Morgunblaðið - 07.09.2003, Page 33
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 33
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Vegna skipulagsbreytinga eigum
við eftirfarandi til ráðstöfunar í
þessu glæsilega húsi.
2. Hæð framhús. samtals 336 fm. Skrifstofur
í toppstandi, gott lyftuhús, glæslegt útsýni
yfir Laugardalinn.
Húsnæðið uppfyllir allar kröfur til nútíma
skrifstofureksturs.
Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt
sérhæft fasteignarfélag.
Sanngjörn og hagstæð leiga fyrir rétta aðila.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
Suðurlandsbraut - til leigu
TIL LEIGU
Tryggvagata - 101 Rvík
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
300 fm skrifstofur á 5. hæð. Einstakt tæki-
færi. Glæsilegar fullbúnar skrifstofur við
Reykjavíkurhöfn. Frábært útsýni. Allt nýtt.
Nýtt parket, eldhús, gardínur, tölvulagnir
o.fl. Lausar strax.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Allar nánari upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarson
fasteignasali á Valhöll fasteignasölu
á vinnutíma í síma 588 4477 eða í gsm 896 5222.
Sjá einnig myndir og uppl. á www.valholl.is
Af sérstökum ástæðum er til sölu allur rekstur, búnaður og húsnæði Hótels Barbró á Akranesi ásamt allri
viðskiptavild, pizzugerð og tilheyrandi hlutafélagi um eignina og reksturinn. Hótelið og veitingarekstur undir
sama nafni hefur verið í eigu og rekstri sömu fjölskyldu frá upphafi eða í alls um 20 ár, þar af 10 ár á
núverandi stað, Kirkjubraut 11. Um er að ræða alls 871 fm steinsteypt húsnæði á besta stað í hjarta
Akranesbæjar. Skipting hússins gróflega: Móttaka, koníaksstofa með fullbúnum bar, samkomusalur f. ca 100
í sæti, setustofa, veitingasalur f. ca 50 í sæti, snyrtingar kv./ka., fullkomið eldhús m. kæli + frysti, sérstök
pizzuvinnsla, lagergeymsla m. innkeyrsludyrum, búningsherbergi, nokkrar minni geymslur, húsvarðarher-
bergi m. snyrtingu, þvottaherbergi og skrifstofa. Gistiaðstaðan er á 2. og 3ju hæð og eru þar alls 13 herbergi,
öll með baðherbergi nema eitt. Svefnaðstaða fyrir 25 manns. Setustofa er á 2. hæð. Einnig er til staðar
gervihnattadiskur, hljómkerfi um alla jarðhæðina með þráðlausum míkrafón, fullt vínveitingaleyfi og margt
fleira. Eigninni hefur alla tíð verið mjög vel viðhaldið bæði að utan sem innan og fylgja tvær byggingarlóðir við
húsið sem eru nýttar sem bílastæði, ásamt teikningum af stækkun upp á 44 herbergi.
Góður og ábatasamur rekstur sem býður upp á ennþá meiri möguleika. Gott tækifæri fyrir samhenta
einstaklinga eða fjölskyldu/r að skapa sér gott atvinnutækifæri.
Til sölu Hótel Barbró Akranesi
Glæsilegt vel búið/vel rekið hótel í hjarta Akranesbæjar, hálftíma frá Reykjavík
GULLSMÁRI 7 -
ÞJÓNUSTUÍBÚÐ
Mjög góð rúmlega 61 fm íbúð á
6. hæð í þessu vinsæla húsi í
Smáranum í Kópavogi.
Sími 575 8585 - Spönginni 37 - 112 Reykjavík
OPIÐ
VIRKA DAGA
FRÁ kl. 9-18.
OPIÐ
LAUGARDAGA
FRÁ kl. 13-15
2ja herbergja
Sigurður Óskarsson, lögg. fastsali.
Sveinn Óskar Sigurðsson, lögg. fastsali.
Opið hús milli 14 - 16
SKJÓLBRAUT 1
ÁSTRÍÐUR TEKUR
VEL Á MÓTI ÞÉR.
SIGURVEGARAR í ljósmynda-
keppni fréttavefjar Morgunblaðs-
ins, mbl.is, og Kodak fengu afhent
verðlaun fyrir myndir sínar í
Morgunblaðshúsinu í gær. Þátt-
takendur í keppninni voru 1.069
og sendu alls inn 5.468 myndir.
Sigurbjörn Reginn Óskarsson
hlaut fyrstu verðlaun fyrir mynd-
ina Hringiða mannlífs. Að sögn
Sigurbjörns byggist myndatakan
á tækni sem er mjög þekkt meðal
ljósmyndara og gengur út á að
snúa myndavélinni á meðan smellt
er af. „Ástæðan fyrir því að við-
fangsefnið er óhreyft er sú að ég
nota flass.“
Sigurbjörn hefur tekið ljós-
myndir í 5 ár. „Ég byrjaði í svart-
hvítum stækkunarklúbbi í
menntaskóla og keypti mér ágæt-
is myndavél árið 1999 og hef ver-
ið að mynda á hana síðan.“.
Myndin er af skemmtikrafti á
götu í Kaupmannahöfn. „Ég var
þarna á götu með bróður mínum
og fjölskyldu hans og sá þessa
manneskju sem var að leika
styttu. Ég þurfti að borga henni
pening fyrir að fá að taka mynd-
ina, einhverjar örfáar danskar
krónur.“
Hengdi rennblaut lök
á nakta vinkonu sína
Aldís Pálsdóttir hlaut önnur
verðlaun fyrir myndina Frelsi.
„Mig langaði að nota kvenlíkam-
ann og brjóst, óbeint, þannig að
ég fékk vinkonu mína til þess að
sitja fyrir og tók lökin af rúminu
mínu og rennbleytti þau og
hengdi þau yfir hana á þvotta-
klemmur.“ Aldís leggur stund á
nám í ljósmyndun í Danmörku.
„Ég hef ekkert endilega tekið
mér einhverja eina stefnu í ljós-
myndun en listræn ljósmyndun
heillar mig frekar en frétta-
ljósmyndun,“ segir hún.
Þriðju verðlaun hlaut Kjartan
T. Hjörvar fyrir myndina Undir
Seljalandsfossi, sem tekin er á
samnefndum stað. Kjartan er
áhugamaður um ljósmyndun og
tekur mest af myndum úti nátt-
úrunni. Hann fékk bróður sinn til
að stilla sér á myndina við Selja-
landsfoss í kvöldsólinni.
Sigurvegararnir þrír fá í verð-
laun stafrænar myndavélar frá
Kodak og sá sem hreppti 1. verð-
laun fær að auki Kodak prentstöð.
Sigurvegarar í ljósmyndakeppni mbl.is og Kodak
Fengu
verðlaun
fyrir bestu
myndirnar
Morgunblaðið/Jim Smart
Ásgeir Helgi Ásgeirsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Hans Petersen, afhenti
sigurvegurunum verðlaunin. Annar frá vinstri: Sigurbjörn Reginn Ósk-
arsson, Aldís Pálsdóttir og Kjartan T. Hjörvar.
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122