Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 38
KIRKJUSTARF
38 SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fjórir prestar þjóna
Grafarvogspestakalli
FRÁ og með 1. september munu
fjórir prestar þjóna í Grafarvogi.
Þeir eru sr. Vigfús Þór Árnason,
sóknarprestur, sr. Sigurður Arn-
arson, sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir og sr. Bjarni Þór Bjarnason.
Þetta er eðlileg skipan þar sem
brátt munu um fimm þúsund sókn-
arbörn vera á bak við hvert pest-
embætti, en samkvæmt lögum
eiga sóknarbörnin ekki að vera
fleiri en fjögur þúsund á bak við
hvern prest. Fjölgun presta mun
leiða af sér fjölþættari þjónustu.
Hvern sunnudag verða þrjár guðs-
þjónustur kl. 11, almenn guðsþjón-
usta í aðalsal kirkjunnar, barna-
guðsþjónusta á neðri hæð
kirkjunnar, og á sama tíma kl. 11
verður barna– og fjölskylduguðs-
þjónusta í Borgarholtsskóla.
Fyrsta sunnudag í hverjum
mánuði verður síðan gosp-
elguðsþjónusta í kirkjunni kl. 20.
Guðsþjónustur eru einnig á Hjúkr-
unarheimilinu Eir.
Einn af pestum safnaðarins sér
um enskar messur og annar tekur
þátt í æðruleysismessum þjóð-
kirkjunnar.
Hin hefðbundna dgskrá safn-
aðarstarfsins verður sem hér seg-
ir:
Guðsþjónustur: 7. september
hefst vetrarstarfið í Grafarvogs-
kirkju með barna– og fjölskyldu-
guðsþjónustu kl. 11:00. Almennar
guðsþjónustur alla sunnudaga kl.
11:00. Barnaguðsþjónustur eru
einnig kl. 11:00. Guðsþjónusturnar
fara því fram samtímis, á sitt
hvorri hæð kirkjunnar. Barna-
guðsþjónustur í Borgarholtsskóla
kl. 11:00. Þær annast prestar safn-
aðarins og leiðtogar í barnastarfi.
Foreldramorgnar: Starfið hjá
þeim hefst fimmtudaginn 5. sept-
ember kl. 10:00–12:00 í Graf-
arvogskirkju og eru þeir vikulega.
Dagskráin er fjölbreytt. Boðið er
upp á áhugaverða fyrirlestra og
skemmtilegar og fræðandi sam-
verustundir.
Kirkjukrakkar: Fyrir börn á
aldrinum 7–9 ára, kl. 17:30–18:30
á mánudögum í Engjaskóla,
þriðjudögum í Rimaskóla og á
fimmtudögum í Húsaskóla og
Grafarvogskirkju.
KFUM og K verður í vetur fyrir
drengi á aldrinum 9–12 ára á mið-
vikudögum kl. 17:30–18:30 og
hefjast fundirnir 17. september og
fyrir stúlkur á aldrinum 9–12 ára
á mánudögum kl. 17:30–18:30 og
hefjast fundirnir 15. september.
Æskulýðsfélög: Fyrir unglinga í
9. og 10 bekk á þriðjudögum og 8.
bekk á fimmtudögum kl. 20:00 í
Grafarvogskirkju
Eldri borgarar: Þátttakendum í
þessu starfi fer fjölgandi og er
það von okkar að enn bætist í
þennan góða hóp. Eldri borgarar
hittast í kirkjunni á hverjum
þriðjudegi kl. 13:30. Starfið hefst
með því að farið verður í haust-
ferð þriðjudaginn 16. september.
Kirkjukór: Kirkjukórinn hefur
þegar hafið vetrarstarfið undir
stjórn Harðar Bragasonar org-
anista og kórstjóra. Kórinn, sem
er orðinn fjölmennur, getur þó
enn bætt við góðum karlaröddum.
Safnaðarfélagið: Fundir hjá
Safnaðarfélaginu eru haldnir
fyrsta mánudag hvers mánaðar.
Fyrsti fundur vetrarins verður
mánudaginn 6. október kl. 20:00.
Alfa–námskeið: Hefst þriðjudag-
inn 13. janúar 2004. Um er að
ræða 10 vikna fræðslunámskeið
um kristna trú og tilgang lífsins.
Fermingarbörn: Dregið verður
um fermingardagana í guðsþjón-
ustu sunnudaginn 14. september
kl. 11:00.
Krakkakór: Er fyrir börn frá 7
ára aldri. Æfingar eru á þriðju-
dögum kl. 17:45–18:45.
Unglingakór: Er fyrir unglinga
frá 11 ára aldri. Æfingar eru á
þriðjudögum kl. 16:00–17:30 og á
fimmtudögum kl. 17:00–18:30. Fé-
lagsgjald er kr. 5.000 fyrir vet-
urinn. Örfá pláss eru laus, áhuga-
samir geta haft samband við
kórstjóra í síma 820 8450 eða
587 9070. Kórstjóri er Oddný J.
Þorsteinsdóttir.
Kyrrðarstundir: Kyrrðarstundir
í Grafarvogskirkju verða í hádeg-
inu á miðvikudögum kl. 12:00 með
altarisgöngu og fyrirbænum. Boð-
ið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni.
Allir velkomnir. Þær hefjast mið-
vikudaginn 10. september.
Sorgarhópur: Hópur sem hittist
reglulega í nokkrar vikur og
fjallar um sorg og sorgarviðbrögð
mun starfa í vetur, líkt og síðast-
liðna vetur. Prestar kirkjunnar sjá
um skráningu í hópinn og hefst
starfið í janúar 2004 og verður 10
næstu mánudaga þar á eftir. Hóp-
urinn er ætlaður þeim sem hafa
misst nána ástvini.
Bænahópur: Á hverju sunnu-
dagskvöldi kl. 20:00 hittist bæna-
hópur í kirkjunni og er hann öll-
um opinn.
Námskeiðið „Að búa einn“ Und-
ir handleiðslu sr. Önnu Sigríðar
Pálsdóttur verður í janúar 2004
og ætlað þeim sem hafa gengið í
gegnum skilnað.
Al–Anon er með fundi á föstu-
dagskvöldum kl. 20:00.
AA-hópur hittist á laugardags-
morgnum kl. 11:00.
Morgunstund gefur gull í mund:
Alla virka daga aðventunnar verð-
ur boðið upp á friðar- og kyrrð-
arstundir í Grafarvogskirkju kl.
07:00–08:00 á morgnanna. Að
helgihaldi loknu gefst fólki kostur
á að snæða morgunverð í safn-
aðarsal kirkjunnar.
Símatímar prestanna eru frá
kl.11:00–12:00, þriðjudaga til
föstudaga, viðtalstímar eftir sam-
komulagi.
Símanúmer Grafarvogskirkju:
587 9070 Fax: 587 9267
Netfang: erna@grafarvogs-
kirkja.is
Sóknarnefnd, safnaðarfélag,
kórar, æskulýðsfélög, prestar og
aðrir starfsmenn Grafarvogs-
kirkju.
Vetrarstarf
Norðfjarðarkirkju
FJÖLBREYTT starf verður í
kirkjunni í vetur. Því er mikilvægt
að allur söfnuðurinn sé sem virk-
astur og taki þátt í öflugu safn-
aðarstarfi. Reynt er að ná til alls
safnaðarins með fjölþættum at-
höfnum.
Barnastarfið er einn mikilvæg-
asti þáttur starfsins okkar og því
mikilvægt að leggja áherslu á að
börnin sæki kirkju og leiti sam-
félags hvert með öðru, foreldrar
og börn, aldnir og ungir.
Starf tíu til tólf (TTT) ára verð-
ur áfram öflugt, og æskilegt að
efla unglingastarf einnig. Ferm-
ingarstarfið er mikilvægur þáttur
í fræðslunni um kirkjuna, lífið, um
alvöru og samhengi mannlífs í
gleði og sorg á daglegum vett-
vangi. Foreldrar eru hvattir til að
styðja við starf okkar með sýni-
legri þátttöku sinni.
Fjölskylduguðsþjónustur í vetur
eru með léttu sniði og byggjast á
framlagi barnanna að miklu leyti.
Þar koma nemendur Tónskólans
fram með tónlistaratriði og söng-
ur og gleði ríkir. Þetta er góð
stund sem gleður og eflir sam-
félag andans.
Um námskeið á vegum kirkj-
unnar er óskað eftir ábendingum
þeirra sem áhuga hafa en fjöl-
margt er í boði af hálfu kirkj-
unnar sem er bæði fróðlegt og
lærdómsríkt og eru áhugasamir
beðnir að hafa samband við sókn-
arprest.
Söfnun verður á vegum Hjálp-
arstarfs kirkjunnar og munu
fermingarbörn ganga í hús og
safna á sameiginlegum söfn-
unardegi um allt landið mánudag-
inn 3. nóv. kl. 18–20. Eru allir
beðnir um að taka þeim vel.
Viðtalstímar sóknarprests eru
sem hér segir: Í Safnaðarheimili á
þriðjudögum til föstudags frá kl.
13:00. Sími í Safnaðarheimili er
477 1766, sími heima 477 1127,
farsími 896 9878.
Sigurður Rúnar Ragnarsson.
Vetrarstarfið í
Hallgrímskirkju
UM þessar mundir er vetrarstarfið
í Hallgrímskirkju að hefjast.
Messa nk.
sunnudags ber þess merki, því
þá hefst barnastarfið, sem er með
þeim hætti, að börnin eru með í
messunni til að byrja með. Þau fá
síðan fræðslu og leik við hæfi. Í
messunni verður einnig kynnt allt
starfsfólk kirkjunnar og nýtt
starfsfólk sérstaklega boðið vel-
komið.
Á haustmánuðum (sept.-des)
verður sr. Sigurður Pálsson í
námsleyfi, en hann mun dvelja í
Kaupmannahöfn við nám og
skriftir. Við óskum honum vel-
farnaðar og biðjum góðan Guð að
blessa störf hans og fylgja þeim
hjónum á erlendri grund.
Í fjarveru sr. Sigurðar Páls-
sonar mun undirritaður sinna
sóknarprestsstörfum, en að auki
mun koma til liðs við okkur dr.
Sigurður Árni Þórðarson sem mun
þjóna sem prestur. Sigurður Árni
hefur verið verkefnisstjóri á bisk-
upsstofu, en áður hefur hann ver-
ið rektor Skálholtsskóla og þjónað
sem sóknarprestur. Dr. Sigurður
Árni mun prédika í messunni.
Þá verður boðin velkomin til
starfa Helga Vilborg Sigurjóns-
dóttir, en hún mun stjórna Barna-
og unglingakór Hallgrímskirkju í
vetur. Enn er hægt að skrá ný
börn í kórinn.
Ákveðið hefur verið að verða
við áskorunum um að tekin verði
samskot í messum í Hallgríms-
kirkju, eins og gert er í kirkjum
um allan heim. Næsta sunnudag
verður fjáröflunin kynnt og hafin.
Vetrarstarfið verður að öðru
leyti með nokkuð hefðbundnu
sniði, barna– og unglingastarf fyr-
ir börn á öllum aldri, ferming-
arfræðsla og hópastarf. Magnea
Sverrisdóttir djákni hefur umsjón
með barna- og unglingastarfinu
og og veitir frekari upplýsingar.
Fræðsla fyrir fullorðna verður
með nokkuð breyttu formi, en á
sunnudögum verða fræðslumorgn-
ar ekki lengur kl. 10.00, heldur
verður sunnudagsfundur kl. 13.00.
Þessir fundir verða í október og
nóvember með fjölbreyttu efni,
sem kynnt verður síðar. Þá verður
boðið upp á 7 vikna námskeið í
grundvallaratriðum kristinnar trú-
ar sem kallast Lifandi steinar.
Námskeiðið verður á fimmtudags-
kvöldum kl. 20-22 en einnig verð-
ur aukafundur og samvera hálfan
laugardag á miðju tímabilinu.
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 2.
október kl. 20.00. Nánari upplýs-
ingar hjá prestunum, en þeir
munu kenna á námskeiðinu og
stýra því.
12 spora starfið heldur áfram,
en fyrsti kynningarfundur verður
miðvikudaginn 24. sept. kl. 20.00,
en hóparnir verða starfræktir í
allan vetur. Umsjón hefur Sigrún
Ásgeirsdóttir.
Foreldramorgnar eru alla mið-
vikudaga kl. 10.00 undir stjórn
Dagbjartar Theodórsdóttur, sem
einnig stýrir öldrunarstarfi kirkj-
unnar, heimsóknarþjónustu, opn-
um húsum o.fl.
Kórastarfið er þegar hafið en
við kirkjuna starfa þrír kórar:
Barna- og unglingakór Hallgríms-
kirkju, sem þegar er getið, Mót-
ettukór Hallgrímskirkju og
Kammerkórinn Schola cantorum,
sem Hörður Áskelsson, kantor
kirkjunnar, stjórnar. Kórarnir
hafa reglulegar æfingar, syngja í
helgihaldi kirkjunnar og halda
tónleika, en tónleikahald í Hall-
grímskirkju er mjög fjölskrúðugt.
Listvinafélag Hallgrímskirkju er
20 ára gamalt og hefur skipulagt
mjög fjölbreytta listastarfsemi í
kirkjunni, svo sem tónleika, mynd-
listarsýningar, málþing o.fl. For-
maður félagsins er sr. Kristján
Valur Ingólfsson.
Kvenfélag Hallgrímssóknar er
elsta félag kirkjunnar og hefur
starfað mikið fyrir kirkjuna, búið
hana fallegum munum og haldið
uppi fjölbreyttu félagsstarfi. Kven-
félagsfundir eru fyrsta fimmtudag
hvers mánaðar. Formaður félags-
ins er Ása Guðjónsdóttir.
Það er von okkar að vetrarstarf
Hallgrímskirkju verði mörgum til
uppbyggingar, gleði og blessunar.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson.
Vetrardagskrá
Dómkirkjunnar
Á ÞESSUM vikum er vetrardag-
skráin okkar að falla í skorður.
Að vanda er hún fjölbreytt og tek-
ur til margra sviða aldurs og
áhugamála.
Dómkirkjuprestarnir sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson og sr. Hjálmar
Jónsson leiða safnaðarlífið.
Sunnudagsmessurnar kl. 11 eru
í fyrirrúmi safnaðarlífsins. Þar er
viðleitni okkar að leiða inn hressi-
legan blæ í trúareinlægni um leið
og við leitumst við að vera hefð-
inni trú. Dómkórinn leiðir sönginn
undir stjórn Marteins H. Friðriks-
sonar. Hann ber hitann og þung-
ann af tónlistarstarfi Dómkirkj-
unnar og ber þar hæst
Tónlistardagana um mánaðamót
október og nóvember. Hann
stjórnar einnig Kór Menntaskólans
í Reykjavík sem syngur við fáein-
ar guðsþjónustur á árinu.
Á sunnudagskvöldum kl. 20 eru
æðruleysismessur þriðja sunnudag
hvers mánaðar. Þær eru ætlaðar
öllum þeim sem hafa gert sér
gagn af „Sporunum tólf“ til þess
að ná framförum í lífi sínu. Að
þeim stendur hópur presta ásamt
dómkirkjuprestunum og frábært
tónlistarfólk. Fyrsta sunndag
hvers mánaðar eru kvöldmessur
kl. 20, stundir þar sem lögð er
áhersla á einlægni, nánd og kyrr-
láta gleði.
Á miðvikudögum eru hádeg-
isbænir kl. 12:10 og léttur máls-
verður á kirkjuloftinu á eftir.
Þetta eru tilvaldar kyrrðarstundir
fyrir fólk sem starfar í miðborg-
inni og getur tekið sér hlé um
miðjan dag til þess að næra sálina.
Á fimmtudögum er opið hús kl.
14–16 í Safnaðarheimilinu. Þessar
stundir eru einkum ætlaðar þeim
sem ekki eru lengur eða tíma-
bundið bundnir við vinnu á þess-
um tíma. Á þessum fundum er
fjölbreytt dagskrá, notalegar
kaffiveitingar, stutt helgistund og
stundum farið í stuttar ferðir eða
heimsóknir. Umsjónarmaður er
Anna Johannessen. Eldri borg-
Morgunblaðið/Jim SmartGrafarvogskirkja
Safnaðarstarf
Háteigskirkja. Eldri borgarar. Fé-
lagsvist á morgun í Setrinu kl. 13.
Pútt alla daga kl. 10 ef veður leyfir.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum alla
virka daga frá kl. 9–17 í síma
587 9070.
Grensáskirkja. Unglingastarf 9. og
10. bekkjar sunnudagskvöld kl.
19.30.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld
sunnudagskvöld kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti
601. Í kvöld er samkoma kl. 20.00.
Helga R. Ármannsdóttir talar. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Barnagæsla fyrir
1–7 ára börn á samkomutíma. Kaffi
og samfélag eftir samkomu. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
Fíladelfía. Brauðsbrotning kl.
11:00. Ræðumaður Robert Maas-
bach. Almenn samkoma kl. 16:30.
Ræðumaður Snorri Óskarsson. Mik-
il lofgjörð og fyrirbæn. Allir hjartan-
lega velkomnir.