Morgunblaðið - 31.07.2003, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 31.07.2003, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Sími 588 1200 Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga Gjaldey ris- gla›nin gur! ÚTLENDINGAR keyptu íslensk skuldabréf fyrir 16 milljarða króna á fyrri hluta ársins en á sama tímabili í fyrra námu kaupin 6,7 milljörðum. Aukningin nemur rúmum 9 milljörð- um króna. Hér er þó aðeins um að ræða bein kaup erlendra aðila en meginþorri kaupa erlendra aðila á ís- lenskum skuldabréfum er í gegnum afleiðusamninga en þá fara kaupin fram í nafni viðskiptabankanna. Ingimundur Friðriksson, banka- stjóri Seðlabanka, segir ástæðu auk- ins áhuga erlendra fjárfesta á ís- lenskum skuldabréfum einfalda. „Það er tiltölulega góð ávöxtun á ríkistryggðum bréfum miðað við það sem býðst annars staðar og þá meðal annars í samanburði við það sem býðst af verðtryggðum skuldabréf- um í öðrum löndum, þar sem þau á annað borð standa til boða. Það er líka staðreynd að íslenskar fjármálastofnanir hafa gert töluvert af því að kynna þessi bréf á alþjóða- markaði og markaðssetning þeirra er kannski að skila árangri.“ Ingimundur segir þessar tölur sýna að engar hömlur séu á fjárfest- ingum af þessu tagi á milli Íslands og annarra landa. Útlendingar kaupa íslensk skuldabréf fyrir 16 milljarða  Aukinn/B8 FJÓRBURARNIR Alexandra, Brynhildur, Diljá og Elín Guðjóns- dætur áttu ekki von á svo mikilli at- hygli fjölmiðla þegar þær fóru í tvær heimsóknir til Bretlands í sumar. Þrír sjónvarpsfréttamenn ræddu við þær, frá BBC, ITV og Sky News, auk blaðamanns héraðs- fréttablaðsins Cambridge Evening News. „Ætli það sé nú ekki út af því að við erum fjórar,“ sagði Diljá að- spurð hvers vegna kastljós fjöl- miðlanna beindist svo mjög að þeim. Fjölmiðlamennirnir vildu ræða við þær í tilefni af 25 ára afmæli Louise Brown, fyrsta glasabarns- ins, sem haldið var upp á 26. júlí sl. Boðið var til heljarmikillar veislu við Bourn Hall, sjúkrahúsið og rannsóknarstöðina þar sem Robert Edwards prófessor og dr. Patrick Steptoe fundu upp aðferðina til tæknifjóvgunar. Þar voru eggin, sem síðar urðu að systrunum fjór- um, frjóvguð. Og að sjálfsögðu þáðu systurnar boðið. Þær sáu þó ekki mikið til afmælisbarnsins enda var rúmlega þúsund börnum, sem eiga rætur sínar að rekja til Bourn Hall-sjúkrahússins, boðið í afmælið. Faðir þeirra segir veisluna reyndar hafa verið hálfgert ættarmót. Þetta var önnur ferð systranna til Bretlands í sumar. Þær voru í sumarfríi á sömu slóðum í júní og var þá m.a. tekið blaðaviðtal við þær í tengslum við afmælisveislu Louise. Sem betur fer ólíkar Systurnar eru fjóreggja og eru ólíkar eftir því, a.m.k. í útliti. „Sem betur fer,“ segir ein og hinar taka undir. Þær myndu líklega fá enn meiri athygli ef þær bæru með sér að vera fjórburar. Aðspurðar segja þær að sú staðreynd að þær séu fjórburar hafi fremur lítil áhrif á líf þeirra, a.m.k. séu áhrifin ekkert alltof mikil. Í skólanum séu þær að sjálfsögðu kallaðar fjórburarnir og afmælisveislur séu varla haldnar lengur. Svo séu þær allar feimnar. Fjórburasysturnar Diljá, Elín, Alexandra og Brynhildur í afmælisveislu Louise Brown. Milli þeirra er Robert Edw- ards prófessor og foreldrar þeirra, Guðjón S. Valgeirsson og Margrét Þóra Baldursdóttir, fyrir aftan. „Af því að við erum fjórar“ Fjórburasystur vöktu athygli í afmælisveislu Louise Brown ÞURRKAR á Vesturlandi í sumar hafa valdið því að víða er lítið um vatn og er svo komið að flytja þarf vatn daglega með ferjunni Baldri út í Flatey á Breiðafirði. Þá eru ár mjög vatnslitlar í Borg- arfirði. Hafsteinn Guðmundsson, bóndi í Flatey, segir að einungis sé jarð- vegsvatn í eynni sem þorni upp við langvarandi þurrka eins og nú eru. „Það er mjög jarðgrunnt al- staðar, að nokkrum mýrum und- anskildum,“ segir hann. Um helgar fer mannfjöldinn upp í 100 manns í eynni og jafnvel meira, en vatnsþörfina allajafna er erfitt að meta, að sögn Haf- steins. Vatnsþörf veitingastofu í eynni er um 1 tonn á dag. „Fólk er farið að spara vatnið og vatns- flutningar eru hafnir frá Brjáns- læk og Stykkishólmi. Að meðaltali held ég að það komi á annað tonn af vatni daglega.“ Norðurá í Borgarfirði hefur aldrei verið eins vatnslítil og í sumar, þótt rigningar undanfarna daga hafi hjálpað til. Veiði hefur jafnhliða aukist, að sögn Rafns Ásgeirssonar, bónda á Svarfhóli. Í Varmalandi hefur verið vatns- skortur að því er hann hefur frétt og Hreðavatn er mjög vatnslítið. „Árnar hafa verið vatnslausar, en það er að kvikna svolítið í þeim núna,“ segir hann. „Norðurá hef- ur aldrei verið eins vatnslítil að því er mig rekur minni til og eyr- arnar eru alveg þurrar. Hún er farin að vaxa núna í rigningunum og veiðin hefur aukist við það.“ Að sögn veiðimanns, sem var við veiðar í ánni Fáskrúð, rétt innan við Búðardal, í þessum mánuði, hefur áin aldrei verið eins vatnslítil þau þrjú ár sem hann hefur veitt í henni. Vatnsskortur á Vesturlandi segir til sín Daglegir vatnsflutn- ingar hafnir út í Flatey MAGNÚS Örn Sigurjónsson, 8 ára, fann gúmmíönd sjórekna í fjörunni suður af Pétursey í Mýrdal í byrjun maí. Þetta mun vera, eftir því sem best er vitað, fyrsta öndin af þessu tagi sem rak á fjörur Íslands, en hún hafði ásamt 29 þúsund öðrum öndum flotið úr gámi í Kyrrahafi fyrir ellefu árum. Fylgst hefur verið með ferða- lagi þeirra æ síðan. Nokkrar endur hafa sést við austurströnd Banda- ríkjanna, en talið var að sumar myndu fljóta til Kanada, Íslands eða jafnvel Bretlands. Að sögn föður drengsins, Sigur- jóns Eyjólfssonar, bónda í Pétursey, hafa þeir feðgar ekki enn gert fyrir- tækinu US-Based viðvart, en það hefur heitið þeim sem finna gúmmí- endurnar í fjöru 100 dollara verð- launum. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Gúmmíöndin komin til Íslands LÖGREGLAN á Blönduósi stöðvaði frönsk hjón á húsbíl við Þrístapa í Þingi á mánudag. Ástæða þessa var ekki of hraður akstur heldur það að með í för hjónanna var köttur. Þar sem ólöglegt er að flytja lifandi dýr inn í landið nema að undangenginni einangrun var haft samband við yfir- dýralæknisembættið og í samráði við það var kötturinn aflífaður. Frönsku ferðamennirnir, sem komu til landsins með Norrænu, tóku þessari niðurstöðu afar illa og neydd- ist lögregla til þess að handtaka þá og gistu hjónin fangaklefa lögreglunnar á Blönduósi þar til starfsmaður franska sendiráðsins kom og ræddi við þau daginn eftir. Þrístapar, þar sem hin frönsku hjón með köttinn voru stöðvuð, er þekktur fyrir það að þar fór fram síðasta aftaka á Íslandi. Franskur köttur aflífaður Blönduósi. Morgunblaðið. ♦ ♦ ♦ FORYSTUMENN R-listans segjast taka skýringar Þórólfs Árnasonar borgarstjóra á aðkomu hans að meintu samráði olíufélaganna trúan- legar. Borgarfulltrúar R-listans hittu Þórólf á fundi í fyrrakvöld, þar sem borgarstjóri gerði grein fyrir aðild sinni að málinu. Árni Þór Sigurðsson, forseti borg- arstjórnar, segir enga ástæðu til að rengja borgarstjóra í þessu máli. Hann segir borgarfulltrúa R-listans hafa spurt Þórólf um einstaka þætti málsins á fundi þeirra, og miðað við þau gögn sem lægju frammi hefðu þeir ekki ástæðu til að draga orð Þór- ólfs í efa. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrr- verandi borgarstjóri og fulltrúi óháðra á Reykjavíkurlistanum, segist standa við bakið á Þórólfi. Hún segir ástæðu þess að Þórólfur hafi verið fenginn til starfa sem borgarstjóri vera þá, að R-listinn treysti honum, og henni þyki hann hafa gert heið- arlega, og af einlægni, grein fyrir að- komu sinni að þessum málum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, seg- ir hins vegar viðtalið við borgarstjóra sem birtist í Morgunblaðinu í gær sýna að borgarstjóri hafi verið virkur þátttakandi í samráði olíufélaganna. Hann bendir á að R-listinn beri ábyrgð á ráðningu Þórólfs í embætti borgarstjóra, og segir forvitnilegt að fylgjast með framvindu málsins. Forystumenn R-lista Treysta borgar- stjóra  Taka skýringar / 28–29 LÖGREGLAN á Akranesi lagði hald á 218 e-töflur og 50 grömm af hassi í fyrrakvöld. Efnin fundust á víðavangi og voru fjarlægð en lögregla fylgdist með því þegar efnanna var vitjað. Voru tveir menn handteknir á vett- vangi og aðrir tveir síðar. Rannsókn málsins stendur yfir og tveir menn í haldi. Talið er víst að efnin hafi átt að fara í sölu í Eyjum um verslunarmanna- helgina og að söluverðmæti þeirra geti numið um einni milljón kr. Fundu e-töfl- ur og hass

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.