Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ GUÐNÝ Jónsdóttir, yfirsjúkraþjálf- ari við endurhæfingardeild Landspít- ala-háskólasjúkrahúss, hlaut fyrstu verðlaun fyrir verkefnið „Hrygg- stoð“ í hugmyndasamkeppninni Upp- úr skúffunum. Verkefni Guðnýjar gengur út á þróun á nýrri tegund af bolspelku fyrir fjölfatlaða einstak- linga og einstaklinga með hrygg- skekkju og var það unnið í samstarfi við Atla Ágústsson, sjúkraþjálfara á Landspítala-háskólasjúkrahúsi, Örn Ólafsson, stoðtækjafræðing og sam- starfsmenn hans hjá fyrirtækinu Stoð ehf. í Hafnarfirði. Bolspelkur auðvelda m.a. fjölfötluðum einstak- lingum og einstaklingum með hrygg- skekkju að sitja af eigin rammleik. Hugmyndasamkeppnin Uppúr skúffunum er samstarfsverkefni Rannsóknaþjónustu Háskóla Ís- lands, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífs- ins, A&P Árnasonar einkaleyfisstofu og skrifstofu rektors Háskóla Ís- lands. Er þetta fimmta árið í röð sem samkeppnin er haldin en hún náði til allra starfsmanna og nemenda við Háskóla Íslands og Landspítala-há- skólasjúkrahús. Tíu umsóknir bárust í samkeppn- ina. Tvær þeirra urðu jafnar í öðru og þriðja sæti, en það er annars vegar verkefnið „Sjálfræði aldraðra“ eftir dr. Vilhjálm Árnason, prófessor í sið- fræði, og Ástríði Stefánsdóttur lækni og hins vegar verkefnið „Skyr-Bar“ eftir Sigrúnu Guðnadóttur og Daða Rafnsson, viðskiptafræðinga. Fyrra verkefnið fólst í því að kanna sjálf- ræði íbúa á vistheimilum fyrir aldr- aða á Íslandi en síðara verkefnið er viðskiptaáætlun fyrir skyndibitastaði á Flórída sem sérhæfa sig í hollum skyndimat unnum úr íslensku skyri. Bættar bolspelkur Guðný Jónsdóttir segir í samtali við Morgunblaðið að þau hafi byrjað að þróa nýjar bolspelkur í kjölfar rannsóknar sinnar á bolspelkum árið 2001. „Rannsóknin sýndi að þær bol- spelkur sem til eru á markaðnum hefta öndunarhreyfingar og hafa áhrif á heilsufar einstaklinga með fjölþætta fötlun og hryggskekkju,“ útskýrir hún. Sagði hún að markmið verkefnisins, sem hlaut verðlaun í gær, hafi verið að hanna bolspelku sem hefði sama stuðning og hefð- bundin bolspelka en hefti ekki öndun eins mikið. Verðlaunaféð í gær var 500 þúsund íslenskra kr. Aðspurð sagði Guðný að stefnt væri að því að hefja notkun á nýju bolspelkunni en þróun á henni væri þó ekki lokið. „Verðlaunaféð verður notað til að ljúka þessu verk- efni,“ segir hún. Samkeppnin Uppúr skúffunum Verðlaun fyrir þró- un nýrrar tegund- ar af bolspelku Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá verðlaunaafhendingunni. Frá vinstri: Örn Ólafsson, Atli Ágústsson, Guðný Jónsdóttir og Gunnar St. Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá Stoð. AUSTFIRSKIR sauðfjárbændur hafa sameinast um sölu lambakjöts á netinu, undir nafninu Austurlamb. Neytendum er þannig gefinn kostur á að kaupa upprunamerkt lamba- kjöt beint af bændum. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra opnaði vefsvæðið www.austurlamb- .is við formlega athöfn á Egilsstöð- um.Verkefninu er stýrt af Slátur- félagi Austurlands og er tilraun með nýja aðferð við sölu á lamba- kjöti. Á vefsvæðinu geta kaupendur kynnt sér aðstæður hjá þeim bænd- um sem bjóða Austurlamb, hvernig kjötið er gæðaflokkað og sagað og valið frá hvaða bónda kjöt er. Lambakjötið sem selt verður gegnum netið er af gripum, sem slátrað hefur verið í viðurkenndum sláturhúsum og meðhöndlað í vinnslu. Milliliðalaus leið til neytenda Sigurjón Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Sláturfélags Austur- lands sagði hugmyndina um Aust- urlamb byggja á því að gefa bændum sjálfum kost á að selja sína framleiðslu á almennum mark- aði, hvort sem það væri gegnum netið eða með öðrum hætti. Í fréttatilkynningu frá Austur- lambi segir jafnframt að bændur hafi ekki átt greiða milliliðalausa leið til hins almenna neytanda fram að þessu og að einhverra hluta vegna hafi sláturleyfishafar í land- inu ekki haft frumkvæði að slíkum viðskiptum. Austurlamb veiti bænd- um sjálfum möguleika á því að selja sitt kjöt og öðlast þannig um leið aukna hlutdeild í eigin verðmæta- sköpun. Nítján austfirskir sauðfjár- bændur taka þátt í sölu á netinu fyrsta kastið, en að verkefninu komu, auk Sláturfélagsins, Impra Iðntæknistofnun, Markaðsráð kindakjöts, Atvinnuþróunarsjóður Austurlands, MATRA, Norðlenska, Kjötkaup á Reyðarfirði, Athygli og Galdur á Hornafirði. Nítján sauðfjárbændur standa að Austurlambi Nýjar aðferðir við sölu á íslensku lambakjöti Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Sigurjón Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Sláturfélags Austurlands, við opnun nýs vefsvæðis þar sem neytendur geta keypt lambakjöt af austfirskum bændum milliliðalaust. NÝ háplöntutegund, haustlyng, fannst í Mýrdalnum í vikunni. Ágúst H. Bjarnason, grasafræðing- ur við Menntaskólann við Sund, segir þetta einstakan fund, en það gerist aðeins á margra ára fresti að ný tegund sé skráð í flóru Íslands. Það er ekki síður sérstakt við þenn- an fund að tegundarinnar er getið í gamalli plöntuskrá frá árinu 1820, en síðar var talið að um ranga grein- ingu hefði verið að ræða og haust- lyng var því strikað út af skrá yfir flóru Íslands. Það var Brynja Jóhannsdóttir meinatæknir sem fann plöntu sem hún kannaðist ekki við þegar hún var á göngu á Felli í Mýrdal. Brynja, sem er áhugsöm ræktunar- manneskja, sagðist hafa flett upp í Íslenskri flóru eftir Ágúst H. Bjarnason, án þess að finna svör við því um hvaða plöntu væri að ræða. Brynja hafði því samband við Ágúst sem greindi hana sem erica tetralix, haustlyng. Honum þótti þetta afar merkilegt og fór strax daginn eftir austur í Mýrdal ásamt Brynju og til að skoða plöntuna. Þau fundu plöntuna í blóma, all- vöxtulegan hálfrunna um 10–12 cm á hæð. Eftir talsverða leit í ná- grenninu fundu þau annan runna litlu minni skammt frá. Ágúst sagði að getið væri um haustlyng í göml- um plöntuskrám, til dæmis eftir Mörch frá 1820, Th. Gliemann frá 1824, J. Vahl frá 1840 og C.C. Bab- ington frá 1848. Í flórubók eftir Johs. Gröntved frá árinu 1942 (The pteridophyta and spermatophyta of Iceland) er sagt frá eintaki í Grasasafninu í Kaupmannahöfn, sem „Thoraren- sen“ hafi safnað á Íslandi, en þess jafnframt getið, að hér hljóti að hafa orðið einhver ruglingur við merk- ingar og því beri að strika tegund- ina alfarið út úr flóru Íslands. Fund- urinn hefur því verið dreginn í efa. Benda má á, að plöntutegundir hafa ef til vill verið að deyja út í landinu allt frá landnámsöld, vegna kólnandi tíðarfars og mikils beitar- álags, einkum á síðari hluta 19. ald- ar og þeirri 20. Ágúst sagði, að langlíklegast væri að haustlyng hefði alla tíð verið til og þarna væri því um eintak að ræða sem Thorarensen hefði safnað og danskir grasafræðingar greint til tegundar. Þó er ekki unnt að útiloka þann möguleika, að tegundin hafi borist hingað til lands fyrir fáum ár- um, til dæmis með fuglum. Ágúst sagðist ætla að rannsaka þetta mál betur og m.a. skoða þessa plöntu sem sögð er vera í Grasa- safni Kaupmannahafnar. Hann sagði að árið 1848 hefði séra Gísli Thorarensen hafið prestskap ein- mitt á Felli í Mýrdal þar sem Brynja fann haustlyngið. Ágúst sagði ekki ólíklegt að einhver úr hans ætt hefði á sínum tíma fundið plöntuna sem væri í Grasasafninu. Ágúst vill beina því til fólks, eink- um í Mýrdal, að það hafi vakandi auga á því, hvort það sjái ókennilega plöntur, þar sem blöð líkjast beiti- lyngi en blómin eru mun færri og stærri og eru á stöngulenda. Hann biður fólk sem finnur slíkar plöntur að hafa samband við sig. Fann nýja háplöntu- tegund í Mýrdalnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Brynja Jóhannsdóttir fann haustlyng þegar hún var í gönguferð í Mýrdalnum, en það var Ágúst H. Bjarnason sem greindi plöntuna. Var skráð árið 1820, en síðar talin rangt greind HAUSTLYNG, eins og þessi tegund hefur verið nefnd, til- heyrir lyngætt og er lágvaxinn, sígrænn dvergrunni. Greinar eru gráleitar. Blöðin eru krans- stæð á stöngli, fjögur saman; þau eru grágræn, kirtilhærð, barrkennd og innundin á rönd- um. Blómin eru fjórdeild í koll- óttum sveip á stöngulenda; þau eru rósrauð og standa lengi. Að sumu leyti minnir plantna á beitilyng en blómin eru mun stærri og blöðin eru kirtilhærð, sem sést við litla stækkun. Í nánd við plönturnar í Mýr- dal var plantað lerki, elri og furu fyrir fáum árum. Mjög ósennilegt er, að tegundin hafi borist með þeim, því að þær kumu úr innlendri gróðr- arsöðvum. Líklegast er, að tegundin hafi vaxið hér lengi en hún er vand- fundin ef hún er ekki í blóma. Sumarið hefur verið með ein- dæmum gott og því hefur hún náð að blómgast. Tegundin er mjög algeng í suðurhluta Skandivavíu og vex alllangt norður eftir vest- urströnd Noregs. Hin síðari ár hefur hún breiðst talsvert út. Haustlyng
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.