Morgunblaðið - 07.09.2003, Side 17
ilvægt að geta þegið og á þessu
skrefi fari fólk að leyfa sér að þiggja,
hamingju, kærleik og velmegun. Það
séu fjölmargir sem geti ekki þegið
gjafir því þá finnst þeim þeir vera
komnir í skuld og það sé óþægilegt.
„Þegar líða tekur að lokum þrep-
anna, eða á sjötta skrefi, er komið að
því að fylgjast með sjálfum sér. Átta
sig á mistökum sínum og vera fljótur
að fyrirgefa sér. Allt sem við gerum
sé ferli þangað til við vöknum af
þeim vana sem ferlið er. Sé maður
ómeðvitaður eða sofandi geri ferlið
mann háðan. Það þýði ekki að maður
geti ekki verið í jákvæðu ferli svo
lengi sem maður festist ekki í því.
Þetta skref byggist einnig á því að
vera meira vakandi, öðlast frekara
innsæi og halda áfram á beinu braut-
inni. Allt gjörbreytist þegar maður
hefur öðlast kærleik og traust á
sjálfum sér. Þegar maður getur ver-
ið til staðar og er ekki hræddur við
að sýna fólki sinn innri mann.“
Lokaskref kaðlajóga kallast ham-
ingja eða þakklæti. Hann segir það
mikilvægt að við breytum hugsun
okkur í þakklæti því það útiloki þann
skort sem svo margir búi við. Það
fyrirfinnist enginn skortur á því
augnabliki sem við erum þakklát því
þá séum við uppljómuð. „Við búum
við stöðugan skort í nútíma-
samfélagi, grasið er alltaf grænna
hinum megin og enginn má vera að
því að vera til staðar,“ segir Guðni.
En hann og vinur hans Þorvaldur
Þorsteinsson rithöfundur nota orðið
skortdýr um þær manneskjur sem
lifa í stöðugu vanþakklæti og óham-
ingju. „Þegar við lærum að njóta
augnabliksins erum við tilbúin til að
þiggja og vera þakklát. Við eigum að
láta frá okkur bareflin, hætta að
misbeita okkur, skammast okkar og
refsa okkur. Við eigum frekar að
fara að okkur með alúð barnsins,
hvetja sjálf okkur til að taka ábyrgð
og velja betri veg, sjálfs okkar og
umhverfisins vegna.“
Hvernig er æfingakerfi kaðlajóga
uppbyggt?
„Hver og einn getur iðkað æfing-
arnar upp á eigin spýtur. Það sem til
þarf eru kaðlarnir sem æfingarnar
eru gerðar með en þeir eru blakkir
sem festar eru í gálga. Á þessum
gálga liggur þú síðan og notar þunga
líkamans til að styðja þig. Æfing-
arnar byggjast á því að draga allar
hreyfingar inn í kviðinn hvort sem
þær eru gerðar á bakinu eða á hlið-
inni. Þær styrkja því kviðinn fyrst
og fremst en þaðan leiðir síðan
styrkurinn út í alla limina. Öndun er
samhliða æfingunum og í kaðlajóga
er óháðri athyglisaðferð beitt sem
hugleiðslu. Í hvert skipti sem við
verðum fjarlæg leiðum við okkur til
baka með önduninni. Að lokum eru
böndin notuð til að teygja og und-
irbúa líkamann fyrir slökun. Æf-
ingabúnaðurinn, þ.e. reipin, tónlist,
myndband, hugmyndafræðin í bóka-
og bæklingaformi, verður settur á
markað á Íslandi í nóvember. Þar til
gerðir seljendur munu annast sölu
búnaðarins og veita þjónustu honum
tengda. Það er Hreysti hf. sem
stendur að innflutningi, sölu og
dreifingu kaðlajóga hér á landi.
Einnig er undirbúningur slíkra jóga-
tíma hér á landi þegar hafinn, en
nánari upplýsingar um það og annað
sem snýr að kaðlajóga má nálgast á
heimasíðunni www.ropeyoga.com.
Nú þegar hafa fjórir einstaklingar
útskrifast sem kaðlajógakennarar.
Þá mun ég halda námskeið hér í nóv-
ember bæði fyrir kennara og al-
menning.“
Telurðu kerfið falla vel að per-
sónueinkennum Íslendinga?
„Ég lít á Íslendinga sem orku-
bolta, Ísland er auðlind og að mörgu
leyti ósnortið. Það er ekki hægt að
bera Ísland og Bandaríkin saman þó
svo að þar fari vel um mig. Íslend-
ingar eru nýjungagjarnir, öflugir og
mjög stórhuga. Það sýnir sig vel
þegar horft er yfir Íslandssöguna.
Það var ekki fyrr en eftir seinni
heimsstyrjöldina að raunveruleg
uppbygging landsins hófst en þá
hófst hún líka af krafi. Landið hefur
blómstrað hratt á aðeins þessum 60
árum og er að verða eins og lítið
heimsveldi. Íslendingar eru sterkir
og hafa mikinn vilja og kraft en
helsta einkenni okkar er þó hvað við
erum óbeisluð. Öfgarnar hér eru
jafnmiklar og orkan. Það sem mig
langar að leggja af mörkum sem Ís-
lendingur er að hjálpa bæði sjálfum
mér og Íslendingum að komast inn í
núið og verða enn öflugri en þeir
eru. Ég hef unnið með mörgum
framkvæmdastjórum stórra fyr-
irtækja í Bandaríkjunum og þeir
eiga allt nema sjálft lífið því þeir eru
aldrei til staðar til að njóta neins af
því sem þeir hafa skapað sér. Lífs-
gæðakapphlaupið er mikið hér líkt
og annars staðar. Við þurfum að átta
okkur á hvert leið okkar liggur, hver
séu markmiðin og hver tilgangur
lífsins er. Hér er góður hópur fólks
sem vinnur ötullega að
heilsuræktarmálum. Ég hlakka til
að slást í lið með þeim og hafa þann-
ig áhrif á framtíð og heilsu þjóð-
arinnar.“
Svona í lokin, lítill fugl hvíslaði því
að mér að fræg Hollywood-leikkona
hefði sótt tíma hjá þér ...
„Ég hafði aðallega starfað með
forstjórum stórra fyrirtækja en
mest lítið með stjörnunum þar til en
Kim Basinger sótti tíma hjá mér í
sex mánuði fyrir síðustu bíómynd
sína, 8 Mile. Ég var nú hálffeiminn
við hana fyrst en það var alls engin
ástæða til þess. Hún og aðstoð-
arkona hennar voru svo skemmti-
legar að það var hreint bíó á köflum.
Kim er skemmtileg og mjög gjöful
manneskja, mikill dýravinur, um-
hverfissinni og kærleiksrík. Manni
finnst leikararnir vera svo fjarlægir
manni þegar maður sér þá á hvíta
tjaldinu en sú var ekki raunin með
Kim. Hún er eðlilegri en flestar aðr-
ar manneskjur sem ég hef hitt. Það
var skemmtilegt hvað hún var laus í
reipunum og algjörlega óháð. Oft og
tíðum byrjaði hún að syngja í miðri
æfingu og ekki bara þrjú lög heldur
tíu, fimmtán eða tuttugu, hún
breyttist bara allt í einu í skemmti-
kraft! Ég svitnaði og roðnaði en hélt
mig við efnið og að lokum komumst
við aftur á réttan kjöl.“
nleg heild
er þess eðlis að andað er í gegnum nefið og um leið þrengt örlítið að hálsinum.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 17
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Ótrúlegt tilboð á síðustu
sætunum til Costa del
Sol þann 1. október í 3
vikur. Nú getur þú notið
skemmtilegasta tíma árs-
ins á þessum vinsælasta
áfangastað Íslendinga í
sólinni og búið við frá-
bæran aðbúnað. Þú bókar
núna og tryggir þér síð-
ustu sætin og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér
hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða allan tímann. Á Costa del Sol er að finna eitt besta veðurfar
í Evrópu og hér er auðvelt að njóta lífsins við frábæran aðbúnað.
3 vikur til
Costa del Sol
1. október
frá kr. 29.950
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í herbergi/stúdíó
1.okt., 3 vikur.
Almennt verð kr. 52.450
Verð kr. 39.963
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Stökktutilboð.
Almennt verð kr. 41.960
Verð kr. 29.950
Flugsæti til Costa del Sol,
1. okt. með sköttum.
Almennt verð kr. 31.450
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
10.sept. – uppselt
17.sept. – 19 sæti
24.sept. – 23 sæti
1.okt. – 32 sæti
24.sept.
Vikuferð frá 29.963