Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 29
til að draga skýringar borgarstjóra í efa. Steingrímur að þar leggi menn hins vegar áherslu á mikilvægi þess að stangist á við þær skýringar. inn trúi eð- hjá- em gar kki vík- ólfi. u á ann hefði ekki verið ábyrgðarmaður í þessu máli og stundum óafvit- andi um hvað væri að gerast. Þá ætti hann sér þær málsbætur að hafa átt þátt í því að hjálpa Sam- keppnisstofnun við rannsókn málsins. Það hefði hann ekki gert af pólitískri illri nauðsyn, enda ekki verið borgarstjóri þá. „Mér finnst það vera mjög miklar málsbætur,“ sagði þessi borgarfulltrúi og bætti við að ef þær hefðu ekki verið til staðar hefði hann átt miklu erf- iðara með að gera upp hug sinn í málinu. „Auðvitað veltir maður því fyrir sér hvort maður sé sjálfur reiðubúinn að verja hann og það er þá þetta sem maður horfir til ... Það má líka segja að hann sé kannski að fegra sinn hlut með þessum skýringum. Hans þáttur í málinu virðist hins vegar ekki nærri jafnslæmur og hann leit út fyrir að vera um tíma.“ Óróleiki innan listans Menn viðurkenna að nokkur „óróleiki“ hafi verið innan Reykjavíkurlistans vegna málsins upp á síð- kastið en telja það þó ekki óeðlilegt. Það sé nauð- synlegt að sá sem gegni embætti borgarstjóra sé undir smásjánni. Sú kreppa sem nú hafi komið upp sé jafnframt annars eðlis en sú fyrir síðustu ára- mót er Reykjavíkurlistasamstarfið virtist vera í hættu í kjölfar þeirrar ákvörðunar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur að gefa kost á sér í þing- framboð fyrir Samfylkinguna. Nú hafi menn ekki litið svo á að málið gæti ráðið úrslitum um framtíð listans. Einn viðmælandi sagði þetta frekar hafa verið „sálarstríð“ borgarfulltrúa og afstaða manna ekki ráðist af flokkslínum. Þá segja menn að erfitt hafi verið að líta svo á að þetta hafi verið innra vandamál Reykjavíkurlist- ans. „Það má segja að krísan um áramót hafi verið sjálfsköpuð. Nú er þetta hins vegar mál sem við berum enga ábyrgð á og í raun óþolandi að það verði til að beina kastljósinu að Reykjavíkurlist- anum og Reykjavíkurborg. Það er mjög óþægilegt. Á meðan er ekki verið að tala við raunverulega ger- endur og þá sem bera ábyrgð á málinu,“ sagði borgarfulltrúi meirihlutans. LENDUM TVANGI með fyrirvara MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 29 M ÉR brá ónotalega þegar það fréttist nýlega að til stæði að jafna Austur- bæjarbíó við jörðu og reisa í staðinn íbúða- blokk „til þess að þétta byggðina“ eins og það var kallað. Í tilefni frásagna og viðtala í fjölmiðlum um þessar hug- myndir tel ég rétt að rifja upp nokkur atriði úr sögu hússins, ef verða mætti til að draga úr hættu á flausturslegri af- greiðslu málsins. Það var sumarið 1945 sem félag var stofnað um byggingu Austurbæjar- bíós. Stofnendur voru Ólaf- ur Þorgrímsson hæstarétt- arlögmaður, bróðir hans Kristján Þorgrímsson, Ragnar Jónsson í Smára, og eigendur Nýja bíós, þeir Bjarni Jónsson og Guðmundur Jensson. Ólaf- ur var stjórnarformaður félagsins frá upphafi og Kristján fyrsti fram- kvæmdastjórinn. Ólafur Þorgrímsson var ásamt Ragnari í Smára einn af forystumönnum Tónlistarfélags- ins í Reykjavík sem stofnað var 1932 og báðir sátu þar í stjórn meðan þeim entist aldur. Um miðjan fimmta áratuginn, eft- ir lok heimsstyrjaldarinnar, hljóp mikill vöxtur í starfsemi þess félags með um- fangsmiklu tónleikahaldi sem á þessum árum fór fram í alveg óboðlegu húsnæði, svonefndu Tripoli-leikhúsi vestur á Mel- um, sem var braggabygging frá stríðs- árunum. Það er enginn vafi á því í mín- um huga, að það sem rak á eftir þeim Ólafi og Ragnari að reisa nýtt samkomu- hús var fyrst og fremst að leysa húsnæð- isvanda Tónlistarfélagsins fyrir tónleika sína, þótt hvorugur hafi forsmáð ábata- vonina af rekstri myndarlegs kvik- myndahúss í samvinnu við þá tvo menn sem mesta reynslu höfðu hér af slíkri starfsemi. Meðal allra fyrstu viðburða sem efnt var til í þessu nýja húsi, jafnvel þá ekki alveg fullgerðu, var tónlistarhátíð, hin fyrsta á Íslandi, Beethovenhátíð tengd 120. ártíð tónskáldsins, haldin í júní 1947. Þangað kom hópur víðfrægra er- lendra listamanna með Adolf Busch og strengjakvartett hans í broddi fylkingar. Meðal margra annarra viðfangsefna voru þarna fluttir allir strengjakvartett- ar Beethovens. Vitanlega var þetta stór- viðburður í íslensku menningarlífi. Hitt var þó ekki minna um vert að í fram- haldi af þessu varð Reykjavík viðkomu- staður fjölmargra víðfrægra snillinga sem hér komu fram á vegum Tónlistar- félagsins. Að því leyti varð tónlistarlíf í Reykjavík á næstu áraugum með al- þjóðlegri stórborgarbrag en nokkru sinni fyrr eða síðar. Af því hvernig tókst að laða hingað svo margt afburðafólk er skemmtileg saga sem ekki er tóm til að rekja hér. Tónleikar Tónlistarfélagsins urðu einn gildasti þátturinn í menningarlífi höf- uðborgarinnar næstu áratugina. Þeir voru haldnir í Austurbæjarbíói allan þann tíma sem þeir stóðu með mestum blóma, lengi 10 árlega og allir tvíteknir vegna fjölda áskrifenda. Það svarar til þess að áheyrendur hafi að jafnaði verið a.m.k. um 1.500 manns – ekki slök tón- leikasókn í bæ með 50–60 þús. íbúa um miðja öldina. Þar var og haldinn fjöldi annarra tónleika. Í salnum munu hafa verið 787 sæti. Hljómburður var með því besta sem hér hefur þekkst, og það var eftirsjá í því þegar lokað var fyrir tón- leikahald í Austurbæjarbíói eftir eig- endaskipti 1987. Það yrði langur listi ef taldir yrðu allir þeir ágætu erlendu listamenn sem um stund breyttu Austurbæjarbíói í sann- nefnt musteri tónlistar á Íslandi. Þó get ég ekki stillt mig um að nefna örfá nöfn af handahófi: Söngvarana Dietrich Fischer-Dieskau og Gérard Souzay, söngkonurnar Blanche Thebom og Betty Allen, fiðluleikarana Isaac Stern, Christian Ferrari og Ruggiero Ricci, píanóleikarana Rudolf Serkin, Shura Cherkassky og Edwin Fischer, gítar- leikarann Andrés Segovia, Prag strengjakvartettinn, Juilliard-kvart- ettinn, Philadelphia-blásarakvintettinn og loks Robert Shaw-kórinn frá New York. Allt voru þetta heimskunn nöfn á sínum tíma og eru mörg enn. Að ógleymdum Erling Blöndal-Bengtsson, en með þroskaferli hans fylgdumst við í þessu húsi frá því að hann kom hingað fyrst efnilegur unglingur og þar til hann var orðinn heimsfrægur snillingur. Af innlendum mönnum nefni ég aðeins Árna Kristjánsson píanó- leikara sem átti átti ríkan þátt í þessu tónleikahaldi, ekki síst í samleik með er- lendum stórstjörnum sem undruðust hvernig slíkur listamaður gat leynst hér í fásinninu. Eru þá fáir einir taldir, og ótaldir þeir mörgu inn- lendu listamenn sem stigu fyrstu skref sín á listar- brautinni eða náðu öðrum merkum áföngum á svið- inu í Austurbæjarbíói. Hér gafst þeim færi á að bera sig saman við margt hið besta sem í boði var í heim- inum, og ég hygg það sanni nær að ein- mitt hér hafi verið lagður grunnur að þeim gæðastaðli sem einkennt hefur íslenskt tónlistarlíf á síðustu áratugum og hefur vakið athygli utan lands sem innan. Þess má geta að Sinfóníuhljómsveitin hélt fyrstu tónleika sína í Austurbæjar- bíói þótt síðan flyttist tónleikahald henn- ar að mestu í Þjóðleikhúsið og síðar Há- skólabíó. Þeir tónleikar hennar sem mestra vinsælda nutu voru þó haldnir í Austurbæjarbíói. Það voru óperur flutt- ar í heilu lagi en án sviðsmyndar og bún- inga. Þannig var „Il trovatore“ eftir Verdi flutt 7 sinnum haustið 1956, og 1958 var „Carmen“ eftir Bizet flutt ekki sjaldnar en 11 sinnum. Það aðsóknarmet hljómsveitarinnar stendur enn óhaggað. Þá voru hér enn haldnar afarvinsælar samkomur sem voru nýlunda á þessum tíma en myndu nú kallast „popp- tónleikar“ og voru sumar endurteknar hvað eftir annað. Ár eftir ár héldu félagar úr Leikfélagi Reykjavíkur miðnætursýningar á ýmsu skemmtiefni í Austurbæjarbíói til ágóða fyrir húsbyggingarsjóð félagsins. Einnig þessar sýningar voru afarvinsælar þótt ekki gæti sýningatíminn talist hentugur, hvorki fyrir áhorfendur né leikendur sem unnu verk sitt í sjálfboðavinnu, margir í öðrum störfum utan leikhúss- ins. Hér hefur verið rakinn stuttlega merkur þáttur Austurbæjarbíós í ís- lenskri menningarsögu um og eftir mið- bik 20. aldar. Sá þáttur má ekki gleym- ast þegar ákvörðun er tekin um skipulag svæðisins, og sé hann rétt metinn hlýtur niðurstaðan að verða sú að Austurbæjar- bíó fái að standa. Hér má ekki endur- taka það menningarsögulega slys sem varð þegar Fjalakötturinn var rifinn um árið, gegn seint fram komnum mótmæl- um margra. Þó er hér ólíku saman að jafna. Fjala- kötturinn var gamalt hrörlegt timbur- hús, komið að falli, en Austurbæjarbíó er rammger og stæðileg bygging úr stein- steypu, myndarlegt hús og virðulegt (að slepptri málningunni sem klínt hefur verið á það á síðari árum), og fer vel á sínum stað. Spurt er að sjálfsögðu: Til hvers á að nota húsið? Svar við því er ekki á reiðum höndum á þessari stundu. Þar kemur margt til greina, og nú þegar eru á sveimi athyglisverðar hugmyndir sem bæði hafa hagnýtt gildi og falla vel að þeim minningum sem við húsið eru tengdar. En það sem nú ríður á er að koma í veg fyrir að af gáleysi og ef til vill vegna ónógrar þekkingar á sögu hússins verði heimilað að brjóta það niður og jafna við jörðu. Það má ekki verða. Austurbæjarbíó „En það sem nú ríður á er að koma í veg fyrir að af gáleysi og ef til vill vegna ónógrar þekkingar á sögu hússins verði heimilað að brjóta það niður og jafna við jörðu.“ Höfundur er tónskáld. Eftir Jón Þórarinsson VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, segir að sér finnist skýringar Þórólfs Árnasonar borgarstjóra í viðtali í Morgunblaðinu í gær ekki trúverðugar. „Ef eitthvað er þá finnst mér viðtalið sýna að Þórólfur var virkur þátttakandi í meintu samráði olíufélaganna. Hann seg- ist hafa haft áhyggjur af samráðinu og jafnvel velt því fyrir sér að skýra frá því. Einnig segist hann aldrei hafa komið ná- lægt neinum tölum og það þrátt fyrir að hann hafi undirritað tilboð til Reykjavík- urborgar þar sem tölur voru ítarlega út- færðar.“ Vilhjálmur vísar þarna til orða Þórólfs í viðtalinu um að hann hafi fengið tölur um verð frá Geir Magnússyni, þáverandi forstjóra Olíufélagsins, vegna útboðs Reykjavíkurborgar. Vilhjálmur segir ljóst að R-listinn hafi ákveðið að „sætta sig við þessar skýringar a.m.k. í bili“, eins og hann orðar það. Hann bendir á að R-listinn beri ábyrgð á ráðningu Þór- ólfs og að það verði fróðlegt að fylgjast með framvindu málsins. Í viðtalinu í Morgunblaðinu í gær segir Þórólfur að sér finnist sem Vilhjálmur hafi verið fljótur að fella dóma yfir sér í fjölmiðlum. Vilhjálmur segist hins vegar ekki hafa ver- ið að fella dóma. Það sé annarra að gera það. „Ég var ein- faldlega að segja að ég telji að borgarstjóri hafi ekki sagt satt og rétt frá sinni aðkomu að þessu máli. Mér finnst mjög mikilvægt að stjórnmálamenn og aðrir, sem tjá sig um hin og þessi mál, segi rétt frá.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Ekki trúverðugur INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og fulltrúi óháðra á Reykjavíkurlistanum, segir að Þór- ólfur Árnason borgarstjóri hafi af einlægni gert grein fyrir aðkomu sinni að málefnum olíufélaganna og í því ljósi treysti hún honum fyllilega. Í við- tali við Morgunblaðið í gær kvaðst Þórólfur aldrei hafa borið ábyrgð á verðákvörðunum eða samráði í starfi sínu hjá Olíufélaginu. „Við fórum yfir þessi mál með Þór- ólfi í gær áður en viðtalið birtist þar sem hann fór yfir þessar skýringar,“ segir hún og vísar til fundar Þórólfs og borgarfulltrúa R-listans í fyrrakvöld. Hún segir að Þórólfur hafi einnig gefið mjög afdráttarlaus svör í þessum efnum í borgarráði fyrr um daginn. „Eins liggur fyrir yfirlýsing Geirs Magnússonar [fyrrverandi forstjóra Olíufélagsins] um að Þórólfur hafi ekki ráðið verðlagningu Olíufélagsins og ekki borið ábyrgð á verði til stórnotenda. Í ljósi allra þessara upplýsinga finnst mér full ástæða til að standa við bakið á Þórólfi á meðan hann er að fara í gegnum þessa orrahríð.“ Þegar Ingibjörg Sólrún er spurð að því hvort hún treysti Þórólfi áfram segir hún: „Ástæðan fyrir því að við fengum Þórólf til starfa var að við treystum honum. Við þekkjum hann af góðu einu. Hann hefur gert heið- arlega og af einlægni grein fyrir aðkomu sinni að þess- um málum og í ljósi þess treysti ég honum.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Stendur við bakið á Þórólfi ekki aðili tta mál er n það sem Árnasyni.“ maður gir eins og verið farið du máli á istans og . Spurður hann telji gar Þór- lnægjandi Stefán að nægi sér. í heild er að þannig að frum- skýrslu ppnis- nar hafa öfum ekki um því að ð yfir öll ar hliðar á ann hefur við höfum taka þær að. Ég vil gja okkur ð mál Þór- nerti ekki m standi að Þetta mál a Þórólfs r hann og drei talað m að stýra einurð. að „hvað nar líði þá hagsmuna nt samráð ir þó á að „kunni að annsókn á anna verði nni virðist olíufélögin “ útskýrir vert verði að fylgjast með því hvað lögreglan muni gera í málinu. „Við höfum reyndar verið að fylgjast með því undanfarna daga að eina grunlausa fólkið í landinu er ríkislögreglu- stjóraembættið.“ Hann segist að síðustu vera afar reiður yfir því hvernig olíufélögin hafi komið fram við borgina og önnur fyrirtæki í landinu. Aðför að borgarstjóra Alfreð Þorsteinsson var erlendis þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Hann var því ekki á fundi borgarfulltrúanna í fyrrakvöld, eins og fyrr sagði. Honum er þó kunnugt um efni greinargerðar borgarstjóra og segir að í henni hafi Þórólfur greint frá að- komu sinni að úboði olíufélag- anna vegna Reykjavíkur- borgar. Þar hafi komið fram að Þórólfur hafi ekki komið ná- lægt ákvörðun um samráð og verð olíufélaganna. Þá skýringu hafi Geir Magnússon, fyrrverandi for- stjóri Olíufélagsins hf., staðfest í yf- irlýsingu í Morgunblaðinu í gær. „Þessar skýringar eru fullnægjandi í mínum huga.“ Alfreð telur að hér sé fyrst og fremst um að ræða pólitíska aðför að borgarstjóra, af hálfu minnihlut- ans í borgarstjórn, í þeim tilgangi að klekkja á meirihlutanum. „Ég held að almenningur verði að líta á málið í því ljósi. Þórólfur var einungis millistjórnandi hjá Olíufélaginu á sínum tíma. Í því ljósi er athyglis- vert að fylgjast með því hve aðrar persónur hjá olíufélögunum hafa verið lítið spurðar um ábyrgð þeirra í þessu máli þrátt fyrir að hún sé mun meiri en Þórólfs.“ Alfreð legg- ur að lokum áherslu á að Reykjavík- urlistinn sem slíkur komi ekki að „þessu olíumáli“. rgarstjórans í Reykjavík ngar nlegar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.