Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 ára. YFIR 19.000 GESTIR! Tortímandinn er kominn aftur. Fyrsta flokks spennumynd.  Kvikmyndir.com SV. MBL HK. DV FRUMSÝNING Framhaldið af hinni frábæru Legally Blond sem sló í gegn! Resee Witherspoon er mætt aftur sem enn meiri ljóska í enn meira fjöri. FM 957 FORSÝNING KL. 6. FORSÝNING HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. YFIR 29.000 GESTIR! kl. 6, 8.30 og 11. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára. YFIR 19.000 GESTIR! Stríðið er hafið! Tortímandinn er kominn aftur. Fyrsta flokks spennumynd.  Kvikmyndir.com HK. DV SV. MBL FRUMSÝNING Framhaldið af hinni frábæru Legally Blond sem sló í gegn! Resee Witherspoon er mætt aftur sem enn meiri ljóska í enn meira fjöri. Frá Leikstjóra Training Day kemur mögnuð mynd með harðjaxlinum Bruce Willis og hinni glæsilegu Monicu Bellucci. Missið ekki af þessari! FRUMSÝNING HLJÓMSVEITIN múm hefur getið sér gott orð fyrir seiðandi tónlist sína bæði hér á landi sem erlendis og ber hæst plöturnar Yesterday was dramatic – Today is ok og Loksins erum við engin. Hljómsveitin hefur verið að und- anförnu að semja á Galtarvita og við æfingar að undirbúa sig fyrir tónleikaferðalag um heiminn. Kristín Anna Valtýsdóttir, Örvar Þóreyjarson Smárason og Gunnar Örn Tynes hafa notið aðstoðar trompetleikarans Eiríks Orra Ólafssonar, Ólafar Helgu Arnalds, sem spilar á víólu, gítar og syngur, og finnska trommuleikarans Samuli Kosminen að undanförnu og verður svo á tónleikaferðalaginu. Spænska leikkonan Victoria Abril er greinilega á meðal aðdá- enda sveitarinnar því hún leit á æf- ingu með múm í Elliðaárdalnum í gær. Abril, sem er Íslendingum að góðu kunn fyrir leik sinn í 101 Reykjavík, er stödd hér á landi við þáttagerð með frönsku tökuliði, sem er að gera sjónvarpsþátt um Reykjavík. Þáttaröðin er með því sniði að frægir leikarar velja sínar uppáhaldsborgir og ferðast þangað til að kynna borgina fyrir sjón- varpsáhorfendum. „Hún kíkti „óvart“ í heimsókn til okkar,“ segir Eiríkur trompetleik- ari, sem verður fyrir svörum. Abril spjallaði við hljómsveitar- meðlimi og múm tók lagið ofan í tómri sundlaug, „hálf-órafmagnað“ segir Eiríkur og las Abril upp texta um Ísland á meðan. „Þetta var bara fyndið og gaman,“ segir hann og bætir við að hún hafi verið „ógnarhress“. Með gúmmíbát í kaupstað Hljómsveitin er búin að dvelja í Galtarvita í á milli fimm og sex vik- ur fyrr í sumar að semja nýja tón- list. Eiríkur, sem er í tónlistarnámi í Amsterdam, var þar sjálfur í eina viku og segir það sérstaka upp- lifun. „Þetta er mikil einangrun. Maður komst ekkert burt nema það væri gott veður í sjóinn, sem var reyndar yfirleitt,“ segir Eiríkur en nauðsynlegt er að fara með gúmmíbát til að skreppa í kaupstað og eru nauðsynjavörur keyptar á Suðureyri. „Það var líka klukku- tíma gangur fyrir fjall til að komast í gemsasamband, og þá aðra leið- ina,“ segir hann þannig að það er ekki margt sem truflar á svona stað. Algjört tímaleysi „Þetta er rosalega fínt. Sér- staklega eins og fyrr í sumar, þegar það var bjart allan sólarhringinn, þá er tímaleysið algjört. Það var enginn með klukku og maður þurfti að kveikja á gemsanum sínum til að athuga hvað klukkan væri. Þetta er mjög sérstakt,“ segir hann og segir sexmenningana vera skemmtilegan hóp. Eiríkur hefur áður spilað með múm á tónleikum og inn á báðar breiðskífur þeirra. „Ég kynntist þeim í Náttúruóperunni í MH,“ seg- ir hann en það er leikrit, sem sett var upp í skólanum eftir Andra Snæ Magnason við tónlist múm árið 1999. Bandaríkin, Ástralía, Japan múm er á leið í heimsreisu í byrj- un ágúst, sem stendur til loka sept- ember eða byrjun október og leiðir sveitina til Portúgals, Spánar, Bandaríkjanna (þar af tvennir tón- leikar í Bowery Ballroom í New York-borg), Ástralíu og Japans. Ferðalagið hefst þó á Íslandi með tónleikum í bíósalnum í Herðubreið á Seyðisfirði kl. 23 á morgun, föstu- dagskvöld. „Við byrjum á Seyðisfirði,“ segir Eiríkur en múm-liðar eru ánægðir með upphafið. Þvínæst verður haldið út í heim á miðvikudaginn næsta en fyrstu tón- leikarnir þar verða á tónlistarhátíð í Zambujeira í Portúgal 7. ágúst. Hljómsveitin múm á leið í heimsreisu sem hefst á Seyðisfirði Abril kíkti í heimsókn Morgunblaðið/Jim Smart Hljómsveitin múm: Ólöf Helga, Örvar, Gunnar Örn, Eiríkur, Kristín og Samuli á sundlaugarbakkanum. Morgunblaðið/Jim Smart Leikkonan Victoria Abril fylgdist með en hún er hrifin af Íslandi. Múm spilar í Herðubreið á Seyðisfirði kl. 23 á morgun, föstudagskvöld. www.noisedfisk.com/mumweb/ ingarun@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart Franska tökuliðið að störfum á æfingu hjá múm í Elliðaárdal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.