Morgunblaðið - 31.07.2003, Qupperneq 49
FRAMHALD hinnar meinhæðnu myndar Löggilt ljóska með Reese
Witherspoon í burðarrullu verður frumsýnt í kvöld. Heitir framhalds-
myndin Löggilt ljóska 2: Rautt, hvítt og ljóst (Legally Blonde 2: Red,
White and Blonde) og var grallaraleg forsýning sett upp á myndinni
síðastliðinn föstudag í Smárabíói. Þá fengu ljóshærðar, bleikklæddar
stúlkur að berja myndina augum í friði fyrir öðrum sem var meinaður
aðgangur þetta kvöldið. Skemmtu stúlkurnar sér hið besta og maul-
uðu popp undir nýj-
ustu svaðilförum
ljóskunnar eitil-
hörðu.
Löggilt ljóska 2 er væntanleg í kvikmyndahús
Morgunblaðið/Kristinn
Gunnhildur Ferdinandsdóttir og Anna Soffía Víkingsdóttir létu sig
engan veginn vanta í fríðan félagsskapinn sem fyllti sal Smárabíós.
Ljóskur
sameinast
Aldís og
Rakel eru
„alvöru“
ljóskur.
SHALABI Effect varð til þegar
sú hugmynd kviknaði eitt sinn að
Godspeed you black emperor!
myndi gefa út tólf-
tommu þar sem
spunahljómsveit
Sams Shalabis
fengi eina hlið til
að leika sér með.
Fyrir stuttu kom
svo út nýr diskur með Shalabi
Effect, The Trial of Saint-Orange.
Aðal Shalabi Effects er hug-
myndaríkur spuni þar sem menn
halda sig í ákveðnu stefi eða
stemmingu en fá annars lausan
tauminn í snarstefjun eða hljóm-
fræðilegum tilraunum. Austræn
hljóðfæri gefa plötunni óneitanlega
sterkan svip, en einnig má heyra
indversk eða almenn austræn áhrif
í tónlistinni. Séð hef ég tónlist
sveitarinnar lýst sem austrænni
sýru og á köflum á sú lýsing býsna
vel við. Tónlist
Austræn
sýra
Shalabi Effect
The Trial of Saint-Orange
Alien 8
Spunaverkefni sem á ættir að rekja til
Godspeed you black emperor!
Árni Matthíasson
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 49
Ingvar Helgason hf. · Sími 525 8000 · Sævarhöfða 2 ih@ih.is www.ih.is · opið virka daga kl. 9-18
Það eru alltaf frábær
tilboð í gangi á Netinu
á ih.is/notadir
notaðir bílarIngvarHelgason
TILBOÐS
BÍLAR!
STOPP
AÐALDRIFKRAFTURINN á
bak við gerð þessarar endurútgáfu
gamanmyndarinnar The In-Laws
eða Tengdaforeldrarnir, hefur lík-
lega verið sá að tefla saman tveimur
„gömlum og góðum“ leikurum, þ.e.
þeim Michael Douglas og Albert
Brooks. Tilraunin mistekst hins veg-
ar hrapalega og ná þeir Douglas og
Brooks ekki einu sinni flugtaki í
samleiknum, sem engu að síður er
ætlað að vera þungamiðja myndar-
innar. Helsta hindrunin er líklega sú
hversu illa skrifuð og klaufaleg þessi
gamanmynd er. Þar segir frá feðrum
tilvonandi brúðhjóna, þeim Steve
Tobias (Douglas) og Jerry Peyser
(Brooks). Þeir hafa aldrei hist enda
ólíkir eins og dagur og nótt. Jerry er
jarðbundinn og stífur vísindamaður,
en Steve er ævintýragjarn leyni-
þjónustumaður. Þegar brúðkaups-
undirbúningurinn er að ná hámarki
setur Steve allt á annan endann með
því að reyna að sinna leynilegri
sendiför meðfram umstanginu. Hinn
mjög svo óævintýragjarni Jerry
slæðist inn í leyniþjónustustörfin og
líst síður en svo vel á. Atburðarásin
sem fylgir er öll hin fáránlegasta, en
því miður ekkert fyndin, þannig að
sem gamanmynd missir Tengda-
foreldrarnir marks. Lítið reynir í
raun á leikhæfileika þeirra Douglas
og Brooks sem fara hvor í sína áttina
í túlkun sinni, Douglas er ýktur og
stórkarlalegur en Brooks er eins og
illa gerður hlutur megnið af tíman-
um. Skiljanlega nokk, þar sem einn
af „gamanhápunktum“ myndarinnar
er atriði þar sem Jerry neyðist til að
fara í heita pottinn í g-strengssund-
buxum með frönskum eiturlyfja-
barón. Það atriði kallar ekki á mikla
leiktilburði frekar en önnur atriði
myndarinnar, sem reynt er að
hressa upp á í endurgerðinni með
nokkrum Bond-legum áhættuatrið-
um. Ef eitthvað er ætti fólk frekar að
fara út á myndbandaleigu og leigja
sér upprunalegu myndina frá árinu
1979, sem hefur til að bera öllu dýna-
mískari samleik þeirra Peters Falk
og Alans Arkin.
Heiða Jóhannsdóttir
Dauflegur samleikur
Brooks og Douglas skeggræða.
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Regnboginn
THE IN-LAWS / TENGDAFORELDRARNIR
Leikstjórn: Andrew Fleming. Handrit: Nat
Mauldin, Ed Solomon, byggt á handriti
Andrews Bergman. Aðalhlutverk: Mich-
ael Douglas, Albert Brooks, Candice
Bergen, Ryan Reynolds, Lindsay Sloane.
Lengd: 95 mín. Bandaríkin.
Warner Brothers, 2003.
Svindlarar
(Cheats) Gamanmynd
Bandaríkin 2001. Myndform. VHS (86
mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjóri:
Andrew Gurland. Aðalhlutverk: Trevor
Fehrman, Elden Henson, Mary Tyler
Moore.
ÞEIR voru kallaðir vandræða-
gemlingar, unglingarnir sem dirfð-
ust að reyna að leika á háæruverð-
ugt skólakerfið og hvimleiða stétt
kennaranna. Svindlarar fjallar um
fjögur slík óalandi og óferjandi
ungmenni við bandarískan
menntaskóla. Erkifjendur hvass-
brýnds skólastjórans (Moore).
Hvað skal segja? Svindlarar eru
í sjálfu sér ekki
vond heldur
ósköp venjuleg
unglingagrín-
mynd sem kem-
ur ekki með
neitt ferskt og
nýtt inn í þann
staðnaða geira.
Leikhópurinn
er skipaður ungum og sætum smá-
stirnum sem eru ámóta auðgleymd
og tilþrifalaus og myndin. Þess
skal þó getið að handritið býður
ekki upp á teljandi tjáningargleði.
Upp úr þessum dáfríða vonar-
peningi rís fáséð andlit Mary Tyler
Moore, sem var umtalsverð sjón-
varpsstjarna á sínum blómaárum.
Hver veit nema að það leynist
framtíðarstjarna í leikhópnum?
Hinsvegar er ósennilegt að nokk-
urn tíma rætist úr handritshöfund-
inum.
Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Nemendur
og kennarar