Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 31.07.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 45 HELENA Ólafsdóttir, þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur til- kynnt landsliðið sem mætir Rússum í Evrópuleik í Moskvu hinn 9. ágúst. Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki, er komin í liðið á nýjan leik, sem og sam- herji hennar Erna B. Sigurðardóttir. Landsliðshópurinn er annars þannig skipaður að markverðir eru Þóra Björg Helgadóttir, KR, og María B. Ágústsdóttir, Stjörnunni. Aðrir leikmenn eru Ásthildur Helgadóttir, KR, Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki, Olga Færseth, ÍBV, Erla Hendriksdóttir, FV Kaupmannahöfn, Edda Garðarsdóttir, KR, Íris Sæmundsdóttir, ÍBV, Laufey Ólafsdóttir, Val, Hrefna H. Jóhannesdóttir, KR, Dóra Stefánsdóttir, Val, Íris Andrésdóttir, Val, Málfríður Sigurðardóttir, Val, Björg Á. Þórðar- dóttir, Breiðabliki, Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV og Erna B. Sigurðar- dóttir, Breiðabliki. Margrét komin í landsliðið á ný EYJÓLFUR Sverrisson, fyrrverandi landsliðs- fyrirliði í knattspyrnu, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í landslið Íslands sem mætir Færey- ingum og Þjóðverjum í undankeppni Evrópu- mótsins í knattspyrnu í haust. Hann tilkynnti Ás- geiri Sigurvinssyni og Loga Ólafssyni, landsliðs- þjálfurum Íslands, þetta á fundi í gær. Logi Ólafsson sagði í samtali við Morgunblaðið að hann og Ásgeir hefðu vonast eftir því að Eyj- ólfur myndi gefa kost á sér í landsliðið en þeir virtu ákvörðun hans. „Vissulega héldum við Ás- geir í vonina um að Eyjólfur myndi gefa kost á sér í landsleikina gegn Færeyjum og Þýskalandi. Eyj- ólfur hefur hinsvegar ákeðið að gera það ekki og við virðum ákvörðun hans og höfum skilning á því hvers vegna hann tók hana. Ég held að ein af ástæðunum fyrir því að Eyjólfur gefi ekki kost á sér er að hann lék ekki mikið á síðasta tímabili og hann hefur verið að glíma við töluverð meiðsli. Hann er ekki í þeirri leikæfingu sem hann hefði viljað vera í og það hefur áhrif á ákvörðun hans. Eyjólfur hefur skilað frábæru hlutverki fyrir ís- lenska landsliðið og hann á mikið lof skilið fyrir frammistöðu sína í gegnum árin. Það kemur maður í manns stað og þó að Eyjólf- ur Sverrisson og Guðni Bergsson hafi ákveðið að gefa ekki kost á sér eru aðrir góðir íslenskir knattspyrnumenn sem eiga að geta skilað góðu varnarhlutverki fyrir íslenska landsliðið,“ sagði Logi Ólafsson í samtali við Morgunblaðið. Eyjólfur Sverrisson lék 66 A-landsleiki fyrir Ís- land á árunum 1990–2001 og skoraði í þeim 10 mörk. Eyjólfur ekki með landsliðinu Morgunblaðið/Steinbjörn Logason Eyjólfur Sverrisson og Michael Preetz veifa til stuðningsmanna Herthu á Ólympíu- leikvanginum í Berlín sl. sunnudag, þegar þeir léku kveðjuleik sinn með liðinu gegn Besiktas. Eyjólfur skoraði eitt af mörkum Herthu – eftir sendingu frá Preetz, 4:1.  JÓN B. Hermannsson, miðjumað- ur úr knattspyrnuliði Fylkis, hefur verið lánaður til 1. deildarliðs Víkings út tímabilið. Jón hefur spilað fimm leiki með Árbæjarliðinu í úrvalsdeild- inni í sumar, tvo þeirra í byrjunarliði.  NJARÐVÍKINGAR hafa fengið Jó- hann Helga Aðalgeirsson lánaðan frá Grindavík út tímabilið en hann lék með Sindra í 2. deild framan af sumrinu.  PÉTUR Marteinsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, lék síðustu 35 mínúturnar með Stoke City sem gerði jafntefli, 1:1, gegn Notts County í æfingaleik í fyrrakvöld. Pét- ur fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína í leiknum eins og raunar aðrir varamenn liðsins.  FANNEY Björk Tryggvadóttir úr ÍR hafnaði í 10. sæti í úrslitakeppni stangarstökks stúlkna á Ólympíuhá- tíð æskunnar í París í gær. Hún stökk 3,30 metra en í undankeppninni fór Fanney yfir 3,50 metra.  JÓNAS Hlynur Hallgrímsson, Ís- landsmeistari í tugþraut, missir af Norðurlandamóti unglinga í fjöl- þrautum sem fram fer á Laugardals- vellinum um helgina, vegna meiðsla.  SEX Íslendingar eru í hópi 34 keppenda á mótinu. Kristín Birna Ólafsdóttir, Þóra Guðfinnsdóttir og Þóra Kristín Pálsdóttir úr ÍR, Gauti Ásbjörnsson úr UMSS, Elfa Berglind Jónsdóttir úr UFA og Fannar Gísla- son úr FH.  YOURI Djorkaeff, leikmaður Bolt- on, meiddist í æfingaleik með liðinu um síðustu helgi og verður líklega frá í sex vikur. Djorkaeff mun missa af fyrstu leikjunum í ensku úrvalsdeild- inni vegna meiðslanna.  SEBASTIEN Kehl, leikmaður Borussia Dortmund og þýska lands- liðsins í knattspyrnu, hefur verið dæmdur í keppnisbann af þýska knattspyrnusambandinu þar til 8. september. Kehl fékk að líta rauða spjaldið á móti Hamburg í úrslitaleik þýsku deildabikarkeppninnar fyrir að hrinda dómara leiksins.  ÞÝSKI landsliðsmaðurinn Dietmar Hamann mun ekki geta leikið með Liverpool næstu þrjá mánuðina vegna meiðsla. Hann er meiddur á fæti en þetta eru sömu meiðsli og hann var að kljást við á síðasta tíma- bili.  KEVIN Phillips leikmaður Sunderland verður líklega seldur til Middlesbrough í vikunni. Talið er að Middlesbrough þurfi að greiða Sunderland um 250 milljónir ís- lenskra króna fyrir Phillips sem er sóknarmaður.  ASTON Villa hefur samþykkt að greiða Sunderland um 280 milljónir íslenskra króna fyrir Thomas Sören- sen, danska landsliðsmarkvörðinn í knattspyrnu. Með þessum tveimur sölum ætti fjárhagsstaða Sunderland að lagast aðeins, en félagið er í mikl- um vandræðum eins og önnur sem mátt hafa þola fall úr ensku úrvals- deildinni á undanförnum árum.  KEVIN Keegan, knattspyrnustjóri Manchester City, er vonsvikinn yfir því að miðjumaðurinn Eyal Berkovic hafi farið fram á að vera seldur frá fé- laginu. „Ég er vonsvikinn yfir að Berkovic hafi beðið um að vera seld- ur. Ég skil ekki hvað hann er að hugsa með þessari framkomu en ég lofa honum að hann fær ekki að vera seldur ódýrt frá félaginu,“ sagði Keegan.  AIK frá Svíþjóð, sem mætir Fylki í UEFA-bikarnum í knattspyrnu, hef- ur fengið sóknarmanninn Kwame Quansah að láni frá Ajax í Hollandi. Quansah, sem er 21 árs, var í láni hjá Germinal Beerschot í Belgíu síðasta vetur og skoraði þar 10 mörk í efstu deild.  FERILL rússnesku tenniskonunn- ar Önnu Kornikovu gæti verið í hættu vegna bakmeisla. Fyrir skömmu þurfti Martina Hingis að leggja spaðann á hilluna vegna meiðsla. FÓLK Það dylst engum að ef KR-stúlk-urnar sigra, þá fara þær lang- leiðina með að verja Íslandsmeistara- titil sinn. Takist Blikum að fagna sigri, eru þeir komnar í góða stöðu í baráttunni um titilinn. Ég efast ekki um að viðureignin í kvöld verði hörkuspennandi og ég vona að fólk fjölmenni á völlinn. Í KR-liðinu er mikil hefð og það eru svona leikir sem lykilmenn innan þeirra liðs þrífast á, en samt er ekki hægt að bóka sigur þeirra því Breiðablik getur alveg unnið. Blikar hafa yfir meiri breidd að ráða, en þeim skortir stöðugleika.“ Sem landsliðsþjálfari og þjálfari liðs sem er í baráttunni við KR, hlýt- urðu að vonast eftir að þær tapi í kvöld? „Auðvitað vonast enginn eftir að mótið svo gott sem klárist í lok júlí. Með það í huga vonast ég að sjálf- sögðu eftir að KR tapi stigum og deildin opnist upp á gátt. Ég vil að sjálfsögðu spennu áfram. Aftur á móti er ekki hægt annað en að dást að árangri KR-stúlknanna í ár. Margir leikmenn þeirra hafa meiðst og ekki getað leikið og þegar að því er gáð er góð staða þeirra í deildinni með ólík- indum,“ sagði Helena. Meistarabarátta í Frostaskjóli Ná Blikar að stöðva KR? KR-stúlkurnar geta svo gott sem tryggt sér Íslandsmeistaratitlinn í knattspyrnu í kvöld þegar þær taka á móti Breiðabliki í Frostaskjóli. KR er með 26 stig, en Breiðablik er í öðru sæti með 21 stig og á leik til góða. Morgunblaðið fékk Helenu Ólafsdóttur, þjálfara Vals og ís- lenska landsliðsins, til að spá í spilin fyrir viðureign kvöldsins. Lærimeyjar Helenu í Val eru í þriðja sæti í deildinni með 20 stig. KR 10 8 2 0 46:8 26 Breiðablik 9 7 0 2 30:17 21 Valur 9 6 2 1 31:12 20 ÍBV 9 6 1 2 34:10 19 Stjarnan 9 2 1 6 11:19 7 Þór/KA/KS 9 2 0 7 6:26 6 FH 10 2 0 8 8:37 6 Þróttur/Haukar 9 1 0 8 7:44 3 STAÐAN Golfklúbbur Selfoss stendur fyrir opna Heklu-mótinu laugardaginn 2.ágúst. Mótið er leikið sem höggleikur með og án forgjafar. Hæsta gefin grunnforgjöf 24,0 sem gerir 28 í vallarforgjöf. Glæsileg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum, auk tveggja mælingaverðlauna. Aðalstyrktaraðilar mótsins eru Hekla hf. og Bílasala Selfoss. Uppl. og skráning í síma 482 3335 á skrifstofutíma og á www.golf.is OPNA HEKLU-MÓTIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.