Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 21
var kominn fram hjá bænum Skarði og yfir Goðdalsána sá ég móta fyrir langri lest þar sem hún liðaðist sem leið liggur að mynni Goðdals. Þegar nær kemur sést hvers kyns er. Á marga hesta eru bundnar langar stál- pípur sem þeir draga á eftir sér og verður af þessu mikill og óslitinn há- vaði sem berst út yfir alla sveitina. Páll bróðir Jóhanns ætlar að leiða vatn í fjárhúsin sín og var að sækja sér efni til Hólmavíkur. Mér varð rórra þegar ég sá Pál og þessa frið- sömu útgerð hans þokast áfram inn Goðdalinn. Haust fór nú að og sumarverkin að baki þar á meðal mótekja en til henn- ar hafði verið gripið þegar færi gafst. Vorum við Jónas þá settir til að kljúfa kögglana, reisa flögurnar og raða þeim til þerris. Einnig voru teknir upp garðávextir, farið til berja og fleira gert sem ljúka þurfti áður vetur gengi í garð. Nú var aðeins eitt stór- ævintýrið eftir sem var að heimta féð ofan af heiðum. Ég var svo lánsamur að fá að fara með í göngurnar og fannst mikið til um það. Leitarflokk- urinn lagði af stað ríðandi um miðja nótt í þokudumbungi og var farið langt inn á heiðarnar í vestri. Undir morgun stigu menn af hestum sínum en hrossahópinn rak síðan ofan í byggð Kristmundur faðir Jóhanns. Var nú hverjum og einum fengið svæði til smölunar og hófst svo gang- an til austurs í átt að Bjarnarfirði. Fljótlega mynduðust litlir fjárhópar sem runnu síðan saman í stærri söfn. Þegar á daginn leið voru gangna- menn farnir að nálgast byggð og komnir niður í dalina inn af Bjarn- arfirði en mér var ætlað að smala í miðri vesturhlið Tungukotsfjalls; lenti ég annað veifið í bröttum skrið- um og þurfti þá að hafa mig allan við að bjarga mér fremur en að stugga við fénu. Allt blessaðist þetta samt og safnið sem sífellt stækkaði rakst vel fram dalinn í átt að Bjarnarfirði en þar voru réttirnar skammt frá bæn- um Skarði. Þegar almenningurinn var orðinn þétt skipaður tóku menn að draga úr og undir kvöld sáust bændur reka hver sinn fjárhóp heim á leið. Snúningar voru miklir flesta daga þetta sumar og allir sem gátu valdið einhverju amboði inntu verk af hendi. Liðið var sumar í íslenskri sveit og nú rann upp skilnaðarstundin. Við komuna í Goðdal hafði mér verið tek- ið með þokka án íburðar og greind- arlegri forvitni. Sumarið hafði liðið við hin margvíslegustu störf og jafn- vel börnin skildu lögmál þjóðlífsins sem kvaddi sérhvern vinnufæran mann til starfa um bjargræðistímann svo hlöður mættu fyllast fyrir vetur- nætur; enginn kinokaði sér þegar þurfti að taka til hendinni. En lífið var ekki einber vinna, menn gerðu sér dagamun, líka um háannatímann. Um mitt sumar var samkoma á Svanshóli og margt til skemmtunar. Í ágúst kom Anna systir Jóhanns í heimsókn. Anna var sest að í Reykja- vík og höfðum við kynnst henni þar móðir mín og ég; áttum við sameig- inlega vini og mikið trygglyndi þar á báða bóga. Anna, sem var mikil skyn- semdar- og staðfestumanneskja, hafði komið auga á þennan mögu- leika, að koma mér til sumardvalar í Goðdal. Þegar leið að hausti var haldin há- tíð á heimilinu, líklega töðugjöld. Voru allir þá uppábúnir og margs- konar góðgæti borið fram. Guðbjörg kom þar mikið við sögu, mikil mynd- arkona bæði í sjón og raun. Eftir margar og strangar vinnuvikur verða svona dagabrigði ógleymanleg. Kveðjustundin var blátt áfram. Heimilisfólkið kom út á hlað að kveðja mig. Ég hafði áður þakkað Jó- hanni vistina en hann var þessa stundina að vinna við þakið á nýja húsinu sínu; hann kallaði til mín um leið og ég sté á bak hestinum og sagði: „Þú átt hjá mér eina kind, Em- il, og munt heyra frá mér.“ Og viti menn, mánuði síðar fékk ég sendi- bréf; í því var kveðja frá Jóhanni og með henni splunkunýr 50 króna seðill sem þá var talsverður peningur og nægði fyrir alklæðnaði. Svona var Jó- hann í Goðdal: Orðheldinn dreng- skaparmaður. Lokakafli Þegar ég hugsa til sumarsins í Goðdal 1938 líður um hugann þægi- legur andblær frá góðu fólki sem gekk að verkum sínum með merki- lega upphöfnu hugarfari og sjálfs- trausti. Aldrei heyrðist víl á neinum og menn kipptu sér ekki upp við smá- muni. Ég kom inn í þessa veröld og hvarf frá henni aftur reynslunni rík- ari; hef ég líklega aldrei komist nær hinu sanna og raunverulega Íslandi svo sem það var fram að heimsstyrj- öldinni síðari. Fyrir þetta má ég vera þakklátur og þótt samband mitt við þennan stað hafi rofnað á ég þaðan góðar minningar sem ekki ber skugga á. Það sem gerðist í Goðdal tíu árum síðar og snart alþjóð djúpt sundraði þessu ræktaða mannlífi. Þrjú börn þeirra Goðdalshjóna, sem voru að heiman, urðu ekki fyrir full- um þunga þeirra atburða og héldu áfram sína ævibraut. Þau bera með sér hluta af menningarsögu þjóðar- innar og mega hugsa með þakklæti og stolti til foreldra sinna og áranna góðu í dalnum heima. Gáfurnar í þessum stofnum hafa nú fundið sér nýja farvegi og nýjar lendur. Synir Svanborgar og Jóhanns í Goðdal, þeir Bergþór grasafræðingur og Haukur verkfræðingur, eru nú virtir mennta- og vísindamenn. Hinar nýju bújarðir þeirra er að finna í hugmyndasmiðj- um ríkjandi framfaraskeiðs og í rann- sóknarumhverfi því sem dafnar í skjóli Háskóla Íslands. Hinn 12. desember 1948 klukkan 6 að kveldi hvarf Goðdalsbærinn undir mikla snjóskriðu; þakið tók af og hús- ið þéttfylltist; allt heimafólkið 7 manns grófst svo kirfilega að enginn gat hreyft legg né lið. Það var ekki fyrr en eftir fjóra sólarhringa að ná- grönnum varð kunnugt um slysið en þá voru allir látnir nema bóndinn Jó- hann Kristmundsson, sem lifði nokk- ur ár eftir að skriðan féll. Höfundur er læknir. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.