurnýjun vegvísisins, ásamt Grímseyingum sem tóku þátt í uppsetningu hans. „Þetta er heimskautsbaugurinn okkar,“ segir Óttar Jóhannsson, oddviti Grímseyinga, um nýja veg- vísinn sem var hannaður af Hall- grími Stefáni Ingólfssyni, innan- hússarkitekt á Akureyri. „Þú gengur yfir bauginn og það fer ekkert á milli mála núna hvar þú ert staddur.“ Það voru þeir Óttar Jóhannsson, og Halldór Blöndal, forseti Alþing- is, sem klipptu á borðann og afhjúp- uðu nýjan vegvísi. Nýr vegvísir afhjúpaður í Grímsey Ljósmynd/Magnús Þór Bjarnason KATTAVINAFÉLAG Íslands/ Kattholt hefur opnað heimasíðu www.kattholt.is. Kattavinafélag Íslands er félag sem hefur að markmiði að stuðla á allan hátt að velferð katta. Katta- vinafélagið rekur Kattholt sem er líknarstöð fyrir ketti á Íslandi. Hlutverk heimasíðunnar er að aðstoða alla þá sem týnt hafa kett- inum sínum og aðstoða þá sem hafa hug á að taka að sér kött. Á heimasíðunni eru myndir af öllum köttum í Kattholti. Bæði köttum sem eru í óskilum og kött- um sem vantar heimili. Einnig er hægt að tilkynna um týnda ketti á síðunni og hafa margir notað sér það. Í Kattholt koma um það bil 600 kettir árlega. Margir af köttunum sem koma í athvarfið eru slasaðir og veikir. Kattavinafélagið leggur mikla vinnu í að finna heimili fyrir þessi dýr og líkna þeim. Markmiðið með heimasíðu Katt- holts er einnig að veita katta- eigendurm almenna fræðslu um kattahald. Heimasíðan hefur verið mikið heimsótt frá því hún var opnuð þann 16. júlí. Margir hafa fundið týndan heimiliskött með því að skoða myndir af köttum á síðunni. Kattholt opnar heimasíðu ÞANN 9. ágúst standa Bjartsýnis- félagið Verðandi og sunddeild Völsungs fyrir þríþrautarkeppni til styrktar nýrri sundlaug. Í tilkynn- ingu frá Verðandi segir að félagið hafi nú verið starfandi í eitt og hálft ár. Félagið er trúlega þekkt- ast fyrir mánaðarlegar „Garpa- viðurkenningar,“ en auk þess hef- ur það staðið fyrir ýmiss konar íþrótta- og menningarviðburðum. „Stofnendur félagsins eru hópur fólks sem finnst nóg komið af nei- kvæðri umræðu og umfjöllun um landsbyggðina,“ segir í tilkynning- unni. Þríþrautin var haldin í fyrsta sinn á Húsavík í fyrrasumar. Aðal- styrktaraðili þá og nú er Norður- mjólk að auki gáfu fjölmörg fyrir- tæki myndarleg verðlaun. Í fyrra fóru 32 af 37 þátttakendum þraut- arinnar heim með verðlaun. Keppendur geta skráð sig til leiks í heila þraut eða hálfa, eða í einstakar greinar. Heil þríþraut er 1.000 m sund, 40 km hjólreiðar og 10 km hlaup. Hálf þríþraut er 500 m sund, 20 km hjólreiðar og 5 km hlaup. Einstakar greinar þrautar- innar eru þá 1.000 eða 500 m sund, 40 eða 20 km hjólreiðar og 10 eða 5 km hlaup/ganga. Skráning keppenda fer fram í Húsavíkurstofu en einnig er hægt að skrá sig í síma 464-4300 og info- @husavik.is. Þar má nálgast kort af keppnisleiðum og fá nánari upp- lýsingar. Þátttökugjald er 1.500 krónur fyrir einstaklinga, 2.000 krónur fyrir fjölskyldur og 4.500 krónur fyrir lið. „Veitt verða vegleg verðlaun fyrir bestu brautartímana í karla- og kvennaflokki í heilli og hálfri þríþraut. Auk þess er fjöldi út- dráttarverðlauna í boði, en nöfn þátttakenda fara í pott sem dregið verður úr við verðlaunaafhend- inguna sem fram fer á hafnarstétt- inni klukkan 17.00. Rétt er að geta þess að Mærudagar, mikil fjöl- skylduhátíð, eru á Húsavík þessa helgi og því nóg um að vera í bæn- um,“ segir í tilkynningu frá Verð- andi. Verðandi og Völsungur halda Norðurmjólkur- þríþraut
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.