Morgunblaðið - 07.09.2003, Síða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 41
Fjallað verður um lækningamátt íslenskra
jurta og kennt að búa til jurtasmyrsl.
Verð 14.900.
Takmarkaður þátttökufjöldi.
Skráning: grasalaeknir@hotmail.com.
Einnig einkaviðtöl og ráðgjöf.
Anna Rósa Róbertsdóttir Dip. Phyt.,
grasalæknir og ilmolíunuddari,
hs. 552 2991 – gsm 697 3760
Íslenskar lækningajurtir
Námskeið verður haldið 15. og 22. september kl. 20.00-22.00
Leiðbeinendur: Unnur Jónsdóttir og Árný Helgadóttir,
hjúkrunarfræðingur og íþróttaþjálfari.
Skráning og upplýsingar í síma 899 8199 eða 561 8199
mánudaginn 8. september frá kl. 9—12 og
þriðjudaginn 9. september frá kl. 9—12.
Netfang kraft@isl.is.
KRAFTGANGA Í ÖSKJUHLÍÐ
• Frískt loft eykur ferskleika
• Útivera eykur þol
Alhliða líkamsþjálfun jafnt fyrir
byrjendur sem lengra komna
Boðið verður upp á þrenns konar tíma:
A — tími fyrir byrjendur og lítt þjálfaða.
B — tími fyrir þá sem komnir eru af stað í þjálfun.
C — tími fyrir þá sem vanir eru líkamsþjálfun.
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is
• Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16.
GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ!
Tilboðsdagar
Rúmfatnaður .................................... 10-70% afsláttur
Frotté- og jersey lök........................ 30% afsláttur
Matardúkar og servéttur.................. 20% afsláttur
Ungbarnafatnaður .......................... 50% afsláttur
Lyocell það nýjasta í rúmfatnaði .. 20% kynningaverð
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur.
Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en
við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:
Traust jarðverktakafyrirtæki á Austurlandi óskar eftir duglegum og heið-
arlegum meðeiganda sem hefur reynslu á þessu sviði. Viðkomandi
verður að leggja fram a.m.k. 10 m. kr. í peningum. Mjög góð verkefna-
staða og mikil tækifæri framundan.
Ein besta lúgusjoppa landsins. Mikil sala í grilli. Góður hagnaður.
Tveir taílenskir skyndibitastaðir ásamt ísbúð. Mikil velta og ört vaxandi.
Vélaverkstæði í Keflavík með alhliða málmsmíði. Vel tækjum búið.
Lítil heildverslun með prenthylki o.fl. Góð framlegð. Fyrirtækið er í dag
með næga veltu til að framfleyta eiganda en auðvelt er að stækka það
verulega.
Gott fjárfestingartækifæri. Stórt hótel á landsbyggðinni í öruggri útleigu.
Skipti á fasteign í Reykjavík koma til greina.
Hálendismiðstöðin Hrauneyjum er fáanleg til rekstrarleigu með kaup-
rétti. Gisti- og veitingastaður með mikla sérstöðu og góðan rekstur.
Mjög gott tækifæri fyrir samhenta fjölskyldu sem hefur gaman af há-
lendinu og langar að eignast eigið fyrirtæki.
Gott fyrirtæki með flúðasiglingar til sölu að hluta eða að öllu leyti. Mikill
vöxtur - miklir möguleikar.
Þekkt heildverslun með tæki og búnað fyrir byggingaverktaka.
Rammamiðstöðin, Síðumúla, óskar eftir sameiningu eða samstarfi við
rekstur sem fer saman við rammagerð - gallerí.
Lítil en þekkt heildverslun með trésmíðavélar o.fl. Góð umboð. Tilvalið
fyrir trésmið sem vill breyta um starf.
Sérverslun með vörur til víngerðar. Eigin innflutningur.
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100—1000 m. kr.
Glæsileg snyrtivöruverslun á Laugavegi. Eigin innflutningur að hluta.
Þekkt sérverslun með 100 m. kr. ársveltu. Rekstrarhagnaður 14 m. kr.
Mjög gott bakarí í stóru sveitarfélagi á landsbyggðinni.
Lítil en góð heildverslun með gjafavöru, tilvalið fyrir 1—2 eða sem við-
bót við annan rekstur. Auðveld kaup.
Þekkt og rótgróin gjafavöruverslun með mjög vandaðar vörur.
Gæludýraverslun í Keflavík. Skemmtilegt tækifæri fyrir dýravini.
Vörubílaverkstæði með föst viðskipti. Auðveld kaup.
Rótgróinn lítill matsölustaður í Hafnarfirði. Mjög gott fyrirtæki fyrir kokk
eða fólk sem kann að elda góðan heimilismat.
Höfum ýmis góð sameiningartækifæri fyrir stærri fyrirtæki.
Stór og þekkt brúðarkjólaleiga með ágæta afkomu. Miklir möguleikar.
Ísbúð, myndbönd og grill á góðum stað í austurbænum. Gott tækifæri.
Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu
fyrirtækjadeildar: www.husid.is
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
Auðbrekka 2 • 200 Kópavogi • Sími 517 5556
Netfang: syngjum@syngjumsaman.is
Veffang: syngjumsaman.is
Regnbogakórinn/framhald
Kórnámskeið fyrir þá sem langar að læra meira.
Kynning á vetrarstarfinu 8/9 kl. 19.00.
Dægurkórinn/Lengra komnir
Inntökupróf eru í þennan hóp.
Kynning á vetrarstarfinu 10/9 kl. 19.00.
Söngdagskrá hópanna samanstendur m.a. af þjóðlegum
sönglögum frá ýmsum heimshornum, jólasöngvum
og léttum gospelsöngvum.
Söngstjóri: Esther Helga Guðmundsdóttir.
Meðleikari: Katalin Lörinz.
Innritun í síma 517 5556 á skrifstofutíma
Söngnámskeið fyrir unga og aldna,
laglausa sem lagvísa!
12 vikna hópnámskeið fyrir byrjendur.
Kennsla hefst 16/9.
Til sölu 40 feta
high-cube álfrystigámur
í góðu ástandi.
Upplýsingar í síma 588 8895, Guðfinnur.
FRYSTIGÁMUR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá ASÍ og fjórum
landssamböndum þess. Tilefnið er
ummæli sem utanríkisráðherra og
formaður Framsóknarflokksins lét
falla á fundi á Egilsstöðum og birt
voru í fréttatíma Stöðvar 2 um
gagnrýni sem sett hefur verið fram
í tengslum við byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar.
„Alþýðusambandið og landssam-
bönd innan þess hafa stutt ákvarð-
anir stjórnvalda um virkjunarfram-
kvæmdir við Kárahnjúka. Þessi
stuðningur byggir á því að starfs-
menn við þessar framkvæmdir njóti
réttinda og kjara í samræmi við ís-
lensk lög og kjarasamninga og þær
reglur og venjur sem gilda á ís-
lenskum vinnumarkaði.
Fullt tilefni hefur því verið fyrir
þeirri gagnrýni sem sett hefur verið
fram gagnvart ítalska fyrirtækinu
Impregilo að því er varðar bág
launakjör erlendra starfsmanna, að-
búnað á vinnusvæðinu og fram-
göngu þess í samskiptum við starfs-
menn og fulltrúa þeirra.
Fyrirtækið hefur vanefnt skyldur
sínar samkvæmt Virkjunarsamn-
ingi. Þess í stað hefur fyrirtækið
tekið upp nýtt launakerfi á virkj-
unarsvæðinu gagnvart erlendum
starfsmönnum. Við þá framkvæmd
hefur það notið aðstoðar lögmanns
síns Þórarins V. Þórarinssonar.“
„Það er því mjög athyglisvert eft-
ir allt sem að framan er lýst, lög-
legri og málefnalegri gagnrýni
verkalýðshreyfingarinnar, og ítrek-
uðum vanefndum fyrirtækisins að
formaður Framsóknarflokksins telji
tilefni við þessar aðstæður að færa
þessu fyrirtæki sérstakar þakkir.“
Athugasemdir vegna um-
mæla utanríkisráðherraNýliðakynning Björgunarsveit-arinnar Ársæls verður miðvikudag-
inn 10. september verður kynning-
arfundur fyrir tilvonandi nýliða hjá
Björgunarsveitinni Ársæli. Fund-
urinn verður haldinn í húsnæði
sveitarinnar að Suðurströnd 7 á Sel-
tjarnarnesi (stórt hvítt hús við smá-
bátahöfnina í Bakkavör) og hefst kl.
19. Kynning verður á búnaði og
starfsemi sveitarinnar og rætt um
fyrirkomulag nýliðastarfs komandi
vetrar ásamt því sem boðið verður
upp á léttar veitingar.
Allt starf Björgunarsveitarinnar
Ársæls er unnið í sjálfboðavinnu og
eru yfir 200 manns skráðir félagar í
sveitinni.
Evrópsk málstofa um samþætt-
ingu kynja- og jafnréttissjón-
armiða verður haldin þriðjudaginn
9. september kl. 9.45 - 18, í Korn-
húsinu, Árbæjarsafni. Málstofan er
haldin í tengslum við vinnufund í
ESB verkefni um samþættingu, sem
fram fer hér á landi, en í verkefninu
eru samstarfsaðilar frá Grikklandi,
Þýskalandi, Möltu, Danmörku,
Austurríki, Eistlandi og Íslandi.
Þessir samstarfsaðilar eru ýmist úr
stjórnsýslu viðkomandi landa, op-
inberum stofnunum, háskólasamfé-
lagi og rannsóknarstofum eða frjáls-
um félagasamtökum. Af Íslands
hálfu tekur jafnréttisnefnd Reykja-
víkurborgar þátt í verkefninu.
Meðal fyrirlesara eru Heidemarie
Wünsche-Piétzka sem hefur reynslu
af ráðgjöf innan ESB um samþætt-
ingu, Christiana Weidel sem stýrt
hefur samþættingarverkefnum á
vegum opinberra aðila í Austurríki,
Renée Laiviera sem ber ábyrgð á
samþættingu í aðlögun Möltu að
Evrópusambandinu og Peter Uss-
ing, ráðgjafi um samþættingu á
Center for Ligestilling innan há-
skólans í Hróarskeldu.
Málstofan fer fram á ensku og er
öllum opin. Aðgangsgjald er kr.
7000 og er hádegisverður í Dillons-
húsi og kaffi innifalinn. Skráning
berist til hildur@rvk.is.
Ljósmyndanámskeið Í haust og
vetur verða haldin ljósmynd-
anámskeið í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi á vegum ljósmyndari.is
og eru í boði bæði helgarnámskeið
og 8 vikna námskeið í ljósmyndun.
Námskeiðin eru annars vegar fyrir
eigendur stafrænna myndavéla og
hins vegar fyrir þá sem eiga venju-
legar filmuvélar. Leiðbeinandi er
Pálmi Guðmundsson.
Á helgarnámskeiðum verður farið í
að velja réttu tækin og meðferð
þeirra, farið verður í grunnatriði
ljósmyndatækni, myndatökur og
myndbyggingu o.fl. Kennt verður
laugardag og sunnudag frá kl. 13 til
17. Á kvöldnámskeiðunum verður
m.a. myndataka, myndbygging,
meðferð tækja o.fl. Kennt verður
frá kl. 20–22, alls 16 klst.
Þá er einnig í boði fjarnámskeið í
ljósmyndun. Í boði eru tvö mismun-
andi námskeið; annars vegar fyrir
eigendur stafrænna myndavéla og
hina sem nota hinar hefðbundnar
filmuvélar. Fjarnámskeið er opið
fyrir hvern nemanda í alls 90 daga.
Skráning og nánari upplýsingar er
að finna á vefsíðunni www.ljos-
myndari.is
Á NÆSTUNNI
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111