Morgunblaðið - 26.09.2003, Síða 1
KOFI Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
hefur skipað sumum starfs-
mönnum samtakanna í Írak að
yfirgefa landið til bráðabirgða.
Fred Eckhard, talsmaður
Annans, sagði, að brottflutn-
ingurinn hefði hafist í gær og
þegar honum lyki, yrðu aðeins
fáir starfsmenn eftir en þeir
voru 650 fyrir árásina á aðal-
stöðvar SÞ í Bagdad í síðasta
mánuði. Talsmenn SÞ segja, að
ákvörðun Annans sé áfall fyrir
Bandaríkjastjórn og líkleg til
að grafa undan tilraunum
hennar til að fá SÞ til að taka
meiri þátt í uppbyggingunni í
Írak.
Starfsemi
SÞ í Írak
minnkuð
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að loka sex
skálum Ferðafélags Íslands við svo-
nefndan Laugaveg í vetur vegna
slæmrar umgengni um þá, en gæsla
er ekki í skálunum að vetri til. Úti-
vist hefur þegar lokað sínum skálum.
Um er að ræða skála FÍ í Land-
mannalaugum, við Hrafntinnusker,
Álftavatn, Hvanngil, Emstrur og
Langadal í Þórsmörk. Í hverjum
skála verður þó opið neyðarathvarf
sem hægt verður að komast í.
Elín Björk Jóhannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags Íslands,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
þau hafi orðið að loka skálunum
vegna slæmrar umgengni, auk þess
sem fólk noti aðstöðu sem það eigi að
borga fyrir án þess að gera það.
Á undanförnum árum hefur um-
Útivist hefur
þegar lokað
sínum skálum
gengni um skála félagsins verið mjög
slæm og virðist fara versnandi og
miklar skemmdir hafa verið unnar í
sumum þeirra.
Engir skálaverðir hafa verið í
skálum á veturna það heyrir til und-
antekninga að þeir sem nýta sér
skálana að vetrarlagi, greiði fyrir af-
notin. „Það virðist vera til fólk sem
telur sér hvorki skylt að virða eign-
arrétt annarra né að ganga sóma-
samlega um. Félagið telur sér ekki
lengur fært að hafa skála sína opna
a.m.k. á meðan ofangreind viðhorf
virðast ríkjandi hjá hluta þeirra sem
ferðast um hálendið utan gæslutíma.
Þeir sem hyggjast nýta sér skálana
verða því framvegis að koma á skrif-
stofu félagsins og fá lykla að skálum
sem þeir vilja gista í,“ segir í tilkynn-
ingu Ferðafélagsins.
Þolinmæði félagsmanna þrotin
Fram kemur að skálar félagsins
við Langjökul og á Kili verði opnir
enn um sinn en ef umgengni batni
ekki verði þeim einnig læst í náinni
framtíð. „Félagið hefur í lengstu lög
frestað því að fara þessa leið en nú er
svo komið að þolinmæli félagsmanna
er þrotin en þeir leggja mikið á sig í
sjálfboðavinnu við nýbyggingar og
viðhald skálanna,“ segir ennfremur.
Neyðarskjól
„ÉG held að það sé mjög áríðandi
að fólk geti komist í þessi hús í
neyðartilfellum að sumri til jafnt
sem vetri,“ segir Jón Gunnarsson
formaður Slysavarnafélagsins
Landsbjargar um ákvörðun FÍ.
Hann segist þó hafa skilning á þess-
ari ákvörðun enda sé slæm um-
gengni ferðafólks vandamál. „Við
þekkjum þetta vel sjálf í neyð-
arskýlum okkar víða um landið, þar
sem umgengnin getur stundum ver-
ið alveg hrikaleg og skemmdarfýsn
ræður stundum ferðinni.“
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
STOFNAÐ 1913 260. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Mikilvægasta máltíð dagsins
Langsokkar
í tísku
Lína leggur línuna fyrir
veturinn | Daglegt líf 22
Ívar Örn leikari hefur eignast
lítinn pabbastrák | Fólkið 8
Með
sínu nefi
Gestirnir syngja hástöfum með
KK og Magga | Fólk í fréttum 47
Lítill kútur
pabbastráks
SÆNSKA lögreglan virðist sannfærð um, að
hún hafi í haldi morðingja Önnu Lindh, utanrík-
isráðherra Svíþjóðar. Hefur hún að sögn góðar
sannanir gegn honum og ætlaði nú í morgun að
fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir
honum.
„Við teljum okkur hafa upplýst málið,“ hafði
sænska fréttastofan TT eftir heimildamanni
innan lögreglunnar. „Það er alveg ljóst, að þessi
24 ára gamli maður er morðinginn.“
TT, Expressen og fleiri fjölmiðlar segja, að
DNA-greiningu á hári, sem fannst í derhúfu við
morðstaðinn, og á hári mannsins beri saman.
Búist er við, að lögreglan birti í dag myndir
af manninum en fjölmiðlar segja, að hann sé af
júgóslavneskum ættum en fæddur í Svíþjóð.
Hafi hann átt mjög erfiða æsku. Er hann var
sex ára voru hann og systir hans send til ætt-
ingja í Júgóslavíu en síðan aftur til Svíþjóðar
sjö árum síðar. Hafi hann þá verið búinn að
gleyma sænskunni að miklu leyti og orðið út-
undan í skóla. Hafi þá strax farið að bera á sál-
rænum erfiðleikum hjá honum.
Á heimili hans var ástandið ekki betra því að
faðir hans var drykkfelldur og misþyrmdi móð-
ur hans. Fyrir sjö árum stakk hann föður sinn
með eldhúshnífi og kvaðst þá furða sig á því, að
hann hefði ekki gert það fyrr. Hefur maðurinn
margsinnis komist í kast við lögin og fjölmiðlar
hafa það eftir ættingjum hans, að hann hafi oft
talað um að drepa einhvern og síðan sjálfan sig.
Lögmaður mannsins sagði í gær að hann
neitaði sök en honum er haldið í sama klefa og
Per Olof Svensson, sem sleppt var í fyrradag.
Rannsókn lögreglunnar á morði Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar
„Teljum málið upplýst“
Stokkhólmi. AP, AFP.
AP
Lögreglumaður með ýmislegt sem lagt var hald á við húsrannsókn á heimili mannsins sem nú er í haldi.
Hugleiðir/14
Aukið
öryggi –
hærra verð
HÁVÆRAR kröfur eru um það í
Danmörku, að öryggið í raforku-
dreifingu verði aukið til að raf-
magnsleysið þar og í Suður-Svíþjóð
síðastliðinn þriðjudag endurtaki sig
ekki. Sérfræðingar segja hins vegar,
að það þýddi hærra orkuverð.
Að því er fram kemur í dönskum
fjölmiðlum, meðal annars Jyllands-
Posten, stangast krafan um aukið ör-
yggi á við það markaðsumhverfi,
sem orkufyrirtækin búa nú við.
Arðsemin í fyrirrúmi
„Áður en raforkukerfið var einka-
vætt, var lögð áhersla á öryggi í bak
og fyrir en nú verða fyrirtækin að
taka tillit til markaðarins og arðsem-
innar. Ef kerfið ætti að vera búið
undir aðstæður eins og þær, sem
voru á þriðjudag, röð óhappa, sem
leiddu til rafmagnsleysisins, yrðu
neytendur einfaldlega að borga
miklu hærra verð fyrir orkuna,“
sagði Kaare Sandholt, upplýsinga-
stjóri hjá Elkraft.
Þessi mál hafa verið til umræðu á
þingi og þar hafa komið fram hug-
myndir um, að ríkið borgi fyrirtækj-
unum fyrir að styrkja dreifikerfið.
AP
Ráfað um í rafmagnsleysi í aðaljárn-
brautarstöðinni í Kaupmannahöfn.
FÍ lokar sex fjallaskálum
vegna slæmrar umgengni ÖFLUGUR jarðskjálfti, líklega 8stig á Richter, reið yfir Hokkaido-eyí Norður-Japan í gærkvöld að ísl.tíma. Var fólk í strandbyggðunum
varað við hugsanlegri flóðbylgju.
Skjálftinn átti upptök sín undan
austurströnd Hokkaido og olli því, að
byggingar riðuðu til og fréttir voru
um, að á annað hundrað manns hefði
slasast. Þá kviknaði í geymi í olíu-
hreinsunarstöð og lagði mikinn reyk
frá eldinum.
Jarðskjálfti
upp á 8 stig
Tókýó. AP.