Morgunblaðið - 07.09.2003, Page 1
Strákarnir
á Strikinu
Pétur Blöndal talaði við Bjórbandið
sem treður upp á Strikinu Fólk 48
FÉLAGAR í kirkjukór Ólafsvíkur létu ekki
kalsaveður og rigningu trufla sig og slógu
kirkjugarðinn í bænum í gríð og erg. Var
garðurinn sleginn í fjáröflunarskyni þar
sem kórfélagar hyggjast senn bregða undir
sig betri fætinum og fara í kórferðalag til
Þýskalands. Hér er það Bjarni Ólafsson sem
mundar ljáinn og greinilegt að þar er eng-
inn veifiskati á ferð.
Maðurinn með ljáinn
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
STOFNAÐ 1913 241. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Dallas
Mavericks
Liðið sem Jón Arnór Stefánsson
er genginn til liðs við 14
Allt eða
ekkert
Ný Mike Leigh-mynd á
Breskum bíódögum B7
ALLT útlit er fyrir að yfir
20 ný íslensk leikverk
verði frumflutt á fjölum
leikhúsanna í vetur. At-
hygli hefur vakið að Þjóð-
leikhúsið boðar frum-
flutning 8 nýrra íslenskra
verka í vetrardagskrá
sinni. Rætt er við höfund-
ana átta í Sunnudags-
blaðinu í dag.
Erfitt er að staðhæfa hvort met verði slegið í
frumflutningi nýrra íslenskra leikverka í vetur.
Ekki síst vegna þess að sjálfstæðu leikhóparnir
hafa venjulega verið sérstaklega duglegir við að
sýna ný íslensk leikrit. Vetrardagskrá þeirra hefur
enn ekki verið formlega kynnt. Langflestir af við-
mælendum Morgunblaðsins telja þó að óvenju
mörg íslensk leikverk verði á fjölunum í vetur.
María Kristjánsdóttir, leikstjóri og leikhúsfræð-
ingur, segir erfitt að skilja hvers vegna nánast allt
í einu svo stór og fríður hópur skuli finna hvöt hjá
sér til að skrifa leikrit. „Staða íslensks leikhúss og
leikhúsfólks hefur verið fremur veik síðastliðinn
áratug. Sjálfhverft spaug og snyrtimennskuglæpir
hafa aðallega verið ástundaðir til þess að lifa af í
hörðum heimi markaðsþjóðfélagsins, m.a. á kostn-
að íslenskra leikritahöfunda sem gjarnan hefur
verið litið á sem einnota vöru.“
Yfir 20 ný
íslensk verk
á fjölunum
Sunnudagur/1
Þjóðleikhúsið boðar
frumflutning 8 nýrra
íslenskra verka
SKJÁR tveir og Ríkissjónvarpið eru með í
undirbúningi tilboð í sjónvarpsréttinn að
ensku úrvalsdeildinni og ensku bikarkeppn-
inni, sem nú er hjá Norðurljósum, en rennur
út í vor.
Að sögn Helga Hermannssonar, dagskrár-
stjóra Skjás tveggja, verður að öllum líkind-
um boðið í sjónvarpsréttinn í samstarfi við
RÚV. „Við stefnum að því að fá réttinn til
okkar frá og með næsta hausti. RÚV kæmi
þá til með að sýna laugardagsleikina og Skjár
tveir myndi sitja að sunnudags-, mánudags-
og miðvikudagsleikjunum. Þetta samstarf
gæti orðið fyrirmyndarhjónaband og báðum
stöðvum til framdráttar.“
Ætla að bjóða í
enska boltann
Systurstöðvar vinna/11
NÝ háplöntutegund, haustlyng,
verður á næstunni skráð í flóru Ís-
lands, en plantan fannst á jörðinni
Felli í Mýrdal í vikunni. Ágúst H.
Bjarnason, grasafræðingur við
Menntaskólann við Sund, segir
þetta einstakan fund, en mörg ár
eru síðan ný tegund hefur verið
skráð í flóru Íslands. Það er ekki
síður sérstakt við þennan fund að
tegundarinnar er getið í gamalli
plöntuskrá frá árinu 1820, en síðar
var talið að um ranga greiningu
hefði verið að ræða.
Plöntuna fann Brynja Jóhanns-
dóttir meinatæknir þegar hún var í
göngu í Mýrdalnum fyrr í vikunni.
Í flórubók frá árinu 1942 er sagt
frá eintaki af haustlyngi í Grasa-
safninu í Kaupmannahöfn, sem
„Thorarensen“ hafi safnað á Ís-
landi, en þess jafnframt getið, að
hér hljóti að hafa orðið einhver
ruglingur við merkingar og því
beri að strika tegundina alfarið út
úr flóru Íslands.
Haustlyng ný planta í flóru Íslands
GETIÐ í gamalli plöntuskrá frá
árinu 1820, en síðar talið að um
ranga greiningu hefði verið að ræða. Fann nýja/4
Haustlyng í Mýrdal
Ljósmynd/Ágúst H. Bjarnason
SEX manns létust og 25 slösuðust
þegar bílsprengja sprakk á stærsta
ávaxtaheildsölumarkaðinum í Srin-
agar í indverska hluta Kasmírhér-
aðs í gær. Sumir hinna slösuðu eru í
lífshættu og gæti því tala látinna átt
eftir að hækka, að sögn fulltrúa
landamæralögreglunnar. Herská,
pakistönsk samtök lýstu ábyrgð á
tilræðinu á hendur sér, en Indverj-
ar og Pakistanar deila um yfirráð í
Kasmír.
AP
Sex létust
í Kasmír
MAHMOUD Abbas, forsætis-
ráðherra Palestínumanna,
sagði af sér í gærmorgun, en
vinsældir hans meðal almenn-
ings hafa minnkað mikið und-
anfarið og hann hefur átt í
langvinnri valdabaráttu við
Yasser Arafat, æðsta leiðtoga
Palestínumanna.
Ísraelar sögðu að þrátt fyrir
að Abbas gegndi ekki lengur
embætti forsætisráðherra yrði
hann áfram eini maðurinn sem
þeir væru tilbúnir til friðarvið-
ræðna við á grundvelli alþjóð-
legu friðaráætlunarinnar er
nefnd hefur verið Vegvísir.
Bæði Ísraelar og Bandaríkja-
menn hafa reynt að sniðganga
Arafat, sem þeir segja kynda
undir hryðjuverkastarfsemi.
Um hádegi í gær var Arafat
sagður enn ekki hafa ákveðið
hvort hann myndi fallast á af-
sagnarbeiðni Abbas.
Nokkrar líkur höfðu verið
taldar á að Abbas myndi ekki
standa af sér vantrauststillögu
er leggja átti fram á palest-
ínska þinginu síðar í vikunni,
en palestínskir embættismenn
sögðust í gær óttast að afsögn
hans myndi leiða til aukins
glundroða.
Abbas hefur átt í sífelldum
erjum við Arafat, að sögn að-
stoðarmanna hans. Einnig hef-
ur snaraukinn fjöldi hryðju-
verka í Ísrael undanfarið
grafið mjög undan Vegvísinum,
og komið illa við Abbas, sem
tók við forsætisráðherraemb-
ættinu í apríl, eftir að palest-
ínskir forystumenn voru beittir
miklum þrýstingi á alþjóðavett-
vangi.
Forsætisráðherra Palestínumanna segir af sér
Talið mikið bakslag
í friðarumleitunum
Reuters
Dvínandi vinsældir
VINSÆLDIR Mahmouds Abb-
as meðal almennings hafa farið
dvínandi, en álitið er að honum
hafi mistekist að auka lífsgæði
Palestínumanna.
Ramallah, Jerúsalem. AP, AFP.