Morgunblaðið - 07.09.2003, Page 47

Morgunblaðið - 07.09.2003, Page 47
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 47 Opið hús: laugardag 6/9 kl. 10 - 16sunnudag 7/9 kl. 11 - 16 Hér erum viðbrautatasgata gu r Ba ró ns stí gu r álsgataugata Skarphéð.gKarlagVífilsg MánagSkeggj Sn or ra br au t Ra uð ar ár st íg ur Þv er ho lt Ei nh oltMeða Stórholt Stangarho Skipholt Brautarholt Nó at ún Laugavegur Hátún Miðtú Samtú Borg H öf ða tú n Sæt únSkúlatún Skúlagata Steintún HLEMMUR M jö ln is h. Eldaskálinn Brautarholti 3 105 Reykjavík Sími: 562 1420 www.invita.com Möguleiki á allt að 30 ára veðláni* frá SPRON. Lánið getur náð yfir fullfrágengið eldhús með tækjum, flísum, gólfefnum, málningu og uppsetningu. Vegna breytinga á skápastærðum bjóðum við allar sýningarinnréttingar okkar, bæði eldhús og bað, með afslætti. Komdu og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig. Draumaeldhúsið þitt á 10-20.000,- á mánuði INVITA Innréttingar á allt að 30 ára láni Óttipunkturcom (FearDotCom) Hrollvekja Bandaríkin 2002. Skífan VHS/DVD. Bönnuð inn- an 16 ára. (102 mín.) Leikstjórn William Malone. Aðalhlutverk Stephen Dorff, Natascha McElhone, Stephen Rea. ÞEIR sem séð hafa Hringinn (Ringu/ Ring) reka sig náttúrlega strax á hversu stolin þessi hugmynd er. Munurinn er bara sá að í stað þess að vera dauða- dæmd eftir að hafa séð eitthvað mynd- band þá eru fórnarlömb- in nörruð til að kíkja á heimasíðuna feardotcom.. Og handritið er ekki bara ófrumlegt heldur er það algjör steypa, algjör rök- leysa, jafnvel þótt tekið séð með í reikninginn hversu mikil rökleysa fléttan er yfir höfuð. Leikurinn er líka með því verra sem maður hefur séð og á það við alla; Dorff, McElhone og hinn annars ágæta Íra, Rea. Miðað við alla þessa stóru, stóru galla er merkilegt að sjá hversu magnað útlit er á myndinni; ekki einasta drungalegt heildarútlitið heldur ekki síst hrollvekj- andi myndskeiðin sem bókstaflega valda dauða fórnarlambanna. Minna svolítið á myndböndin með Marilyn Manson. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Netdauði TOMAHAWK er enn eitt verkefnið sem hinn ofurduglegi Mike Patton tekur þátt í en hann þandi eitt sinn raddböndin með hinni framsæknu og vinsælu Faith No More sem reið röftum á tíunda áratugnum með sér- stöku og tilraunkenndu þungarokki sem þó átti greiða leið á útvarpsbylgjur einhverra hluta vegna. Eftir að Faith No More hætti stofnaði Patt- on fljótlega útgáfuna Ipecac (sem hef- ur gefið út plötur með Melvins, Isis, Ruins, Sensational, Young Gods o.fl.) og hóf að sinna hliðarverkefninu Mr. Bungle af meiri einurð en áður. Þá stofnaði hann sveitina Fantomas með Buzz Osbourne úr Melvins, Trevor Dunn úr Mr. Bungle og Dave Lomb- ardo, fyrrverandi trommuleikara úr Slayer. Einnig hefur hann sinnt jafn- ólkum verkefnum og að flytja óhljóða- list sem Maldoror (ásamt Masami Akita úr Merzbow) og verið gestur hjá Sepultura, Kronos Quartet, The Boo-Yaa T.R.I.B.E., Melt-Banana og Dillinger Escape Plan. Svo hefur hann gefið út sólóplötur undir merki avant garde-gúrúsins Johns Zorn, Tzadik, og unnið með hipp-hopp-lista- maninum Dan The Automator (tók upp Gorillaz). Listinn virðist enda- laus. Tomahawk, sem er einhvers konar blanda af Mr Bungle og Faith No More, hefur líkt og Fantomas á að skipa rokkhetjum miklum. Á tromm- um er John Stanier (fyrrum Helmet) á bassa er Kevin Rutmanis (Melvins, var áður í The Cows) og gítarleikari er Duane Denison (var áður í The Jesus Lizard). Reyndar er Tom- ahawk upphaflega runnið undan rifj- um Denisons en á nýju plötunni, Mit Gas, er þetta orðið meira að band- verkefni og sérstakleg fær Patton að leika lausum hala. Það var skondið hvernig þetta við- tal bar að. Ofurbransalegur umboðs- maður, grásprengdur og í jakkafötum kom askvaðandi að þeim tíu manna hópi sem vonaðist til að krækja í við- tal við Tomahawk og allir með augun á Patton náttúrulega. Og ég held svei mér þá að það hafi verið einn af topp- unum fyrir mig á hátíðinni er ég náði að hrista spaðann á Patton! Honum var hins vegar óðar skipað í viðtal með einhverjum „stærri“ aðila (Ath. á Hróarskeldu var ég fyrst og síðast aumingi frá Íslandi, þ.e. í fjölmiðla- legu tilliti) áður en umboðsmaðurinn æpti: „Jæja, vill einhver annar fá við- tal“. Ég rak óðar upp hendina og kallaði: „Ég, ég!“ „Allt í lagi,“ hreytti umbinn þá út úr sér. „Þú færð Kevin hérna. Hann er þinn í tíu mínútur. Og hagið ykkur vel!“ Ansans…ég fékk þann ófrægasta! Jæja, hvað um það. Gerum bara gott úr þessu… Rennur mjúklega Jæja, hvað eruð þið að pæla með þessu Tomahawk-dæmi? „Við þekkjumst allir og höfum gert í gegnum tíðina. Duane vildi stofna nýtt band og setti sig í sam- band við Mike. Duane setti sig því- næst í samband við John og svo tal- aði Mike við mig. Og þetta small saman.“ Og hvernig þekkir þú Patton? „Ég kynntist honum út af Fant- omas. Þá var ég nýgenginn til liðs við Melvins (’98) og þeir voru að æfa í sama húsnæði og við.“ Hvernig er að vinna með Patton, hann virðist afar ör og vinnusamur náungi? „Já, það má sannarlega segja það. En við erum búnir að vinna svo lengi saman núna að maður pælir ekki í því lengur. Núna vita allir hvað þeir eiga að gera og þetta rennur mjög mjúklega allt saman.“ Nú ert þú fastur meðlimur í Melvins. Hvað var það sem knúði þig til að ganga í annað band líka? „Það sem ég kann að meta við þetta er hversu ólíkar sveitirnar eru. Þetta tækifæri til að fá að gera eitthvað allt annað höfðar sterkt til mín.“ Myndir þú segja að Tomahawk væri „súpergrúppa“? „Ég lít nú ekki á þetta þannig. Mér finnst hins vegar fínt að allir komi úr mismunandi áttum.“ Sérðu það fyrir þér að Tomahawk muni verða aðalbandið ykkar allra? „Nei. Þetta gengur fínt eins og það er.“ Er von á þriðju Tomahawk-plöt- unni? „Ekki strax. Mit Gas var að koma út og við ætlum að fylgja henni eitthvað eftir.“ Hvernig gengur svo að sam- ræma tímann? „Það er auðvitað pínu vinna en það gengur alveg upp. Þannig býr John í New York, Duane í Nash- ville, ég í L.A. og Mike í San Frans- isco! En ég elska að spila á tón- leikum. Það er því rosa gaman að spila með tveimur böndum á hátíð- inni, þ.e. Melvins og Tomahawk. Það er bara stuð. Það er stuð að túra.“ Hróarskelduviðtalið: 5. hluti Tomahawk Tomahawk er einhvers konar ofurband þekktra og sjóaðra nýbylgjuklára, leidd af Mike Patton, fyrrverandi Faith No More-liða. Arnar Eggert Thoroddsen talaði við Kevin Rutmanis, bassaleikara sveitarinnar. Tomahawk: (f.v.) Mike Patton, Kevin Rutmanis (með hendur á lofti), John Stanier (sitjandi), Duane Denison. -www.roskilde-festival-dk -www.ipecac.com arnart@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.