Morgunblaðið - 31.07.2003, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 31.07.2003, Qupperneq 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 39 ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I ATVINNA ÓSKAST Húsasmíðameistari getur bætt við sig verkefnum í uppslætti á húsum og þökum. Er með góð mót. Upplýsingar í síma 698 2261. „Au pair“ í London Óskum eftir að ráða „au pair“ til að gæta tveggja barna, 3ja og 5 ára, auk léttra heimilis- starfa frá 21. ágúst. Upplýisngar í símum 562 7795 og 866 3257. Ritari - fasteignasala Öflug fasteignasala óskar eftir ritara. Í starfinu felst símsvörun, umsjón með innheimtu, aðstoð við skjalagerð og fleira. Gott tækifæri til að öðlast reynslu á spennandi starfsvettvangi. Svör óskast send til auglýsingadeildar Mbl., merkt: „Ritari — 2003“, fyrir föstud. 8. ágúst. Starfskraftur „Au pair" Starfskraftur, ekki yngri en 23 ára, óskast til íslenskrar fjölskyldu búsettri í Kaupmannahöfn. 3 börn í heimili. Tímabil 1 ár frá 15. ágúst. Þarf að kunna til heimilisstarfa. Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. eða á box@mbl.is, merkt: „K — 13899“, fyrir 8. ágúst. R A Ð A U G L Ý S I N G A R BÁTAR SKIP Gyllir ÍS-251 (2452) Til sölu er ofangreint línuveiðiskip. Skipið er skráð 7,73 brl. 6,74 brt. Mesta lengd 9,50 m. Smíðaður árið 2000—nóv. Aðalvél er Caterpillar sem er 435 hestöfl 175kW. Selst með veiðarfærum og allri aflahlutdeild sem er nú: Þorskur: 79,894 kg. Ýsa: 8,208 kg. Ufsi: 182 kg. Karfi: 296 kg. Langa: 645 kg. Keila: 448 kg. Steinbítur: 9,519 kg. Bætur: Þorskur: 5,106 kg. Ýsa: 22,536 kg. Ufsi: 7,346 kg. Steinbítur: 22,953 kg. Samtals 150 tonn í þorskígildum. Skipamiðlunin Bátar og kvóti. http://www.skipasala.com, sími 568 3330, fax 568 3331. UPPBOÐ Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöll- um 1, Selfossi, þriðjudaginn 5. ágúst 2003 kl. 10.00 á eftir- farandi eignum: Austurey, Bláskógabyggð, fastanr. 220-6123, þingl. eig. Sigurður Ingi Tómasson, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf. Álftarimi 3, Selfossi, fastanr. 218-5250, þingl. eig. Sigríður Ólína Marinósdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Suðurlands. Breiðamörk 24, Hveragerði, fastanr. 221-0115, þingl. eig. Kaupfélag Árnesinga, gerðarbeiðendur Búland ehf. og Sparisjóður Hafnarfjarð- ar. Breiðamörk 7, Hveragerði, fastanr. 221-0076, þingl. eig. Ólöf Jónsd- óttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., útibú 0586, og Lánasjóður landbúnaðarins. Breiðamörk 8, Hveragerði, fastanr. 221-0078, eig. samkv. þingl. kaupsamn. Steina Rósa Björgvinsdóttir, gerðarbeiðendur Hveragerð- isbær og Íbúðalánasjóður. Ferjunes, Villingaholtshreppi, fastanr. 220-1230, þingl. eig. Ingjaldur Ásmundsson, gerðarbeiðendur PricewaterhouseCoopers ehf., sýslu- maðurinn á Selfossi og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda. Hásteinsvegur 17, Stokkseyri, fastanr. 219-9760, þingl. eig. Guðlaugur Magnússon og Halldóra Brandsdóttir, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf., Íbúðalánasjóður og Sveitarfélagið Árborg. Lóð úr landi Ingólfhvols, Ölfusi, matshl. 010109, (hús B), matshl. 010110, (hús D) og matshl. (010111, hús E), skv. eignaskiptasamn. dags. 9.1. 01., ásamt 15% hlutdeild í borholu í landi Sandhóls, auk búnaðar, þingl. eig. Gerpla ehf., gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Tollstjóraembættið. Oddabraut 10, Þorlákshöfn, fastanr. 221-2574, þingl. eig. Magnús Georg Margeirsson, gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Selfossi og Vátryggingafélag Íslands hf. Reykjavellir, Bláskógabyggð, landnr. 167-160, þingl. eig. Hannes Sigurður Sigurðsson og Sigurður Guðmundsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Íslands hf., Glitnir hf., Íslandsbanki hf., Landsbanki Íslands hf., aðalstöðvar, Landsbanki Íslands hf., útibú, Lánasjóður landbúnaðarins, Set ehf., Skeljungur hf., Vátryggingafélag Íslands hf. og Viðskiptanetið hf. Selvogsbraut 12, Þorlákshöfn, fastanr. 221-2745, þingl. eig. Kaupfélag Árnesinga, gerðarbeiðendur Búland ehf. og Sparisjóður Hafnar- fjarðar. Snorrastaðir, Laugardalshreppi. landnr. 168-151, þingl. eig. Ólafur Ólafsson, gerðarbeiðandi Húsasmiðjan hf. Vallarholt 2, A-B, Bláskógabyggð, landnr. 178-703, þingl. eig. Snæbj- örn Ó. Vilhjálmsson, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf. Vallarholt 21, Bláskógabyggð, landnr. 178-704, þingl. eig. Snæbjörn Ó. Vilhjálmsson, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf. Þelamörk 60, Hveragerði, skv. þingl. kaupsamn., fastanr. 221-0969, þingl. eig. Eystrasaltsviðskipti ehf., gerðarbeiðendur Glófaxi ehf., Íspan ehf. og Tollstjóraembættið. Öndverðarnes 2, Grímsness- og Grafningshreppi, eignarhluti gþ., fastanr. 220-8714, þingl. eig. Gunnar Örn Ólafsson, gerðarbeiðandi Stálskip ehf. Sýslumaðurinn á Selfossi, 30. júlí 2003. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Samkoma kl. 20.00. Jón G. Sig- urjónsson predikar. Lofgjörð og fyrirbænir. Vinir okkar frá Kóreu þjóna einnig. Allir velkomnir. Athugið að engin dagskrá er í Veginum um helgina, heldur bendum við á Kotmót. Fimmtudagur 31. júlí 2003 Samkoman fellur niður í kvöld vegna Kotmóts. Samhjálp verð- ur með samkomuna föstudags- kvöldið 1. ágúst í Kotinu kl. 19. Föstudagur 1. ágúst AA-fundurinn fellur niður vegna Kotmóts. Mánudagur 4. ágúst UNGSAM fellur niður vegna Kotmóts. www.samhjalp.is 31.júlí. Fimmtudagskvöld á Þingvöllum Kl. 20.00 Heimspeki og göngu- ferðir. Róbert H. Haraldsson dósent í heimspeki fjallar um tengsl heimspeki við gönguferð- ir. Gönguferðin hefst við Flosa- gjá og verður gengið í Skógar- kot. Verslunarmannahelgi á Þingvöllum. 2. ágúst. Laugardagur Kl. 13.00 Þingstaðurinn og nágrenni. Rætt um sögu þings og staðhættir skýrðir. Gangan hefst við Flosagjá og verður gengið að Langastíg. Kl. 14.00 Barnastund í þinghelgi. Farið um þingstaðinn með yngstu kynslóðina. Hefst við Flosagjá. Kl. 16.00 Fornleifarannsóknir á Þingvöllum. Kynntar fornleifa- rannsóknir á Þingvöllum. Hefst við Þingvallakirkju. Kl. 21.00 Kvöldguðsþjónusta undir berum himni við Þingvalla- kirkju. Hjónin Þorvaldur Halld- órsson og Margrét Scheving sjá um tónlistina. Létt tónlist, lof- gjörð og gleði. Prestur sr. Krist- inn Ágúst Friðfinnsson. 3. ágúst. Sunnudagur Kl. 13.00 Lífríki Þingvallavatns. Fjallað um jarðfræði, vatnasvið Þingvallavatns og tengsl þess við lífríki vatnsins. Gangan hefst við Öxarárbrú við Valhöll og verður gengið í Lambhaga. Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Þing- vallakirkju. Prestur sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Kl. 15.00 Þinghelgarganga. Gengið um þingstaðinn forna og hugað að sögu Þingvalla og fornleifarannsóknum. Hefst við kirkju að lokinni guðsþjónustu og tekur rúmlega 1 klst. Kl 15.00 Barnastund í þinghelgi. Farið um þingstaðinn með yngstu kynslóðina. Hefst við Flosagjá. Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustumiðstöð í síma 482 2660 og á heimasíðu þjóð- garðsins, www.thingvellir.is . Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins á Þingvöllum er ókeypis og allir eru velkomnir. mbl.is DILBERT ATVINNUAUGLÝSINGAR sendist á augl@mbl.is stendur upp úr eftir þessi kynni var sá einstaki hæfileiki sem þú tamdir þér að sjá alltaf það besta í fari annarra. Það var líka bjargföst trú þín á Jesú sem mótaði líf þitt og þeim boðskap komst þú áleiðis bæði í orði og líferni sem lifir enn í hjört- um okkar sem fengu að kynnast þér eða að hlýða á þig. Þið Ingibjörg áttuð ykkur sér- staklega kærleiksríkt heimili sem gott var að koma á, hvort sem það var til að gleðjast eða leita hugg- unar. Í hugann kemur mynd af þér þar sem þú situr með langafadreng- ina þína tvo, Pétur og Ástráð, sinn á hvoru lærinu þar sem þeir beina að þér hafsjó af spurningum um allt á milli himins og jarðar. Aðdáunar- vert var að fylgjast með því hvernig þú, fullur kærleika og þolinmæði, gafst þér mikinn tíma til þess að sinna þeim og svara spurningaflóð- inu. Það var heldur ekki ósjaldan að Pétur hringdi í þig til þess að fá svör við ýmsum málefnum sem hann tjáði okkur foreldrum sínum að bara langafi gæti svarað þar sem hann hefði jú verið bæði skólastjóri og guðfræðingur auk þess að hafa upplifað flesta merkilega viðburði síðustu aldar. Ein af dýrmætustu minningum okkar fjölskyldunnar af þér var þegar við komum til þess að kveðja þig og Ingibjörgu áður en við flutt- umst búferlum til Frakklands. Þú baðst okkur að setjast inn í stofu og þar hafðirðu undirbúið kveðju- athöfn með bænastund og nokkrum vel völdum orðum. Þú gerðir þér vel grein fyrir því að þessi kveðju- stund gat verið sú síðasta og sagðir okkur jafnframt frá því að þú værir tilbúinn til þess að kveðja þetta jarðríki. Fullvissa þess að nú hvílir þú undir verndarvængjum Jesú dregur úr söknuðinum yfir að fá ekki lengur að njóta nærveru þinn- ar. Síðasta laglínan í lokasálmi Skógarmanna fjarar út í nætur- myrkrið og undirtekur að nú hafir þú fengið hvíldina sem þú þráðir: „ … Mín gæti náð þín blíð, að frið og hvíld mér færi hin fagra næt- urtíð.“ Sigurður Pétursson. Fjórar voru þær systurnar í Káragerði í Landeyjum í lok 19. aldar. Tvær þeirra fluttu til Vest- mannaeyja og áttu heima á Heiði og í Merkisteini og tvær fluttu til Reykjavíkur. Af þessum systrum er kominn stór hópur afkomenda. Sá síðasti í beinan legg var að kveðja okkur, Ástráður, sonur yngstu systurinn- ar, Sigríðar, og Steindórs, en Ellert faðir minn og Ástráður voru systra- synir. Ástráður var hávaxinn og þétt- byggður. Rödd hans var hljómmikil og sterk. Hann var þéttur í lund, ákveðinn, réttsýnn, hafði röð og reglu á hlutunum, góður stjórnandi, fékk með sér menn til starfa og lét aldrei sjálfur sitt eftir liggja. Tvö mál lét hann sig einkum varða: 1) kristindóms- og æskulýðsmál og 2) skóla- og uppeldismál. Ástráður nam guðfræði. Þótt ekki lægi fyrir honum prestskapur vann hann kirkju og kristindómi allt sitt líf. Ungur kynntist hann starfi séra Friðriks og KFUM og alla tíð var hann sannur KFUM- maður. Ég átti samleið með honum sem frænda, en ekki síður sem KFUM-manni og oft ræddum við málefni kristindómsins og ég fræddist af honum. Innan vébanda KFUM voru kunnust störf hans sem forstöðumanns Sunnudaga- skóla KFUM, formanns Skógar- manna, stjórnarmanns í félaginu, formanns landssambands KFUM og K, brautryðjanda í kristilegu stúdentastarfi, áhrifamikils prédik- ara á samkomum o.s.frv. Hann var lengi í stjórns Hins ísl. Biblíufélags og innan þjóðkirkjunnar var hann dugmikill þátttakandi í safnaðar- starfi, m.a. í sóknarnefnd Laugar- neskirkju til margra ára. Allt þetta starf var unnið af fórnfýsi og hug- sjón sjálfboðaliðans. Ástráður var hinn mesti ræðu- skörungur og talaði blaðalaust og reiprennandi af miklum eldmóði. Hann hafði alltaf eitthvað að segja, en kjarninn var boðskapurinn um Jesú Krist, Drottin okkar og frels- ara, sem lifði, dó og reis upp okkur mönnum til réttlætingar. Að menn eignuðust presónulega trú á Drott- in var honum hjartans mál. Síðustu leiðtogastörf hans vann hann hátt á áttræðisaldri í drengjadeildinni í Langagerði. Þar var hann vel met- inn af drengjunum sem nú eru framhaldsskólanemar. Á meðan heilsan leyfði lét hann sig ekki vanta á fundi aðaldeildarinnar. Hann var trúfastur félagi, gladdist yfir velgengni deildarinnar, áhuga- verðu fundarefni og kristnum boð- skap. Fyrr á árum sá hann oft um efni fundanna. Ástráður var mikill skólamaður. Hann var farsæll skólastjóri lands- prófsdeildarinnar í Vonarstræti í átta ár og Réttarholtsskóla í 20 ár. Hann samdi námsbækur, var rit- stjóri barnablaðsins Ljósberans, í ritstjórn Bjarma o.fl. Hann frændi minn fór ekki með veggjum og menn sem hann eru ekki á hverju strái. Hann var Kristsmaður, krossmaður. Við hlið hans sem klettur stóð í 60 ár Ingi- björg, elskuleg eiginkona hans. Guð blessi hana, börn þeirra og alla að- standendur. Ásgeir B. Ellertsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.