Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 53 KEFLAVÍK Sýnd kl. 2og 4. Stórsmellur úr smiðju Jerry Bruckheimer og Disney sem stefnir hraðbyri að vera vinsælasta mynd sumarsins í USA. ll i j i i i i i l i í . 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! í f i t tl ! KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL  Skonrokk FM 90.9 YFIR 39.000 GESTIR! Frábær tónlist, m.a. lagið Times like these með Foo Fighters ÁLFABAKKI kl. 2, 4 og 6. Ísl tal. AKUREYRI kl. 2 og 4. Ísl tal. ÁLFABAKKI kl. 8. Enskt tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 1.45 og 3.50. Ísl tal KRINGLAN Sýnd kl. 1 og 3. Ísl tal Síðasta og besta myndin í seriunni. Nú verður allt látið flakka. ÁLFABAKKI Kl. 1.45, 3.50, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12. AKUREYRI Kl. 6, 8 og 10. B.i. 12. AKUREYRI Kl. 5.40. B.i. 10. KEFLAVÍK Kl. 6, 8 og 10. B.i. 12. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 2, 5, 7.45 OG 10.15. ÁLFABAKKI Kl. 1.30, 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 10 KRINGLAN Kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 10 Sýnd áklukkutímafresti ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2, 4 og 6. Með íslensku tali AKUREYRI Sýnd kl. 2 og 4. KRINGLAN Sýnd kl. 1, 2, 3, 4, 5. Með íslensku og enksu tali. Með íslensku tali.  KVIKMYNDIR.IS Ofurskutlan Angelina Jolie er mætt aftur öflugri en nokkru sinni fyrr í svakalegustu hasarmynd sumarsins! KEFLAVÍK Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. ÞAÐ væri ofsögum sagt að dúóið The Neptunes væri á hvers manns vörum við matarborðið á heimilinu en tónlistin sem Pharrell Williams og Chad Hugo gera hefur þrátt fyrir það hljómað víða. Þeir eru ábyrgir fyrir að hafa komið nýjum hljómi inn í rapp- og síðar poppheiminn með einstökum stíl sínum. Pharrell og Chad hafa unnið með heilmörgum stjörnum og oftar en ekki lappað upp á feril þeirra. Justin Timberlake breyttist úr poppdreng í poppgoð með „Rock Your Body“ og Britney Spears var ekki lengur lítil stelpa í skólabúningi heldur töff og fullvaxta söngkona eftir „I’m a Slave 4 U“. Ennfremur eru þeir ábyrgir fyrir „Hot in Herre“ með Nelly, „I Just Wanna Love U (Give It to Me)“ með Jay-Z og „Got Your Money“ með Ol’Dirty Bastard, svo eitthvað sé nefnt til að varpa ljósi á áhrif þess- ara upptökustjóra og undra- tónlistarmanna. Á toppinn í Bandaríkjunum Þar með er ekki sagt að þeir hljómi alltaf eins því þeir vinna með fjölbreytilegustu tónlistarmönnum. „Við tökum það besta úr öllum stefnum. Tónlistin kemur úr mörg- um áttum. Þetta snýst ekki um hvað þú notar heldur hvernig þú notar það,“ hefur Pharrell sagt. Þrátt fyrir þetta hafa Pharrell og Chad neitað ýmsum verkefnum á síðustu mánuðum til að vinna að sínu eigin. Útkoman er platan The Nept- unes present… Clones, sem fór beint á toppinn á Billboard-listanum í Bandaríkjunum og er nú í þriðja sætinu eftir tvær vikur á lista. Á plötunni taka þeir á sig hin ýmsustu form og vinna með listamönnum á borð við Busta Rhymes, Kelis, Lud- acris og Nelly auk þess að kynna til sögunnar rapparana í Fam-Lay og Rosco P. Coldchain. Hliðarverkefni Neptunes, N.E.R.D. er líka með lag þarna og Pharrell syngur sjálfur með þeirri falsetturöddu, sem er svo einkennandi fyrir hann. Pharrell og Chad semja síðan öll lögin á plötunni nema tvö, þá annaðhvort einir eða í samstarfi við aðra. Pharrell er áreiðanlega ríkari en margt af því tónlistarfólki, sem hann hefur unnið fyrir en hann klæðir sig þrátt fyrir það á óáberandi hátt, og sést oftar en ekki í hermannabuxum og stuttermabol. „Ég á demanta en þeir skilgreina ekki hver ég er,“ sagði Pharrell í nýju viðtali við tón- listartímaritið Q. Kynntust 12 ára í skóla Pharrell, sem er þrítugur að aldri kynntist Chad Hugo, er á ættir að rekja til Filippseyja, þegar hann var 12 ára en þeir voru í sama bekk í skóla í Virginíu. „Tónlistin tengdi okkur saman. Við vorum báðir heill- aðir af tónlist á þann hátt, sem jafn- aldrar okkur voru ekki.“ Heppnin var með þeim þegar upp- tökustjórinn Teddy Riley sá þá í hæfileikakeppni í menntaskóla. Riley, sem m.a. hafði unnið með stór- stjörnum á borð við Michael Jackson og Bobby Brown, studdi við bakið á þeim og fékk þá til að hjálpa sér með lag fyrir Blackstreet. Neptunes vöktu eftir það verðskuldaða athygli fyrir plötuna sem þeir gerðu með Kelis, frumraun hennar Kaleido- scope, árið 1999 og hafa ekki fallið í gleymsku síðan. Sjávarguð og sólstirni Pharrell og Chad ákváðu að kalla sig Neptunes í fyrstu vegna þess að þeir voru algjörlega heillaðir af vatni, ekki síst vegna þess hve stór hluti líkamans er vatn og vegna raf- leiðni vatns. Í kjölfarið ákváðu þeir að kalla sig eftir sjávarguðnum Neptúnusi úr goðafræðinni. En áður en leið á löngu tók nafnið á sig nýja merkingu. Þeim fannst nafnið of tak- markandi og vildu leita utan jarðar- innar og til stjarnanna og plánetan Neptúnus heillaði. Pharrell er oftar en ekki andlit Neptunes út á við en Chad býr á heimaslóðum í Virginíu ásamt eigin- konu og börnum. Pharrell er mynd- arlegur og ekki minnkaði ástaræv- intýri hans og Jade Jagger, dóttur Mick, athygli almennings á honum. Tónlistin á Clones er mikilvæg en ekki síður heimspekin á bak við disk- inn, útskýrir Pharrell. „Clones eru við á móti okkur. Þetta er maður á móti anda, andi mót holdi, hold gegn lífi, líf á móti ást, ást á móti trú. Þetta er samspil allra náttúruaflanna hvers á móti öðru,“ segir Pharrell kosmískur. Í átt til stjarn- anna Stjarna The Neptunes hefur skinið sem sól væri síðustu ár og er enn að birta til hjá þeim. Inga Rún Sigurð- ardóttir kynnti sér feril Pharrells Williams og Chads Hugos. Diskurinn The Neptunes presents…Clones er kominn út. www.startrakmusic.com www.clonesarecoming.com ingarun@mbl.is Reuters Justin Timberlake mætti á Myndbandaverðlaun MTV á dögunum með The Neptunes upp á arminn, Pharrell er til vinstri og Chad til hægri. Pharrell WilliamsChad Hugo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.