Morgunblaðið - 31.07.2003, Side 26

Morgunblaðið - 31.07.2003, Side 26
UMRÆÐAN 26 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ VÖRÐUR voru fyrstu vegvísarnir á Íslandi, einkum reistar við fjalla- skörð og heiðar þar sem menn áttu leið og gátu átt von á vondum veðr- um. Varðaðir vegir voru þannig að menn áttu að geta séð frá einni vörðu til þeirrar næstu. Þegar fjall- göngur hófust á Íslandi kom fyrir að fyrstu menn hlóðu vörður sem sann- indamerki þess að þeir hefðu komið þangað. Víða sjást því vörðubrot á fjallatindum. Síðar, þegar Ísland var kortlagt á árunum 1910–1940, hlóðu danskir landmælingamenn veglegar vörður á mælipunktum, sem margar hverjar standa enn með mikilli reisn. Fjallgöngumenn hafa gjarna vilj- að skilja eftir betri sannanir þess að þeir hafi komist á tindinn, og fyrrum var algengt að menn settu miða með áletrun inn í flöskur undan drykkjarföngum. Þessar flöskur voru víðast ekki langlífar og oft var tappinn ekki nægilega öruggur. Á seinni árum hefur mjög komist í tísku að koma fyrir gestabókum á fjallstindum. Ýmist eru það ein- staklingar eða félagasamtök, eink- um ferðafélög, sem hafa staðið fyrir þessu. Það mun hafa verið um 1950 sem skátar á Akureyri settu gesta- bækur fyrst í vörður á fimm háum fjöllum í Eyjafirði. Nú eru þessar gestabækur oftast settar í sterk- byggða málmkassa í vörðunum og bækurnar vafðar í plastpoka til að verjast raka. Gestabækur eru bæði á tindum og hnjúkum með fallegt út- sýni, en einnig á fjölförnum leiðum. Vert er að nefna átak Ungmenna- félagshreyfingarinnar sem nú stend- ur yfir til að hvetja menn til fjall- göngu. Gestabókum hefur fjölgað mikið á seinni árum, og fýsti okkur að fá yfirlit yfir þær á okkar aðal- göngusvæði, enda eru ýmsir sem safna gestabókafjöllum og vilja gjarna vita hvar bækur eru og hve hátt þær eru. Við tókum því saman meðfylgjandi lista og kort, og eru vörðurnar taldar frá utanverðum Eyjafirði að vestan, yst á Trölla- skaga, og inn fyrir fjörðinn og endað á Gjögraskaga við fjörðinn austan- verðan. Samtals höfum við haft spurnir af 21 gestabók í vörðum við Eyjafjörð og fylgir hér með listi yfir þær og kort af staðsetningu. Hæðar- tölur eru lesnar af Staðfræðikortum (flokkur C 761) í mælikvarðanum 1:50.000. Tekið skal fram að í þess- um lista eru ekki gestabækur í hús- um eða skálum. Stefán Jónasson, bóksali á Akureyri, hefur gjarna út- vegað félögum og einstaklingum vel plastvarðar bækur til að koma fyrir á fjöllum. Rétt er að benda umráða- mönnum gestabókanna á að bók- unum þarf að sinna, skipta um bæk- ur ef þær verða fyrir hnjaski eða skemmast í raka, og væri eðlilegast að koma þeim til geymslu í héraðs- skjalasöfnum. Gestabækur segja ákveðna sögu. Þess má geta að gestabókin á Kistu hvarf í fyrra og hefur ekkert til hennar spurst, lík- legast hefur einhver misst hana frá sér í roki. Vonandi verður bætt úr því í sumar. Gestabækur í vörðum við Eyjafjörð Eftir Bjarna E. Guðleifsson og Konráð Gunnarsson Bjarni er náttúrufræðingur og for- maður Ferðafélagsins Hörgs. Kon- ráð er forstöðumaður íþrótta- miðstöðvar Glerárskóla. Bjarni Konráð                                                                                                  !  " # $     % & '%( ) !            "#  $    $ *      ,   /     = *   /     +       >    !      "    >  !     /  !   =    !     #!#   - # ?  #       "     @!!  /     A / #    / "                #$  /             *  !"        Gestabók á Staðarhnjúki í Möðruvallafjalli. Bjarni Bogason t.v. og Bjarni E. Guðleifsson t.h. Akureyri í fjarska. Nr. Staður Svæði Eigandi bókar Hæð, m 1 Fossdalur Við göngubrú á leið í Hvanndali Skíðafélag Ólafsfjarðar 150 2 Reykjaheiði Á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar Ferðamálaráð Ólafsfjarðar 875 3 Kerling Á milli Svarfaðardals og Skíðadals Ferðafélag Svarfdæla 1.230 4 Rimar Á milli Svarfaðardals og Þorvaldsdals Ferðafélag Svarfdæla 1.297 5 Þrastarhólshnjúkur Í Möðruvallafjalli í Hörgárdal Símon Þorsteinsson 760 6 Staðarhnjúkur Í Möðruvallafjalli í Hörgárdal Ferðafélagið Hörgur 750 7 Grjótárhnjúkur Við austanverðan Hörgárdal Ferðafélagið Hörgur 1.199 8 Þverbrekkuhnjúkur Á milli Öxnadals og Vatnsdals Ferðafélagið Hörgur 1.206 9 Kista Í Vindheimafjallgarði Ferðafélagið Hörgur 1.474 10 Strýta Í Vindheimafjallgarði Ferðafélag Akureyrar 1.456 11 Tröllafjall Á milli Glerárdals og Bægisárdals Ferðafélag Akureyrar 1.480 12 Ytrisúla Á milli Glerárdals og Eyjafjarðardals Ferðafélag Akureyrar 1.145 13 Syðrisúla Á milli Glerárdals og Eyjafjarðardals Litli alpakúbburinn 1.213 14 Kerling Við botn Glerárdals Ferðafélag Akureyrar 1.536 15 Uppsalahnjúkur Í Staðarbyggðarfjalli Halldór, Eiríkur og Stefán 920 16 Haus Í Staðarbyggðarfjalli Halldór, Eiríkur og Stefán 500 17 Systragil Grjóthleðsla á Þingmannavegi yfir Vaðlaheiði Ungmennafélag Akureyrar 620 18 Menntaskólavarðan Á Vaðlaheiði Stúdentaárgangur 1991 665 19 Víkurhnjúkur Í Ystavíkurfjalli Litli alpaklúbburinn 552 20 Skessuhryggur Norðan Dalsmynnis Ferðafélag Akureyrar 1.198 21 Kaldbakur Norðan Höfðahverfis Sigurbjörn Höskuldsson 1.173 AÐ aka bíl þegar maður er þreytt- ur eða syfjaður er stórhættulegt. Syfja og þreyta seinka viðbragðs- tíma, draga úr at- hygli og slæva dóm- greind alveg eins og áfengi og eiturlyf. Langflestir gera sér grein fyrir því hversu hættulegt það er að aka undir áhrifum vímugjafa. Færri vita þó að þreyttur ökumaður er ámóta hættulegur og stútur undir stýri. Í skýrslu Rannsóknarnefndar um- ferðarslysa (RNU) um útafakstur frá janúar 2002 kemur fram að tíðni útaf- aksturs vegna þreytu og syfju var nán- ast jafnmikil og tíðni útafaksturs vegna ölvunar. Sömuleiðis töldu höfundar skýrslunnar að útafakstur að næturlagi og undir morgun skýrðist að miklu leyti af þreytu, áfengisneyslu eða hvoru tveggja. Það er brýnt að efla forvarnir og fræðslu um áhrif þreytu og syfju á aksturslag ökumanna. Í annarri skýrslu RNU frá júní 2001 um dauðsföll í um- ferðinni er talið að aðalorsök tveggja dauðsfalla á árinu 2000 hafi verið vegna þess að bílstjóri hafi dottað eða sofnað undir stýri. Ef ökumenn sofna, sveigja bílarnir yfirleitt til vinstri og yfir á öfug- an vegarhelming. Ef umferð er úr gagnstæðri átt, þá er voðinn vís. Hættumerki Hér fyrir neðan eru nokkur merki þess að ökumenn séu um það bil að falla í svefn við aksturinn. Ef þú, öku- maður góður, finnur fyrir einhverjum af þessum einkennum, þá skaltu líta á þau sem hættumerki þess að þú gætir vel hugsanlega sofnað óviljandi við stýrið. 1. Augun lokast eða þau fara úr fókus við aksturinn 2. Þú átt erfitt með að halda höfð- inu uppi 3. Þú ert nánast stöðugt geispandi við aksturinn 4. Hugurinn fer á flakk við akst- urinn 5. Þú manst ekki eftir að hafa ekið síðustu kílómetrana 6. Þú átt það til að fara óviljandi yf- ir á öfugan vegarhelming, keyra aft- an á aðra bíla, fara yfir á rauðu ljósi og virða ekki umferðarskilti 7. Þú ert sífellt að rykkja bílnum inn á réttan vegarhelming 8. Þú hefur misst bílinn út í kant og næstum keyrt út af veginum Hvað er til bragðs að taka Að keyra langar vegalengdir af- hjúpar oftast hversu þreyttir öku- menn eru í raun og veru. Við upphaf ferðalagsins virkar spenna ferðar- innar örvandi á ökumann, en sú örv- un dalar fljótt eftir að ferðin er hafin. Hér eru nokkrar tillögur til að sporna við því að aka þreyttur. 1. Byrjaðu á því að fá nægan næt- ursvefn nóttina fyrir ferðalagið. Skipuleggðu ferðina þannig að þú keyrir á þeim tíma dags sem þú ert venjulegast vakandi. Það er betra að gera ráð fyrir næturstoppi en að keyra langa vegalengd í einum rykk. 2. Forðastu að keyra á móti líkams- klukkunni. Hvíldu þig um miðjan eft- irmiðdag (u.þ.b. kl. 14–16) og forðastu að keyra á nóttunni (kl. 1–6). Nýttu frekar nóttina til að sofa. 3. Talaðu við farþegana sem eru með þér í bílnum. Farþegarnir geta látið þig vita ef þú ert farinn að sýna merki um þreytu. Ef farþegunum þykir þú vera farinn að sýna þreytu- merki, leyfðu þá einhverjum öðrum að keyra, eða aktu út í kant og fáðu þér lúr. Smálúr (u.þ.b. 15–45 mínútur) gæti bjargað lífi þínu og annarra. 4. Sjáðu til þess að þeir sem eru í framsætunum séu vel vakandi. Bíl- stjóri sem þarf að hvíla sig ætti að láta annan sjá um aksturinn, færa sig í aftursætið, spenna á sig beltið og fara að sofa. 5. Gerðu ráð fyrir hléi á akstri á tveggja klukkustunda fresti eða eftir 150–200 km. Á meðan á hléinu stend- ur skaltu fá þér lúr, teygja úr þér, fara í gönguferð eða gera léttar leik- fimiæfingar áður en þú sest aftur upp í bílinn. 6. Drekktu kaffi eða aðra drykki með koffeini til að sporna við þreytu. Mundu þó að áhrif koffeins eru skammvinn. 7. Forðastu áfengi eða lyf (lyfseð- ilsskyld eða ólyfseðilsskyld) sem geta slævt dómgreind. Áfengi magnar syfjuna upp stórlega. Nú þegar ein mesta ferðahelgi árs- ins, verslunarmannahelgin, er fram- undan, mun vera töluverð áhersla lögð á ölvunarakstur og hraðakstur í allri umfjöllun um umferð helgarinnar. Með þessari grein vil ég vekja athygli á þætti syfju og þreytu á ökumenn og hvetja ökumenn til að hugsa lítið eitt um hversu syfjaðir þeir eru við akst- urinn. Þreyta og akstur eiga engan veginn samleið frekar en áfengi og akstur. Gera má ráð fyrir því að þó- nokkrir ökumenn keyri heim á mánu- deginum eftir verslunarmannahelgina mjög syfjaðir eftir gleði helgarinnar. Það er full nauðsyn að ökumenn sem vita að þeir séu þreyttir við upphaf heimferðarinnar hugsi sinn gang og leggi sig frekar aftur og seinki heimför en að láta gleðihelgi mögulega enda með ósköpum. Vöknum til svefnsins, spornum við þreytu og komum heil heim. Varúð! Þreyttir ökumenn á ferð Eftir Helga Gunnar Helgason Höfundur starfar við svefnrannsóknir. HVERT ár verður umræða um nauðganir hávær þegar verslunarmanna- helgin nálgast. Auglýsingar V-dagsins um það að þrír af hverjum fjórum nauðgurum séu vinir minntu mig á umræðuefni sem ég hef lengi ætlað að koma á framfæri. Mörg síðastliðin ár hefur sterk auglýsinga- herferð smogið inn um eyru okkar og augu undir fyrirsögn- inni: Nei þýðir nei, nauðgun er glæpur! Þótt fyrirsögnin sé hárrétt þarf að árétta það sem ekki er sagt. Til þess að sam- þykkt samræði eigi sér stað þarf skýrt já frá báðum aðilum. Í raun má segja að orðin: kannski, ef til vill og mögulega, þýði nei. Miðað við þau alvarlegu áhrif sem nauðgun hefur á líf fórnarlamba verðum við að innleiða þá hugsun að allt nema já þýði nei! Ástand nauðgara og fórnarlambs Því verður ekki neitað að hinar „hefðbundnu“ verslunarmannahelga- nauðganir á Íslandi eigi það flestar sameiginlegt að gerast undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Geta fórnarlambsins til að segja skýrt nei er því í besta falli takmörkuð. Ef lágu sjálfsmati er bætt inn í myndina er ekki einu sinni víst að nauðgunin verði kærð. Smánarblettur fellur á fórnarlambið sem hefur verið kynferðislega skaðað til æviloka. Því er mjög mikilvægt að uppfræða „nauðgara“ um þau alvarlegu áhrif sem skammtíma greddulosun getur haft á líf annarra einstaklinga svo og þeirra eigin. Því miður er stað- reyndin sú að fórnarlömb hér á landi eru það mörg að ekki er ólíklegt að stór hluti íslenskra sambanda séu að einhverju leyti því marki brennd að bera innanborðs óuppgert kynferðislegt ofbeldi sem brýst fram í tilfinningalegri óstjórn. Nauðganir hafa áhrif á alla þegar til lengri tíma er litið. Fórnar- lömbin, makar þeirra, börn og að lokum samfélagið í heild sinni bera ósýni- leg ör atburða sem ekki virðast litnir mjög alvarlegum augum í íslensku dómskerfi. Ein nauðgun er einni of mikið! Við berum öll ábyrgð á því sem fram fer á útihátíðum hér á landi. Umgjörðin er í okkar höndum, foreldrar eru ábyrgir fyrir því að gefa börnum sínum leyfi til að sækja hátíðirnar, hátíðahaldarar og skipuleggjendur ættu að bera mun meiri ábyrgð en þeir gera nú, löggæslan þyrfti að vera öflugri og dóms- kerfið þarf að útdeila refsingu sem hæfir glæpnum. Ég vil því hvetja alla þá sem álíta lífið heilagt að taka ábyrgð og neita að láta Stígamót eða V-daginn bera ábyrgð á afleiðingum sem má koma í veg fyrir með ábyrgri hegðun í samfélaginu. Fréttamaður Sjónvarpsins í Kastljósinu spurði viðmælendur sína frá Vogi fyrir stuttu hvort það væri ekki bara eðlilegur hluti af því að vera ungur að veltast um sauðdrukkinn í íslenskri náttúru. Eru afleiðingar ofdrykkju og eiturlyfjaneyslu íslenskra ungmenna á útihátíðum ásættanlegar? Tökum ábyrgð! Allt nema já þýðir nei! Nauðgun er alvarlegur glæpur. Allt nema já þýðir nei! Eftir Guðjón Bergmann Höfundur er jógakennari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.