Morgunblaðið - 07.09.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
! "
#
"
$$
! %
Flest er nú farið að rata í matarkörfu Bónusfeðga.
Gestafyrirlesari á viku símenntunar
Áhersla á net-
færa kennara
BRESKI fræðimað-urinn Gilly Salm-on, sérfræðingur í
kennslufræðum í netum-
hverfi, er væntanleg til
landsins á morgun en
hún verður aðalfyrirles-
ari og gestur Viku sí-
menntunar sem hefst í
dag. Fyrirlestur Gilly
verður á þriðjudaginn og
fjallar um það sem hún
kallar E-miðlun og er
hennar skilgreining á því
hlutverki sem kennarar
og þjálfarar taka að sér
þegar þeir kenna á net-
inu. Leggur hún áherslu
á nauðsyn þess að veita
kennurum þjálfun til þess
að takast á við nýjar
kennsluaðferðir. Þegar
hún er spurð hvað felist í
skilgreiningunni, segir
hún:
„Þegar kennt er á netinu og
ekki hægt að sjá bekkinn, þýðir
það að kennarinn þarf að til-
einka sér nýja hæfni til þess að
hjálpa bekknum að vinna saman.
Meðal þess sem hann þarf að
kunna er að tryggja það að allir
séu þátttakendur og að átta sig
á því að þeir sem eru að tengja
sig inn í tímann hjá honum er á
ólíkum stöðum og eru með ólíkt
tímaplan. Það er afar mikilvægt
að kennarinn tileinki sér þessa
hæfni vegna þess að nemend-
urnir sem eru að vinna á netinu
hafa hana þegar. Þeir eiga
stundum auðveldara með að
vinna í netumhverfi en kenn-
ararnir.“
Salmon er lektor við við-
skiptaháskóla sem eingöngu
kennir í fjarnámi. Þar stunda
fimm þúsund nemendur nám,
svo hún hefur haft fyrirtaksað-
stöðu til þess að rannsaka hvers
konar hæfni kennari þarf að
ráða yfir og hvernig hægt er að
hjálpa honum að ná þeirri hæfni.
„Í fyrirlestri mínum mun ég
ræða um þær leiðir sem kenn-
arar og þjálfarar í netkennslu
geta sjálfir lært þar og í kjölfar-
ið hvatt nemendur sína til þess
sama. Sjálf er ég með þjálfunar-
námskeið sem eru alþjóðleg og
þau eru sótt af nemendum frá
hverri einustu álfu heimsins.
Þeir æfa leikni sína hver á öðr-
um áður en þeir fara að beita
henni á nemendur sína.
Annað vandamál sem við höf-
um staðið frammi fyrir er að til-
tölulega lágt hlutfall nemenda
lýkur námi á netinu, en ef við
hjálpum hópum til þess að vinna
saman, er hægt að örva þá til
þess að ljúka námskeiðum – og
þar með verður aukin þekking
til.“
Sérðu þetta fyrir þér sem
kennsluaðferð framtíðarinnar?
„Já. Ég álít að sú auðlind sem
netið og margmiðlunin búa yfir
eigi eftir að skipa stöðugt stærri
sess á öllum skólastigum. Það
verða áfram kennarar og það
verða áfram bekkja-
deildir í skólum, en
kennarar munu þróast
yfir í það að blanda
saman sínum aðferð-
um og þeim möguleik-
um sem netið býður upp á.“
Þegar þú talar um öll skóla-
stig, á það þá einnig við grunn-
skóla?
„Já, það er hægt að kenna
mjög ungum börnum að komast
í samband við annað fólk sem
hefur svipuð áhugamál og það er
hægt að kenna þeim að nota
netið sem stórkostlegt bóka-
safn.“
Þurfa þau ekki að hafa tölu-
verðan sjálfsaga til þess?
„Þar kemur kennarinn til
skjalanna. Hann verður að
kunna að hjálpa þeim. Þess
vegna byrjum við á því að þjálfa
þá í E-miðlun.“
Hversu margir þátttakendur
eru á fjarnámskeiðunum sem þú
kennir?
„Bara á fyrstu átta mánuðum
þessa árs hafa sex hundrað há-
skólakennarar tekið þátt í nám-
skeiðunum hjá mér. Þar að auki
bjóða flestir breskir háskólar
kennurum sínum upp á nám-
skeið af þessu tagi.“
Hefur tæknin þróast hraðar
en hæfni mannsins til að takast
á við hana?
„Tæknin breytist stöðugt.
Hún á eftir að verða hraðari og
fjölbreyttari, en aðalatriðið er að
þjálfa netfæra kennara.“
Er nóg af þeim nú þegar?
„Nei, fæstir kennarar hafa
nægilegt sjálfsöryggi til að bera
til þess að gerast netkennarar.
Þess vegna er nauðsynlegt að
bjóða þeim upp á þjálfun til þess
að byggja upp öryggi þeirra og
þá á ég ekki við hina tæknilegu
hlið málsins, heldur þær aðferð-
ir sem notaðar eru til þess að
kenna fjarnemendum.
Mín skilaboð eru raunveru-
lega þessi: Við höfum
mikið af nýrri tækni.
Sumt er gott, sumt er
ekki gott, en það er
hlutverk hins mann-
lega milliliðar sem
skiptir höfuðmáli. Flestir kenn-
arar vilja kenna og flestir fyr-
irlesarar vilja halda fyrirlestur á
þann hátt sem þeim sjálfum var
kennt. Það er sjaldgæft að sú
kennsla hafi náð til tölvunnar.
Það er því mikilvægt að við
bjóðum þeim upp á kerfi og
ramma svo þeir geti sjálfir verið
þátttakendur í netumhverfinu
með góðum árangri.“
Gilly Salmon
Gilly Salmon er einn virtasti
kennari viðskiptaskóla Opna há-
skólans í Bretlandi. Eftir farsæl-
an feril sem stjórnandi í við-
skiptalífinu, sneri hún sér að
fræðistörfum og kennslu. Hún
hlaut sína fyrstu gráðu í sálfræði
í fjarnámi og síðar mastersgráðu
í kennslustjórnun. Um þessar
mundir stundar hún rannsóknir
á aðferðum í kennslustjórnun á
netinu, auk þess sem hún starfar
sem ráðgjafi fyrir stjórnendur
fyrirtækja þar sem helstu fyr-
irlestraraðir hennar eru „Stjórn-
endur á nýrri þúsöld“ og „Konur
til stjórnunarstarfa“.
Kennslu-
aðferð
framtíðar
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122