Morgunblaðið - 07.09.2003, Qupperneq 11
tækjanna enda hefur fyrirtækið haft
góða reynslu af þeirri efnisnotkun í
stoðtækin.
Koltrefjar eru næfurþunnir þræð-
ir, búnir til með flóknu framleiðslu-
ferli. Í trefjunum eru langar raðir
kolefnisatóma, sem raðast upp í
trefjastefnuna. Styrkur koltrefjanna
felst í því að á milli kolefnisatómanna
í trefjunum er gífurlega sterk atóma-
tenging. Hlutverk trefjanna í kol-
trefjastyrktu plastefni má líta á svip-
að og styrktarstál í steypu. Trefjarn-
ar, líkt og styrktarstálið, eru langar,
samfelldar einingar, sem hafa mikinn
styrk gagnvart togálagi í trefjastefn-
una. Vegna þess að styrkur efnisins
verður mjög stefnuháður er þar með
hægt að búa til efni, sem eru mjög
sterk, hafa þó mikla sveigju og eru
síðast en ekki síst mjög létt. Koltre-
fjar þykja sérstaklega eftirsókn-
arverðar þar sem þær hafa mjög há-
an togþolsstyrk og eru mjög léttar.
Össur hefur með góðum árangri
framleitt gervilimi úr koltrefjum á
undanförnum árum, en segja má að
stoðtækjafyrirtækið Flex-Foot, sem
Össur keypti árið 2000, hafi fyrst
komið fram á sjónarsviðið með gervi-
fætur úr efninu árið 1986. Síðan hafa
margir keppinautar farið að nota
koltrefjar í framleiðsluna enda verður
göngulag notenda mjög eðlilegt.
Óhætt er að segja að efnið hafi breytt
miklu fyrir notendur og leyst gömlu
tréfæturna og gúmmíhælana af
hólmi. Að sama skapi má ætla að kolt-
refjaspelkur muni valda byltingu fyr-
ir þá, sem þær þurfa að nota, en nú
nota um 80% stoðtækjafræðinga
plastspelkur, sem eru mun ending-
arminni og gefa litla sem enga demp-
un, segir Huld. „Kjarninn í því sem
við höfum gert er að færa aðferða-
fræðina úr gerfifótunum, sem þekktir
eru fyrir gæði, yfir í spelkurnar, sem
síðan eru lagaðar að hverjum ein-
staklingi fyrir sig. Léttleiki, mýkt og
fjöðrun einkennir vöruna enda er
markmið okkar að líkja eins vel og
unnt er eftir hreyfingum mannslík-
amans. Ökklaspelkur úr koltrefjum
eru hins vegar tíu sinnum dýrari en
plastspelkur og gagnast helst fólki
með svokallaðan dropfót, sem oftar
en ekki er afleiðing heilablóðfalls,
brjóskloss eða bakveiki.“
Samkeppni og samrunar
Össur, sem upphaflega var stofnað
árið 1971, sem stoðtækjaverkstæði,
er nú alþjóðlegt fyrirtæki með um
450 starfsmenn víðs vegar um heim,
en höfuðstöðvarnar á Íslandi. Hafinn
var útflutningur á vörum fyrirtæk-
isins árið 1986, en sama ár skráði fyr-
irtækið sitt fyrsta einkaleyfi. Fyr-
irtækið var í einkeign Össurar
Kristinssonar frá 1984 til 1999 er það
var skráð í Kauphöll Íslands. Frá
þeim tíma hafa umsvif fyrirtækisins
aukist verulega og var veltan 81 millj-
ón dollara í fyrra.
Samkeppni á stoð- og stuðnings-
tækjamarkaði er geysimikil enda er
talið að vöxtur markaðarins muni
nema 5–8% á ári sem þýðir að hann
muni tvöfaldast á næstu tíu árum.
Samkeppnin hefur leitt af sér bæði
samþjöppun og samruna keppinauta,
en Össur varð annað stærsta fyr-
irtækið í iðnaðinum árið 2000 með
kaupum á Flex-Foot og Century
XXII, næst á eftir þýska keppinautn-
um Otto Bock. Enn eru færi á frekari
stækkun og er fyrirtækið óumdeil-
anlega í sterkri stöðu til áframhald-
andi vaxtar, að sögn Árna Alvars,
ekki síst vegna þekkingar sinnar á
sviði tækni, efna, sölu- og markaðs-
mála.
join@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 11
NÝ áskriftarstöð ánauglýsinga, Skjártveir, hefur formlegaútsendingar miðviku-daginn 1. október.
Íslenska sjónvarpsfélagið hf.,
sem rekið hefur Skjá einn und-
anfarin fjögur ár, stendur að baki
stöðinni, sem fáanleg verður á
breiðbandi Símans. Skjár einn
verður áfram rekinn með svipuðu
sniði og verið hefur enda segir
Helgi Hermannsson, dagskrár-
og markaðsstjóri, stöðina hafa
verið á hraðri siglingu allt frá
upphafi og hafi hún aldrei verið
jafn sterk og nú, samkvæmt
áhorfskönnunum. Stöðin hafi
sannað gildi sitt og náð að festa
sig vel í sessi.
„Þeir þættir, innlendir sem er-
lendir, sem verið hafa akkeri
Skjás eins frá upphafi, koma til
með að verða það áfram. Á hinn
bóginn er Skjá tveimur ætlað að
vera einskonar mótvægi við Skjá
einn. Þannig er stöðvunum tveim-
ur ætlað að vinna saman sem
heild og vega hvor aðra upp. Eft-
ir því sem við best vitum, hefur
þessi viðskiptahugmynd, að reka
annars vegar auglýsingasjónvarp
og hinsvegar áskriftarsjónvarp,
sem þræltengdar systurstöðvar,
hvergi verið reynd,“ segir Helgi.
Þó að formleg útsending nýju
stöðvarinnar hefjist ekki fyrr en í
byrjun október, mega sjónvarps-
áhorfendur búast við óvissusýn-
ingum á Skjá tveimur síðari hluta
septembermánaðar sem auglýstar
verða sérstaklega á Skjá einum.
Menn ættu þar með að geta stillt
sig inn á lógóið, sem komið er á
breiðbandið, prófað sig áfram og
dottið inn í spennnandi sjón-
varpsefni.
„Þvert á það sem margir halda,
munum við ekki veikja dagskrá
Skjás eins með tilkomu nýju stöðv-
arinnar, heldur má segja að við
bætum um betur með nokkrum
nýjum erlendum þáttaröðum og
tveimur glænýjum innlendum þátt-
um,“ segir Helgi. Sigmundur Ernir
Rúnarsson stýrir þætti, sem hann
kallar „Maður á mann“, en þar fær
hann til sín þjóðþekkta einstaklinga
í ítarlega yfirheyrslu um líf þeirra
og störf, viðhorf og skoðanir. Í
grínþáttaröðinni Atvinnumaðurinn
fer Þorsteinn Guðmundsson svo í
starfskynningar á ólíkum vinnu-
stöðum og veltir upp ýmsum hug-
myndum á íslenskum vinnumark-
aði.
Íslenskt raunveruleikasjónvarp
Bíómyndum verður aftur á móti
gert hátt undir höfði á nýju stöð-
inni, en segja má að bíókvöld verði
þrjú kvöld vikunnar, á mánudags-,
fimmtudags- og laugardags-
kvöldum auk þess sem stefnt er að
því að endursýna bíómyndir bæði
fyrir og eftir eiginlega dagskrá,
sem stendur frá 20.00 á kvöldin og
fram að miðnætti. Á fyrstu vik-
unum er t.d. fyrirhugað að sýna
allar James Bond-myndirnar frá
upphafi. Sex erlendir þættir, sem
verið hafa á Skjá einum til þessa,
verða færðir yfir á áskriftarstöð-
ina Skjá tvo og fá þar með hálf-
gerðan heimanmund frá syst-
urstöðinni, að sögn Helga. Það eru
þættirnir: Law and Order: Crim-
inal Intent, Yes Dear, Will and
Grace, Everybody loves Raymond,
CSI og Charmed. Einnig verða
nokkrir nýir erlendir þættir á
dagskrá stöðvarinnar, svo sem:
Hack, John Doe, Meet my Folks,
Queer as folk og síðast en ekki
síst „Sögur úr Hollywood“ þar
sem fylgst er með fræga fólkinu.
Eins og á Skjá einum, er stefnt
að íslenskri þáttagerð á Skjá
tveimur og má gera ráð fyrir því
að fyrstu íslensku þættirnir verði
sendir út á fyrri helmingi næsta
árs. Helgi segir að ýmislegt sé í
farvatninu sem á án efa eftir að
skemmta sjónvarpsáhorfendum,
en meðal innlends dagskrárefnis
verður íslensk útgáfa af Bachelor-
þáttunum vinsælu sem fengið hef-
ur nafngiftina „Viva Las Vegas“.
„Við höfum fengið sex fallegar og
vel gefnar íslenskar stúlkur til liðs
við okkur við gerð þessara þátta,
en meiningin er að þær haldi
ásamt myndatökuliði til spilaborg-
arinnar Las Vegas í nóvember-
mánuði með það að markmiði að
ná sér í huggulega, skemmtilega,
ríka, ameríska karlmenn til að
giftast, helst í ferðinni. Gerðir
verða sjö þættir á fjórtán dögum
og má segja að þetta verði hin ís-
lenska útgáfa af raunveruleika-
sjónvarpi. Auðvitað er þetta til
gamans gert, en öllu gamni fylgir
líka alvara.“
Í upphafi verður nýju sjón-
varpsstöðinni einungis dreift á
breiðbandi Símans, sem einnig sér
um að þjónusta áskrifendur.
Breiðbandið nær nú til um 33 þús-
und heimila í landinu, en for-
ráðamenn stöðvarinnar stefna að
því að koma dreifingunni í loftið
þegar stjórnvöld koma til með að
auglýsa eftir umsóknum í svokall-
aðar stafrænar tíðnir, sem valda
munu mikilli byltingu í dreifikerfi
sjónvarpsstöðva. Að sögn Helga er
dreifing Skjás eins alltaf að
styrkjast meir og meir og lætur
nærri að stöðin nái nú til um 85%
landsmanna.
Mánaðaráskrift að Skjá tveimur
kostar 2.995 krónur og má gera
ráð fyrir sérstökum opnunartil-
boðum. Helgi vill ekki tjá sig um
hversu marga áskrifendur stöðin
þarf til að standa undir sér, en
segir að í raun útheimti nýja stöð-
in mjög lítið af viðbótarstarfsfólki
og tækni umfram það sem fyrir er
á Skjá einum. „Skjár einn hefur í
gegnum tíðina verið rekinn í litlu
húsnæði og fyrir lítið fé og verður
nýja stöðin í sama húsnæði og
Skjár einn er nú í Skipholti 31.
Innlenda dagskrárgerðin krefst
svo vitanlega stjórnenda og fleira
starfsfólks. Við væntum þess að
almenningur í landinu, sem verið
hefur hliðhollur Skjá einum, kaupi
sig inn í Skjásfjölskylduna og
komi með okkur frá byrjun í þetta
nýja ferðalag svo að nýja stöðin
nái að eflast og dafna líkt og Skjár
einn.“
Forráðamenn Íslenska sjón-
varpsfélagsins hf. hafa nú fullan
hug á því að færa enn frekar út
kvíarnar til þess að koma til móts
við íþróttaáhugamenn í dagskrá
sinni. Þeir hafa undirbúið tilboð í
ensku úrvalsdeildina og ensku
bikarkeppnina og hafa boðið RÚV
til samstarfs, sem felur í sér að
RÚV fær að sýna laugardagsleik-
ina ásamt markapakka og frjálsu
aðgengi að efni til sýninga í frétta-
og íþróttatímum. RÚV mun, að
sögn Helga, hafa sýnt máli þessu
mikinn áhuga og á hann von á já-
kvæðum viðbrögðum af hálfu
stofnunarinnar. „Hér er um tvo
aðskilda sjónvarpsrétti að ræða og
ríkir mikill einhugur meðal eig-
enda Íslenska sjónvarpsfélagsins
að ná réttinum til félagsins. Við
teljum okkur standa mjög vel að
vígi að ná þessum rétti, en sem
stendur er hann hjá Norðurljósum
hf., en sá samningur rennur út
næsta vor. Við stefnum að því að
fá réttinn til okkar frá og með
næsta hausti. RÚV kæmi þá til
með að sýna laugardagsleikina og
Skjár tveir myndi sitja að sunnu-
dags-, mánudags- og miðvikudags-
leikjunum. Þetta samstarf gæti
orðið fyrirmyndarhjónaband og
báðum stöðvum til framdráttar.
Landsmenn gætu sömuleiðis
glaðst yfir því að fá laugardags-
leikina í opinni dagskrá RÚV og
svo restina í áskriftarsjónvarpinu
okkar, vilji þeir meira.
Að sama skapi höfum við hjá Ís-
lenska sjónvarpsfélaginu einir og
sér boðið í útsendingarétt á öllum
meiriháttar golfmótum, sem fram
fara í heiminum, og má í því sam-
bandi t.d. nefna bandaríska PGA-
mótaröðina. Hugmyndir hafa verið
uppi um sérstaka íþróttarás þegar
fram líða stundir enda má segja
að hið fullkomna sjónvarpsfélag sé
samansett úr þremur efniviðum:
vinsælu auglýsingasjónvarpi sem
höfðar til fólks á aldrinum 18–50
ára, áskriftarsjónvarpi með bíó-
myndum og öðru gæðaefni og svo
íþróttarás,“ segir Helgi.
Þeir sterkustu lifa af
Markaðsstaða og áhorf Skjás
eins hefur, að sögn Helga, vaxið
frá byrjun. „Stöðin lagði af stað
fyrir fjórum árum með það að
leiðarljósi að gera hlutina ódýrt,
leggja áherslu á innihaldið og end-
urspegla þjóðfélagið.“
Spurður um samkeppnina á
litlum markaði, svarar Helgi því
til að auðvitað sé ekkert pláss fyr-
ir allar þær sjónvarpsstöðvar, sem
nú starfi á íslenskum sjónvarps-
markaði. Því sé ekki að leyna.
„Það er stefna okkar eigenda að
sameina Íslenska sjónvarpsfélagið
og Norðurljós og ég trúi því að
það muni á endanum gerast. Á
hinn bóginn snýst sjónvarp aðeins
um einn hlut, sem er dagskráin.
Það efni, sem höfðað getur til
flestra á þeim tímapunkti sem
flestir eru að horfa á sjónvarp,
milli klukkan 20.00 og 23.00 á
kvöldin, vinnur stríðið. Þeir, sem
eru með bestu dagskrána og
skulda minnst, lifa af.“
Systurstöðvar
vinna saman
Íslenska sjónvarpsfélagið hf., sem rekur Skjá einn, hefur formlega útsendingar á nýrri rás, Skjá tveimur,
hinn 1. október næstkomandi. Ólíkt Skjá einum, sem er opin auglýsingastöð, verður Skjár tveir áskrift-
arstöð án auglýsinga. Helgi Hermannsson, dagskrár- og markaðsstjóri, sagði næstu áform miðast að því
að gleðja íþróttaáhugamenn þessa lands enda telja forráðamenn félagsins góðar líkur á því að þeir nái
sjónvarpsrétti enska boltans og margra stórmóta í golfi.
Morgunblaðið/Sverrir
Íslenskt raunveruleikasjónvarp verður meðal þess sem í boði verður á Skjá
tveimur að sögn Helga Hermannssonar, dagskrár- og markaðsstjóra.