Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR 44 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Nóg var um vera og það var líffyrir utan fótboltann – sund- laugarpartý, diskótek, grillpartý í fjölskyldu- og hús- dýragarðinum, loka- hóf og stórdansleik- ur á Broadway, auk þess keila og bíóferð- ir voru á sérstöku verði. Ekki var síst spennandi að sýna sig og sjá aðra. Nokkuð var lagt upp úr útliti, sérstaklega hjá þeim eldri, og marg- ir skörtuðu glæsilegri greiðslu, flétt- um, ýmsum háralitum eða hverju sem er. Sem von er voru mikil ærsl og mikið fjör en þegar göslarar dags- ins stigu inn til kvöldverðar í veit- ingahúsið Broadway var engu líkara en sumir væru komnir í afar virðu- legt enskt teboð og kunnu sannar- lega að haga sér. Hátíðin var haldin í annað sinn og voru þátttakendur nú um 800, á aldr- inum 13 til 16 ára, í 63 liðum en voru í fyrra helmingi færri. Fimm erlend lið mættu til leiks, frá Færeyjum, Englandi og Banda- ríkjunum. Fjör og fótbolti FJÖR og fótbolti voru kjörorðin á alþjóðlegu VISA REY CUP- knattspyrnuhátíðinni, sem fram fór um víðan völl í Laugar- dalnum um síðustu helgi. Það hefði hiklaust verið hægt að bæta við fjölbreytni, frískleiki og fínasti fótbolti – hátíðin hefði fyllilega staðið undir því. Þá er ekki bara verið að spá í úrslit einstakra leikja heldur allt sem í boði var og þegar við bættist frábært veður og skipulagning, sniðin að þörfum keppenda, varð úr mikil hátíð. Stefán Stefánsson skrifar Hvöt frá Blönduósi vakti athygli fyrir samsett lið pilta og stúlkna. Það leit út fyrir að ekki tækist að senda flokk svo að smalað var saman í lið, allt frá piltum í þriðja flokki og á yngra ári í fjórða. Að sögn piltanna skreytti liðið sig með stúlkum en þær stóðu fyrir sínu þegar á völlinn var komið. Stúlkurnar úr Fylki og Keflavík áttust við í hörkuleik þar sem Árbæingar, í efri röð, höfðu að lokum sigur. Frændur okkar Færeyingar mættu í fyrsta sinn á Reycup. Frá Vágar kom strákalið en frá Runavik komu 15 eldhressar stúlk- ur frá íþróttafélaginu NSI. Íbúar Runavik eru um 2.500 og er bærinn þriðji stærsti á eyjunum. Þær fengu upplýsingar um mótið frá markverðinum Jens Martin Knudsen, sem spilaði nokkur ár með Leiftri, en stjórnar nú unglingastarfi hjá NIS. Geislarnir eru komnir í bæinn. Í fyrra vakti athygli þegar piltar úr Austur-Húnavatnssýslu ákváðu á síðustu stundu að vera með og mættu 14 til leiks en þeir eru 19 núna og til í allt. Þeir æfa einu sinni í viku og byrjuðu í júní en þjálfarar þeirra segja þá hafa náð ágætum framförum. Hressar stúlkur úr 4. flokki Þróttar komu sér vel fyrir á efstu svölum. Með þeim á myndinni er Jón Þór sem þjónaði til borðs. Grillhátíð var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Allir tóku hraustlega til matar síns – Hjalti, Árni, Júlíus og Sigrún. Að hætti ungra drengja þurfti að kanna hvað flekinn þolir mikið áður en fer að flæða yfir hann. Andri Már, Ásmundur, Eyjólfur, Ingólfur Helgi og Arnar komust að því. Morgunblaðið/Stefán Stefánsson Íris Eysteinsdóttir knattspyrnukona tók sig vel út við grillið. Pétur Örn Pétursson úr 4. flokki UMSB var nokkuð lú- inn eftir 1:1 jafntefli við Val. „Við áttum að vinna.“ Stefán, 5 ára, og Gísli, sem er árinu eldri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.