Morgunblaðið - 31.07.2003, Side 47

Morgunblaðið - 31.07.2003, Side 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 47 HLYNUR Jóhannesson, hand- knattleiksmarkvörður úr Vest- mannaeyjum, er genginn til liðs við spænska 1. deildarliðið Tres de Mayo frá Tenerife á Kanarí- eyjum – frá norska úrvalsdeildar- liðinu Stord. Einar Þorvarðarson, einn albesti markvörður íslensks handknattleiks, lék með liðinu 1985–1987 og Víkingurinn Sig- urður Gunnarsson 1984–1987. „Þetta kom þannig til að ég var að leita fyrir mér á Spáni ásamt umboðsmanni mínum. Það mun- aði litlu að ég hefði samið við annað félag á Spáni, Oviedo, en á síðustu stundu höfðu forráða- menn Tres de Mayo samband við Sigurð Gunnarsson og spurðust fyrir um mig. Sigurður mælti með félaginu og tjáði mér að hann hefði verið mjög ánægður með veru sína á sínum tíma. Höll- in hjá félaginu tekur 5.500 manns og allar aðstæður eru hinar bestu.“ Hlynur, sem leikið hefur í Nor- egi og Danmörku undanfarin ár, heldur í vonina um að komast í landsliðið. „Ég hef verið að banka á landsliðsdyrnar undan- farin ár en það hefur ekki gengið hingað til. Aftur á móti tel ég mig núna vera kominn í mjög sterkt lið og vonast til þess að fylgst verði með mér,“ sagði Hlynur Jóhannesson í samtali við Morgunblaðið í gær. Hlynur í markið hjá Tres de Mayo á Spáni KR-INGAR hafa haft ein- staklega gott tak á Skaga- mönnum á undanförnum ár- um. Af síðustu 12 viðureignum félaganna í efstu deild hefur KR unnið 10, Skagamenn eina og einu sinni hafa liðin skilið jöfn. Sigur KR í gærkvöldi var sá fjórði í síðustu fimm heim- sóknum þeirra röndóttu á Akranes og í vesturbænum hefur KR unnið ÍA í síðustu níu leikjum. Samt er heildarútkoman í leikjum liðanna frá árinu 1946, þegar þau mættust fyrst á Íslandsmóti, enn ÍA í hag. ÍA hefur unnið 39 leiki og KR 33 en 25 hafa endað með jafntefli. ÍA hefur skorað 157 mörk en KR 141. KR-ingum hefur ekki alltaf gengið eins vel á Akranesi og á síðustu árum. Þeim tókst ekki að vinna deildaleik þar í 18 ár, frá því þeir lögðu Skagamenn 3:1 á Akranesvelli árið 1967 og þar til þeir unnu þar með nákvæmlega sömu markatölu árið 1985. Tíu sigrar KR í 12 leikjum við ÍA Þið eruð á góðu skriði í Lands- bankadeildinni. „Þetta er allt að smella saman hjá okkur og við er- um að leika vel. Íslandsmótið hefur spilast mjög furðulega og það eru allir að vinna alla. Við erum jafnir Fylki á toppnum og við erum ánægðir með það. Nú kemur smáfrí en það hefur verið mikið álag á okkur í júli. Við höfum leikið 10 leiki í mánuðnum og það hefur hjálpað okkur mikið að hafa sterk- an og breiðan hóp. Eftir fríið kom- um við ákveðnir til leiks og við verðum tilbúnir að berjast við Fylki eða hvaða lið sem er um Ís- landsmeistaratitilinn.“ Við erum í hörkufall- baráttuslag Pálmi Haraldsson, leikmaður ÍA, var mjög svekktur í leikslok en hann taldi að Skagamenn hefðu verið síst lakari aðilinn í leiknum. „Þetta var rosalega svekkjandi en við vorum ekki slakara liðið á vell- inum í kvöld. Við byrjuðum mjög vel og fyrstu tuttugu mínúturnar lékum góða knattspyrnu. Eftir það duttum við töluvert niður. Mörkin tvö í fyrri hálfleik voru mjög ódýr en við höfum fengið of oft ódýr mörk á okkur í sumar og það hefur verið okkur dýrkeypt. KR-ingar fengu ekki mörg opin færi í fyrri hálfleik en þeir nýttu þau sem þeir fengu. Í síðari hálfleik reyndum við að pressa með vindinn í bakið en það gekk ekki að þessu sinni.“ Veigar Páll var ykkur erfiður í kvöld. Veigar Páll Gunnarsson, bestileikmaður vallarins, var hinn ánægðasti í leikslok þegar Morg- unblaðið tók hann tali. „Við KR-ingar erum á góðu skriði og höfum leikið mjög vel að undan- förnu. Fylkir hefur einnig spilað vel og þetta verður barátta þessara tveggja lið ásamt Grindavík og jafnvel Þróttara um Íslandsmeist- aratitilinn.“ Þú hlýtur að vera mjög ánægður með að hafa lagt upp þrjú mörk í kvöld. „Ég náði mér vel á strik í kvöld og átti þrjár stoðsendingar. Það sem skiptir hins vegar öllu máli er að við náðum í sigur og við erum mjög ánægðir með að vera komnir upp að hlið Fylkismönnum á toppn- um.“ Kristján Finnbogason, fyrir- liði KR, var ekki ánægður með hvernig Vesturbæingar hófu leik- inn. „Við vorum alveg steinsofandi í byrjun og lendum undir eftir rúma eina mínútu. Fyrsta markið sem við fengum var algjört klaufamark af minni hálfu og varnarmannanna. Við náðum að rífa okkur upp eftir og mér fannst við vera vel stemmd- ir allan leikinn fyrir utan upphafs- mínúturnar. Við vorum að leika mjög vel og skoruðum falleg mörk en þetta var gríðarlega mikilvægur sigur. Ég tel að lið sem ætlar sér að vera í baráttu um titilinn verði að geta náð í þrjú stig á svona erfiðum heimavelli eins og Skagavöllurinn er.“ „Já, Veigar er góður leikmaður og var öflugur í leiknum. KR-liðið er með leikmenn sem eru fljótir að refsa andstæðingnum ef hann gerir smá mistök og KR-ingar gerðu það í kvöld.“ Staða ÍA er ekki glæsileg um þessar mundir í deildinni. „Ef við hefðum sigrað KR hefð- um við verið um miðja deild en veruleikinn er sá að við erum í hörðum fallbaráttuslag. Við verð- um einfaldlega að vinna að því að koma okkur í burtu frá hættusvæð- inu í næstu leikjum.“ Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði Skagamanna, segir að það sé eng- inn skjálfti kominn í leikmenn ÍA þrátt fyrir slæma stöðu í deildinni. „Það er enginn skjálfti kominn í okkur Skagamenn. Það er nóg eftir af mótinu og nú eigum við næst leik við Fram eftir rúma viku og við ætlum okkur þrjú stig í þeim leik. Í kvöld lékum við mjög vel fyrstu tuttugu mínúturnar en svo komust KR-ingar inn í leikinn. Þeir skor- uðu tvö mörk úr einu færunum sem þeir fengu í fyrri hálfleik og það var svekkjandi. Síðari hálfleikurinn var okkar eign og þeir skoruðu úr eina færinu sem þeir fengu. KR- ingar eru með frábæra sóknarleik- menn eins og Veigar Pál og það sannaðist í kvöld að það má aldrei líta af þeim. Við gerðum okkar besta í leiknum og lögðum okkur 100% fram og það er ekki hægt að fara fram á meira en það,“ sagði Gunnlaugur í samtali við Morgun- blaðið. Morgunblaðið/Arnaldur KR-ingurinn Veigar Páll Gunnarsson lék vel í gær. Hér er Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði ÍA til varnar. Við KR-ingar er- um á góðu skriði Eftir Atla Sævarsson  SNORRI Steinn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik úr Val, skoraði sex mörk fyrir Gross- wallstadt er liðið lagði Willstätt/ Schutterwald í Hessen, 27:21.  ÁRNI Gautur Arason, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, var ekki í markinu hjá Rosenborg, er liðið lagði írska liðið Bohemian að velli í Írlandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu, 1:0. Árni Gautur hefur misst stöðuna til norska landsliðs- markvarðarins Espen Johnsen.  BJARKI Gunnlaugsson lék ekki með KR á Akranesi í gær, er meidd- ur en verður tilbúinn í næsta leik. Þetta er fyrsti deildarleikurinn sem hann missir af í sumar.  MARTIN Keown, miðvörður Ars- enal, sem hefur verið meiddur, von- ast eftir að hann geti leikið með lið- inu í Skotlandsferð um helgina. Arsenal mætir Celtic á laugardaginn og Glasgow Rangers á þriðjudaginn kemur.  DAVE Jones, knattspyrnustjóri Wolves, vonar að fimm nýir leik- menn verði gengnir til liðs við Úlfana áður en vikan er liðin. Það eru leikmennirnir Henri Cam- ara, Jody Craddock, Steffen Iver- sen, Carlos Kameni og Dino Baggio, en umboðsmaður hans hefur staðfest að ef hann leiki á Englandi verði það aðeins fyrir Wolves. FÓLK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.