Morgunblaðið - 31.07.2003, Page 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 27
,,MEINT“ samráð olíufélaganna
um verð á eldsneyti virðist hafa
komið mörgum í opna skjöldu.
Meira að segja þeim
sem stjórna olíufé-
lögunum. En ég
varð ekki hissa.
Ekki frekar en Dav-
íð Oddsson for-
sætisráðherra. Ég
hef nefnilega vitað
það fyrir víst að olíufélögin hafa
haft með sér samráð um verð á
bensíni og olíu. Reyndar hef ég
ekki sannanir í hendi, en þegar ég
horfi á tölurnar í glugganum á dæl-
unni, þ.e. þessum sem sýnir verð á
hverjum lítra, sé ég að það er sama
talan hvort sem það er Essó, Olís
eða Skeljungur sem á dæluna.
Þannig sé ég að olíufélögin hafa
með sér samráð um verðmyndun.
Þetta hef ég vitað í þau sautján ár
sem ég hef átt bíl.
Það sem mér finnst reyndar sár-
ast er að hafa ekki haft í mér dug
eða döngun til þess að hætta að
nota bílinn minn. Ég fárast yfir
þessu í mínu skoti, eins og lang-
flestir aðrir, en fer svo og tek bens-
ín næst þegar nálin á bensínmæl-
inum liggur hættulega lágt, borga
minn bensíndropa, bölva í hljóði og
keyri síðan af stað. Svo hugsa ég
ekki mikið meira um þetta þangað
til fréttirnar um að eitt olíufélag-
anna muni hækka dropann um
fjörutíu aura um næstu mánaða-
mót. Reyndar fylgir alltaf með að
ekki hafi náðst í forsvarsmenn
hinna félaganna um hvort þeir ætli
að hækka líka en svo fer þó að lok-
um að talan í glugganum verður
hin sama, hvort sem það er hjá
Essó, Olís eða Skeljungi. Og svo
eru menn hissa þegar talað er um
samráð um verð.
Reyndar hafa olíufélögin afsökun
fyrir þessu. Hún er sú að mönnum
hafi gengið illa að átta sig á því að
ný lög væru gengin í gildi. Ja hérna
hér. Þeim gekk illa að aðlaga sig
nýjum lögum! Þvílík afsökun.
Gengi íslensku krónunnar hefur
ekki verið jafn hátt gagnvart er-
lendum gjaldmiðlum í langan tíma.
Þetta ætti nú aldeilis að koma sér
vel fyrir neytendur sem kaupa er-
lendar vörur. En hvernig skyldi
ganga að koma bensínverðinu aftur
í það horf sem það var áður en
gengið hríðlækkaði á síðasta ári?
Ég hef ekki tölurnar á hreinu, en
mikið væri gaman að vita hvernig
verðið á bensínlítranum var áður
en gengi krónunnar hrapaði;
hvernig það var þegar gengið var
sem lægst í samanburði við lítra-
verðið í dag. Það væri nú gott ef
einhver dyggur blaðamaður kíkti á
þær tölur. Það er nefnilega þannig
að þegar gengi krónunnar lækkar
gagnvart erlendum gjaldmiðlum
eru innflytjendur og aðrir sölu-
menn duglegir að hækka verðið hið
snarasta, en þegar gengið hækkar
virðast þeir ekki jafn duglegir að
fara til baka. Þetta á ekki síður við
um aðra en olíufélögin. Reyndar
verð ég að fara varlega í að alhæfa
því auðvitað eru ekki öll eplin í
tunnunni skemmd.
Hershöfðinginn
Björn Bjarnason, dómsmála-
ráðherra, hefur lýst þeirri skoðun
sinni yfir að Ísland ætti að stofna
eigin her eða heimavarnarlið ef og
þegar bandaríska varnarliðið verð-
ur kallað frá Íslandi. Ég hef aldrei
á minni ævi heyrt annað eins. Það
væri eins og ef lítil mús myndi
þjálfa flærnar sínar til að verjast
ágangi katta! Ég veit ekki hvaða
mikilmennskubrjálæði hæstvirtur
dómsmálaráðherra er haldinn en
eigin her er ekki svar Íslands við
ágangi erlendra aðila.
Ég held að nær væri að nýta þá
fjármuni sem hæstvirtur dóms-
málaráðherra þykist hafa til að
stofna her í að aðstoða þá sem
missa atvinnuna ef og þegar banda-
ríski herinn fer og til að byggja
upp þyrluþjónustu Landhelgisgæsl-
unnar hringinn í kringum landið.
Ég held að Ísland geti nefnilega
orðið eitt af fáum sjálfstæðum
löndum til þess að vera herlaust.
Mesta hættan á því að hryðju-
verkamenn og stríðsmangarar láti
til skarar skríða er einmitt vera
bandaríska hersins hér á landi. Það
er reyndar staðreynd að núverandi
leiðtogi Bandaríkjamanna er ein-
hver sá mesti hermangari og of-
beldisseggur sem uppi hefur verið
og ef bandarískur her á Íslandi er
ekki til þess fallinn að bjóða hætt-
unni heim þá veit ég ekki hvað það
er. Annars orðaði hinn frægi tón-
listarmaður Roger Waters það best
þegar hann sagði að ,,Bandaríkj-
unum væri stjórnað af hálfvita sem
væri ekki einu sinni rétt kjörinn“.
Já, en, Bush sagði það…
Íslenskir ráðamenn studdu
Bandaríkjamenn og Breta í árásar-
stríðinu gegn Írak af því sem ég
kalla undirlægjuhátt og aumingja-
skap. Þeir höfðu ekki dug í sér til
að mótmæla því. Mér finnst að
þjóðarleiðtogar eigi að hafa eigin
ástæður fyrir gerðum sínum en
ekki þær sem forseti Bandaríkj-
anna fóðrar þá á. Nú er komið í ljós
að rökstuðningurinn fyrir stríðinu
var falsaður, ósannur og hreinlega
rangur og þó að Saddam Hussein
hafi verið óhæfur leiðtogi þjóðar
sinnar réttlætti það ekki árásar-
stríð sem ríkisstjórn Íslands
studdi. Enda eru Bandaríkjamenn
loksins að átta sig á því að þeir
hafa verið blekktir. Það hefur líka
komið á daginn að Bandaríkjamenn
eru ekki að halda friðinn í Írak.
Þeir eru að passa upp á olíu-
lindirnar til þess að þeir geti setið
einir að þeim. Reyndar ætti það að
koma til lækkunar á heimsmark-
aðsverði á olíu og bensíni og það
verður fróðlegt að sjá hvort Essó,
Olís og Skeljungur komi þeirri
lækkun til neytenda á Íslandi.
Skemmd epli!
Eftir Valdimar Másson
Höfundur er kennari á
Fáskrúðsfirði.