Morgunblaðið - 07.09.2003, Síða 39
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 39
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/690 7361
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 847 5572
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Lára Hallveig Lárusdóttir 436 6889/436 1291/848 1022
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
NÚ ERU góð ráð dýr,því Jakob yngri ermjög svo erfiður við-fangs. Fræðimenn ívarkárari kantinum
segja, að líklega sé minnst um
hann vitað af öllum postulunum og
er þá mikið sagt, ef litið er til baka
og rifjað upp hversu ógreinileg
saga hinna flestra þó er. Hans sé
einungis getið fimm sinnum í Nýja
testamentinu, á listunum títt-
nefndum og einu sinni í framhjá-
hlaupi, þegar verið er að segja frá
móður hans. Svo ekki meir.
Jakob yngri (á grísku ho mik-
ros) var e.t.v. frá Kapernaum og
gæti hafa verið tollheimtumaður,
eða a.m.k. í opinberri þjónustu.
Arfsagnir segja hann af ættkvísl
Gaðs. Hann var sonur Alfeusar,
það er nokkuð ljóst, og e.t.v. Mar-
íu, ef það er rétt sem menn þykj-
ast geta lesið út úr torræðu orða-
lagi guðspjallanna, þar sem Alfeus
er talinn sami maður og Klópi;
seinna nafnið e.t.v. grísk umritun
á hinu fyrra, eða hann einfaldlega
með tvö heiti, eins og algengt var.
Heimild frá 2. öld segir Alfeus
hafa verið bróður Jósefs trésmiðs;
aðrir vilja á hinn bóginn meina, að
þær hafi verið systur, Maríurnar,
eða a.m.k. náskyldar.
Það sem gerir málið flóknara en
ella er að um a.m.k. þrjá Jakoba er
að ræða í Nýja testamentinu (auk
Jakobs Sebedeussonar) og erfitt
er að skilja á milli þeirra á stund-
um. Þetta eru umræddur Jakob
Alfeusson, Jakob, bróðir Drottins
(sbr. Galatabréfið 1:19), og Jakob
hinn réttláti. Sumir bæta hér við
öðrum fjórum.
Armenska kirkjan, og e.t.v.
fleiri í austri, og hin rómversk-
kaþólska líta svo á, að Jakobarnir
þrír séu einn og sami maður, og
vitna til Híerónýmusar kirkju-
föður (343–420) í því sambandi.
Gætnir menn benda hins vegar á,
að þessa bróður Dottins sé ein-
ungis getið tvisvar í guðspjöll-
unum (Matteusarguðspjall 13:55;
Markúsarguðspjall 6:3) undir
nafni, og að í Jóhannesarguðspjalli
(7:5) komi fram, að „jafnvel bræð-
ur hans trúðu ekki á hann [þ.e.
Jesú]“. Það hafi ekki breyst fyrr
en eftir upprisuna. Því sé dálítið
vafasamt að koma honum saman
við postulann Jakob yngri. Hins
vegar sé líklegra, að Jakob hinn
réttláti og bróðir Drottins hafi
verið sami einstaklingur, mátt-
arstólpi og fyrsti biskup safnaðar-
ins í Jerúsalemborg. Þetta er samt
engan veginn öruggt, og ýmislegt
tengir þann réttláta fremur post-
ulanum.
Jakob yngri var bróðir Jóse
nokkurs (sbr. Markúsarguðspjall
15:40) og jafnvel einnig Matteusar
postula, og er ýmist paraður við
Thaddeus eða Símon vandlætara.
Í apókrýfuritum er að finna upp-
lýsingar um einhvern Símon læri-
svein, og var hann Klópason. E.t.v.
er það vandlætarinn, og hann þá
einnig bróðir Jakobs yngri. Það
gæti útskýrt hvers vegna þeir
tveir eru paraðir saman. Allt er
þetta samt óljóst, og raunar hrein-
ar getgátur. Þá vilja sumir meina,
að postulinn Júdas (þ.e. Thaddeus,
en ekki Ískaríot) hafi verið bróðir
eða sonur Jakobs yngri.
Jakob yngri leiðir þriðju grúppu
innsta hrings postulanna, og er
þar með áðurnefndum Júdasi,
Símoni og Júdasi Ískaríot. Ýmsir
hafa gert því skóna, að fjórmenn-
ingarnir hafi allir verið meðlimir í
herskáum gyðinglegum flokki,
sem barðist gegn Rómverjum í
Palestínu þar til Jerúsalem féll ár-
ið 70, en um það verður ekkert
fullyrt.
Hvað varðar starfssvæði Jakobs
yngri og dauða hans er við sama
að glíma og áður, að ekki er mögu-
legt að greina í sundur hlut þessa
Jakobs og hinna. Palestína er þó
nefnd, og sagnir fara auk þess af
honum á Bretlandseyjum og Spáni
(þykir ósennilegt) og í Egypta-
landi, Sýrlandi (fyrsti biskup þess
lands) og Rússlandi, og um písl-
arvættisdauða hans einhvers stað-
ar í Persíu (krossfestur), eða Jerú-
salem (grýttur eða laminn til bana
með kylfu) árið 62. Jarðneskar
leifar hans voru fluttar til Konst-
antínópel á einhverjum tíma-
punkti og síðan árið 572 til Rómar,
að því er sagnir herma.
Jakob yngri er vernd-
ardýrlingur Úrúgvæ. Þekktasta
einkennistákn hans er (tré)kylfa
eða kjulla. Myndin sem þessum
pistli fylgir, eftir Georges de La
Tour (1593–1652), franskan bar-
okklistmálara, er með það að leið-
arljósi. Önnur tákn eru bók og sög.
Nafnið Jakob er upphaflega
sótt til Gamla testamentisins og er
úr hebresku, Yaakov. Í bókinni
Nöfn Íslendinga segir:
Nafnið kemur fyrir í Landnámu og Heims-
kringlu en nafnberar voru erlendir. Það
kemur fyrir í nafnatali séra Odds á Reyni-
völlum frá 1646 … Þetta nafn hefur verið
notað í öllum nálægum málum frá því á mið-
öldum. Það er vel þekkt í Danmörku frá 12.
öld. Ensk mynd nafnsins er Jacob, dönsk,
norsk, sænsk og þýsk Jakob, ítölsk Giàcomo,
Jàcopo, finnsk Jaako, frönsk Jacques … Í
síðlatínu tíðkast myndin Iacomus sem hlið-
armynd við Iacobus.
Við þetta má svo bæta, að af síð-
latnesku myndinni kemur James
(í gegnum forn-frönsku), en þann-
ig er hann nefndur í útgáfum Nýja
testamentisins á enskri tungu.
Hinn 21. desember 2001 voru 435
Íslendingar sem báru nafnið Jak-
ob sem fyrsta eiginnafn og 136
sem annað.
Messudagur Jakobs yngri (og
Filippusar; á íslensku Tveggja-
postulamessa) er 1., 3. eða 11. maí
í vesturkirkjunni, en 9. október og
14. nóvember í austurkirkjunni.
Jakob yngri
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Jakob yngri eða minni
eða litli er svo nefnd-
ur vegna þess, að ann-
ar var honum eldri,
meiri eða hærri; Jakob
Sebedeusson. Sig-
urður Ægisson fjallar
í dag um postulann
sem er níundi á list-
um guðspjallanna og
Postulasögunnar og
leiðir þriðja hópinn.
Lærisveinarnir 12
KIRKJUSTARF
ararnir hafa kunnað vel að meta
þetta tilboð um samfélag. Fyrsta
og þriðja fimmtudag hvers mán-
aðar eru prestarnir með helgi-
stundir á Vesturgötu 7.
Safnaðarfélag Dómkirkjunnar
er með dagskrá eftir messu annan
sunnudag hvers mánaðar. Þar eru
á dagskrá í vetur áhugaverðir fyr-
irlesarar og svo er svo notalegt á
þessum fundum. Formaður félags-
ins í vetur er Ingibjörg Hjaltadótt-
ir.
Barnastarf Dómkirkjunnar hef-
ur vaxið mjög á undanförnum ár-
um og eru nú í gangi fimm hópar
barna sem hittast í hverri viku
auk barnasamkomu við hlið mess-
unnar á sunnudagsmorgnum. Þar
er að venju sungið saman, horft á
brúðuleikrit og farið í leiki svo
eitthvað sé nefnt. Að stundinni
lokinni er svo kaffi þar sem for-
eldrar og börn eiga góða stund
saman. Í vetur verður áfram boðið
upp á kirkjustarf í samvinnu við
Vesturbæjarskóla og frístunda-
heimilið Skýjaborgir fyrir 1.–3.
bekk. Þá hittast á miðvikudögum
tveir hópar 9–12 ára barna í Safn-
aðarheimilinu. Að auki heimsækir
æskulýðsfulltrúinn okkar Hans G.
Alfreðsson flesta leikskólana í
sókninni mánaðarlega.
Unglingastarf er í samvinnu við
Neskirkju í æskulýðfélaginu
NEDÓ sem starfar í tveimur deild-
um sem hittast í Neskirkjukjall-
aranum á fimmtudagskvöldum.
Fermingarundirbúningur hófst
með viku námskeiði í ágúst og er
dagkrá fyrir fermingarbörnin all-
an veturinn fram að fermingum í
vor.
Auk þessa alls eru svo hátíðir
um ársins hring og sérstök verk-
efni sem lyfta starfinu og auka á
fjölbreytni og kraft safnaðarlífs-
ins.
Þetta allt er mikið komið undir
starfsliði okkar og embættisfólki
en þó fyrst og fremst þeim sem
þekkjast vilja þessi tilboð um þjón-
ustu.
Sóknarnefndin undir for-
mennsku Auðar Garðarsdóttur
skapar þessu starfi fjárhagslegan
ramma og félagslegan bakhjarl.
Kirkjuhaldari hjá okkur er Ást-
björn Egilsson og kirkjuvörður er
María Björk Traustadóttir. Sími
kirkjunnar er 520 9700 og á
heimasíðu okkar www.domkirkj-
an.is eru þessar upplýsingar að-
gengilegar ásamt miklu öðru efni.
Prestar og starfsfólk Dómkirkj-
unnar bjóða alla hjartanlega vel-
komna.
Bjöllukór Fríkirkj-
unnar í Reykjavík
BJÖLLUKÓR Fríkirkjunnar er nú
að hefja sitt annað starfsár. Í
bjöllukórnum er ungt og hæfi-
leikaríkt tónlistarfólk sem er að
takast á við skemmtileg og krefj-
andi viðfangsefni.
Æfingar bjöllukórsins verða á
þriðjudögum klukkan 17:00 í safn-
aðarheimili Fríkirkjunnar. Við
getum enn bætt í hópinn. Ef þú
hefur áhuga hafðu þá samband við
kórstjóra bjöllukórsins, hana Hel-
enu Mörtu Stefánsdóttur, í síma
867 6409 eða í gegnum netfangið
frikirkjan@frikirkjan.is
Kynningarfundur á
tólf spora starfi
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 8. sept-
ember kl. 20:00 verður kynnt
mannræktarstarf sem nú ryður
sér óðum til rúms innan kirkj-
unnar, þar sem fólk fetar sig eftir
hinni kunnu tólfsporaleið og vinn-
ur með tilfinningar sínar. Unnið
er í smáum hópum, þar sem gagn-
kvæmt traust og nafnleynd ríkir.
Hér er um einstakt tækifæri að
ræða fyrir allt fólk sem vill vaxa
hið innra með markvissum hætti
og þiggja styrk trúarinnar og
reynslu annarra í veganesti. Hóp-
arnir hittast hvert mánudagskvöld
kl. 20:00 í Laugarneskirkju.
Kynningarfundurinn 8. sept-
ember er öllum opinn að kostn-
aðarlausu, gengið er inn um að-
aldyr kirkjunnar.