Morgunblaðið - 31.07.2003, Page 46

Morgunblaðið - 31.07.2003, Page 46
ÍÞRÓTTIR 46 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT MICHAEL Ballack, miðjuleikmaður Bayern München og þýska landsliðsins í knattspyrnu, hefur verið valinn leikmaður ársins í Þýskalandi af knattspyrnublaðinu Kicker. Þetta er annað ár- ið í röð sem blaðið velur Ballack sem leikmann ársins. Ballack átti stóran þátt í meistaratitli og bikar- titli München á síðasta tímabili en hann kom til liðsins frá Bayer Leverkusen fyrir síðasta keppn- istímabil. Það voru þýskir íþróttafréttamenn sem tóku þátt í valinu á besta leikmanni og þjálfara ársins. Ballack hlaut 263 stig en Fredi Bobic, sóknar- maður Hannover, varð annar með 167 stig. Giov- ane Elber, sóknarmaður Bayern München, lenti í þriðja sæti með 96 stig en hann skoraði 21 mark í þýsku deildinni á liðnu tímabili. Felix Magath, þjálfari Stuttgart, var valinn þjálfari ársins en Stuttgart kom á óvart síðastlið- inn vetur og endaði í öðru sæti deildarinnar. Ballack bestur í Þýskalandi MIÐJUMAÐURINN Juan Sebastian Veron mun líklega leika með Chelsea á næstu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni, en hann hefur síðustu tvö tímabil leikið með Manchester United. Tal- ið er að Chelsea þurfi að borga um 2 milljarða íslenskra króna fyrir Argentínumanninn en United borgaði 3,5 millj- arða íslenskra króna fyrir Veron þegar hann kom frá Lazio. Ferguson, stjóri United, neitar þessum fregnum og segir Veron ekki til sölu. Chelsea hefur keypt fjóra sterka leikmenn í sumar, Damien Duff, Wayne Bridge, Glen Johnson og Geremi en þeir hafa samtals kostað um fimm milljarða íslenskra króna. Roman Abramovich, eigandi Chelsea, virðist ekki hættur og hefur nú augastað á tveimur öflugum sóknarmönnum, Samuel Eto frá Real Mallorca og Christian Vieri frá Inter Milan. Eto er 22 ára Kamerúni og er metinn á um 2 milljarða króna. Hann segist hafa mikinn áhuga á að ganga til liðs við Chelsea. Ef Eto og/eða Vieri ganga til liðs við Chelsea er ekki ólík- legt að annaðhvort Jimmy Floyd Hasselbaink eða Eiður Smári Guðjohnsen muni fara frá félaginu. Veron líklega til Chelsea  HELGI Kolviðsson lék allan leik- inn í gærkvöldi þegar Kärnten heim- sótti Mattersburg í austurrísku deildinni. Liðin gerðu markalaust jafntefli og eru í 5. og 6. sæti deild- arinnar.  ÓLAFUR Stígsson og Hannes Þ. Sigurðsson komu báðir við sögu þeg- ar lið þeirra, Viking og Molde, mætt- ust í norsku deildinni í gærkvöldi. Gestirnir í Molde höfðu betur, 2:1 eftir að heimamenn höfðu komist yf- ir eftir 65 sekúndur.  ENGINN Íslendingur var í byrj- unarliði en Ólafur kom inn á á 33. mínútu leiksins og Hannes fékk að spreyta sig síðustu 8 mínúturnar.  NICK Faldo mun missa af sínu fyrsta risamóti í golfi frá árinu 1987 en hann hefur ákveðið draga sig úr keppni í PGA-stórmótinu sem fram fer í Bandaríkjunum 14.–17. ágúst nk. Hinn 46 ára gamli kylfingur ætl- ar að verða viðstaddur fæðingu en konan hans á von á sér sömu helgina og mótið fer fram.  ALLT útlit er nú fyrir að David Connolly semji við West Ham, en lengi vel var talið að Norwich myndi semja við kappann en Nigel Worth- ington, stjóri þar á bæ, hefur lengi haft augastað á Connolly, sem steig sín fyrstu skref í ensku deildinni þegar hann var 16 ára, með Watford. Þá var Glenn Roeder við stjórnvöl- inn en hann er stjóri hjá West Ham.  SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson, sóknarmaður KR, kann vel við sig á Akranesvelli, enda lék hann eitt ár með ÍA. Eftir að Sigurður gekk til liðs við KR á ný fyrir síðasta tímabil hefur hann skorað þrjú mörk í tveimur heimsóknum þangað í efstu deild. Skagamenn eru aftur á mótiekki í góðum málum. Þeir verða að líta á sjálfa sig í alvarlegri fallhættu eftir þessi úrslit og þeirra stærsta áhyggjuefni hlýtur að vera hve litlu hinn rómaði heimavöllur þeirra hefur skilað í sumar. Einn sigur í sex leikjum er uppskera ÍA á Akranesvelli og í gærkvöld máttu þeir hlusta á sína fornu fjendur úr Vesturbænum fagna ógurlega í þeirra eigin bún- ingsklefa í fjórða skiptið á síðustu fimm árum. Leikur liðanna var bráðfjörugur þrátt fyrir strekkingsvind á annað markið, einkum fyrri hálfleikurinn. Í stað hefðbundinna og varfærn- islegra þreifinga beggja aðila hvor á öðrum fyrstu 20-30 mínúturnar eins og svo algengt er í dag, gal- opnuðu Skagamenn hann strax í byrjun. Þeir fóru beint í stórsókn gegn vindinum og luku henni með marki Garðars Gunnlaugssonar eftir 82 sekúndur, 1:0. KR-ingar hófu þegar gagn- aðgerðir og réðu lögum og lofum á vellinum langt frameftir hálfleikn- um. Þeim gekk þó illa að skapa sér færi gegn sterkri vörn ÍA framan af, en ákveðinn vendipunktur varð á 23. mínútu. Þá þurfti Einar Þór Daníelsson að haltra meiddur af velli og án þess að gera lítið úr hans hlut, breyttist leikur KR við þetta á all afgerandi hátt. Arnar Gunnlaugsson fór á vinstri væng- inn í stað Einars og Veigar Páll af þeim hægri yfir í sína uppáhalds stöðu, sem afturliggjandi sóknar- maður. Þar var Garðbæingurinn heldur betur í essinu sínu og innan tíu mínútna hafði hann lagt upp tvö mörk með þriggja mínútna ÍA 2:3 KR Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeildin, 12. umferð Akranesvöllur Miðvikudaginn 30. júlí 2003 Aðstæður: Strekkingsvindur á annað markið og rigning er á leið. Ágætur völlur. Áhorfendur: 1.230 Dómari: Gylfi Þór Orrason, Fram, 4 Aðstoðardómarar: Erlendur Eiríksson, Eyjólfur Finnsson Skot á mark: 15(11) - 13(8) Hornspyrnur: 10 - 3 Rangstöður: 5 - 5 Leikskipulag: 4-4-2 Þórður Þórðarson M Hjálmur Dór Hjálmsson M Helgi Pétur Magnússon Gunnlaugur Jónsson M Andri Lindberg Karvelsson Julian Johnsson M Hjörtur J. Hjartarson (Baldur Aðalsteinsson 63.) Pálmi Haraldsson M Guðjón H. Sveinsson (Kári Steinn Reynisson 56.) Garðar Gunnlaugsson M Stefán Þór Þórðarson (Kristian Gade Jörgensen 58.) Kristján Finnbogason M Jökull I. Elísabetarson M Gunnar Einarsson M Kristján Örn Sigurðsson M Sigursteinn Gíslason Veigar Páll Gunnarsson MM Sigurvin Ólafsson (Kristinn Magnússon 84.) Kristinn Hafliðason M Einar Þór Daníelsson (Sigurður Ragnar Eyjólfsson 23.) Garðar Jóhannsson M Arnar B. Gunnlaugsson (Þórhallur Örn Hinriksson 74.) 1:0 (2.) Andri Karvelsson braust að endamörkum vinstra megin og sendi bolt- ann inn í markteiginn þar sem Kristján markvörður missti af honum og Garðar Gunnlaugsson skoraði með viðstöðulausu skoti. 1:1 (29.) Veigar Páll Gunnarsson fékk boltann út við hornfána hægra megin, að- þrengdur af varnarmanni. Honum tókst samt að ná góðri fyrirgjöf með vinstri fæti og Garðar Jóhannsson skoraði með föstum skalla rétt fyrir utan miðjan markteig. 1:2 (32.) Veigar Páll fékk boltann við vítateigslínuna hægra megin og renndi honum laglega út á Sigurð Ragnar Eyjólfsson sem skoraði með við- stöðulausu og föstu innanfótarskoti, boltinn breytti stefnu af Pálma Haraldssyni og sigldi í markhornið fjær. 1:3 (77.) Veigar Páll fékk boltann við hliðarlínuna vinstra megin, lék þar fram og til baka þar til hann renndi sér af harðfylgi að endamörkunum, gaf fyrir markið, og þar kom Sigurður Ragnar Eyjólfsson á ferðinni og skoraði með skalla. 2:3 (81.) Eftir aukaspyrnu Hjálms Dórs Hjálmssonar frá hægri skallaði Kristian Gade Jörgensen að marki KR. Kristján varði, boltinn hrökk út þar sem Julian Johnsson skaut í varnarmann, og þaðan féll boltinn fyrir fætur Jörgensens sem skoraði með skoti frá markteig. Gul spjöld: Sigursteinn Gíslason, KR (51.) fyrir brot.  Veigar Páll Gunnarsson, KR (52.) of snemma úr varnarvegg. Rauð spjöld: Engin KNATTSPYRNA Efsta deild karla, Landsbankadeild: Akureyri: KA – Þróttur ........................19.15 Laugardalur: Fram – Grindavík..........19.15 Efsta deild kvenna, Landsbankadeild: KR-völlur: KR – Breiðablik ......................20 1. deild karla: Víkin: Víkingur – Leiftur/Dalvík ..............20 2. deild karla: Húsavík: Völsungur – Víðir .......................20 Sindravellir: Sindri – Léttir ......................20 ÍR-völlur: ÍR – KS......................................19 3. deild karla A: Óafsvík: Víkingur Ó. – Drangur................20 3. deild karla B: Tungubakki: ÍH – Ægir.............................20 3. deild karla C: Dúddavöllur: Snörtur – Hvöt ....................20 3. deild karla D: Eskifj.: Fjarðabyggð – Einherji ...............20 Í KVÖLD Efsta deild karla, Landsbankadeild ÍA – KR...................................................... 2:3 Garðar Gunnlaugsson 2., Kristian Gade Jörgensen 81. - Garðar Jóhannsson 29., Sigurður Ragnar Eyjólfsson 32., 77. Fylkir 12 7 2 3 19:9 23 KR 12 7 2 3 18:15 23 Grindavík 11 6 1 4 17:17 19 Þróttur R. 11 6 0 5 19:16 18 FH 12 5 3 4 20:19 18 ÍBV 12 5 1 6 18:19 16 KA 11 4 2 5 18:17 14 ÍA 12 3 5 4 16:16 14 Valur 12 4 0 8 16:22 12 Fram 11 2 2 7 14:25 8 2. deild karla Tindastóll – KFS...................................... 2:0 Snorri G. Snorrason 29., Kristmar G. Björnsson 59. Völsungur 12 9 1 2 45:19 28 Fjölnir 13 8 3 2 37:18 27 Selfoss 13 7 2 4 28:17 23 Tindastóll 13 7 1 5 24:22 22 KS 12 5 4 3 22:19 19 Víðir 12 5 2 5 15:16 17 ÍR 12 5 1 6 22:21 16 KFS 13 4 2 7 27:35 14 Léttir 12 2 1 9 10:48 7 Sindri 12 0 3 9 16:31 3 3. deild karla B Árborg – Leiknir R. ..................................2:3 Reynir S. – Freyr ......................................8:0 Leiknir R. 11 10 1 0 53:7 31 Reynir S. 11 9 2 0 47:5 29 Árborg 11 5 2 4 38:22 17 ÍH 10 5 1 4 21:19 16 Freyr 11 5 0 6 18:37 15 Hamar 11 3 1 7 18:41 10 Ægir 10 1 1 8 10:41 4 Afríka 11 1 0 10 7:40 3  Leiknir R. og Reynir S. tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni. 3. deild karla C Reynir Á. – Magni .....................................2:2 Neisti H. – Vaskur.....................................3:4 Staðan: Vaskur 12 9 1 2 36:17 28 Magni 12 6 3 3 32:19 21 Reynir Á 12 6 3 3 22:18 21 Hvöt 11 4 3 4 23:14 15 Neisti H. 12 3 2 7 26:35 11 Snörtur 11 0 2 9 13:49 2 3. deild karla D Leiknir F. – Huginn..................................3:5 Höttur – Neisti D ......................................7:0 Staðan: Fjarðabyggð 11 8 0 3 28:12 24 Höttur 12 7 2 3 27:13 23 Huginn 12 6 0 6 26:28 18 Einherji 11 4 1 6 18:22 13 Neisti D. 12 4 1 7 16:34 13 Leiknir F. 12 4 0 8 25:31 12 1. deild kvenna B Einherji – Fjarðabyggð............................0:3 Staðan: Sindri 10 9 0 1 27:15 27 Fjarðabyggð 9 7 0 2 28:11 21 Höttur 10 7 0 3 29:16 21 Tindastóll 8 6 0 2 37:14 18 Leiftur/Dalvík 10 3 0 7 26:40 9 Einherji 9 1 0 8 9:29 3 Leiknir F 10 0 0 10 13:44 0 Opna Norðurlandamótið Drengjalandslið karla, skipað leikmönnum undir 17 ára: Noregur – Ísland...................................... 2:0 Meistaradeild Evrópu Önnur umferð í forkeppni, fyrri leikir: Tírana – Grazer AK.................................. 1:5 FK Leotar – Slavia Prag ......................... 1:2 CSKA Moskva – Vardar Skopje ............. 1:2 Pyunik Yerevan – CSKA Sofía ............... 0:2 Wisla Krakáv – Omonia Nicosia ............. 5:2 Sherif Tiraspol – Shakhtar Donetsk ...... 0:0 MTK Budapest – HJK Helsinki ............. 3:1 FBK Kaunas – Celtic ............................... 0:4 Rapid Búkarest – Anderlecht ................. 0:0 FC Kaupmannahöfn – Sliema................. 4:1 FK Partizan – Djurgården...................... 1:1 Zilina – Maccabi Tel Aviv ........................ 1:0 NK Maribor – Dynamo Kiev................... 1:1 Bohemians – Rosenborg.......................... 0:1 KR komið í vænlega stöðu ÞAÐ hefur mikið verið gert úr vonbrigðum KR-inga með sína menn í úrvalsdeildinni í sumar. Stjörnum prýtt lið þeirra hafi ekki staðið undir væntingum, gengið illa að skora mörk og safna stigum. En nú streyma mörkin og stigin á reikning Ís- landsmeistaranna. Þeir unnu í gærkvöld fjórða leik sinn í röð, lögðu Skagamenn 3:2 á Akra- nesi, og skoruðu þrjú mörk ann- an leikinn í röð, nokkuð sem þeim hafði ekki tekist í fyrstu 10 leikjum sínum í deildinni. KR- ingar eru nú jafnir Fylki að stig- um á toppnum og með þessu áframhaldi verða þeir óárenni- legir á síðasta þriðjungi Íslands- mótsins. Víðir Sigurðsson skrifar eftir en þá skaut Garðar framhjá eftir að hafa sloppið innfyrir vörn- ina vinstra megin. Og reginmunurinn á liðunum lá í Veigari Páli. Hann losnaði í þriðja sinn úr annars góðri gæslu Pálma Haraldssonar og bjó til upp á sitt eindæmi, með magnaðri rispu á vinstri kantinum, annað mark fyrir Sigurð Ragnar, 3:1. Það var síðari marktilraun KR af tveimur allan síðari hálfleikinn. Skagamenn gáfust ekki upp. Nýi Daninn þeirra, Kristian Gade Jörg- ensen, sem lék síðasta hálftímann, er sterkur og baráttuglaður sókn- armaður og hann var kraftmikill á lokasprettinum. Honum tókst að minnka muninn í 3:2 en þrátt fyrir talsverðan sóknarþunga, nokkrar hættulegar hornspyrnur og einn góðan skalla frá Dananum sem Kristján varði, náðu Skagamenn ekki að knýja fram jöfnunarmark. millibili, fyrir Garðar Jóhannsson og Sigurð Ragnar Eyjólfsson. Sá síðarnefndi kom einmitt í stað Ein- ars. Staðan orðin 2:1 fyrir KR og við það lifnaði enn frekar yfir leiknum. Hvort lið fékk tvö góð marktækifæri það sem eftir lifði hálfleiksins. Eins og við mátti búast, drógu KR-ingar sig aftar á völlinn gegn vindinum eftir hlé. Nú var komið að Skagamönnum að sækja, en þeim gekk mun verr en KR-ingum í fyrri hálfleik að skapa sér mark- tækifæri þrátt fyrir talsverða pressu. Í því lá munurinn á lið- unum. Undan vindi þarf að halda boltanum og spila sig í gegn - það gerðu KR-ingar með ágætum ár- angri í fyrri hálfleik en Skagamenn reyndu of mikið af háum og löngum sendingum sem ekki skil- uðu miklu. Þeir fengu ekki teljandi færi fyrr en stundarfjórðungur var FÓLK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.