Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 2
ATVINNA ÓSKAST
Gröfumaður —
hellulagningamaður
Mottó ehf. óskar eftir vönum gröfumanni.
Einnig vönum hellulagningamanni sem þarf
að geta unnið sjálfstætt. Upplýsingar í síma
566 8255 virka daga frá kl. 9-15.
Umsóknareyðublöð á skrifstofunni.
Mottó ehf.,
Flugumýri 24, Mosfellsbæ.
Skrifstofustarf
Málarameistarafélagið óskar eftir starfsmanni
í krefjandi skrifstofustarf. Helstu verkefni eru:
Bókhald, skipulag og utanumhald viðburða
og funda, umsjón með heimasíðu, auk
hefðbundinna skrifstofustarfa og annarra tilfall-
andi verkefna. Umsóknir sendist til augldeildar
Mbl. merktar: „M — 14140“ eða í box@mbl.is.
Umsóknarfrestur er t.o.m. 12. september nk.
Málarameistarafélagið.
Vélfræðingur
Öflugt fyrirtæki í forystuhlutverki
Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.
er leiðandi fyrirtæki í sölu- og
markaðssetningu á drykkjarvörum.
Fyrirtækið framleiðir, flytur inn,
dreifir og markaðssetur fjölbreytt
úrval drykkja sem uppfylla ólíkar
þarfir viðskiptavina. Ölgerðin er eitt
elsta fyrirtæki á Íslandi og hefur
sterka gæðaímynd á heima-
markaði sínum. Fyrirtækið
kappkostar stöðugt að vera í
fremstu röð sem sölu- og markaðs-
fyrirtæki á sviði drykkjarvara.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. óskar eftir að ráða vélfræðing til starfa.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið felst í viðhaldi á
vélum og tækjum ásamt uppsetningu nýrra tækja og nýsmíði.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Vélfræðingur
• Reynsla af sambærilegum störfum æskileg.
• Fagmennska og vilji til metnaðarfullra starfa
• Góðir samskiptahæfileikar.
Áhugasamir sendi greinargóðar upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri
störf til afgreiðslu Mbl. merktar „Egils – vélstjóri“ fyrir 16. september n.k.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað.
Sunnudagur
7. september 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni8.668 Innlit 17.009 Flettingar 73.495 Heimild: Samræmd vefmæling
Sunnudagur
7. september 2003
st frá vinstri: Bjarni Jónsson, Vala Þórsdóttir, Sigurður Pálsson, Ólafur Haukur Símonarson. Neðri röð frá vinstri: Hávar Sigurjónsson, Jón Atli Jónasson, Kristján Þórður Hrafnsson og Baltasar Kormákur. Ljósmyndir Kristinn Ingvarsson.
Íslenski leiklistarveturinn Fjöldi íslenskra leikverka verður settur á svið í vetur,þar af verk eftir átta höfunda í Þjóðleikhúsinu.
erðalögSan FranciscosælkerarDraumaliðið á VoxbörnLeikföngbíóDonald Sutherland
KR-ingar á sigurbraut
Íslandsmeistarar karla og kvenna
Spilaði með
strákunum
við misjafnar
undirtektir.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
MILLJARÐUR Í VIÐBÓT
Greiðslur atvinnuleysisbóta úr At-
vinnuleysistryggingasjóði eru um
einum milljarði króna hærri fyrstu
átta mánuðina í ár samanborið við
sama tímabil í fyrra. Þannig höfðu
verið greiddir tæpir 2,7 milljarðar
króna í atvinnuleysisbætur fram til
1. september. Á sama tíma í fyrra
var búið að greiða 1,7 milljarða í at-
vinnuleysisbætur, en þetta jafngildir
59% aukningu á milli ára.
Össur á spelkumarkaðinn
Össur hf., sem einkum hefur ein-
beitt sér að framleiðslu gervilima,
hyggst nú færa út kvíarnar með
framleiðslu spelkna úr svokölluðum
koltrefjum. Að sögn Árna Alvars
Arasonar, hjá Össuri, er mikið í húfi
þar sem spelkumarkaðurinn á
heimsvísu er allt að þrisvar sinnum
stærri en stoðtækjamarkaðurinn.
Talið er að spelkumarkaðurinn nemi
allt að tveimur til þremur millj-
örðum bandaríkjadala á ári sem
svarar til 164 til 246 milljarða ís-
lenskra króna.
Abbas segir af sér
Mahmoud Abbas, forsætisráð-
herra Palestínumanna, sagði af sér í
gærmorgun, en vinsældir hans með-
al almennings hafa farið dvínandi, og
hann hefur átt í hörðum deilum við
Yasser Arafat, æðsta leiðtoga Pal-
estínumanna. Ísraelar segja að þrátt
fyrir afsögnina verði Abbas áfram
eini maðurinn sem þeir séu tilbúnir
til friðarviðræðna við.
Sprenging í Kasmír
Sex manns létust er bílsprengja
sprakk á ávaxtamarkaði í Srinagar,
höfuðstað indverska hluta Kasm-
írhéraðs í gærmorgun. Herská, pak-
istönsk samtök hafa lýst ábyrgð á
hendur sér.
Y f i r l i t
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í dag
Skissa 6 Hugvekja 39
Sigmund 8 Myndasögur 40
Listir 22/27 Bréf 40
Af listum 22 Dagbók 42/43
Forystugrein 28 Krossgáta 44
Reykjavíkurbréf 28 Fólk 46/53
Skoðun 30/31 Bíó 50/54
Minningar 34/37 Sjónvarp 54
Þjónusta 37 Veður 55
* * *
Kynningar – Blaðinu í dag fylgja aug-
lýsingablöðin Vika símenntunar og
„Góð heilsa í þínum höndum alla
ævi“ frá Heilsuhúsinu.
EKKI ER útilokað að mati utanrík-
isráðuneytisins að samstaða náist
um það á fundi Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar (WTO) í Kankún í
Mexíkó 10.–14. september að skerða
heimildir til framleiðslutengds
stuðnings við landbúnað í kringum
60%. Þetta myndi þýða að heimildir
Íslendinga lækkuðu úr 13,5 milljörð-
um króna í u.þ.b. 5,5 milljarða. Nýt-
ing Íslendinga á þessum heimildum
hefur verið 80–90% og því ljóst að til
breytinga þarf að koma til að raun-
stuðningur rúmist innan framtíðar-
heimilda.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í minnisblaði sem utanríkisráð-
herra lagði fyrir ríkisstjórnina en
þar reifaði hann stöðuna í samninga-
lotu WTO og kynnti afstöðu Íslands
fyrir ráðherrafund WTO.
Þar kemur einnig fram að þótt
engar tölulegar stærðir liggi fyrir
um lækkun tollaheimilda og þak á
tollheimildir, sem hugsanlega verði
samið um í Kankún, bendi allt til
þess að íslenskur landbúnaður muni
á komandi árum standa frammi fyrir
auknum markaðsaðgangi erlendra
búvara og meiri erlendri samkeppni
en þekkst hefur til þessa. Því sé
nauðsynlegt fyrir íslenskan landbún-
að að halda áfram á hagræðingar-
braut og stuðla að lækkuðum fram-
leiðslukostnaði og verði til neytenda.
Beingreiðslur aflagðar?
Í minnisblaði utanríkisráðherra
kemur fram að sú leið sem einkum
komi til greina til þess að mæta
hugsanlegri skerðingu á innanlands-
stuðningi felist í því að aftengja
stuðning (beingreiðslur) við bændur
frá framleiðslu að einhverju eða öllu
leyti. Tekið er fram að íslensk stjórn-
völd hafi í viðræðunum lagt áherslu á
að viðhalda möguleikum til að stunda
framleiðslutengdan stuðning ásamt
því að leggja áherslu á að ekki sé
hreyft við heimildum til að styðja við
byggðir og búsetu, umhverfi og fleiri
þætti eftir leiðum sem ekki hafa við-
skipta- eða markaðstruflandi áhrif.
Um markaðsaðgang og tollalækk-
anir segir að ríki á borð við Ísland,
Noreg og Sviss o.fl. hafi ítrekað mót-
mælt hugmyndum sem uppi eru um
tollalækkanir og tollaþak þar sem
þau þyrftu við þær aðstæður að bera
mun þyngri byrðar en önnur ríki þar
sem þau hafi mjög fáa en háa tolla.
Að því er Ísland snertir sé við-
kvæmustu tollaheimildirnar að finna
á þeim vörum sem falli undir svokall-
aðar lágmarksaðgangsskuldbinding-
ar, fyrst og fremst kjöt, ostar, smjör
og egg en á öðrum sviðum sé mun
meiri sveigjanleiki til þess að lækka
tollaheimildir.
Erfitt sé fyrir Ísland að fallast á
þak á tollaheimildir þar sem ósam-
keppnishæfni íslensks landbúnaðar
á verðgrundvelli geri það að verkum
að hugsanlegt þak sem kynni að vera
viðunandi fyrir þorra aðildarríkja
yrði að líkindum of lágt til að veita ís-
lenskum landbúnaði nauðsynlegt
lágmarksskjól.
Stefna Íslands vegna WTO-fundar kynnt í ríkisstjórn
Aukinn markaðsað-
gangur fyrir búvörur
FÉLAGSMENN í Aflinum, félagi
qi gong-iðkenda á Íslandi,
hyggja á framleiðslu kennslu-
myndbands í qi gong sem er ætl-
að að vera leiðbeinandi um æf-
ingarnar eins og þær hafa þróast
undir stjórn Gunnars Eyjólfs-
sonar, leikara og qi gong-
iðkanda, um árabil. Frá þessu er
sagt á heimasíðu Björns Bjarna-
sonar, dóms- og kirkjumálaráð-
herra og formanns félagsins.
Björn og Gunnar Eyjólfsson hafa
iðkað qi gong um árabil og er nú
svo komið að færri komast að á
æfingum en vilja og áhuginn
heldur áfram að aukast. Að sögn
Björns voru æfingarnar teknar
upp í blíðskaparveðri á Miklatúni
í vor en eftir er að fullvinna
myndbandið og texta það. Áhugi
á qi gong hefur aukist jafnt og
þétt undanfarin ár.
„Það var til þess að svara
þeirri eftirspurn allri sem við
fórum út í að vinna þetta mynd-
band. Efnið í æfingarnar hefur
verið myndað en næsta skref er
síðan að vinna texta og annað og
gera það þannig úr garði að
þetta nýtist sem flestum því við
viljum koma til móts við þann
áhuga sem við verðum varir við,“
segir Björn. Hann segir Rafn
Rafnsson kvikmyndagerðarmann
vinna að gerð myndbandsins með
félögum í Aflinum, en ekki sé
ljóst hvenær það verði tilbúið.
Félagsmenn í Aflinum eru um
80 en félagið var stofnað 1. júní
2002 og Björn Bjarnason kosinn
formaður á fyrsta fundi þess.
„Félagið er sprottið af því að við
urðum að skipuleggja okkur til
að átta okkur á hvernig við ætt-
um að bregðast við auknum
áhuga.“
Skipulegar morgunæfingar
fara fram þrisvar í viku í Þjóð-
leikhúsinu áður en venjuleg
starfsemi hefst í húsinu og iðk-
endur halda til vinnu. Einnig er
skipulega æft tvisvar í viku í
húsakynnum ÍSÍ í Laugardal auk
þess sem félagar í Keflavík koma
vikulega saman í skátahúsinu
þar. Björn segist ekki í vafa um
hvert sé inntak qi gong: „Það er
að virkja lífsorkuna og njóta
hennar betur en annars væri.“
Björn Bjarnason segir mikinn áhuga á qi gong-leikfimi
Kennslumyndband gefið
út til að mæta þörfinni
UM 120 manns eru að hefja meist-
aranám í almennri stjórnsýslu við
Háskóla Íslands. Það eru um tífalt
fleiri nemendur en skráðir hafa ver-
ið í þetta nám áður, en kennsla í því
hófst árið 1997.
Gunnar Helgi Kristinsson pró-
fessor, sem hefur umsjón með nám-
inu, segir að kennsla sé að hefjast
og í kennslustundum séu um 120
manns. Um 80 séu í MPA-námi og
um 40 í diploma-námi sem sé
styttra nám en samt sem áður á
framhaldsstigi.
Gunnar Helgi sagði að um væri
að ræða tveggja ára framhaldsnám
eftir BA-próf. Námið miðaðist að
nokkru við að fólk hefði aflað sér
reynslu á vinnumarkaði og mjög
margir sinntu reyndar náminu jafn-
hliða vinnu, þannig að meðalaldur-
inn í hópnum væri svolítið hærri en
venjan væri í háskóla.
„En það er líka styrkur hópsins
að það er fyrir í honum gríðarleg
reynsla og þekking sem maður þarf
að virkja,“ sagði Gunnar Helgi.
Reynt að koma til móts við
aðstæður á vinnumarkaði
Hann sagði spurður að reynt
væri að koma til móts við aðstæður
á vinnumarkaði eins og kostur væri
í náminu, þó aldrei væri auðvelt að
vera bæði í vinnu og námi. Þannig
væri eingöngu kennt milli 8 og 10 á
morgnana. Fólk hefði þá afgang
dagsins til að vera í vinnu og þyrfti
þá að nota kvöldin og helgarnar til
að lesa og læra. Þá væri einnig gert
ráð fyrir því að námið gæti tekið
lengri tíma en þau tvö ár sem eðli-
legur námshraði miðast við.
Aðspurður hvort þessi mikli
áhugi hefði ekki komið á óvart sagði
hann að þeir hefðu gert átak í að
kynna námið og fengið aðstoð nýrr-
ar stofnunar, stofnunar stjórnsýslu-
fræða og stjórnmála, við það og
mótun námsins. Það hefði gengið
vonum framar. Boðið væri upp á
miklu fleiri námskeið en áður og
námið hefði verið endurskipulagt,
eiginlega alveg frá grunni.
„Við höfðum fundið fyrir því að
það væri áhugi, en jafnvel okkur
kom verulega á óvart allur þessi
gífurlegi fjöldi,“ sagði Gunnar
Helgi.
Hann sagði að þetta nám hefði
verið kennt frá 1997. Það hefði hins
vegar ekki verið hægt að bjóða upp
á það á hverju ári. 10–15 nemendur
hefðu verið teknir inn á hverju ári
og því mætti segja að hér væri um
tíföldun á nemendafjölda að ræða.
Morgunblaðið/Ásdís
Um 120 manns eru innritaðir í meistaranám í almennri stjórnsýslu við HÍ.
120 manns innritaðir í meistaranám í almennri stjórnsýslu við Háskóla Íslands
Tíföldun á nem-
endafjölda frá
því sem áður var
Ljóssins
englar valið
Ljósalagið 2003
LAG Magnúsar Kjartanssonar og
Kristjáns Hreinssonar, Ljóssins
englar, var valið Ljósalagið 2003 í
sönglagakeppni Ljósahátíðar í
Reykjanesbæ á föstudagskvöldið.
Ruth Reginalds flutti lagið fyrir
troðfullu húsi í Stapanum og var
lagið valið af sérstakri dómnefnd,
auk áhorfenda í Stapanum og þátt-
takenda í kosningu á Netinu. Í öðru
sæti varð lag Valgeirs Guðjóns-
sonar, Bæði úti og inni, í flutningi
Friðriks Ómars Hjörleifssonar. Í
þriðja sæti lenti lagið Dimmalimm
eftir Heru í flutningi höfundar.
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Ruth Reginalds flutti sigurlagið.
Smáauglýsingar
í Morgunblaðinu
MORGUNBLAÐIÐ byrjar að birta
smáauglýsingar laugardaginn 13.
september og alla laugardaga það-
an í frá. Um er að ræða nýja þjón-
ustu við lesendur blaðsins og verða
áskrifendum boðin sérkjör á aug-
lýsingum fram til áramóta. Að sögn
Gests Einarssonar, auglýsinga-
stjóra Morgunblaðsins, var hug-
myndin m.a. sú að efna til vikulegs
flóamarkaðar í Morgunblaðinu með
því að fólk ætti þess kost að auglýsa
nánast hvað sem er í blaðinu.
Reynslan af nýjung sem nýlega var
tekin upp þegar farið var að bjóða
upp á smáauglýsingar í bílablaði
Morgunblaðsins hafi verið mjög
góð og því hafi legið beinast við að
bjóða áskrifendum upp á enn meiri
þjónustu á þessu sviði.
♦ ♦ ♦